Morgunblaðið - 13.04.1997, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 33
SKOÐUIM
fyrr en nú hin síðustu ár, er búseta
þeirra var loks ákveðin með lögum,
svo sem kunnugt er. Hins vegar hef-
ur verið hik og jafnvel málþóf ef
rætt er um að ætla þeim það hlut-
verk, sem þeir eru vígðir til. Senni-
lega á það viðhorf rætur að rekja til
þess upphaflega hlutverks, sem sjálf-
stæðisbaráttumenn í byijun þessarar
aldar höfðu í huga. Vígslubiskupun-
um var þá ætlað það hlutverk helst,
að vígja nýjan biskup, svo ekki þyrfti
að leita til Danmerkur, „eins og stæði
kirkja vor undir dönsku kirkjunni“.
Tilgangur embættanna er nú að sjálf-
sögðu allt annar en í upphafi. Nú eru
aðstæður í landinu og í kirkjunni
með þeim hætti, að ekert ætti að
koma í veg fyrir, að sú bráðabirgðar-
áðstöfun, sem gerð var með samein-
ingu biskupsembættanna á Hólum
og í Skálholti fyrir tæpum tveim öld-
um, sé sér til húðar gengin, en þá
verði að nokkru leyti horfið aftur til
þeirrar viturlegu skipanar, sem þjóð
og kirkju reyndist farsæl í sjö aldir.
IV
Svo sem að var vikið í upphafí
þessarar greinar er henni ætlað að
taka undir skoðanir dr. Péturs Pét-
urssonar. Er ég þeirrar skoðunar, að
vel komi til mála að landinu verði
skipt í þrjú stifti, Reykjavíkur-, Skál-
holts- og Hóiabiskupsdæmi. Breyt-
ingar hafa orðið miklar í landinu á
þessari öld og fjölmennir staðir orðið
til. Kveður þar mest að vexti höfuð-
borgarinnar. Auðvitað yrðu mörk
hinnar fomu stifta endurskoðuð með
tilliti til breyttrar þjóðfélagsskipanar.
Væntanlega myndi þriggja bisk-
upa kerfi leiða m.a til þeirrar breyt-
ingar, að prestastefna legðist af í
þeirri mynd, sem nú er, þegar öllum
prestum á landinu er stefnt saman
árlega. Hvert stifti héldi þá sjálf-
stæða prestastefnu að jafnaði, en
með vissu árabili yrði að líkindum
efnt til landsstefnu presta; jafnvel
því aðeins, að sérstök ástæða þætti
til þess. Raunar þykir talsmönnum
áhrifamikils kirkjuþings á ári hveiju
draga úr nauðsyn allsheijarstefnu
allra presta í iandinu. Stiftispresta-
stefna yrði væntanlega með öðmm
svip og áherslum en landsstefna. Hún
miðaði umfram allt að guðfræðileg-
um viðfangsefnum, helgihaldi og
sálusorgun; áhersla á fræðslu og
uppbyggingu yrði þar í öndvegi.
Ekki er ósennilegt, að mörgum
þætti eðlilegt að staða Reykjavíkur-
biskups yrði svipuð og Óslóarbiskups
í Noregi eða Sjálandsbiskups í
Dnmörku. Hann yrði fremstur meðal
jafningja. Hins vegar sýnist eðlilegt
að tengsl þjóðkirkjunnar við útlönd
verði fyrst og fremst um Biskups-
stofu í Reykjavík. En þátttaka bisk-
upanna í stjórnunarstörfum yrði jöfn
og þeir skipta með sér ábyrgð og
álagi með því jákvæða aðhaldi og
þeim heilbrigða metnaði, sem því
fylgir. Þannig yrði kjarni þeirrar
nefndar eða ráðs, biskuparáðs, sem
öllum aga- og siðferðisbrotum starfs-
manna íslensku þjóðkirkjunnar yrði
vísað til úrskurðar. — Hér er aðeins
litið út um glugga, sem mætti opna
upp á gátt og hefja umræðu með
jákvæðu hugarfari, já, með bæn um
vakningu í kirkju Krists á íslandi,
um vakningu til lifandi trúar og heil-
brigðra, drengilegra átaka.
Höfundur er vígslubiskup að
Hólum.
N
H
N
N U
_______ •, •
N
Léttari og meðfærilegri
Ræsfi
vagnar
Á EINSTÖKU VERÐI
rmmn
Dugguvogi 1
104 Reykjavik
Sfmi 568 8855
Fax 568 7465
SPARISJOÐUR
REYKJAVÍKUR OC NÁCRENNIS
Aðalfundur
Sparisjóðs Reykjavíkur og nárgrennis
Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
verður haldinn í Hvammi, Grand Hótel
Reykjavík, föstudaginn 18. apríl 1997kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjómar um starfsemi
sparisjóðsins á árinu 1996.
2. Lagður fram til staðfestingar
endurskoðaður ársreikningur
sparisjóðsins fyrir árið 1996, ásamt
tillögu um ráðstöfun tekjuafgangs
fyrir liðið starfsár.
3. Kosning stjómar.
4. Kosning endurskoðanda.
5. Tillaga um ársarð af stofnfé.
6. Tillaga um þóknun stjórnar.
7. Önnurmál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
á fundarstað í fundarbyrjun.
Sparisjóðsstjómin.
140 den Remede sokkabux
Átt þú við
fótavandamál
að stríða?
Láttu
REMEDE 140
sjúkranuddsokka-
buxuraar
leysa vandann.
mmhg kvikasilfur
■ . .. . |
OROBLU
3
3
Ol
'O
co
C
o
<
c
o
Q.
3
£
03
2
I
4-»
o
u
03
eo
c
O
•o
c
o
13 daga ferð um fegurstu
héruð Bretlands
Einstakt tækifæri til að uppiifa breska menningu,
sögu og sveitasælu í fylgd hjónanna Messíönu
Tómasdóttur og Péturs Knútssonar
Gisting á 17. aldar herragörðum
» Sveitasæla í Cotswoldshéraði
* Leiksýning í fæðingarbæ Shakespeares
* í fótspor Hróa Hattar í Skírisskógi
Útivist í Vatnahéraðinu
* Víkingasafnið í York
* Miðaldakvöldverður með söng og dans
LÆKKAÐ VERÐ:
146. 000 kr.
Innifelur: flug, gistingu,
morgunverð, rútu og allar
skoðunarferðir ásamt
íslenskri fararstjórn.
Vorfcrðir
lAnðnámu
25, nuí
LANDNÁMA
VESTURCJATA 5 / SlMI 511 3050
16 daga ferð um Grikkland með
Arthúri Björgvini Bollasyni
FLUGLEIÐIR
Messfana Tómasdóttir,
leiktjaldahönnuður
Pétur Knútsson,
lektor
• Akrópólis hæð og mannlíf í Aþenu
• Gröf Agamemnons konungs
• Grískar goðsagnir og heimspeki
• Grikkinn Sorba og grískur blóðhiti
» Heillandi tavernur og sveitahótel
• Töfrandi mannlíf Mani skagans
Eyjan Aegina, saga og sjóböð
Innifelur: flug, gistingu með
morgunverði, rútu, allar
skoðunarferðir og íslenska
fararstjórn. Möguleiki á
framlengingu ferðar á eynni
Krít og í London
Einstök ferð með innsýn í mannlíf,
sögu og náttúru Grikklands
LÆKKAÐ VERÐ:
149. 000 kr.