Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 35 saumakona var hún sérlega góð. Oft var leitað til hennar með eitt og annað og aldrei var neitað um hjálp. Við vorum nágrannakonur í mörg ár, svo oft var skroppið á milli til að spjalla og fá kaffisopa. Við vorum sex vinkonur, sem vor- um saman í saumaklúbbi í mörg ár, og var yndislegt að vera hjá Stellu með handavinnu og stundum fórum við til Reykjavíkur í bíó og svo á eftir fengum við okkur kaffi á veitingahúsi; mikið var hlegið og skemmt sér. Okkar vinátta náði lengra en í saumaklúbb og maður gleymir ekki þeim stundum sem við áttum með Leifi og Stellu, minnisstæðast er ferðalag sem við fórum saman 1968, þá fórum við til Norðurlands á tveimur bílum og voru Björg og Steinar með og ég og Jói. Þetta var yndislegur tími og gleymist aldrei. Síðan við fluttum til Dan- merkur varð lengra á milli að við hittumst, en alltaf var farið í heim- sókn til Stellu og Leifs Þau fóru með okkur í smátúra og hættu því ekki eftir að ég missti Jóa minn. Seinna eignaðist ég danskan mann, hann var jafn velkominn í hópinn og svona gæti ég haldið áfram með góðar minningar um mína kæru vinkonu og sárt er að geta ekki fylgt henni síðasta spöl- inn. Aldrei er maður eins langt í burtu eins og þegar vinirnir kveðja. Nú er Stella mín laus við erfið- leika þessa lífs, en hún er búin að vera veik í meira en eitt ár og veit ég að vel er tekið á móti henni á æðri stöðum. Eg sendi Leifi og börnunum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Eins senda mín börn þeim kveðjur. Ég kveð þig svo, Stella mín, og þakka af heilum hug allt sem þú hefur verið mér og mínum um ævina. Soffía V. Björnsdóttir, Broager, Danmörku. Elskuleg Stella amma er dáin. Amma sem var okkur svo góð og hjálpleg. Amma sem vakti yfir hveiju fótmáli okkar og öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Hún var einstakur persónuleiki, alltaf var hún tilbúin að rétta fram hjálparhönd sama hvað um var að ræða, en aldrei vildi hún hafa umstang í kringum sjálfa sig. Hún var saumakona af guðs náð og voru það margir sem fengu að njóta hæfileika hennar. Í okkar uppvexti liðu ekki þau jól án þess að hún saumaði jólaföt á okkur og útbjó jólagjafirnar eins og henni einni var lagið. Því amma var ein- stakur listamaður á öllum sviðum. Við viljum þakka elsku Stellu ömmu samfylgdina og fyrir þá minningu sem hún skilur eftir í hjörtum okkar, minninguna um góða, hugrakka og dugmikla konu. Við biðjum Guð að veita Leifi afa styrk á þessari erfiðu stund. Eva, Þór og Hrund. Ég held vart að til sé eins falleg og virðuleg kona og Stella amma mín. Ég meina þá ekki bara í út- 'iti og fasi heldur ekki síst í hugs- un og athöfnum. Hún var alls stað- ar elskuð og dáð, hvar sem hún kom og hver sem um hana talaði. Enda minnist ég ekki að hafa heyrt neitt slæmt um Stellu ömmu. Amma var sérstaklega djúp kona og var alltaf með hugann hjá ijöl- skyldunni. Hagur fjölskyldunnar allrar var alltaf efstur á baugi og hreint ótrúlegt hve vel hún gat fylgst með öllum afkomendum sín- um allt fram á hinsta dag. Stella bar mikla ást og hlýju í brjósti sem hún var dugleg að gefa öðrum. Hún vildi til dæmis alltaf að ég faðmaði sig og kyssti er ég kom í heimsókn, hvort heldur heimsókn- in var stutt eða löng. Stellu ömmu og Leifi afa kynnt- ist ég mjög vel er þau bjuggu í Fagrahvammi 1 í hálft ár, veturinn 1991-1992. Kynni okkar urðu tölu- vert náinn og mikill vinskapur tókst á milli okkar. Enda var ég tíður gestur á Hjallabraut 33 eftir að þau fluttu þangað. Þangað var ég alltaf velkominn í spjall og vöffl- ur, sem amma er nú fræg fyrir. En þetta voru ekki bara einhverjar kurteisisheimsóknir heldur fannst mér oft virkilega gott að ræða við gamla fólkið og ömmu var hægt að segja allt. Áhyggjustununa tók hún vissulega oft í fyrstu en alltaf var hún samt fyrst til að styðja við bakið á mér. Hennar stuðning- ur var líka einhvern veginn betri, hann kom frá hjartanu, var svo innilegur og traustur. Amma var mér góður vinur, vinur sem aldrei brást og alltaf tók vel á móti mér. Amma mín, ég mun aldrei gleyma þér. Þitt hlýja bros, sem þú gafst mér nú síðast í þinni erf- iðu banalegu og sennilega var þitt síðasta bros í þessum heimi mun aldrei renna mér úr huga. Ég mun sakna þín mikið, því þú hefur gef- ið mér margt og aukið skilning minn á lífínu. En ég veit að allt hefur sinn vitjunartíma og það kemur mér ekki á óvart þín skuli nú vera þörf annars staðar. Vertu sæl, amma mín, og líði þér vel. Eyjólfur Magnús Kristinsson. Elsku amma. Þegar mamma mín hringdi í mig daginn fyrir skírdag til að segja mér af því að þú hafir verið flutt inn á hjartadeild Landspítal- ans kvöldið áður, þakkaði ég Guði fyrir að ég skuli hafa hringt í þig það kvöld, fáeinum klukkustund- um áður en þú veiktist, bara til að heyra aðeins í þér hljóðið og spjalla um daginn og veginn. Alltof sjaldan töluðumst við í síma, enda hefur starf mitt á síð- ustu árum leyft tíðari heimkomur til íslands en kannski vanalegt er þegar haf og land skilur að. I símtali okkar vorum við ein- mitt að þusa yfir því hvað við hefð- um báðar verið pennalatar á þeim rúmlega 10 árum sem ég hef verið búsett í Þýskalandi og lofaði ég þér að senda þér bráðlega, þó ekki væri nema nokkrar línur á póst- korti, þar sem ég hafði ekki ætlað mér að koma heim aftur fyrr en ég væri búin að eiga bamið sem ég geng með. Elsku amma mín, ég vona að þú sért nú laus við þjáningarnar og lömunina sem hijáðu þig síð- asta árið. Ég sé þig fyrir mér eins og ég kem alltaf til með að muna eftir þér, ungri í anda, léttri í lund, á stöðugum þeytingi eða sitjandi yfir saumaskap og handavinnu. Aldrei gleymi ég þeim stundum sem ég sat hjá þér inni í saumaher- bergi - „Stella stóra og Stella litla“ - þú sönglandi við sníðaborðið eða saumavélina og ég að reyna að herma eftir þér. Alltaf fannst þú einn saum sem ég mátti sauma eða spretta upp fyrir þig. Það eru fáir sem skilja eftir sig þvílíkan munað eins og þú, amma mín, og máttu vera hreykin af við- burðaríkri ævi, fjölskyldu þinni og stórum vinahópi. Þykist ég viss um að hver sem hafði kynni við þig hafði bara gott af þér að segja, enda alltaf hægt að leita til þín, hvað sem á bjátaði. Elsku amma, ég þakka þér fyrir allt sem ég hef lært af þér í gegn- um tíðina um lífið og tilveruna, beint eða óbeint. Verst þykir mér að ég skuli aldrei hafa sagt þér það sjálf. Það tekur mig mjög sárt að ég skuli ekki hafa fengið tækifæri til að kveðja þig áður en þú yfirgafst þennan heim og þess vegna sendi ég þér þessar línur eins og ég var búin að lofa þér, í þeirri von að þær berist þér þar sem þú dvelur núna. Ég kveð þig með þessum línum í hinsta sinn, með sorg og söknuði í hjarta. Minning þín mun ætíð lifa áfram í huga mínum. Þín, Stella Björg og fjölskylda. + 1 ÓSKAR ÖGMUNDSSON, WÍ( | "'M, Kaldárhöfða, 'Jk verður jarðsettur frá Selfosskirkju þriðjuda- ginn 15. apríl klukkan 14.00. Pálína Þorsteinsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNÍNU GUÐRÚNAR EGILSDÓTTUR THORARENSEN, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis á Hrísmóum 1, Garðabæ. Gunnar Pálsson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Guðmundur Svavarsson, Kristín Gunnarsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Sigurður Páll Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, systir og mágkona, HELGA ÓLAFSDÓTTIR, lllugagötu 75, Vestmannaeyjum, lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja að morgni 11. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Ólafur R. Eggertsson, Málfrfður D. Gunnarsdóttir, Kristján G. Eggertsson, Guðný Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnaböm, Margrét Ólafsdóttir, Steindór Hjörleifsson. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, fóstur- móðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR, áður til heimilis að Austurbrún 6, lóst að Hrafnistu í Reykjavík, á föstudaginn langa. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hafdís Ólafsdóttir, Hilmar Hallvarðsson, Aðalbjörn Steingrímsson, Jensína Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. | + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, REYNIR GUÐMUNDSSON, Ljósheimum 10A, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 15. apríl kl. 15.00. Svafa Kjartansdóttir, Grétar Reynisson, Margrét Ólafsdóttir, Rúnar Reynisson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Erla Reynisdóttir og barnabörn. + Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BJÖRG BJARNADÓTTIR, Klapparási 11, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudag- inn 14. apríl kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Kristján E. Þórðarson, Bjarni Kristjánsson, Elna Kristjánsdóttir, Guðmundur Möller og dótturdætur. + Útför elskulegrar systur okkar og frænku, INGIBJARGAR JAKOBSDÓTTUR, Efstasundi 71, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 13.30. Salvör Jakobsdóttir, Sigrún Jakobsdóttir, Valgerður Jakobsdóttir, Jakobína Úlfsdóttir og aðrir vandamenn. + Hjartkær bróðir okkar, fósturbróðir og mágur, GUÐMUNDUR BERGMANN ÞORSTEINSSON (MUuGUR), Hjaltabakka 2, verður jarðsunginn frá Breiðholtskirkju mánudaginn 14. apríl kl. 13.30. Elsa Þorsteinsdóttir, Margrét Þorsteinsdóttir, Guðbjartur Þorsteinsson, Guðný Þorsteinsdóttir, Anna Magnúsdóttir, Erla Gísladóttir, Unnur Inga Karlsdóttir, Hafsteinn Daníelsson, Ásrún Heiðarsdóttir, Sævar Júníusson, Sigurbjörn Hansson, Ársæll Ársælsson, Davfð Bjarnason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.