Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR Ijósmóðir, andaðist föstudaginn 11. apríl á Hjúkrunarheimilinu Eir. Jarðaförin auglýst síðar. Hængur Þorsteinsson, Hanna Lára Köhler Elísabet Þorsteinsdóttir, Klaus Holm, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HARALDS ÁGÚSTS SNORRASONAR, Gnoðarvogi 28, Reykjavfk. Sérstakar þakkir til Jóns Eyjólfs Jónssonar læknis. BJÖRG BJARNADÓTTIR + Björg Bjarna- dóttir fæddist í Reykjavík 26. nóvember 1939. Hún lést í Banda- ríkjunum hinn 29. mars síðastliðinn þar sem hún var i heimsókn hjá dóttur sinni og fjölskyldu hennar ásamt manni sin- um, Kristjáni E. Þórðarsyni. Kjör- foreldrar hennar voru Bjarni Gunnar Guðjóns- son forstjóri og Elna Guðjóns- son. Björg fluttist til Banda- ríkjanna með þeim 1943 þar sem hún lauk sinni skólagöngu. Sautján ára fór hún í ársheim- sókn til íslands þar sem hún kynntist til- vonandi eiginmanni. Þau Björg og Krist- ján giftu sig 15. september 1961. Þau eignuðust tvö börn: Bjarna, f. 2. febrúar 1963, og Elnu, f. 17. apríl 1965, gift Guðmundi Möller og eiga þau þrjár dætur; Guð- fríði Björgu, f. 6. mars 1990, Stefaníu Ósk, f. 6. maí 1992, og Kristínu Unni, f. 30.JÚ1Í 1996. Útör Bjargar fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, mánudaginn 14. aprQ, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Páll Gunnar Haraldsson, Ólafía K. Haraldsdóttir, Adolf F. Haraldsson, Lilja Haraldsdóttir, Bjöm Pálsson, Fjóla Haraldsdóttir, Ólafur Pálsson, barnabörn og barnabamaböm. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem veitt hafa okkur ómetanlegan stuðning og styrk I veikin- dum og við andlát GUÐMUNDAR STEFÁNSSONAR frá Hólkoti, Reykjadal, Fífurima 44, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grensásdeildar fyrir góða umönnun. Hólmfríður F. Svavarsdóttir, Kristbjörg H. Guðmundsdóttir, Guðmundur S. Guðmundsson, Ólafur F. Guðmundsson, Stefán Þórísson, Gunnhildur S. Guðmundsdótir, og systkini hins látna. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og veittu okkur stuðning við fráfall, GUÐRÚNAR I. FINNBOGADÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks B-2 á Landakoti fyrir frábæra umönnun og stuðning. Rósmundur Runólfsson, Ágústa Rósmundsdóttir, Rannveig A. Hallgrímsdóttir, Sævar Gunnarsson, bamabörn og barnabamaböm. Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró „Talaðu bara hratt, þá skilur hún ekki.“ Þetta voru ein fyrstu ummæl- in sem við heyrðum í vinahópi um kærustu vinar okkar sem hann kynntist á heimleið úr Evrópuferð með Gullfossi. Björg Bjamadóttir dvaldist að mestu í Bandaríkjunum frá fjögurra ára aldri og íslenskukunnátta henn- ar var ekki mikil þegar hún kom hingað haustið ’57. Nokkrum árum seinna, er hún settist hér að fyrir lífstíð, hefði engum dottið í hug að hún hefði ekki búið hér alla sína ævi. Þá var ekki hægt að heyra á mæli hennar að hún hefði ekki ætíð haft fullt vald á íslenskunni og mátti margur öfunda hana af réttum beygingum og góðum, skýr- um framburði. Þetta lýsir Björgu vel, gerðu það vel eða láttu það eiga sig, vandvirk var hún og ná- kvæm, stundum kannski um of. Tónlist var eitt af áhugamálum hennar, hún hlustaði daglega á sí- gilda tónlist og var vel að sér í þeim efnum. Hún lék á píanó fyrir sjálfa sig en hversu mikið hún hafði lært á hljóðfærið er okkur ókunn- ugt. Björg var mörgum listrænum hæfileikum búin, málaði og teikn- aði, og skreytingar hennar voru einstakar. Jólapakkana sem hún útbjó var varla hægt að opna, því þá varð að skemma skreytingu pakkans. Jólakortin sem hún gerði voru hrein listaverk og aldrei sett niður strax að jólum loknum heldur geymd til næstu jóla. Það verða öðruvísi jól án korts frá Björgu. Tækifærisgjafir hennar voru ætíð smekklegar og nytsamar, og okkur kom oft á óvart hvað hún gat fund- ið við slík tækifæri. Hún hafði mikinn áhuga á blóm- um og garðrækt. Hún þekkti fleiri íslenskar plöntur en margir sem alist hafa upp í sveitum landsins. Oft bárum við saman bækur okkar um plöntur sem við vorum ekki viss með að þekkja og var það þá yfir- leitt Björg sem reyndist fróðust um heiti þeirra. Björg bar mikla umhyggju fyrir fjölskyldu sinni og þrátt fyrir van- heilsu um árabil tókst henni ætíð að gleðja dótturdætur sínar og aðra í fjölskyldunni með hlýju og sínum sérstöku gjöfum á jólum, afmælum og við önnur tækifæri. Að leiðarlokum munum við að geyma minninguna um fíngerða 2 I 3 I 3 1 5 Fersk blóm og skreytingar við öll tækifœri Opið til kl. 10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, sími 568 9120 o 1 3 1 3 I 3 íslensk framleiðsla Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - Reykjavik simi: 5871960 -Jax: 5871986 Skipholti 50 b - Sími 561 0771 + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, EIRÍKS EYLEIFSSONAR, Nýlendustafnesi, Sandgerði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Vífilsstaðaspítala. Jóna Guðrfður Arnbjörnsdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir, Gunnar B. Sigfússon, Margrét Eiríksdóttir, Ambjöm Rúnar Eiríksson, Guðrún Jónína Eiríksdóttir, Þröstur Sveinsson, Laufey Þóra Eiríksdóttir, Dagbjört Hulda Eiríksdóttir, Eiður Stefánsson. barnabörn og barnabamaböm. stúlku, er við hittum fyrst á sólrík- um haustdegi fyrir nærri 40 árum. Einar og Sesselja. Það er skrýtið að skrifa minning- argrein um Björgu hans Didda. Þó að ég hafí ekki séð hana í nokkum tíma tekur það mig sárt að vita að hún er ekki lengur hjá okkur. Ég á margar góðar minningar um Björgu. Ég man alltaf eftir því að það var langskemmtilegast að opna jólagjafímar frá Didda og Björgu, þ.e.a.s. maður vildi nú oft ekki opna gjafímar vegna þess að umbúðimar vom oft skrautlegri en gjafimar sjálfar. Eitt árið var pakkinn eins og hús, nákvæm eftirmynd. Þetta gjafahús var geymt mjög lengi hjá afa og ömmu. Það var Bjargar-hönd bak við þessa pakka. Björg hafði mjög gaman af því að föndra, mála eða að gera eitthvað í höndunum. Ég vona að núna sé hún á góðum stað þar sem hún hefur alveg fullt að gera í höndunum og að þar eigi hún eftir að hitta Týra. Ég sendi öllum aðstandendum hennar mínar inniiegustu samúðar- kveðjur og vona að þeir finni styrk í öllum góðu minningunum um Björgu. Aróra Eir. Okkur langar að kveðja þig, Björg, með nokkmm orðum. Það er ekki auðvelt þar sem svo margs er að minnast. Fyrstu kynni okkar urðu þegar sonur okkar, Guðmund- ur, eignaðist dóttur ykkar Krist- jáns, Elnu. Margar ljúfar minningar koma upp í huga okkar á þessari stundu, þær ljúfustu þegar við hittumst ár hvert, og þá oftast á sumrin á heim- ili barna okkar í Hátúni til að vera með okkar yndislegu bamabömum sem við sjáum alltof sjaldan. Allur tími var vel nýttur því sumrin liðu fljótt og vom skemmtileg. Það setti oft að okkur kvíða þegar senn var komið haust og þá, eins og farfugl- amir, flugu börn og bamabörn til Ameríku til að halda áfram að mennta sig. Þú varst svo listræn og hafðir svo gaman af að skapa ýmsa skemmtilega hluti í höndunum. Fræg em jólakortin þín fyrir fegurð og verður gaman að skoða þau um ókomna framtíð. Með þessu náðir þú að stytta þér stundirnar þar til farfuglarnir, sem þú unnir svo heitt, komu aftur fljúgandi til íslands í jólafrí. Þá var gaman að eiga sam- an jól og áramót og við gleymum aldrei gamalárskvöldunum. Nú þegar vegir okkar skiljast um sinn er okkur hjónunum og bömum okkar efst í huga þakklæti fyrir alla þá vinsemd sem þú og þín fjöi- skylda hafið sýnt okkur. Sem er slitnu ferðu’ úr fati og færð þér nýtt að ganga í, svo er dauði að mínu mati, mér finnst gott að trúa því. (Ágúst Böðvarsson.) Kristján, Bjarni, Elna, Guðmund- ur og dætur. Megi guð styrkja ykk- ur í sorginni. Bjöm Möller, Guðfríður og fjölskylda. Skilafrestur miiiningar- greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.