Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 13.04.1997, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Samhjálp kvema Til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabbamein , hefur „opið hús“ í Skógarhlíð 8, *húsi Krabbameinsfélagsins, þriðjudaginn 15. apríl kl. 20.30. Gestur kvöldsins: Prófessor Gunnar Sigurðsson flytur erindi: Beinþynning og beinþéttnimælingar. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Ný námskeið 21. apríl TOPPITIL TAAR i. Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum konum frábæran árangur. Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum, sem beijast við aukakílóin. Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn. Góður matarkúr sem fylgt er eftir daglega með andlegum stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir þar sem farið er yfir förðun, klæðnað, hvemig á að bera líkamann og efla sjálfstraustið. TOPPI TIL TAAR II. - framhald Námskeið fyrir þær sem vilja halda áfram í aðhaldi. Tímar 3x í viku Fundir lx í viku í 7 vikur. •itunhefstl.apríl. aðfestar pantamr erða seldar ettn 15. aprd. smáskór Mikið úrval af góðum fyrstu skóm. St. 17-25.6 gerðir með lausum innleggjum. Erum í bláu húsi við Fákafen. I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þjóðarsálin ÞURÍÐUR Árnadóttir hringdi í Velvakanda meö eftirfarandi: „Eg er hjartanlega sam- mála Víkverja, og Hólm- fríði sem skrifaði í Velvak- anda sl. föstudag, um Þjóðarsálina. Ég held að þessi þáttur megi alveg hverfa af dagskrá. Einnig langar mig til að koma á framfæri þakk- læti til Ólafar Rúnar Skúladóttur fréttamanns, hún er frábær fréttamaður og mun ég sakna hennar og ég óska Ólöfu alls hins besta í nýju starfi. Grimmd eða hugsunarleysi? VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: „Kvöldið fyrir skírdag hvarf Trýna, 9 mánaða gömul kisa okkar fjöl- skyldunnar. Ekkert frétt- ist af henni þótt leitað væri fyrr en tæpri viku seinna. Þá hringdi í mig starfsmaður af barna- heimilinu Vesturborg við Hagamel, sem hafði fund- ið kisuna, sem var vel merkt, í ruslatunnu þar hjá. Það hafði verið keyrt yfir hana og henni fleygt í tunnuna eins og hveiju öðru rusli. Þótt ég brygðist strax við, var rétt búið að losa öskutunnuna þegar ég kom á staðinn. Því fengu börnin ekki kost á að jarða kisuna sína á sómasamlegan hátt sem olli þeim miklum vonbrigð- um og sorg og var það ekki á bætandi sorgina að missa köttinn. Allt út af því að sá sem þetta gerði hirti ekki um að láta okkur vita. Betra hefði verið að vita þetta strax en að vera í óvissu dögum saman. Þökk sé starfsmanni Vest- urborgar að við fengum yfirhöfuð að vita um afdrif kisunnar okkar, þótt önnur væru en við hefðum óskað. Að keyra yfír ketti eru slys sem því miður henda, en eins og í þessu tilviki að henda kettinum í ruslat- unnu og láta ekkert vita er ódæðisverk. Hrefna Sigríður, Reynimel 80. Endurflutningur á leikritum INGVELDUR hringdi í Velvakanda og hún hefur áhuga á því að leikrit eftir Kristin Reyr sem heitir „Deilt með tveimur" og var sýnt í Sjónvarpinu verði endursýnt. Einnig hefði hún gaman af að heyra aftur útvarpsleikritið „Að hugsa sér“ með Ævari R. Kvaran. Minnisvarði um Jón biskup Arason? HILDUR, sem er afkom- andi Jóns Arasonar bisk- ups, hafði samband við Velvakanda og var með eftirfarandi tillögu: „Er ekki kominn tími til að afkomendur Jóns Arasonar gerði fagran minnisvarða um hann árið 2000?“ Útskriftar- nemendur Melaskóla ’47 ÞIÐ sem lukuð fullnaðar- prófi frá Melaskóla vorið 1947, fyrsti útskriftarhóp- ur skólans. Hvernig væri að hittast í maí og minn- ast tímamótanna? Vin- samlegast hafið samband við undirritaðar ,Dóra Guðleifsdóttir, s. 554-2643, Halldóra Gunn- arsdóttir, s. 562-5551. Tapað/fundið Hálsmen tapaðist HÁLSMEN tapaðist 1. apríl í Laugardalssund- lauginni, í búningsklefa eða á bílastæði. Hálsmenið er með litlum steinum. Skilvís finnandi vinsam- lega hringi . í síma 553-2090. „ Gullhringur tapaðist á Hótel íslandi STÓR gullhringur tapaðist á Hótel íslandi á nemendamóti Verslunarskólans, 6. febrúar. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 557-4589. Eros er týndur EROS týndist úr Garða- bænum fyrir viku. Hann er mjög ljúfur og hans er sárt saknað. Ef þið hafíð séð hann á flakki vinsam- legast hringið í síma 565-6436 eða 896-3642. Læðu vantar heimili 3JA ÁRA læðu, sem er hvít og marglit, vantar heimili af sérstökum ástæðum. Uppl. í síma 554-5388. Víkverji skrifar... SAMKVÆMT hafnaáætlun ár- anna 1997 til 2000, sem lögð hefur verið fyrir Alþingi, er áætlað að veija 2,8 milljörðum króna í rík- isstyrktar hafnargerðir þessi ár. Þar af er hlutur sveitarfélaga 890 m.kr. en hlutur ríkissjóðs/skattborgara 1.900 m.kr. Hlutur ríkissjóðs/skattborgara skiptist sem hér segir á lands- hluta/kjördæmi: Vesturland 136,4 m.kr., Vestfirðir 265,1 m.kr., Norð- urland vestra 185,1 m.kr., Norður- land eystra 420 m.kr., Austurland 347,8 m.kr., Suðurland 244,9 m.kr., Reykjanes 293,5 m.kr., Reykjavík, olnbogabarn Alþingis, núll komma ekki neitt! Reykjavíkurhöfn verður enn sem áður með gamalkunna sér- og núll- stöðu. Reyndar eiga þéttbýlisstaðirn- ir á höfuðborgarsvæðinu, Hafn- arfjörður, Garðabær, Kópavogur og Reykjavík, það sameiginlegt að falla undir núll komma ekki neitt [kr. 0,00] í hafnargerð á hafnaáætlun 1997-2000. Til eru sögusagnir um að lands- byggðarkjördæmin eigi, flest hver. duglega kjördæmisþingmenn, sem gangi bara takk-bærilega að halda hlut sinna umbjóðenda af skattakök- unni. R-kjördæmin eigi í bezta falli þingmenn á landsvísu. Tillaga til þingsályktunar um hafnaáætlun 1997-2000 stangast ekki á við þess ar sögusagnir, meinar Víkveiji. Þvert á móti. XXX KATTAR eru ekki nýir af nál hér á Fróni. Fyrsti skatturinn, sem lagður var á eftir efnahag, svo- kölluð tíund, var lögtekinn hér á landi árið 1096. íslensk skattheimta er því 900 ára og einu ári betur. Tíundin rann að stærstum hluta til kirkjunn- ar, en á hennar vegum voru nær öll fræðslu- og menningarmál á þeirri tíð. Fjórðungur gekk til fátækra. Hvernig var standið á Gaddastöð- um íslenzkrar skattheimtu á níu alda afmælinu? Skoðum málið eins og það kemur Víkveija fyrir sjónir í svari fjármálaráðherra fyrir skemmstu við fyrirspurn um tekjuskatt og bóta- greiðslur. XXX FRAMTEUENDUR til skatts voru um 200 þúsund, ef hjón eru talin sem tveir einstaklingar eins og vera ber. Mikið skorti hins vegar á að allir framteljendur væru „mjólk- andi“ í ríkissjóð. Aðeins helmingur, eða 103 þúsund, fékk álagðan tekju- skatt. Og dijúgur hluti þeirra, sem reiknaður var skattur, reyndist „sýnd veiði en ekki gefin“ fyrir ríkis- sjóðinn. Af 200 þúsund framteljendum reyndust sumsé nálægt 90 þúsund skattleysingjar. Og ekki nóg með það. Langleiðina í 40 þúsund til við- bótar fengu bætur umfram álagðan tekjuskatt. Þeir sem greiddu skatt til ríkissjóðs, umfram bætur, reynd- ust aðeins 70 þúsund af 200 þúsund framteljendum. Það var m.ö.o. tiltölulega „fá- mennur" hópur sem greiddi tekju- skatt til ríkisbúskapar og samfélags- legrar þjónustu. Oðru máli gegnir um virðisaukann. Eyðsluskattar ná til allra. Tekjuskattar síður en svo. xxx SKATTSVIK og svört atvinnu- starfsemi falla, því miður, inn í myndina: „Svona er ísland í dag.“ Ófáir skipa sér með þessum hætti á lögbrotabekk. Þeir eru nútímans sveitarlimir: þiggja samfélagslega þjónustu, greidda úr vösum sam- borgara. Það er lítil reisn yfir siíkum labbakútum! Sem betur fer hafa hert skatteft- irlit og skattrannsóknir skilað vax- andi árangri hin síðari árin. Á árabil- inu 1993 til 1996 hækkuðu álagðir skattar á framteljendur, sem höfðu rangt við í framtölum, um 1.168 milljónir króna, eftir að skatteftirlit- ið tók þeim tak. Hér var vel að verki staðið. En betur má ef duga skal. Tvennt er mikilvægt að mati Vík- veija, að lækka tekjuskatta og herða skatteftirlit og skattrannsóknir!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.