Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gæslunni dæmd- ar yfir 7 milljónir í björgunarlaun HOLLENSKUR útgerðarmaður, Rederij N en F Bruins C.V., var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykja- víkur til að greiða Landhelgisgæslu íslands 7 milljónir króna ásamt vöxtum frá 1. janúar 1995, auk 550 þúsund króna í málskostnað, vegna greiðslu björgunarlauna fyrir vöru- flutningaskipið Hendrik B. Landhelgisgæslan gerði kröfu um að Hollendingurinn, áður eigandi og útgerðarmaður skipsins, greiddi rúmar 26 milljónir í björgunarlaun en útgerðarmaðurinn krafðist þess á móti að hann greiddi að hámarki tæplega 800 þúsund krónur í björg- unarlaun auk vaxta. Þrjú brot á nokkrum tímum Málavextir eru þeir að í árslok 1994 var hollenska flutningaskipið Hendrik B, á leið frá Svíþjóð til Reykjavíkur með sex manna áhöfn og tvo farþega, nær fulllestað hveiti, maískurli og maísfóðurkögglum. Skipið fékk brot yfir sig að kvöldi 28. desember eftir að hafa siglt í miklum sjógangi frá hádegi sama dags og annað brot skömmu síðar sem ollu talsverðum skemmdum og opnuðu leið fyrir sjó í lestina. Skipinu var snúið undan veðri og siglt þannig á lensi, en ólög gengu yfir það. Um klukkan 3.20 aðfara- nótt 29. desember varð skipið enn fyrir brotsjó og komst sjór m.a. í vistarverur og vélarrúm. Tryggt fyrir 47 milljónir Hjálparbeiðni var send út skömmu eftir hádegi þann dag og fóru flugvél Landhelgisgæslunnar og björgunarþyrla á vettvang, auk tveggja þyrlna frá vamarliðinu. Klukkan 15.28 hafði þyrlan híft fímm fullorðna og ungbam, sem var annar farþega, um borð og skömmu síðar tók þyrla vamarliðsins þá sem eftir voru, skipstjórann og vélstjór- ann. Varðskipsmenn af Tý fóru síð- ar um borð í skipið og sigldu því fyrir eigin vélarafli til Reykjavíkur í fylgd Týs og komu skipin þangað á nýársdag 1995. Landhelgisgæslan lagði m.a. fram gögn fyrir Héraðsdómi þar sem fram kom að skipið var vá- tryggt fyrir rúmar 47 milljónir króna og verðmæti þess hluta farmsins sem bjargaðist nam rúm- um 7,5 milljónum króna. Einnig þyrfti að líta til að björgun áhafnar og farþega var giftusamleg og leyst af hendi fljótt og fagmannlega. Þá hefði verið með björguninni afstýrt hættu á skipið yrði stjórnlaust rek- ald á rúmsjó og hættulegt sjófarend- um, auk þess að olía úr því hefði að lokum lekið í sjó og valdið meng- unarslysi sem eigendur skipsins hefðu borið ábyrgð á. Fyrrum eigandi skipsins hélt því hins vegar fram að björgun fólks- ins, sem var um borð í skipinu, hefði ekki verið björgun fólksins í lög- fræðilegum skilningi siglingalaga og björgun skipsins sjálfs, hefði verið einföld og hættulaus. Því hefði verið um tvær aðskildar aðgerðir að ræða. í ljós hefði komið, að björg- un lokinni, að ekki var annar kostur en að selja skipið til niðurrifs og mótmælti fyrrum eigandi ýmsum kostnaðarútreikningum Landhelgis- gæslunnar varðandi kröfu um björg- unarlaun. Tvær aðskildar aðgerðir Dómurinn féllst á að um tvær aðskildar aðgerðir hefði verið að ræða, óháðar hvor annarri. Það hættuástand, sem áætla þurfti við úrlausn málsins, grundvallaðist á þeirri staðreynd, að mati dómsins, að skipið var mannlaust og að mati sérfróðra manna var ekki bráð hætta á að skipið færist þrátt fyrir hvassviðri sem gekk yfir aðfaranótt 31. desember 1994. Mannlaust skipið hefði samt verið í yfírvofandi hættu og varðskips- mönnunum sem fóru um borð hefði verið mikil hætta búin. Morgunblaðið/Ragnheiður FORSETAHJÓNIN fylgjast með unglingsstúlku frá Egilsstöðum syngja seið til þess að laða upp á yfirborð fljótsins hinn dular- fulia Lagarfyótsorm. Forseta- heimsókn í sumar- blíðu Egilsstaðir. Morgunblaðið. FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir komu í heimsókn til Egilsstaða í gær í tilefni af 50 ára afmæli sveitarfélagsins. Fjöldi Héraðsbúa og gesta var saman kominn við Lagai-fljótsbrú kl. 16 i glampandi sól og yfir 20 stiga hita til þess að taka á móti þeim hjónum. Egilsstaðabúar höfðu nýlega gert tilraun til þess að laða upp á yfirborð fljótsins hinn dularfulla Lagarfljótsorm, en sú tilraun mis- tókst. í viðurvist forsetans og konu hans var því ákveðið að gera aðra tilraun. Voru nokkrir ungl- ingar bæjarins fengnir til að syngja seið og freista þess að lokka orminn upp. Og viti menn, það tókst. Ormurinn kom synd- andi í öllu sínu veldi, grænn, vel tenntur og ákaflega langur og hlykkjóttur. Hélt sig þó til allrar blessunar í fljótinu. Leiksýning í skóginum Að lokinni móttöku voru for- setahjónin viðstödd opnun land- búnaðarsýningar í Selskógi þar sem Þorsteinn Kristjánsson, fyrr- verandi formaður Búnaðarsam- bands Austurlands, hélt ræðu og afhenti þeim hjónum að gjöf ritið Sveitir og jarðir í Múlaþingi. Á dagskrá forsetahjónanna að lok- inni landbúnaðarsýningu voru sýningar í Safnahúsinu. Að þvi loknu var kvöldverður með forseta bæjarstjórnar, Þuríði Bachmann, og eiginmanni hennar, Bimi Krist- leifssyni. Þá var skoðuð myndlist- arsýning á vegum Myndlistarfé- lags Fjjótsdalshéraðs, en Björn Kristleifsson er einmitt formaður þess félags. Klukkan 22 hófst leik- sýning Leikfélags Fljótsdalshéraðs á Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare, en sú sýning fór fram í Selskógi, útivistarsvæði Egilsstaðabúa. Álit EFTA-dómstólsins á norsku dómsmáli um bjórsölu Einkaleyfi brýtur ekki gegn EES-samningi Norsk löggjöf leiðir til mismununar Borgarffarðarbraut Mat á um- hverfis- áhrifum kynnt SKIPULAG ríkisins hefur hafið athugun á frummati á um- hverfísáhrifum fyrirhugaðrar nýrrar veglínu Borgarfjarðar- brautar í Reykholtsdalshreppi í Borgarfírði, en um er að ræða svokallaða sáttaleið í deilum sem spunnist hafa um lagningu vegarkaflans. Frummatsskýrsla mun liggja frammi til 1. ágúst næstkom- andi hjá oddvita Reykholtsdals- hrepps, í afgreiðslu sundlaug- arinnar á Kleppjárnsreykjum, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagi ríkisins, Reykjavík. Almenningi gefast fimm vikur til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir sem berast þurfa Skipulagi rík- isins fyrir 1. ágúst. Leitað verð- ur umsagna um frummatið frá hreppsnefnd Reykholtsdals- hrepps, Náttúruvernd ríkisins, Hollustuvernd ríkisins, Þjóð- minjasafni íslands og sam- vinnunefnd um undirbúning svæðisskipulags norðan Skarðsheiðar. Auk þess verður framkvæmdin kynnt veiðimála- stjóra, Ferðamálaráði íslands og Náttúrufræðistofnun. í ÁLITI, sem EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg lét í gær uppi á nokkr- um atriðum sem varða einkarétt norsku áfengisverzlunarinnar til að selja bjór yfír 4,75% að áfengisinni- haldi í smásölu, segir að einkaleyfi slíkrar sölu fari ekki gegn 16. gr. [EES]-samningsins ef slíkur einka- réttur leiðir hvorki að lögum né í reynd til mismununar milli norskrar framleiðsluvöru og vöru sem flutt er inn frá öðrum ríkjum á efnahags- svæðinu. í framhaldi af þessu er sagt, að neitun um leyfí til að selja bjór sem er sterkari en 4,75% á þeim grund- velli að áfengisverzlun ríkisins hafi einkarétt til að selja hann í smá- sölu geti leitt til mismununar að lögum og í raun milli norskra bjór- framleiðenda og framleiðenda í öðr- um EES-ríkjum. Dómstóllinn tekur fram, að slíkt fái ekki samrýmzt reglunum í 11. gr. EFTA-samnings- ins um fijálsa verzlun, ef slík mis- munun á sér raunverulega stað. Það sé hins vegar hlutverk dómstólsins í Noregi að taka afstöðu til þess, hvort mismunun eigi sér stað í raun. Við mat á norsku löggjöfinni, sem setur takmörkin fyrir sölu á bjór í almennum verzlunum við 4,75%, kemst EFTA-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að þau leiði til mismununar. Fram sé komið í mál- inu að mikill hluti bjórs frá öðrum löndum hafí 5% til 5,5% áfengisinni- hald og því séu settar skorður við innflutningi hans sem feli í sér mis- munun. Það sé ósamrýmanlegt 11. gr. EES-samningsins en „athuga þurfí hvort það sé engu að síður leyfilegt á grundvelli 13. gr. hans.“ Mat dómstólsins er að svo sé, enda segi í 13. gr. að 11. gr. komi ekki í veg fyrir að leggja megi höft á innflutning sem réttlætast af heilsuvemdarsjónarmiðum. Álit dómstólsins var unnið að beiðni héraðdómsins í Osló í máli sem Tore Willemsen AS hefur höfð- að fyrir héraðsdómi þar í borg gegn borgarstjórninni, sem hafði neitað fyrirtækinu um leyfi til að selja sterkan bjór og borið því við að einungis mætti veita áfengisverzl- uninni slíkt leyfi. EFTA-dómstóllinn var spurður hvernig skýra ætti þijár greinar í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EES, sem Will- emsen taldi brotnar með því kerfí, sem er á bjórsölu í Noregi. Áhrif á íslandi óljós Hvaða áhrif þessi úrskurður dómstólsins ka'nn að hafa á það fyrirkomulag sem er á bjórsölu á íslandi er óljóst, en norsku og ís- lenzku reglurnar eru að ýmsu leyti frábrugðnar. Þór Oddgeirsson, að- stoðarforstjóri ÁTVR, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann liti svo á að dómstóllinn „samþykki það kerfi sem við höfum.“ „Ég tel að hér sitji innlendir og erlendir framleiðendur við sama borð,“ sagði Þór, og því eigi spurn- ingin um mismunun sem hér sé um að ræða í Noregi ekki við hér á landi. „Allur bjór sem er yfir 2,25% er í verzluninni hjá okkur,“ sagði Þór, og þannig sé engum mismunað hér eins og hægt sé að segja um fyrirkomulagið í Noregi, þar sem bjór sem sé 4,7% megi seljast í matarbúðum en 5% bjór verði að fara í gegn um áfengisverzlunina. Birgir Ármannsson, lögfræðing- ur Verzlunarráðs íslands, segist meta málið þannig, að varast beri að túlka niðurstöðu EFTA-dóm- stólsins of vítt með tilliti til ís- lenzkra aðstæðna. „Eftir því sem ég fæ bezt séð er EFTA-dómstóllinn að leggja mat á hvort tiltekin atriði í norskri löggjöf fari í bága við EES-samninginn.“ Birgir segir mikilvægt að hafa í huga að, að sumu leyti sé norska löggjöfín fijálsari en sú íslenzka. Hér á landi sé smásala í höndum eins fyrirtækis þó samkeppni sé í innflutningi. í Noregi sé einokunin einungis í smásölunni, „þannig að við teljum að hættan á mismunum kunni þar af leiðandi að vera meiri hér á landi en í Noregi," sagði Birg- ir. Hann bætti við að fleiri mál væru í gangi fyrir EFTA-dómstól, EB-dómstóI og ESA, sem vörðuðu áfengiseinkasölur á Norðurlöndum og margt benti til að niðurstöður ESB varðandi sænsku áfengis- einkasöluna yrðu allt aðrar en í þessu máli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.