Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 11
FRÉTTIR
*
Islandsflug
stækkar flug-
afgreiðslu í
Reykjavík
NYTT hús fyrir stærri afgreiðslu
íslandsflugs á Reykjavíkurflug-
velli var flutt á fimmtudagskvöld
frá Seltjarnarnesi og sett niður á
athafnasvæði félagsins. Er þetta
150 fermetra hús og bætir að-
stöðu til afgreiðslu farþega og
fraktar.
Húsið var híft á bíl á Nesvegi
og ekið með það um Ægissíðu,
Starhaga og Suðurgötu og þar
inná vesturenda flugbrautarinn-
ar. Taka þurfti niður umferðar-
skilti víða á leiðinni og voru þau
sett upp jafnharðan.
Sviptingar á Kaldármelum
MIKLAR sviptingar urðu í röð efstu kepp-
enda á fjórðungsmótinu á Kaldármelum í
gær. En það var ekki bara í keppninni sem
sviptingar urðu því veðrið breyttist heldur
betur frá því í fyrradag. í gær rigndi lung-
ann úr deginum og var orðið býsna blautt
undir kvöldið á mótssvæðinu.
í A-flokki gæðinga hélt Brynjar frá Ár-
gerði efsta sætinu eftir fullnaðardóm, er með
8,60 í einkunn. Knapi var Sveinn Ragnars-
son. Nasi frá Bjarnarhöfn varð annar með
8,48, knapi Lárus Hannesson. Sorti frá Kjörs-
eyri varð þriðji með 8,44, knapi Sigurður
Marínusson.
í B-flokki hélt Dagrún frá Skjólbrekku
efsta sætinu með 8,61 í einkunn, knapi Olil
Amble. Maístjarnan frá Svignaskarði varð
önnur með 8,50, knapi Einar Öder Magnús-
son, og Krummi frá Geldingalæk varð þriðji
með sömu einkunn, knapi Vignir Siggeirsson.
Úr áttunda
í fyrsta sæti
í ungmennaflokki færði íris H. Grettisdótt-
ir sig úr þriðja sæti í flórða sætið á Emi
Orrasyni frá Ásmundarstöðum með 8,33.
Katrín Ólafsdóttir féll i annað sæti á Hrafni
frá Hrafnagili með 8,31, og sömu einkunn
hlaut Vigdís Gunnarsdóttir á Breytingu. Karen
L. Marteinsdóttir hélt forystunni á Manna frá
Leirárgörðum með 8,60. Sigurður I. Ámundar-
son á Torfa frá Torfunesi varð annar með
8,43 og Margrét Þ. Jónsdóttir vann sig upp
úr sjötta sæti í það þriðja á Hoffmani með
8,42. Sigríður H. Sigurðardóttir á Þætti frá
Vallanesi gerði enn betur þegar hún vann
stig úr áttunda sæti í fyrsta sæti í bama-
flokki. Hlaut hún 8,35 í einkunn, en næst
henni er Sóley B. Baldursdóttir á Frekju frá
Eyri með 8,32, og í þriðja sæti Birta Sigurðar-
dóttir á Elvari frá Gullberastöðum með 8,31.
Átta efstu fara í úrslit á sunnudag og er
búist við spennandi keppni í flestum flokkum.
Miklar breytingar urðu á röð þeirra sextán
efstu sem mættu í fullnaðardóm. Kynbóta-
hross vom dæmd í gær og í fyrradag og
urðu ekki miklar breytingar á efstu hrossum
frá dómi í forskoðun fyrr í sumar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HÚSIÐ var flutt í lögreglufylgd frá Nesvegi og yfir
á Reykjavíkurflugvöll.
Kona dæmd fyrir skjalafals
Fékk sér lyf út á
falsaða lyfseðla
Ráðherrar heimsækja Safnhúsið
Viðgerðir utan-
húss hafnar
ÞRJÁTÍU og átta ára gömul kona
var í gær dæmd í fjögurra mánaða
fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyr-
ir skjalafals með því að hafa frá
október 1996 til febrúar 1997 notað
alls 19 fjölnota lyfseðla til að afla
sér lyfja. Hún framvísaði lyfseðlum
þessum alls 57 sinnum í apótekum
til að verða sér úti um lyf.
Konan ritaði eigið nafn á nokkra
seðlanna og falsaði nöfn annarra
sem sjúklings á aðra og falsaði nöfn
ýmissa lækna. Hún framvísaði lyf-
seðlunum síðan í ýmsum apótekum
á höfuðborgarsvæðinu, í seinasta
skipti 14. febrúar sl., í Hagkaup
lyíjabúð, þar sem upp komst að ekki
væri allt með felldu.
Konan, sem er sjúkraliði og hefur
starfað á Landspítala, játaði ský-
laust brot sitt. Við yfirheyrslu hjá
lögreglu kvaðst hún hafa veikst í
júlí 1996 en ekki fengið tíma til að
jafna sig af veikindunum sökum
vinnuálags, auk þess sem ýmsir at-
burðir höfðu áhrif á geðheilsu henn-
ar. Hún tók að nota lyf við þung-
lyndi og kvíða og kvaðst hafa farið
að misnota sterkt verkjalyf, Parkód-
ín Forte, í nóvember og desember á
seinasta ári. Hafi hún tekið inn allt
að 20 töflum á dag.
í vottorði geðlæknis sem lagt var
fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
kom fram það álit að hegðun kon-
unnar á þeim tíma sem brotin voru
framin hafi verið sjúkleg og ekki í
neinu samræmi við venjulega hegð-
un hennar eða persónuleika. Dóm-
urinn taldi brotið stórfellt en tók til-
lit til veikinda hennar við ákvörðun
refsingar og að hún hafði engan fjár-
hagslegan ávinning af brotum sín-
um.
í SÍÐUSTU viku heimsóttu þeir
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra og Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra Safnhúsið við
Hverfisgötu og kynntu sér fram-
kvæmdir sem þar standa yfir og
hlýddu á tillögur sljórnar og for-
stöðumanns um nýja starfsemi í
húsinu árið 2000.
Nú standa yfir viðgerðir utan-
húss á Safnhúsinu sem áætlað
er að ljúki í haust. Húsið verður
m.a málað að nýju og kopar sett-
ur á þakið í stað bárujárns. Er
það í samræmi við upphaflegar
hugmyndir danska arkitektins
Magdahls-Nielsens, sem teiknaði
húsið. Allar breytingar, innan-
húss og utan, taka mið af því að
húsið er friðað og eru unnar í
samráði við húsfriðunarnefnd,
borgarminjavörð og byggingar-
yfirvöld.
Safnhúsið heyrir nú undir for-
sætisráðuneytið. Forsætisráð-
herra hefur skipað Salome Þor-
kelsdóttur formann hússtjórnar
og þá Jóhannes Nordal og Ólaf
Ásgeirsson í hússtjórn að tillögu
fjármálaráðherra og mennta-
málaráðherra. Hússtjórn hefur
ráðið Guðmund Magnússon,
skjalavörð í Þjóðskjalasafni, til
að vera forstöðumaður starfsem-
innar.
Hrafnsmál-
inu áfrýjað
til Hæsta-
réttar
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákveðið
að áfrýja til Hæstaréttar máli ríkis-
ins á hendur Hrafni Jökuissyni. Reis
málið út af ummælum Hrafns um
Harald Johannessen, fyrrum fang-
elsismálastjóra, sem hann hafði m.a.
í blaðagrein nefnt „glæpamanna-
framleiðanda ríkisins."
Héraðsdómur sýknaði Hrafn Jök-
ulsson fyrr í mánuðinum í máli sem
ríkissaksóknari höfðaði á hendur
honum og hefur saksóknari nú
ákveðið að áfrýja niðurstöðu héraðs-
dóms Reykjavíkur til Hæstaréttar.
Áður hafði Hæstiréttur sent fyrri
dóm Hérðasdóms aftur heim í hérað
og krafist efnislegrar niðurstöðu.
------» ♦ ♦----
Gönguferð
á Hengils-
svæðinu
FERÐAFÉLAG íslands gengst fyrir
þremur gönguferðum á morgun,
sunnudag. Fyrsta ferðin hefst kl.
8, en þá verður lagt af stað í dags-
ferð til Þórsmerkur. Farið verður inn
í Strákagil og stansað í Langadai
og á Steinsholti.
Fimmti áfangi göngunnar um
Reykjaveg hefst ki. 10.30. Ekið
verður í Bláfjöll og gengið þaðan
að Vatnsskarði á Krýsuvíkurvegi.
Þá hefst gönguferð á Hengils-
svæðinu kl. 13. (Reykjakot-Græn-
dalur). Þetta er mjög skemmtilegt
og litríkt svæði upp af Hveragerði.
Brottför í ferðirnar er frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
Morgunblaðið/Gunnar G. Vigfússon
FRÁ heimsókn ráðherra í Safnhúsið: Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra, Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður, Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, Guðmundur Magnússon skjalavörður,
Salóme Þorkelsdóttir formaður hússijórnar, Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og Jóhannes Nordal sem sæti á í hússljórn.
íþróttakennara-
skóli íslands
Erlingur
skipaður
skólastjóri
MENNTAMÁLARÁÐHERRA,
Björn Bjarnason hefur skipað
dr. Erling Jóhannsson íþrótta-
fræðing í starf skólastjóra
íþróttakennaraskóla íslands á
Laugarvatni til eins árs, sam-
kvæmt tillögu frá skólanefnd
íþróttakennaraskólans.
Erlingur tekur við af Árna
Guðmundssyni sem gegnt hef-
ur skólastjórastarfinu frá árinu
1956, en Árni lét af störfum í
byijun júní, fyrir aldurs sakir.
Álls bárust séx umsóknir um
skólastjórastöðuna.
Morgunblaðið/Þorkell
Bifreið í háloftum
BIFREIÐ sveif yfir Reykjavík í
gær þegar þyrla flutti eina
slika upp á þak Laugardalshall-
arinnar þar sem hún var fest
niður. Þessi óvenjulega stað-
setning stafar ekki af bráðum
skorti á bílastæðum í borginni,
heldur var bílnum valinn
þessi staður til að auglýsa sýn-
ingu á nýjum Toyota Corolla
sem stendur yfir í dag og á
morgun.
Andlát
KELDGALL
J0RGENSEN
LÁTINN er í Dan-
mörku Keld Gall Jorg-
ensen lektor við há-
skólann í Hróarskeldu.
Hann bjó og starfaði
hérlendis um árabil,
var m.a. sendikennari
við Háskóla íslands.
Keld Gall Jorgensen
var fæddur 1955 í
Kaupmannahöfn og
stundaði nám í háskól-
anum þar. Aðalfag
hans var danska en
íslenska aukafag og
tók hann BA-próf í
henni frá Háskóla Is-
lands. Hann bjó hérlendis árin
1981 til 1990, kenndi m.a. við
framhaldsskóla, Kennaraháskól-
ann og var síðast lekt-
or við Háskólann,
sendikennari í dönsku
og bókmenntum. Keld
Gall Jorgensen lést sl.
fimmtudag eftir alvar-
leg veikindi.
Keld Gall Jorgensen
var kvæntur Ragn-
heiði Ragnarsdóttur
arkitekt og eignuðust
þau tvær dætur. Þau
skildu og frá árinu
1990 bjó hann í Dan-
mörku. Frá árinu
1994 var hann lektor
við háskólann í Hró-
arskeldu. Eftirlifandi kona hans
er Annette Gall Jorgensen og
eignuðust þau eina dóttur.