Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Islenska gársjóðsins hf. Heildareignir tíföld- uðust á rekstíirárin u HAGNAÐUR af starfsemi íslenska fjársjóðsins nam rúmum 36 milljónum króna á síðasta rekstr- arári, 1. maí 1996 til 30. apríl 1997, en tekjur af hlutabréfaeign eru ekki skráðar fyrr en geymsluhagnaður er innleystur við sölu hluta- bréfanna, heldur færðar meðal eiginljárliða. „Sé tekið tillit tii þessa er afkoma sjóðsins betri sem nemur 299 milljónum króna og hefur þá verið tekið tillit til tekjuskattsskuldbindingar að fjárhæð rúmar 141 milljón króna. Ávöxtun eigna sjóðsins og þar með ávöxtun hluthafa var því með besta móti og hækkaði innra virði eigna sjóðsins um 71% frá upphafi til loka reikningsárs- ins að teknu tilliti til útgreidds arðs sl. sumar.“ Þetta kom meðal annars fram í ræðu Björns Líndal, stjórnarformanns Íslenska fjársjóðsins, á aðalfundi sjóðsins sem haldinn var sl. fimmtudag. íslenski fjársjóðurinn var stofnaður hinn 17. nóvember 1995 í þeim tilgangi að fjárfesta í hlutabréfum fyrirtækja sem eiga mikla vaxtar- möguleika, einkum á sviði sjávarútvegs og tengdra atvinnugreina. Heildareignir íslenska fjársjóðsins voru rúmar 1.600 milljónir í lok rekstrarársins og höfðu þær meira en tífaldast frá upphafi þess. Jafnhliða fjölgaði hluthöfum og voru þeir tæplega 4.300 talsins í lok reikn- ingsársins og hafði fjöldi þeirra sexfaldast á árinu. Fjárfest í óskráðum félögum í máli Björns kom fram að stjóm Islenska fjársjóðsins hefur mótað í samráði við rekstra- raðila fjárfestingarstefnu sem miðast við að meginstofn eigna sjóðsins séu hlutabréf fyrir- tækja sem eru skráð, annaðhvort á Verðbréfa- þingi eða Opna tilboðsmarkaðnum. „í lok reikn- ingsárs voru yfir 80% eigna sjóðsins skráð hluta- bréf. Með þessari skipan mála er tryggt að sjóð- urinn geti verið virkur fjárfestir, keypt og selt bréf eftir því sem talið er arðbært hveiju sinni og innleyst hagnað af fjárfestingum sínum. Þótt skráð hlutabréf séu þannig uppistaða eigna sjóðsins hefur einnig verið fjárfest í óskráð- um félögum í samræmi við ákvæði samþykkta og samkvæmt sérstökum starfsreglum sem stjórnin hefur sett. Að mati stjórnar og rekstra- raðila eru ýmis fjárfestingartækifæri á þessu sviði sem leynast i fyrirtækjum sem enn hafa ekki skráð hlutabréf sín á almennan markað. Hefur stjórnin ákveðið að kaupa megi hlutabréf óskráðra fyrirtækja fyrir allt að 15% eigna fé- lagsins, þó þannig að almennt nemi fjárfesting í einu og sama félaginu ekki hærri fjárhæð en 3% af eignum sjóðsins. Slík kaup eru þó háð því að viðkomandi félag stefni að skráningu á Verðbréfaþingi eða Opna tilboðsmarkaðnum inn- an fárra ára.“ 17% af hlutabréfaeign sjóðsins í Samherja Finnur Stefánsson, sjóðsstjóri íslenska fjár- sjóðsins, kynnti ársskýrslu sjóðsins á aðalfundin- um. Þar kom fram að 17% af hlutabréfaeign sjóðsins er í Samheija. Að sögn- Finns tryggði félagið sér dijúgan hlut í fyrsta hlutafjárútboði Samheija hf. þegar fyrir síðustu áramót, áður en ljóst var hvaða verðbréfafyrirtæki fengi út- boðið. „Má búast við því að hlutfallslegt vægi Samheija minnki í hlutabréfasafninu eftir því sem heildareignir Islenska fjársjóðsins aukast á næstu misserum og árum.“ Á fundinum flutti Ingvar Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Hugvits International (HINT), er- indi sem nefndist „Hugvit hf. og hugbúnaðarút- flutningur". Þar kom meðal annars fram að ís- lensk hugbúnaðarfyrirtæki leiti í æ ríkara mæli út fyrir landsteinana og þau séu almennt mjög vel samkeppnisfær við sambærileg fyrirtæki er- lendis. „Þó er ljóst að þau þurfa að styrkjast fjárhagslega og markaðslega. Hér á landi eru skráð um 130 hugbúnaðarfyrirtæki með um 800 starfsmenn. Á síðasta ári voru 20 þeirra að selja vörur sínar og þjónustu erlendis. Útflutnings- verðmætið var um 1.500 milljónir króna. Áætlað er að árið 2000 verði útflutningsverðmætið kom- ið í um 8.000 milljónir króna. Svo þetta verði að veruleika þurfa fyrirtækin að stækka og styrkjast. Ljóst er að fleiri hugbúnaðarfyrirtæki eiga eftir að sameinast og verða þannig_ öflugri til að takast á við erlenda markaði. Á sama hátt þarf að hlúa að tölvu- og tæknimenntun í landinu, veita meira fé til kennslu og hvetja fólk til slíks náms. Menntun á sviði upplýsinga- tækni á framhaldsskólastigi hefur verið þröngur stakkur sniðinn fjárhagslega og ljóst er að langt er í land að nægjanlegur fjöldi tæknimenntaðs fólks útskrifist á ári hveiju." Morgunblaðið/Jim Smart Á AÐALFUNDI íslenska fjársjóðsins hf. sem haldinn var sl. fimmtudag kom fram að hagnaður af rekstri sjóðsins nam rúmum 36 milljónum króna á síðasta rekstrarári. Islenska útvarpsfélagið með 60 milljóna hagnað Þróunar- félagið kaupir 16%hlutí Kerfi hf. ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf. hefur keypt 16% hlut í hugbúnaðarfýrirtæk- inu Kerfi hf. Fyrirtækið er að lang- stærstum hluta í eigu Þrastar Guð- mundssonar, en forráðamenn þess hafa að undanfömu unnið að því að breikka eigendahópinn með útgáfu nýs hlutaflár. Flestir starfsmenn eiga nú hlut í fyrirtækinu og ýmsir fjár- festar hafa sýnt áhuga á að eignast hlut. Þá er stefnt að því að hlutabréf- in verði skráð á Opnatilboðsmarkaðn- um síðar á þessu ári. Velta Kerfís á þessu ári er áætluð 120-130 milljónir króna og starfs- menn eru nú 20 talsins. Fram kemur í frétt að Kerfí hafí verið að styrkja stöðu sína undanfarin misseri eftir nokkum samdrátt í rekstri á síðustu árum og verkefnastaðan sé nú góð, bæði innanlands og utan. Meðai þekktustu hugbúnaðar- lausna Kerfís er fjárhags- og við- skiptakerfið ALVÍS og útvegskerfíð Seascape. Unnið er að umtalsverðum breytingum á ALVÍS-kerfunum sem kynntar verða með haustinu, en þær lúta að myndrænni framsetningu og notendaviðmóti. Þá er unnið að þróun á nýju launakerfí sem fengið hefur heitið Kaupmáttur, gæðakerfínu ProQm og sérhönnuðu upplýsinga- kerfí fyrir fiystitogara. Kerfi hefur ennfremur unnið að verkefnum erlendis þar sem þekking á bókhalds- og útvegshugbúnaði nýt- ist vel og í rekstraráætlun þessa árs er gert ráð fyrir að umfang erlendra verkefna nemi 25-30% af veltu fyrir- tækisins. Að sögn Bjöms Z. Ásgríms- sonar framkvæmdastjóra er þar eink- um um að ræða verkefni fyrir Coldw- ater, bæði í Bandaríkjunum og Bret- landi. Á aðalfundi Kerfís á mánudag verður lögð fram tillaga um heimild til að auka hlutafé fyrirtækisins enn frekar. ÍSLENSKA útvarpsfélagið hf. skil- aði um 60 milljóna króna hagnaði á síðasta ári sem er ívíð betri af- koma en árið 1995. Það íþyngdi afkomunni á síðasta ári að félagið þurfti að taka á sig gjaldfærslu vegna söluskattsmála frá árinu 1986 og starfslokasamninga við stofnendur. Að sögn Jpns Ólafssonar, stjórn- arformanns íslenska útvarpsfélags- ins hf., nam velta félagsins á síð- asta ári um 1.800 milljónum króna og jókst um 3% frá árinu á undan. „Það er í sjálfu sér viðunandi í ljósi þess að við vorum að keppa við sjón- varpsstöð sem var ókeypis á mark- aðnum. Við vorum því ekki með aukningu í áskriftartekjum af þess- um augljósu ástæðum, en góða aukningu á auglýsingatekjum." Um þróunina hjá félaginu eftir að Stöð 3 hætti rekstri segir Jón að allgóð aukning hafí orðið á áskriftartekjum og góð aukning á auglýsingum. „Hagnaður fyrstu ijóra mánuðina var 66 milljónir sem er mun meira en við áætluðum. Þar kemur til að við höfum náð allgóð- um tökum á útgjöldunum. Þau standa í stað milli ára meðan tekj- umar hafa verið að aukast. Batinn kemur fram í því fyrst og fremst, en einnig hefur gengisþróun verið hagstæð." Sérstök kvikmyndarás Jón segist aðspurður ekki útiloka það að félagið fari á hlutabréfa- markað síðar og bendir á að þar sé fyrst og fremst að finna fyrir- tæki í sjávarútvegi, flutningum, tryggingum ásamt olíufélögum. Því vanti fyrirtæki inn á markaðinn á öðrum sviðum viðskiptalífsins. Þá hefur íslenska útvarpsfélagið í undirbúningi að hefja útsendingar á þremur nýjum sjónvarpsrásum. „Við vonumst til þess að geta hafið útsendingar á sérstakri kvikmynda- rás í vetur sem mun sjónvarpa kvik- myndum allan sólarhringinn og í beinu framhaldi af því munum við vonandi sjá íþróttarás og barnarás. Þróunin er sú alls staðar í heiminum að bjóða upp á miklu meira úrval en þekkist hér á landi. Það er eðli- legt að við fylgjum þeirri þróun. Þá hófum við nýlega útsendingar á útvarpsstöðinni Stjörnunni og hún hefur fengið mjög góðar mótttökur samkvæmt skoðanakönnun," segir Jón Ólafsson. Helmingur bréfa í Tele Danmark seldur Kaupmannahöfn. DANSKA stjórnin mun selja 52% hlutabréfa í fjarskiptaris- anum Tele Danmark að sögn danska blaðsins Börsen. Ef öll bréfin seljast mun hagnaðurinn nema að minnsta kosti 20 milljörðum danskra króna og verður honum varið til þess að grynnka á skuldum danska ríkisins, samkvæmt frétt blaðsins. Ákvörðunin um sölu Tele Danmark verður tekin jafnhliða samningaviðræðum um fjár- lagafrumvarp dönsku stjórnar- innar og gerir Mogens Lykket- oft fjármálaráðherra ráð fyrir að pólitískur meirihluti sé fyrir sölunni. Búizt er við að Tele Dan- mark muni sjálft kaupa helm- ing hlutabréfanna og verði sú leið farin gæti gengi þeirra hækkað um 15-20% að sögn danska blaðsins. Erlendur kaupandi er talinn koma til greina, til dæmis brezki fjarskiptarisinn British Telecom, en dregið hefur úr líkum á þeim möguleika þrátt fyrir orðróm um að 10% hluta- bréfa í Tele Danmark hafi selzt á síðustu vikum. Laker í mál við B A um lendingar á Gatwick London. Reuter. LAKER AIRWAYS, flugfélag Sir Freddys Lakers sem frægt er fyrir lág fargjöld, ætlar í mál við British Airawys vegna úthlutunar Ieyfa til lendingar og flugtaks á Gatwick flugvelli Lundúna. Laker Airways heldur því fram að British Airways (BA) bijóti bandarísk lög gegn hringamyndunum og komi í veg fyrir heiðarlega samkeppni á leiðinni London-Miami. Laker staðhæfir að BA stjórni því hvaða vélar lendi og fari frá Gatwick og á hvaða tíma sólarhringsins af því að félagið sé alls ráðandi í úthlut- unarnefnd slíkra leyfa. Sam- kvæmt reglum ESB eigi slíkur aðili að vera hlutlaus. BA vísaði ásökun Lakers á bug og kvaðst mundu kreíja félagið um skýringar. BA og dótturfyrirtæki hafi aðeins 30% flugtaks- og lendingarleyfa á Gatwick í samræmi við ensk lög og það sé lágt hlutfall með til- liti til þess að um heimaflug- völl sé að ræða. Carlton og Granada fá stafræn leyfi London. Reuter. HLUTABRÉF í óháðu brezku sjónvarpsfyrirtækjunum Carl- ton Communications og Granada hafa hækkað í verði af því að þeim hefur verið út- hlutað þremur mikilvægum leyfum til að reka margrása stafrænt jarðsjónvarp í Bret- landi. Greiðslusjónvarpsrisinn BSkyB hefur auk Carlton og Granada verið eigandi staf- rænu sjónvapssamsteypunnar BDB (British Digital Broadc- asting). Eftirlitsyfirvald grein- arinnar skipaði BSkyB að selja 33% hlut sinn í BDB af sam- keppnisástæðum. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.