Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Grandi hf. selur 2% af 9,9% hlut sínum í SH
, Mjólkin
hækkar um
2 krónur
VERÐ á mjólk og mjólkurvörum
hækkar um tæplega 3% næstkom-
andi mánudag og þannig hækkar
verð á hverjum mjólkurlítra um
tvær krónur, eða úr 68 kr. í 70 kr.
Mjólkurverð hefur ekki hækkað í
ll/2 ár og þá hafði verðið ekki hækk-
að í fjögur ár þar á undan. Astæða
hækkunarinnar er kostnaðarhækk-
anir sem orðið hafa frá síðustu verð-
hækkun og munar þar mest um
hækkun á greiðslum til mjólkur-
^r'ramleiðenda.
-------------
Lélegasta
humarvertíð
seinni ára
HUMARAFLI á yfirstandandi ver-
tíð er nú orðinn um 718 tonn og ljóst
að stefnir í lélegustu humarvertíð
seinni ára. Um svipað leyti á síðustu
-^humarvertíð var aflinn orðinn um
v 1.168 tonn en heiidarafli á síðustu
humarvertíð var um 1.633 tonn.
Seljendur humarafurða segja áhrif
lélegrar vertíðar á markaðinn enn
ekki komin í ljós en hætt sé við að
framleiðendur geti orðið af einhverj-
um markaðstækifærum vegna hrá-
^fnisskorts þar sem næg eftirspurn
er eftir humri.
■ Stefnir í lélegustu/15
Nota á féð til fjárfest-
inga í sjávarútvegi
GRANDI hf. hefur selt 2% eignar-
hlut í Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hf. fyrir 172 milljónir króna.
Eftir söluna er hlutur Granda í
Sölumiðstöðinni 7,9%. Að sögn
Brynjólfs Bjamasonar, forstjóra
Granda, er markmiðið með sölu
hlutafjárins að afla fjár til að hag-
nýta tækifæri til fjárfestinga í sjáv-
arútvegi.
Kaupendur hlutafjárins eru ís-
lenski fjársjóðurinn hf. og íslenski
^ hlutabréfasjóðurinn hf. og kaupir
Islenski fjársjóðurinn fyrir tæplega
115 milljónir kr. en íslenski hluta-
bréfasjóðurinn fyrir rúmlega 57
milljónir.
Halda áfram sölu
afurða í gegnum SH
„Við eigum eftir þetta tæp 8% í
Sölumiðstöðinni og munum halda
áfram sölu afurða okkar í gegnum
Sölumiðstöðina. Við metum það svo
að fengist hafi mjög gott verð fyrir
bréfin, en það hefur þá þýðingu að
fyrirtækið er metið á 8.600 milljón-
ir. Við seljum þarna hvert prósent á
86 milljónir á genginu 5,65,“ sagði
Brynjólfur. Aðspurður vildi hann
ekki greina frá hvaða áform Grandi
hefði um fjárfestingu í sjávarút-
vegi.
Kaupin era gerð með þeim fyrir-
vara að allir forkaupsréttarhafar
falli frá forkaupsrétti sínum. Skv.
samþykktum SH hefur stjórn fyrir-
tækisins forkaupsrétt í fjórar vikur
og aðrir eigendur síðan í fjórar vik-
ur. Seljendur afurða, sem eru ekki
hluthafar, eiga svo forkaupsrétt í
aðrar fjórar vikur.
Morgunblaðið/Hjálmar Jónsson
Sótti tvo sjó-
menn á haf út
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, sótti tvo sjúka, íslenska sjómenn
á haf út í tveimur ferðum í gær. I
gærmorgun sótti þyrlan sjómann
sem var með sýkingu í andliti um
borð í Vin frá Bolungarvík, en skip-
ið var þá statt um 130 sjómílur vest-
ur af Reykjanesi, og í gærkvöldi var
veikur skipveiji sóttur um borð í
línubát sem var staddur um 60 sjó-
mílur suðvestur af Reylqanesi. Báð-
ar ferðirnar gengu greiðlega, skv.
upplýsingum lrá stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar, og gekk vel að
koma mönnunum um borð í þyrluna
í bæði skiptin. Lent var með menn-
ina í Reykjavík og voru þeir fluttir
á Landspítalann.
Umboðsmaður barna sendir heilbrigðisráðherra erindi vegna vanda BUGL
Urbætur brýnar
í geðheilbrigðis-
málum barna
ÞÓRHILDUR Líndal, umboðs-
maður barna, telur mjög brýnt að
yfirvöld vinni að úrbótum í geðheil-
brigðismálum bama á Islandi
vegna alvarlegs vanda barna- og
unglingageðdeildar Landspítalans
(BUGL). í bréfi sem Þórhildur rit-
aði Ingibjörgu Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra 28. maí sl. vegna
þessa máls hvetur hún ráðherrann
til að móta heildarstefnu í geðheil-
brigðismálum.
Þórhildur kveðst aðspurð ekki
hafa fengið önnur svör frá ráðu-
neytinu við bréfi sínu en að þessi
mál væru til skoðunar. Hún segist í
starfi sínu verða áþreifanlega vör
við erfiðleika barna og unglinga
sem eiga við geðræn vandamál að
stríða og vanda aðstandenda
þeirra, og segir ástand þessara
mála mjög alvarlegt. Arið 1995
óskaði Þórhildur einnig eftir svör-
um heilbrigðisyfirvalda vegna
vanda baraa- og unglingageðdeild-
arinnar en þá kom fram að aldrei
hefur verið skilgreint hvert hlut-
verk deildarinnar á að vera eða
hvernig starfseminni skuli háttað.
Víðtækt samráð heilbrigðis-,
félagsmála- og skólakerfis
í bréfinu segir Þórhildur m.a.:
„Með skírskotun til þeirrar um-
ræðu, sem orðið hefur í þjóðfélag-
inu síðustu daga um starfsemi
barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans og, í kjölfar þeirrar
umræðu, uppsögn núverandi yfir-
læknis, Valgerðar Baldursdóttur,
tel ég það sannanlega hafa komið í
Ijós að úrbóta er þörf í geðheil-
brigðismálum bama á Islandi og
það hið bráðasta."
Þórhildur telur augljóst að
styrkja þurfi stöðu barna- og ungl-
ingageðdeilarinnar innan heil-
brigðisþjónustunnar með setningu
laga- og stjórnvaldsfyrirmæla um
hlutverk og markmið, stjórn og
skipulag þessarar deildar.
Hvetur hún heilbrigðisráðherra,
sem yfirmann heilbrigðismála í
landinu að beita sér fyrir þvi að
skýr opinber heildarstefna í geð-
heilbrigðismálum barna og ungl-
inga verði mótuð og að gerð verði
samræmd áætlun ríkis og sveitar-
félaga til nokkurra ára um það
hvernig stefnumarkmiðum skuli
náð, þ.e. hverra aðgerða sé þörf.
„Mín skoðun er sú að leggja beri
ríka áherslu á víðtækt samráð full-
trúa heilbrigðis-, félagsmála- og
skólakerfis við gerð slíkrar fram-
kvæmdaáætlunar," segir í bréfinu.
2% barna þurfa að fá þjónustu
en hægt að sinna 0,1-0,2%
Vísar umboðsmaður barna til
þess að erlendar viðmiðanir bendi
til þess að 2% bama þurfi á geðheil-
brigðisþjónustu að halda á hverjum
tíma, en sá fjöldi fagmenntaðra að-
ila sem nú vinni á barna- og ungl-
ingageðdeildinni geti einungis náð
að sinna tæplega 0,1-0,2% íslenskra
barna og unglinga. Bætt þjónusta
fyrir börn og unglinga með geðræn
vandamál sé því þrýn nauðsyn.
arnir voru yfirspilaðir og leikurinn
endaði 24-6 fyrir ísland. Síðasti leik-
ur gærdagsins var gegn Tyrkjum og
vannst 20-10. Lokaleikirnir í dag eru
gegn Tékkum og Ungverjum.
Islenska kvennaliðið endaði í 16.
sæti í kvennaflokki með 303 stig úr
23 leikjum. I gær tapaði liðið naum-
lega fyrir Dönum, 13-17, en vann
síðan fyrrverandi Evrópumeistara
Frakka 21-9 í síðasta leiknum sem
við það misstu af titlinum til Breta. í
breska sigurliðinu spiluðu m.a. He-
ather Dhondy og Liz McGowan sem
urðu heimsmeistarar í blönduðum
flokki ásamt Islendingum á síðasta
ári.
■ 81 stig/41
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Sláttur hafinn
í Eyjafírði
SLÁTTUR hófst á bænum Ytri-
Tjörnum í Eyjafiarðarsveit í gær.
Benjamín Baldursson bóndi þar
hefur jafnan verið með fyrstu
mönnum að heQa slátt í Eyjafirði
og þá oftast mun fyrr en nú.
Baldur Helgi, sonur Benjamíns
var á fleygiferð með sláttuvélina
um heimatúnið þegar ljósmynd-
ari Morgunblaðsins var á ferð í
Eyjafjarðarsveit í gær. Baldur
Helgi sagði sprettu nokkuð góða,
þrátt fyrir heldur leiðinlegt tíðar-
far að undanförnu og gerði ráð
fyrir að halda áfram að slá næstu
daga.
Montecatini. Morgunblaöið.
ÍSLENDINGAR eiga enn mögu-
leika að ná einu af fimm efstu sæt-
unum í opnum flokki á Evrópumót-
inu í brids og vinna sér þannig
keppnisrétt í næstu heimsmeistara-
keppni. Til þess þurfa þeir þó að
vinna báða leiki sína í dag og fá hag-
stæð úrslit úr öðrum leikjum.
íslenska liðið er í 6. sæti þegar
tveimur umferðum er ólokið, með
583.5 stig. Efstir eru ítalir með,
635.5 stig, Pólverjar eru í 2. sæti
með 612,5, Norðmenn þriðju með
611, Frakkar í 4. sæti með 596 og
Danir í 5. sæti með 594.
Gærdagurinn byrjaði ekki vel þeg-
ar íslenska liðið tapaði 13-17 fyrir
Eistlandi, en það var eins og nýtt ís-
lenskt lið mætti í næsta leik Frakk-
Eiga enn von um
að ná HM-sæti