Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.06.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Morgunblaðið/Amaldur FJORIR af þeim fímm rannsóknarlögreglumönnum sem láta af störfum á þriöjudag. Frá vinstri: Eggert Bjarnason, Helgi Daníelsson, Ragnar Vignir og ívar Hannesson. Þeir hætta sáttir FIMM starfsmenn Rannsóknarlögreglu ríkisins láta af störfum um leið og emb- ættið verður lagt niður. Þeir hafa allir starfað hjá RLR frá því hún var stofn- sett en það var 1. júlí 1977, þannig að starfsaldur embættisins er nákvæmlega 20 ár. Starfsaldur fimmmenninganna er hins vegar Iengri og vantar aldursforset- ann í hópnum, Ragnar Vigni aðstoðaryf- irlögregluþjón, þrjá mánuði í 45 árin. fvar Hannesson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn hefur verið lögreglumaður í tæp 44 ár og hinir eitthvað skemur. Þeir eru Helgi Daníelsson yfirlögregluþjónn, Egg- ert Bjarnason rannsóknarlögreglumaður og Þorsteinn Steingrímsson rannsóknar- lögreglumaður. Allir ákváðu þeir að Iáta af störfum frekar en ráðast til starfa hjá nýju embætti og segjast allir hætta sátt- ir og óska þess að hið nýja fyrirkomulag á lögreglumálum gefist vel og verði landi og þjóð til heilla. Ný lögreglulög taka gildi 1. júlí Markmiðið að auka skilvirkni LÖGREGLULÖGIN nýju voru sam- þykkt á Alþingi í júní á síðasta ári og hefur síðan verið unnið að undirbúningi þeirra breytinga, sem þau gera ráð fyrir. Upphafið að setningu þeirra má þó rekja til ársins 1992 þegar Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra skip- aði nefnd í janúar það ár til þess m.a. að endurskoða lög um lögreglumenn og lög um rannsóknarlögreglu ríkisins. Meginniður- staðan varð sú að í frumvarpinu var lagt til að embætti ríkislögreglustjóra yrði komið á fót og Rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður í núverandi mynd. Auk þess gerði ráðuneytið breytingar á ákvæðum sem varða lögreglumenn í samræmi við athugasemdir Landssambands lögreglumanna. Frumvarp- ið var lagt fyrir Alþingi til kynningar 1993- 1994. Önnur nefnd var skipuð í maí 1995 og þá til að yfirfara og endurskoða áðurnefnt frumvarp. Henni var jafnframt falið að gera tillögur að breytingum á lögum um meðferð opinberra mála sem nauðsynlegar væru til að samræmi næðist við efni lögreglulaga- frumvarpsins. Markmiðið að gera rannsóknir afbrota hraðari og skilvirkari Markmið nefndarinnar voru einkum þau að endurskoða skipulag æðstu stjórnar lög- reglunnar; að tengja ákvæði lögreglulaga við endurskoðun á ákvæðum um ákæruvald í lögum um meðferð opinberra mála með það að markmiði að gera rannsóknir afbrota hraðari og skilvirkari. Ferill mála á rann- sóknar- og ákærustigi yrði einfaldaður og lögreglustjórum falið ákæruvald í fleiri brotaflokkum þannig að allur þorri saka- mála yrði rannsakaður undir stjórn þess lög- reglustjóra sem semdi ákæru í máli og sækti það fyrir héraðsdómi; að skýra reglur um framkvæmd lögreglustarfa, þ.á m. þær að- gerðir sem lögreglu er heimilt að grípa til í þeim tilgangi að halda uppi lögum og reglu í landinu; og að skýra reglur um réttindi og skyldur lögreglumanna. Endurskoðunin beindist einkum að yfir- stjórn lögreglunnar. Lagt var til, eins og í fyrra frumvarpi, að embætti ríkislögreglu- stjóra yrði komið á fót og það tæki við ýmsum verkefnum dómsmálaráðuneytisins, hluta af verkefnum RLR, sem gert var ráð fyrir að lögð yrði niður, og ýmsum smærri verkefnum frá lögreglustjóranum í Reykja- vík. Gert var ráð fyrir að flest rannsóknar- verkefni RLR yrðu færð til lögreglustjóra í héraði. Mest breyting á höfuðborgarsvæðinu Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi í mars 1993 og afgreitt þaðan sem lög í júní 1996. Að sögn Símonar Sigvaldasonar, skrifstofu- stjóra í dómsmálaráðuneytinu, gætir mestra breytinga á höfuðborgarsvæðinu. „Starf- semi lögreglunnar úti á landi breytist ekki mikið. RLR annaðist að meginstofni rann- sóknir brotamála á höfuðborgarsvæððinu. Þær rannsóknir færast til lögreglustjórans í Reykjavík og sýslumannanna í Hafnarfirði og Kópavogi. Þar gætir þessara áhrifa mest. Lögreglustjórar úti á landi hafa verið með öll þessi mál hingað til og verða það áfram,“ segir Símon. Til lögreglunnar í Hafnarfirði fara tveir starfsmenn RLR og tveir til lögreglunnar í Kópavogi. Aðrir starfsmenn RLR, sem ekki láta af störfum, skiptast á milli löreglustjóra- embættisins í Reykjavík og ríkislögreglu- stjóraembættisins. Ríkislögreglustjóri samræmi störf löggæslunnar í landinu Að sögn Símonar er hinu nýja embætti ríkislögreglustjóra ætlað gífurlega mikið hlutverk. „Það á að verða höfuð löggæslunn- ar í landinu og hafa verkefni í samræmi við það. Ríkislögreglustjóri fer, eins og segir í 4. gr. laganna, með málefni lögreglunnar í umboði dómsmálaráðherra og er þannig næstur ráðherra og yfir lögreglustjórum landsins. Við bindum miklar vonir við það hlutverk sem embættinu er ætlað en það að samræma störf löggæslunnar í landinu og vera sam- nefnari fyrir hana, stuðla að virku samráði og samstarfi milli hinna ýmsu lögreglu- stjóra. Annað mjög veigamikið hlutverk í starfi ríkislögreglustjóra er hin nýja skatta- og efnahagsbrotadeild sem hann starfrækir. Hún er rannsóknardeild með tiltekinn af- markaðan málaflokk sem að öðrum kosti hefði átt að vera hjá öðrum lögreglustjórum. Það að hann verður hjá ríkislögreglustjóra kemur til vegna eðlis hans og áherslunnar á að honum sé mjög vel borgið.“ Fljótlega eftir að lögin voru samþykkt Ný lögreglulög taka gildi næstkomandi þríðjudag, 1. júlí. Frá og með þeim degi heyrír Rannsóknaríögregla ríkisins sögunni til og nýtt embætti ríkislög- reglustjóra lítur dagsins ljós. Gréta Ing- þórsdóttir kynnti sér breytingar þær sem nýju lögreglulögin hafa í för með sér. skipaði dómsmálaráðherra átta manna nefnd sem átti að undirbúa og fylgjast með gildistöku nýju lögreglulaganna. Að sögn Símonar hefur nefndin unnið markvisst að gildistöku laganna og gætt að því að öll mál væru í réttu horfi þegar að því kæmi. „Ymis vinna, svo sem eins og við reglugerð- ardrög og fleira sem þarf að öðlast gildi, hefur farið fram í gegnum starf þessarar nefndar. Allt starfsmannahald, t.d. um störf sem leggjast niður hjá RLR, hefur komið nokkuð inn á borð þessarar nefndar. Síðan var önn- ur nefnd stofnuð samfara þessu sem átti að gæta að hagsmunum þeirra starfsmanna RLR sem missa störf sín þegar RLR er lögð niður. Hún hefur starfað mjög ötullega að hagsmunamálum lögreglumanna." Morgunblaðið/Júlíus TÆKNIRANNSÓKNASTOFA verður við embætti ríkislögreglustjóra. Hér er Bjarni Bogason að störfum er hann var starfsmaður tæknideildar RLR. Lokaþáttur í endurskoðun á réttarvörslukerfinu „Þetta er lokapunkturinn í endurskoð- unarferli dómsmálaráðherra á öllu réttar- vörslukerfinu frá 1992 en þá fór hann af stað með miklar réttarfarsbreytingar. Hann hefur endurskoðað alla löggjöf í réttar- vörslukerfinu; er búinn að endurskoða alla meðferð mála fyrir dómstólunum og núna náðist lokaáfanginn með endurskipulagn- ingu Iöggæslumála,“ sagði Símon. Að sögn hans mun hinn almenni borgari ekki finna mikið fyrir lagabreytingunni. „Það sem fólk mun kannski helst finna fyr- ir er það að ef það hefur grun um refsi- verða háttsemi og vill kæra, og það þótt um sé að ræða stærri mál, þá á það í öllum tilvikum að snúa sér til lögreglustjórans í sínu umdæmi.“ Ákæruvald færist til lögreglustjóra í ríkari mæli „Skipan löggæslumála og ákæruvaldsins er samhangandi. Samfara því að lögregla, hver í sínu umdæmi, rannsakar að megin- stefnu öll brot í því umdæmi, þá flyst á sama tíma ákæruvaldið frá ríkissaksóknara að miklu leyti til lögreglustjóranna sjálfra. Sami lögreglustjóri rannsakar mál og ákær- ir síðan í málinu í framhaldi. Þetta er gert til að ná einu meginmarkmiði allra þessara breytinga, sem er hraðari og skilvirkari málsmeðferð.“ Aðspurður um það hvort þessi breyting mála kallaði á endurmenntun lögreglustjóra sagði Símon að brugðist hefði verið við því nýlega með umfangsmiklu námskeiði á veg- um dómsmálaráðuneytisins fyrir ákærendur. A það komu allir lögreglustjórar og löglærð- ir fulltrúar þeirra. Um 35 starfsmenn hjá ríkislögregluslj óra Endanlegt skipurit ríkislögreglustjóra- embættisins hefur ekki verið gert opinbert en í frétt sem birtist í Morgunblaðinu 23. maí sl. var haft eftir Boga Nilssyni að í stöður yfirlögregluþjóna við embættið hefðu verið ráðnir þeir Hörður Jóhannesson, hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, og Jón Bjartm- arz hjá lögreglunni í Reykjavík. Ráðið hafi verið í stöður sex aðstoðaryfirlögregluþjóna og verði hver þeirra í forsvari fyrir einni deild. Þeir eru Arnar Jensson fyrir efnahags- brotadeild, Bjarni Jóhann Bogason fyrir tæknirannsóknarstofu, Björn Halldórsson fyrir upplýsingamiðstöð í fíkniefnamálum, Gísii Pálsson fyrir deild sem veitir aðstoð við rannsókn sakamála, Smári Sigurðsson fyrir alþjóðadeild og Jón M. Gunnarsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á almennu sviði. Forstöðu þessara deilda skipta Þórir Oddsson vararíkislögreglustjóri, Hörður Jó- hannesson, Jón Bjartmarz og Jón H. Snorra- son, lögfræðingur hjá RLR, með sér og verða þeir yfirmenn áðurnefndra manna. Starfsmenn ríkislögreglustjóraembættis- ins verða, að sögn Boga Nilssonar, u.þ.b. 35. Þar af verður 21 lögreglumaður. Breytt deildaskipting hjá lögreglunni í Reykjavík Verulegar breytingar verða hjá lögreglu- stjóraembættinu í Reykjavík á þriðjudag. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar yfirlög- regluþjóns verður starfseminni skipt í fjórar megindeildir; undir varalögreglustjóra, Har- ald Johannessen, sem jafnframt verður næstráðandi lögreglustjóra og staðgengill hans, heyrir almenn deild, þar sem eru um 200 stöðugildi. Þar sér Jónmundur Kjartans- son, yfirlögregluþjónn, um daglegan rekst- ur. Undir lögreglustjóra, Böðvar Bragason, heyra síðan ákæru- og lögfræðisvið undir stjórn Egils Stephensen saksóknara; rann- sóknardeild undir stjórn Guðmundar Guð- jónssonar yfirlögregluþjóns og skrifstofu- deild undir stjórn Stefáns Hirst lögfræðings. Almennri deiid tilheyrir almenn löggæsla, forvarna- og fræðsludeild, sem áður var undir rannsóknadeild, og sérsveit lögregl- unnar. Fjölgað hefur verið í yfirstjórn al- mennrar deildar. Verkstjórnarlega er hún undir varalögreglustjóra og fjölgað hefur verið um tvo aðstoðaryfirlögregluþjóna, sem eru Geir Jón Þórisson, settur aðstoðaryfir- lögregluþjónn í almennri löggæslu, og Karl Steinar Valsson, aðstoðai'yfirlögregluþjónn í forvarna- og fræðsludeild. Auk Egils Stephensen verða 10 lögfræð- ingar á ákæru- og lögfræðisviði. Mest breyting í rannsóknardeild Stærsta breytingin verður að sögn Guð- mundar á rannsóknardeildinni. Þar verða paraðar saman deildir: auðgunarbrotadeild og ávana- og fíkniefnabrotadeild verða sjálf- stæðar en tengdar saman með aðstoðaryfir- lögregluþjóni sem verður Ómar Smári Ár- mannsson. Sigurbjörn Víðir Eggertsson að- stoðaryfirlögregluþjónn tengir saman tvær deildir. í annarri verða rannsökuð brot gegn lífi og líkama og ýmis sérrefsilagabrot í hinni. Yfir stoðdeildum rannsóknardeildar verður Friðrik Gunnarsson aðstoðaryfiriög- regluþjónn. Undir stoðdeildunum eru tækni- deild, upplýsinga- og eftirlitsdeild, málaskrá, kærudeild og fyrirkallsdeild. Rannsóknardeildin verður með verkefni þau sem hún var með, bæði fíkniefnabrot, skemmdarverk, umferðarlagabrot og fleiri rannsóknaverkefni. Starfsmenn rannsóknar- deildar verða 73, þar af koma 15 menn frá RLR.. I I I > I l L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.