Morgunblaðið - 28.06.1997, Side 8
8 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞÉR verður ekki lengi að batna núna, karlinn minn, ég er komin með alla hómópataflór-
una eins og hún leggur sig...
Varnaræfingin Norður-Víkingur hefst í lok júlí
3.500 manns
taka þátt í
æfingunni
3.500 manns munu taka þátt í
vamaræfingunni Norður-Víking-
ur, sem haldin verður á Islandi
30. júlí til 5. ágúst í sumar. Þar
af koma 1.200 manns frá Banda-
ríkjunum. Þetta var meðal þess
sem kom fram þegar dagskrá
æfinganna var kynnt í utanríkis-
ráðuneytinu í gær.
Æfing af þessu tagi hefur verið
haldin annað hvert ár síðan 1983
og er það liður í framkvæmd
varnarsamningsins. Gert er ráð
fyrir að æfingin muni kosta
Bandarikjamenn um 6 milljónir
dollara eða ríflega 400 milljónir
króna.
Tilgangur æfingarinnar er að
samræma æfingu varna Islands í
lofti, á láði og á legi í því skyni
að gefa varnarsveitum tækifæri
til að kynnast staðháttum á ís-
landi, landslagi og veðurfari.
Liðsaflinn kemur til landsins 28.
júlí og lýkur brottflutningi her-
manna 10. ágúst.
Bandaríkjamenn munu bera
hitann og þungann af æfingunni.
Auk herliðs munu þeir m.a. senda
þyrlusveitir og tvær B-1 og tvær
B-52 sprengjuflugvélar. Einnig
mun sérsveit norska hersins taka
Morgunblaðið/Amaldur
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra kynnti fjölmiðlum í gær
varnaræfinguna Norður-Víking, sem haldin verður hér á landi í
sumar. Til vinstri á myndinni er Þórður Ægir Óskarsson, skrifstofu-
stjóri varnamálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og í baksýn sést
Arnór Sigurjónsson sendiráðunautur.
þátt, ásamt norskum kafbát, og
Hollendingar munu senda sjö F-16
orrustuþotur. Þá verða kafbátale-
itarvélar frá Hollandi og Kanada
og Awacs-flugvél frá NATO með
í æfingunni.
Þyrlur í sérverkefnum
„Sérstök verkefni" verða unnin
fyrir íslendinga í tengslum við
æfinguna með þremur CH-47
Chinook flutningaþyrlum þjóð-
varðliðsins í Pennsylvaniu. Er þar
um að ræða flutning neyðarskýla
á Vestfjörðum fyrir Slysavarnafé-
lagið og fjarskiptaendurvarpa upp
á fjallstinda á Norður- og Austur-
landi fyrir björgunarsveitir.
Einnig flutning á möl í gang-
stíga í Skaftafelli fyrir Náttúru-
vemdarráð og göngubrúarefni inn
í Morsárdal, í Lónsöræfi og Eyja-
fjörð fyrir ferðafélög. Þá verður
flugvélabrak fjarlægt af Gígju-
jökli fyrir umhverfisráðuneytið.
Með tilliti til þess að æfingin á
sér stað um mestu ferðahelgi árs-
ins er hún sérstaklega skipulögð
með það fyrir augum að hún valdi
sem minnstum óþægindum fyrir
ferðamenn og íbúa þeirra svæða
sem hún tekur til.
Sameigínleg stefna Evrópuríkja í orkumálum
Tómas Ingi Olrich vinnur að
skýrslu Evrópuþingsráðsins
TÓMAS Ingi Olrich alþingismaður
var í gærmorgun útnefndur á fundi
vísinda- og tækninefndar Evrópu-
þingsráðsins til að vinna að skýrslu
um sameiginlega stefnu Evrópuríkja
í orkumálum. í frétt frá Alþingi
kemur fram að markmið þeirrar
vinnu sé að gera úttekt á mismun-
andi orkugjöfum, meta áhrif orku-
vinnslunnar á umhverfið eftir því
hvaða orkugjafar eiga í hlut og
marka stefnu í málaflokkum.
Skýrsla um orkusamning Evrópu,
sem Tómas Ingi er höfundur að, var
samþykkt á þingi Evrópuráðsins sem
lauk í gær. Tuttugu ríki hafa þegar
undirritað orkusamninginn sem er
lagalega bindandi, en undirskrift
þrjátíu ríkja þarf til þess að hann
taki gildi. Tómas Ingi kynnti niður-
stöður skýrslunnar í gærmorgun og
lagði áherslu á að samþykkt orku-
samningsins væri mikilvæg forsenda
efnahagslegrar uppbyggingar, eink-
um í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu.
Gríðarleg uppbygging væri framund-
an í orkumálum þessara ríkja og
samningurinn mundi greiða götu er-
lendra fjárfestinga með því að skapa
þeim öruggan lagalegan grundvöll.
„íslendingur" við stríðsglæpadómstól
Frá Peking um
Kópavog og
Oxford tii Haag
Bing Bing Jia
HJÁ alþjóðlega stríðs-
glæpadómstólnum
í Haag, þar sem
réttað er yfir mönnum sem
ákærðir eru fyrir að hafa
framið stríðsglæpi í borga-
rastríðinu í fyrrum Júgó-
slavíu, starfar nú sem að-
stoðarmaður eins ellefu
dómara við réttinn ungur
maður, sem dvaldi einn vet-
ur á Islandi eftir að kín-
versk stjórnvöld létu til
skarar skríða gegn náms-
mönnum á Torgi hins him-
neska friðar í Peking sum-
arið 1989.
Ættarnafn hans er Jia
en skírnarnafnið Bing Bing.
Á kínversku þýðir Bing
hermaður, og hafa því ís-
lenzkir vinir hans tíðkað að kalla
hann Hermann. Blaðamaður
Morgunblaðsins hitti Bing Bing
nýlega í Haag, og fékk hann til
að skýra frá starfi sínu þar og frá
þeim ferli sem leiddi hann úr girð-
ingarvinnu á íslandi í það hlut-
verk sem hann nú gegnir.
- Hvernig kom það til að þú
komst tii Islands á sínum tíma?
„Um það leyti sem harmleikur-
inn á Torgi hins himneska friðar
átti sér stað sóttust margir kín-
verskir námsmenn eftir því að
komast í nám erlendis. Flestir
stefndu til Norður-Ameríku. Ég
hafði sótt um að komast í fram-
haldsnám í Oxford, en skólagjöld-
in þar voru slík að það kom ekki
til greina. Ég innritaðist þess í
stað í mastersnám í lögfræði í
háskólanum í Peking. En í kjölfar
harmleiksins í júní gripu stjórn-
völd til ýmiss konar refsiaðgerða
gagnvart stúdentum. Ég var einn
margra, sem átti að senda út í
sveit í „endurhæfingu", eins og
slík vist hefur verið kölluð.
Arnór Hannibalsson er gamall
vinur föður míns frá því þeir voru
saman í námi í Moskvu fyrir 40
árum. Þegar hann frétti þetta
stakk hann upp á því í bréfi að
ég kæmi til íslands. Eftir samráð
við fjölskylduna varð það úr að
ég þáði þetta boð og kom til ís-
lands í desember 1989 og dvaldi
þar í um tíu mánuði.
Haustið 1990 hafði tekizt að
útvega styrki í Oxford sem svör-
uðu öllum skólagjöldunum og gat
ég þá hafið framhaldsnám þar.
Ég var mjög ánægður á íslandi
og það var erfitt fyrir mig að
fara þaðan. Þegar ég var kominn
til Oxford þjakaði mig snertur af
heimþrá til Islands! Mér er landið
mjög kært. Ég ferðaðist um það
allt og met reynsluna af dvölinni
mikils.
Síðan varð það hlutskipti mitt
að dvelja langdvölum við nám í
Oxford. Haustið 1995 varði ég
doktorsritgerð mína við skólann."
sambandi við, benti mér á að
sækja um þessa stöðu aðstoðar-
manns kínverska dómarans, Li
Haopei. Kennari minn í Oxford,
Ian Brownlie, og í Peking, Wang
Zjia prófessor, skrifuðu með-
mælabréf með umsókn minni og
ég var ráðinn um leið.“
- / hveiju felst starf þitt fyrir
dómarann?
„Það felst í því að stunda rann-
sóknir sem tengjast því máli sem
dómarinn er að fást við og að
► Bing Bing Jia er fæddur í
október 1968 í Peking, þar sem
hann ólst upp og hlaut sína
skólamenntun. Vorið 1989 lauk
hann lögfræðiprófi frá Peking-
háskóla. Þá um haustið kom
hann til íslands og dvaldi hér
fram á haust 1990, þegar hann
hóf framhaldsnám í alþjóðalög-
fræði við Oxford-háskóla. Það-
an lauk hann doktorsprófi
1995. í desember í fyrra hóf
Bing Bing störf sem aðstoðar-
maður kínverska dómarans í
alþjóðlega stríðsglæpadóm-
stólnum í Haag.
veita honum lögræðilega ráðgjöf,
en sú ráðgjöf sem við aðstoðar-
mennirnir getum veitt stendur
öllum dómurunum jafnt til boða
þótt við séum hvert og eitt að
nafninu til aðstoðarmenn hvers
dómara fyrir sig. Alls starfa um
400 manns af 56 þjóðernum við
dómstólinn, þar af þrír Kínveijar.
Starf mitt hér er að mínu mati
mjög spennandi; það krefst mikils
af manni. Ég vinn við að fást við
lögfræðileg vandamál í alþjóða-
rétti, sem er það sem ég hef béint
huga mínum að á undanförnum
áratug. Þetta heldur því athygli
minni allri.
Það sem er krefjandi við að
fást við lögfræðileg vandamál í
tengslum við stríðsglæpi er eink-
um það, að ólíkt hefðbundnum
alþjóðalögum eru lögin sem við
eiga í þessum málum eru fjarri
því að vera skýr. Á öðrum sviðum
opinbers alþjóðaréttar er í flestum
tilvikum við alþjóðasamninga eða
sterka fordæmishefð að styðjast,
en slíku er ekki til að dreifa þeg-
ar dæma á í ákærumálum eins
og þeim sem fjallað er um fyrir
stríðsglæpadómstólnum. Það er
þetta sem gerir starfíð hér mjög
spennandi fyrir lögfræðinga."
- Það er sagt að Li dómari sé
mjög sérstakur maður. Getur þú
sagt mér nánar frá honum?
„Það má segja að Li dómari sé
goðsögn í Iifanda lífi. Hann er
einn fjögurra þekktustu og beztu
lögfræðinga í alþjóða-
rétti sem Kínvetjar
eiga. Hann fæddist
árið 1906 og stundaði
nám í London í lok
fjórða áratugarins.
Hann hefur kennt alþjóðalög við
háskólann í Peking frá því á
fimmta áratugnum og verið ráð-
gjafi kínverska utanríkisráðu-
neytisins um áratuga skeið.“
- Hann er 91 árs gamall. Hefur
hann fullt vinnuþrek?
„Já. Það eina sem háir honum
er að hann heyrir ekki vel. En
hugsun hans er eins skýr og ver-
ið getur. Það eru allir sammála
um sem vinna með honum, og
hann er við hestaheilsu."
- En hvernig kom það svo til
að þú hófst störf við stríðsglæpa-
dómstólinn? ----------
„Það var fyrir
hreina tilviljun. Fyrr-
um kennari minn við
háskólann í Peking,
sem ég hafði haldið
Við dómstól-
innerfólkaf
56 þjóðernum