Morgunblaðið - 28.06.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 37
GUÐMUNDUR
HELGASON
Guðmundur
Helgason húsa-
smíðameistari
fæddist á Strand-
seljum við Isa-
fjarðardjúp 6. jan-
úar 1920. Hann Iést
á elliheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
18. júní síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðrún Ólafs-
dóttir, f. 3. júlí 1897,
d. 24. nóv 1987, og
Helgi Guðmunds-
son f. 18. sept. 1891,
d. 8. okt 1945.
Guðmundur var elstur 16
systkina sem eru Guðbjörn sem
er látinn, Ólafur, Steingrímur,
Guðríður, Kjartan,
Guðbjörg, Jón, Sig-
urborg, Hannibal,
Matthías, Sigurlína,
Haukur, Lilja, Auð-
unn og Lára.
Guðmundur
kvæntist 2. júní
1945 Margréti Guð-
mundsdóttur, f. 10.
apríl 1921, frá Tan-
draseli í Borgar-
firði. Þau eignuðust
fimm börn sem upp
komust. Þau eru:
Ólöf, f. 2. jan. 1946,
Helga Guðrún, f. 24.
mars 1947, Helgi, f. 19. feb
1950, Guðmundur, f. 5. nóv.
1953, og Edda, f. 22. nóv. 1957.
Með virðingu langar mig til að
minnast Guðmundar tengdaföður
míns með fáeinum línum. Okkar
kynni hófust vorið 1964 er ég
kynntist Helgu Guðrúnu. Það var
í apríl og Guðmundur var að rífa
stóran trékassa í heimkeyrslunni
sem hafði verið utan um bíl sem
hann keypti. En það þótti mikill
fengur í þessum kössum og Guð-
mundur kom öllu timbrinu hagan-
lega fyrir uppi á lofti. Það gat
verið gott að grípa til þess seinna
meir. Alltaf var nýtnin í fyrirrúmi.
Honum féll sjaldan verk úr hendi
og var hann mikill listasmiður eins
og við fengum að kynnast. Þegar
við, börn hans og tengdaböm, fór-
um að koma upp húsi hjálpaði
hann okkur mikið við það. Við
Guðmundur störfuðum saman hjá
Trésmiðju K.Á. í nokkur ár og
margar ferðirnar fórum við til
Reykjavíkur um helgar til að smíða
fyrir ættingja og vini Guðmundar.
Oft voru þetta fjörugar ferðir því
Guðmundur var léttur og skemmti-
legur félagi. Eins var gaman að
ferðast með honum um landið en
sérstaklega þegar við fórum vestur
í ísafjarðardjúp á hans æskuslóðir.
Þá varð maður var við það að hann
fór að bæta við hraðann þegar við
fórum að nálgast heimahagana,
við kölluðum það hlaðsprettinn.
En margar ferðir voru farnar vest-
ur í Unaðsdal, það var oft skropp-
ið á föstudagskvöldi sem þótti ekki
mikið mál svona stuttar helgar-
ferðir.
Stundvísi var aðalsmerki Guð-
mundar, það var sama hvort það
var í starfi eða leik. Mér eru öll
ferðalögin sérstaklega minnisstæð.
Matar- og kaffitímar urðu að vera
í föstum skorðum og gekk hann
fast eftir að það væri haldið. Það
líkaði undirrituðum vel. Ekki dugði
það að hafa máltíðir á réttum tíma,
það varð líka að vera eitthvað að
borða. Þá kom til kasta tengda-
móður minnar sem var eins og
klettur við hlið Guðmundar alla
tíð. Alltaf tilbúin að sinna honum
og heimilinu, börnunum og bama-
bömunum. Dugnaðurinn og æðm-
leysið hjá Margréti að hjúkra Guð-
mundi síðustu árin sem hann gat
verið heima eftir að veikindi fóra
að gera vart við sig var einstakur.
En það hefur verið upp úr 1988
sem vart varð við gleymsku hjá
honum. En hann vann í trésmiðju
K.Á. þar til um sumarið 1992, þá
fékk hann vægt heilablóðfall og
upp úr því hrakaði honum stöð-
ugt. Margrét hjúkraði honum
heima í þrjú ár, þar til í september
1995 að hann fékk pláss á Ljós-
heimum á Selfossi. Þar fékk hann
frábæra umönnun og starfsfólk
Ljósheima á þakkir og heiður skil-
ið fyrir störf sín sem unnin eru við
erfiðar aðstæður.
Ég kveð nú tengdaföður minn
með þakklæti í huga. Okkar sam-
starfi er lokið í bili. Guð stýrir því
sem seinna á eftir að verða. Ég
færi Margréti og allri fjölskyldunni
innilegar samúðarkveðjur. Guð
blessi minningu Guðmundar
Helgasonar.
Jón Gunnlaugsson.
Guðmundur Helgason kom til
Selfoss 1944. Hann hafði þá lokið
búfræðinámi frá Hvanneyri. Það
hittist svo á þegar hann kom að
brúin lá niðri. Guðmundur hóf störf
hjá Guðmundi Eiríkssyni húsa-
smíðameistara, meðal annars við
byggingu Selfossbíós. Guðmundur
hóf fljótlega nám í húsasmiði hjá
Þorsteini Sigurðsyni, sem starfaði
fýrir Kaupfélag Ámesinga. Hann
var reyndar fyrsti nemandi í húsa-
smíði hjá KÁ. Þetta var á fyrstu
áram trésmiðjunnar, þeir vora
framherjar. Trésmiðjan var fljót-
lega staðsett í bragga á móti gamla
iðnskólanum. Hann var verkstjóri
um tíma í bekksalnum þegar Sig-
urður Ingimundarson stjómaði tré-
smiðjunni. Guðmundur tók því þátt
í byggingu margra sögulegra húsa,
þar á meðal Landsbankans á Sel-
fossi 1950.
Á þessum áram var lítið um efni
til bygginga. Guðmundur hóf þó
byggingu íbúðarhússins í Smára-
túni 5 sem varð síðan heimili þeirra
hjóna Margrétar Guðmundsdóttur
og hans. Þau hjálpuðust mikið að.
M.a. var Margrét að tví- og þrí-
rétta notaða nagla. Vinnudagurinn
var langur, efni viðað að, húsið
steypt í áföngum, jámið á þakið
upprétt braggajárn, nýtni var
dyggð á þessum áram. Húsið við
Smáratún er reisulegt og þarf enn
þann dag í dag lítið viðhald enda
vandað til verka. Sumarið 1956
brann bragginn með trésmiðjunni.
Þá var flutt í nýtt húsnæði aust-
urfrá þar sem trésmiðja KÁ er nú.
Vinnuaðstaðan breyttist mikið frá
því að vera í bragganum sem var
að hluta á tveimur hæðum þar sem
samsetningin fór fram á efri hæð.
I nýja húsnæðinu var rýmið mikið
og mikið framleitt, m.a. innrétting-
ar í hótelin í Reykjavík, Bændahöl-
lina, Hótel Esju og fleiri.
Guðmundur Helgason vann nær
allan sinn starfsferil á Selfossi hjá
trésmiðju KÁ að undanskildum fjór-
um áram sem hann starfaði fyrir
Selfosshrepp. Guðmundur hætti
störfum hjá trésmiðju KÁ 1992,
þá 72 ára, þegar lasleikinn fór að
gera vart við sig. Þá reyndust sam-
starfsmenn hans honum vel og má
þar sérstaklega telja Magnús Þor-
bergsson. Sem dæmi um það hvað
Guðmundur gekk skipulega til
verks er þegar Guðmundur starfaði
hjá hreppnum alltaf undirbúinn með
tilsniðin spjöld og annað sem reikna
mátti með að bilaði í útköllum.
Á starfsferli sínum hjá KÁ vann
hann mikið að félagsmálum starfs-
manna, tók þátt í að skipuleggja
ýmsar skemmtanir, t.d. sumarferð-
ir, þorrablót og fleira. Samstarfs-
menn hans minnast þessara daga
með gleði og söknuði.
Guðmundur skrifaði alltaf
dagbækur. Hann var mikill jafnað-
armaður, vann ötullega að fram-
fara- og kjaramálum byggingariðn-
aðarmanna í Ámessýslu. Hann var
einn af stofnfélögum Félags bygg-
ingariðnaðarmanna í Árnessýslu,
handhafi félagsskírteinis númer 1,
var kjörinn ritari 2. stjórnar F.B.Á.
og starfaði nánast alla tíð í trúnað-
arráði. Hann var talinn góður og
nákvæmur samningamaður og tók
þátt í fjölda kjarasamningagerða
og naut mikils trausts til þess.
Guðmundur var gerður heiðursfé-
lagi á 30 ára afmæli félagsins 1989.
Hann sat þing ASÍ, Sambands
byggingarmanna og Alþýðusam-
bands Suðurlands fyrir félagið sitt.
Fyrram formenn minnast þess hve
hann vann af miklum heilindum og
samviskusemi. Hann mætti alltaf á
fundi ef mögulegt var, var í öngum
sínum ef hann gat ekki látið for-
mann vita ef út af brá.
Ég kynntist Guðmundi sem ein-
örðum jafnaðarmanni og verkalýðs-
sinna. Hann bar virðingu fýrir bar-
áttu verkafólks og fyrir réttlátum
kjöram. Hann var ættaður af Vest-
fjörðum líkt og ég. Hann hreifst
af Hannibal og þeirri stefnu. Árið
1995 var stofnað Sunnlenska iðnfé-
lagið, þegar Félag byggingariðnað-
armanna í Ámessýslu og Iðnaðar-
mannafélag Rangæinga sameinuð-
ust og Austur-Skaftfellingar komu
með. Þá gerðist hann sjálfkrafa
félagi þar líkt og aðrir og heiðurs-
nafnbót Guðmundar Helgasonar
fylgdi með. Við yngri mennimir
minnumst Guðmundar Helgasonar
sem klettsins sem stóð alltaf við
bakið á okkur, hann var hinn full-
orðni maður, hæglátur, yfirvegaður
og ráðagóður. Hann gaf félaginu
virðulegan blæ.
Kæra Margrét Guðmundsdóttir
og íjölskylda. Við þökkum ykkur
fyrir þann tíma sem Guðmundur
eyddi frá ykkur á fómfúsan hátt
fyrir byggingariðnaðarmenn.
Stjóm Sunniðnar sendir þér, böm-
um þínum og fjölskyldum þeirra
innilegustu samúðarkveðjur. Megi
gæfan vera með ykkur.
Ármann Ægir Magnússon,
formaður Sunniðnar.
Kveðja frá Alþýðuflokks-
félagi Selfoss
Alþýðuflokksfélag Selfoss á
fimmtíu ára afmæli nú á þessu
ári, en það var stofnað 12. janúar
1947 og er því jafn gamalt sveitar-
félaginu.
í fundargerð stofnfundar kemur
fram að frumkvæðið að stofnun
félagsins og undirbúningur stofn-
unarinnar hafi verið í höndum
þeirra Guðmundar Jónssonar, Guð-
mundar Helgasonar og Bjarna Ól-
afssonar.
Nú kveðjum við Guðmund
Helgason, síðastan þeirra þre-
menninga. Á þessum fimmtíu
árum hefur margt breyst í landinu
og sveitarfélagið vaxið úr fámennu
þorpi í blómlegan bæ með á fimmta
þúsund Sbúa.
Guðmundur var vakandi þátt-
takandi í þessari framfarasókn á
ýmsum sviðum, m.a. á sviði
hreppsmála, en hann sat í hrepps-
nefndum á árunum 1950-1958
fyrir lista samvinnumanna.
Fyrir Alþýðuflokksfélagið hafa
skipst á skin og skúrir eins og
gengur og flokkurinn oft haft vind-
inn í fangið í kjördæminu, en Guð-
mundur lá ekki á liði sínu og var
starfsamur innan félagsins og
lagði gott til mála. Ekki lét hann
heldur sitt eftir liggja þegar sér-
staklega mikið lá við eins og við
undirbúning kosninga. Munaði þá
um þennan vestfirska víking.
Nú er þessi góði og ötuli félagi
fallinn eftir langa og stranga
sjúkralegu. Ekki er þó merkið fall-
ið því bæði sonur hans og tengda-
dóttir halda áfram starfi hans í
félaginu.
Við sem eftir stöndum vottum
minningu Guðmundar Helgasonar
virðingu og sendum Margréti,
börnum þeirra og öðrum aðstand-
endum samúðarkveðjur.
Steingrímur Ingvarsson.
+
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma,
GUÐBJÖRG RAGNHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist á Landspítalanum að morgni miðvikudagsins 25. júní sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Heiðar Albertsson,
Ingibjörg Þóra Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabarn.
t
Kveðjuathöfn vegna andláts
JÓHANNS GEORGS MÖLLER,
Laugarvegi 25,
Siglufirði,
er lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikuda-
ginn 25. júní, fer fram í Fossvogskirkju mánu-
daginn 30. júni kl. 11.00 f.h.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 5. júlí kl. 14.00.
Helena Sigtryggsdóttir,
Ingibjörg Möller,
Alda B. Möller,
Jóna Möller,
Kristján L. Möller,
Alma D. Möller,
Barði Þórhallsson,
Derek K. Mundell,
Sveinn Arason,
Oddný H. Jóhannsdóttir,
Torfi F. Jónasson,
Karl H. Sigurðsson
og barnabörn.
+
ÞORGEIR KR. MAGNUSSON,
Skúlagötu 76,
Reykjavik,
lést af slysförum þann 23. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 2. júlí kl. 10.30.
Vinir hins látna.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar elskulegu,
ELÍNAR SIGRIÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Kistufelli,
Lundarreykjadal,
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Dvalar-
heimilis aldraðra, Borgarnesi, og starfsfólki A-
deildar á Sjúkrahúsi Akraness fyrir þeirra kærleiksriku umönnun.
Kristján Árnason,
Sigrún Árnadóttir,
Fríðjón Árnason,
Steingrímur Árnason,
Elín Árnadóttir,
Þóroddur Árnason,
Helga Árnadóttir,
Tómas Árnason,
Jón Árnason,
Kolbrún Anderson,
Ebba Ásgeirsdóttir,
Sigurður Hermannsson,
Magna Ásmundsdóttir,
Pálmi Jónsson,
Kristjana Liiliendahl,
Eva Vilhjálmsdóttir,
barnabörn, barnabarnaböm
og barnabarnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og útför
bróður okkar,
GRÉTARS THEODÓRS JÓNSSONAR,
Sólheimum 23.
Halldóra S. Jónsdóttir,
Stefanía Jónsdóttir.
+
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
PÁLS RAGNARS ÓLAFSSONAR,
Köldukinn 4,
Hafnarfirði.
Emilfa Þórðardóttir,
Pálína Pálsdóttir, Jóhannes Einarsson.
Ragnheiður Pálsdóttir, Þorsteinn Auðunn Pétursson,
Ólafur Ragnar Pálsson, Þorbjörg Þórísdóttir,
Þórður Pálsson, Þorbjörg Guðbrandsdóttir
og barnabörn.