Morgunblaðið - 28.06.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 41
82 stiga sveifla
í þremur spilum
BRIPS
Montecatini, Ítaiíu
EVRÓPUMÓT
í SVEITAKEPPNI
Evrópumótið í sveitakeppui er haldið
í Montecatini Terme á Italíu, dagana
14.-29. júní. ísland tekur þátt í opn-
um flokki og kvennaflokki.
LUKKUDÍSIRNAR voru víðs fjarri
íslendingum í viðureign þeirra við
Líbani á fimmtudagskvöldið. í
þremur spilum græddu Líbanir
samtals 42 imp-stig en ef lukkan
hefði verið með Islendingum hefðu
þeir getað grætt 39 stig á þessum
sömu spilum; umsetningin var því
81 imp-stig.
Líbanirnir eru ekkert að láta
nútíma sagnvísindi þvælast fyrir
sér og í einu spilinu fóru þeir í
alslemmu þar sem hiðarlitur var
Á7542 á móti DG. Kóngurinn var
réttur, blankur meira að segja, svo
Líbanirnir græddu 13 stig í stað
þess að tapa 17.
í öðru spili fóru Líbanir og Ís-
lendingar í harða 4 spaða sem
voru doblaðir við bæði borð en
Líbaninn redoblaði. Sama útspil
kom við bæði borð en íslendingun-
-um urðu á mistök í vörninni svo
Líbaninn vann 4 spaða redoblaða
en við hitt borðið fór samningurinn
einn niður. Þar græddu Líbanir 15
stig en hefðu tapað 5 ef vörn ís-
lendinga hefði ekki brugðist.
Þetta var svo þriðja spilið.
Austur gefur, NS á hættu
Norður
♦ KDIO
¥Á632
♦ 93
+ ÁD93
Vestur Austur
♦ 9872 + Á543
¥87 ¥94
♦ 10876 ♦ 54
+ KG4 + 108752
Suður
+ G6
¥ KDG105
♦ ÁKDG2
+ 6
Við annað borðið sögðu Guð-
mundur Páll Arnarson og Þorlákur
Jónsson 6 hjörtu, sem austur dobl-
aði af einhveijum ástæðum. Slíkt
dobl gefur venjulega til kynna að
austur eigi eyðu í hliðarlit og geti
trompað útspilið og þar sem einn
ás var úti flúðu Guðmundur og
Þorlákur í 6 grönd. Þau vildi aust-
ur ekki dobla_ enda unnust þau
slétt, 1440 til íslands.
Við hitt borið sátu Jón Baldurs-
son og Sævar Þorbjömsson AV og
Charles Nasr og Nagib Baroudi NS:
Vestur Norður Austur Suður
JB NB SÞ CN
pass 1 hjarta
pass 2 grönd pass 3 tíglar
pass 3 spaðar pass/ 4 grönd
pass 5 hjörtu pass 7 hjörtu!
pass pass dobl//
2 grönd sýndu góðan hjarta-
stuðning, 3 tíglar sýndu tígullit ög
3 spaðar var gervisögn sem sýndi
slemmuáhuga. Suður spurði þá um
ása, en ruglaðist í fjöldanum og
fannst þeir allir vera til staðar.
Þegar 7 hjörtu komu til Sævars
vissi hann að Líbanirnir höfðu lent
í misskilningi. Algengt útspil gegn
alslemmum er tromp, en Sævar
vildi að sjálfsögðu fá spaða og
doblaði því og bað þannig um óeðli-
legt útspil í þeirri von að Jón myndi
lesa rétt í spilið.
Einhveijir hefðu í sporum NS
flúið í 7 grönd, af ótta við stungu
í fyrsta slag en Líbanirnir sátu sem
fastast og Jón þurfti því að spila út.
Frá hans bæjardyrum séð var
líklegast að doblið bæði um tígul
út, hliðarlit sagnhafa. Hann spilaði
því út tígli, og Líbaninn var fljótur
að taka trompin, sem lágu 2-2 eins
og um var beðið, og henda spöðun-
um í borði í tíglana heima. Slétt
staðið og 14 impar til Líbanon í
stað 17 til íslands.
Líbanir unnu leikinn á endanum
með 38 stiga mun, eða 22-8 í vinn-
ingsstigum Þetta er í annað skipti
sem íslendingar fá slíka útreið hjá
Líbönum á lokaspretti Evrópumóts
í brids. Það gerðist einnig fyrir
tveimur árum og við það misstu
íslendingar af lestinni í baráttinni
um verðlaunasætin.
Spilað undan spaðaásnum
íslenska kvennaliðið náði aðeins
að rétta hlut sinn á lokaspretti
Evrópumótsins í kvennaflokki eftir
afleita byijun. Liðið vann alla leiki
sína á fimmtudeginum, þar á meðal
gegn Grikkjum og þar kom þetta
spil fyrir í fyrri hálfleik:
Norður gefur, AV á hættu
Morgunblaðið/GSH
ÞÆR Esther Jakobsdóttir og Valgerður Kristjónsdóttir eru leik-
reyndustu spilarar íslenska kvennaliðsins í brids. Hér spila þær
við sænsku konurnar Lindu Langström og Mary Ryman.
Norður
+ G32
¥ K872
♦ K5
♦ ÁD72
Austur
♦ Á86
¥ Á53
♦ 10863
+ K95
Suður
+ K1075
¥ D964
♦ ÁDG
+ 86
Lokasamningurinn varð 4 hjörtu
við bæði borð, spiluð í suður. Við
annað borðið, þar sem Anna ívars-
dóttir og Guðrún Óskarsdóttir sátu
AV, valdi Anna að spila út hjarta-
gosanum sem sagnhafi hleypti á
drottninguna. Hún svínaði laufa-
drottningu í 2. slag og Guðrún
drap með kóng og spilaði litlum
spaða að bragði. Sagnhafi hleypti
á gosann í borði svo Anna fékk á
drottningu og vömin fékk síðan
tvo slagi á hálitaásana í viðbót. 1
niður og 50 til íslands.
Við hitt borðið, þar sem Esther
Jakobsdóttir og Valgerður Krist-
jónsdóttir sátu NS varð Esther
sagnhafi í suður. Vestur spilaði út
laufagosa og Esther svínaði
drottningunni en austur drap á
kóng og spilaði litlum spaða. En
Esther hefur séð þessa stöðu áður.
Hún stakk upp kóng, sem hélt,
henti síðan spaða í tígul og gaf
aðeins tvo slagi í viðbót á hálitaás-
ana. Slétt staðið og 420 til íslands.
Guðm. Sv. Hermannsson
Vestur
♦ D96
¥ G10
♦ 9742
+ G1043
RAQAUGLÝSI 1 1 M Q A R
AT V IIM ISI U -
AUGLÝSINGAR
Trésmiðir
Nokkrir trésmiðir óskast til starfa við áhuga-
verð verkefni.
Upplýsingar gefa Grettir, s. 893 4388 og Karl,
s. 892 4509.
Refti ehf.,
Ármúla 19,
sími og fax 588 7645.
Sundþjálfari
Sundfélagið Vestri á ísafirði óskar eftir að ráða
yfirþjálfara fyrir næsta tímabil
(1. sept. 97 — 1. sept. 98).
Upplýsingar veita Halldór í síma 456 4759 og
Kristján í síma 456 4546.
Vélstjóri
Oskum að ráða vélstjóra til afleysinga.
Upplýsingar í símum 421 2305 og 893 1691.
BATAR SKIP
Óska eftir að kaupa bát
Óska eftir að kaupa 4 til 15 brúttólesta bát úr
stáli, áli eða plasti, helst Gáska, Viking eða
Sóma. Báturinn verður fluttur úr landi og má
því gjarnan vera úreldingarbátur.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu, eru vinsamleg-
ast beðnir um að hafa samband við Sámal
Joensen, Bátasolan, Sundsvegi 11, FR-IOO
Tórshavn, Færeyjum, símar OO 298 17789
og 00 298 14842, bréfsími 00 298 16789.
TILKYNNIIMGAR
Orlof Félags eldri borgara
í Hafnarfirði
Dagana 18.—25. ágúst verður dvalið á Eddu-
hótelinu, Núpi, Dýrafirði.
Farin verður dagsferð til ísafjarðar, Bolungar-
víkur og Vigurs og tvær hálfsdagsferðir.
Upplýsingar í símum 555 1020, Ragna,
555 0176, Kristín, og 555 2276, Elsa, mánudag-
inn 30. júní eftir kl. 10.00 f.h.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Kynningarfundur
Félagsfundur, til að kynna nýgerðan kjara-
samning verður haldinn sunnudagskvöldið
29. júní í Ingólfsstræti 5, 6. hæð, kl. 20.00
og á Hótel KEA, Hafnarstræti 87—89, Akureyri
á sama tíma.
Stjórn og samninganefnd.
ATVINNUHUSNÆÐI
Skipholt 70
Vinnuaðstaða til leigu fyrir arkitekt, tæknifræð-
ing eða verkfræðing.
Nánari upplýsingar veitirTryggvi í síma
553 6282 eða 567 0019.
T.V. tækniþjónusta, verktakar ehf.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
HallvcigBrslíg 1 • sími 561 4330
Jeppaferð í dag laugardaginn
28. júní.
Haukadalsheiöi. Gróðursetning
og skemmtiferð. farið verður frá
Geysi i Haukadal kl. 10.00 í dag
Fararstjóri er Jón Bjarnason.
Frítt fyrir alla.
Dagsferðir
Sunnudaginn 29. júní. Reykja-
vikurvegurinn 5. áfangi. Blá-
fjöll—Grindarskörð. Brottför frá
BSÍkl. 10.30. Verðkr. 1.000.
Nýtt göngukort af Þórsmörk
og Goðalandi komið út.
Skemmtilegar lýsingar á göngu-
leiðum um stórbrotna náttúru á
ensku og íslensku. Kortið fæst á
skrifstofu Útivistar fyrir aðeins
kr. 300.
Kynnið ykkur sumarferiðir Úti-
vistar á netinu:
centrum.is/utivist
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Hressandi sunnudagsferðir
29. júní.
Kl. 08.00 Þórsmörk, dagsferð.
Strákagil — Langidalur — Steins
holt. Afmælisverð 2.500 kr.
Kl. 10.30 Reykjavegur 5.
áfangi: Gengið frá Bláfjöllum
í Vatnsskarð. Verð 1.000 kr.
Kl. 13.00 Gönguferð á Heng-
ilssvæðinu: Reykjakot —
Grænidalur. Verð 1.200 kr.
Brottför frá BS(, austanmegin
(sunnanmegin í Reykjaveginn)
og Mörkinni 6.
Styrkur unga fólksins
Richard Perinchief ásamt 30
manna hópi frá USA sér um
samkomur í Tjarnarbíói í kvöld
kl. 20.00.
Dans, drama og kröftug tónlist.
Láttu sjá þig.
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
TILKYNNiNGAR
Þingvellir
þjóðgarður
Dagskrá helgarinnar.
Sumardagskráin á Þingvöllum er
nú komin í fullan gang og þvi
verður af nógu að taka og eitt-
hvað fyrir alla í þjóðgarðinurr
um helgina.
Laugardagur 28. júní.
Kl. 13.00 Lambhagi.
Róleg og auðveld náttúruskoð-
unarferð. Gengið verður með
vatnsbakka Þingvallarvatns þai
sem gróðurfar og dýralíf verður
skoðað i „samhengi alls sem er".
Farið verður frá bílastæði við
Lambhaga og tekur ferðin um 3
klst. Verið vel búin og hafið með
ykkur nestisbita.
Kl. 15.00. Leikið og litað i
Hvannagjá.
Barnastund fyrir alla krakka.
Farið verður i létta leiki og málað
með vatnslitum. Hist verður á
bílastæði við Hvannagjá og
gengið saman upp eftir. Barna-
stundin tekur um 1 1/2 klst. og
nauðsynlegt er að vera vel
búinn.