Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 1
128 SIÐUR B/C/D/E/F
111. TBL. 85.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Islendmgarnir voru við
fjallstopp Everest í nótt
Hafa komist hærra en
nokkur annar Islendingur
BJÖRN Ólafsson, Hallgrímur Magnússon og Einar K. Stefáns-
son gengu á fjallið Cho Oyu fyrir tveimur árum og þá var þessi
mynd tekin af þremenningunum á tindinum, en hann er 8.201 m.
ÍSLENSKU fjallgöngumennirnir Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson
og Hallgrímur Magnússon lögðu af stað í gærkvöldi úr efstu tjaldbúð-
um upp á tind Everest. Þeim gekk vel og þegar síðast fréttist voru
góðar líkur taldar á að þeim myndi takast að sigra þetta hæsta fjall
heims, 8.848 metra hátt. Um kl. 1 eftir miðnætti, réttri stundu áður
en Morgunblaðið fór í prentun, voru þeir í 8.700 metra hæð.
Hörður Magnússon, aðstoðarmað-
ur Everestfaranna, sem staddur er
í grunnbúðum, sagði að þegar þeir
lögðu af stað um kl. 18 að íslenskum
tíma hefði verið bálhvasst og bruna-
gaddur. Það hefði varla verið stætt
í Suðurskarði þar sem efstu tjaldbúð-
irnar eru. Eftir að þeir lögðu af stað
hefði hins vegar dregið úr vindi.
Fyrstu 250 metrana fóru þeir á
tæplega tveimur klukkutímum, sem
þýðir að hraðinn á þeim var nærri
150 hæðarmetrar á klukkustund
sem er mjög mikið.
Fyrsti hluti ferðarinnar er löng
og nokkuð erfið snjóbrekka. Þá tek-
ur við bratt gil sem liggur upp á
suðausturhrygginn. Hann er með
flötum hálum plötum sem hallast
niður á við og milli þeirra er ís.
Hryggurinn er aðeins nokkrir metrar
á breidd og þess vegna leggja fjall-
göngumennirnir áherslu á að stíga'
öruggum skrefum til jarðar. Sitt
hvoru megin eru brattar fjallshlíðar
sem eru 2.000-3.000 metra háar.
1 8.765 metra hæð er Suðurtind-
ur, sem er nokkuð erfiður farar-
táimi. Við vissar aðstæður getur ver-
ið hætta á snjóflóðum úr tindinum.
Nokkurn snjó festi í tindinum í fyrri-
nótt og var hann að renna undan
fjailgöngumönnunum þegar þeir fóru
um svæðið um miðnættið. Um 40
metrum neðan við fjallstoppinn er
Hillary step, sem kennt er við Ed-
mund Hillary sem komst fyrstur á
Everest ásamt Tenzing 29. maí 1953.
Hillary step þykir erfiður hjallur.
Hörður sagði að strákarnir ætluðu
að reyna að vera fljótir í förum því
spáð væri vondu veðri í dag. Með
íslendingunum eru þrír sherpar og
leiðangursstjóri sem er af serbnesk-
um uppruna.
Þetta er önnur tilraun íslending-
anna til að komast á tindinn, en
þeir urðu að snúa við í fyrrakvöld
þegar þeir lentu í hríð stuttu eftir
að þeir lögðu frá efstu búðum.
■ Fyrsta tilraun/10
Hermenn
sendir
að Irak
Ankara. The Daily Telegraph.
FREGNIR hermdu í gær að
stjórnvöld í íran og Sýrlandi
hefðu sent hersveitir að landa-
mærum ríkjanna að Irak vegna
hernaðaraðgerða Tyrkja gegn
skæruliðum í Verkamanna-
flokki Kúrdistans (PKK) í norð-
urhluta landsins.
Hermt var að rúmlega 1.300
skæruliðar hafi fallið í árásum
Tyrkja frá því þær hófust fyrir
viku.
■ Sókninni haldið áfram/20
Reuter
LAURENT Kabila við
komuna til Kinshasa.
Kabila
kominn til
Kinshasa
Kinshasa. Reuter.
LAURENT Kabila, nýr þjóð-
höfðingi Zaire, lenti í einkaþotu
í höfuðborg landsins í gær-
kvöldi til að taka við stjórnar-
taumunum eftir að Mobutu
Sese Seko, fyrrverandi einræð-
isherra, flúði framsókn skæru-
liða Kabilas, sem náðu Kins-
hasa á sitt vald um helgina.
Búizt er við að hinn nýi leið-
togi þriðja stærsta lands Afr-
íku, sem hann hefur gefið nafn-
ið Lýðveldið Kongó, skipi í vik-
unni bráðabirgðaríkisstjórn,
sem sitja muni unz kosningar
hafa farið fram, sem Kabila
hefur heitið að verði innan árs.
Vesturlönd hafa í skilaboðum
sínum til hinna nýju valdhafa
lagt alla áherzlu á að stjórnin
verði mynduð á sem breiðustum
grunni og að hún einbeiti sér
að því að undirbúa jarðveginn
fyrir lýðræðislegar þingkosn-
ingar.
■ Frelsari eða/22
Morgunblaðið/Halldór
Hafa hugleitt þetta vel
FJÖLDI fólks kom saman í
höfuðstöðvum Hjálparsveitar
skáta í Reykjavík í gærkvöldi til
að fylgjast með fréttum af Is-
lendingunum. Þeirra á meðal
voru Magnús Hallgrímsson og
Hlíf Ólafsdóttir, foreldrar Hall-
gríms og Harðar. Magnús var
bjartsýnn: „Eg geri mér grein
fyrir að þeir eru þarna í ákveð-
inni hættu. Þeir voru hins vegar
búnir að hugieiða þetta allt mjög
vel og ég veit að þeir snúa við ef
á þarf að halda. “
Rússar um NATO-aðild Eystrasaltsríkja
Munu endurskoða
samstarfssamning
Moskvu, Riga. Reuter.
RAÐAMENN í Eystrasaltslöndun-
um þremur, Eistlandi, Lettlandi og
Litháen, ítrekuðu í gær að það
væri einarður ásetningur þeirra
allra að gerast aðilar að Atlants-
hafsbandalaginu (NATO). Rúss-
neska stjórnin gaf þeim í gær
ærið tilefni til að ítreka þetta, þar
sem hún sagðist myndu endur-
skoða nýjan samstarfssamning
sinn við NATO, ef Eystrasaltslönd-
unum yrði boðin aðild að bandalag-
inu. í síðustu viku náðu samninga-
menn Rússa og NATO sögulegu
samkomulagi um samstarfssamn-
ing þessara fyrrum andstæðinga
kaldastríðsáranna.
Valery Nesterushkin, talsmaður
utanríkisráðuneytisins, ítrekaði í
gær orð Borísar Jeitsíns Rúss-
landsforseta frá því í fyrradag um
að Rússar myndu ekki líða neinar
tilraunir til að veita fyrrverandi
Sovétlýðveldum NATO-aðild. Vís-
aði Nesterushkin í þessu sambandi
sérstaklega til Eystrasaltsland-
anna, sem voru innlimuð í Sovét-
ríkin árið 1940 og endurheimtu
sjálfstæði sitt 1991.
„Litháen var innlimað í Sovét-
ríkin með valdi og lítur ekki á sjálft
sig sem fyrrverandi Sovétlýðveldi,"
sagði Algirdas Brazauskas, forseti
Litháens, er Reuters-fréttastofan
innti hann álits á yfirlýsingum
Rússlandsstjórnar. „Stefna okkar
varðandi NATO-aðild er óbreytt,“
bætti Brazauskas við.