Morgunblaðið - 21.05.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór
Fugees
í Laugar-
dalshöll
Verðá
rafmagni
hækkar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt með
þremur atkvæðum meirihluta
Reykjavíkurlistans gegn tveimur at-
kvæðum minnihluta Sjálfstæðis-
flokks, að hækka gjaldskrá Raf-
majgnsveitu Reykjavíkur um 1,7%.
I bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks segir að hækkanir á
gjaldskrám fyrirtækja borgarinnar
séu langt umfram almennar verð-
lagshækkanir. Sjálfstæðismenn telji
að fremur ætti að huga að öðrum
leiðum til að komast hjá hækkunum,
meðal annars með lækkun arð-
greiðslna fyrirtækja borgarsjóðs,
sem hafa hækkað um 500 milljónir
á ári eftir að Reykjavíkurlistinn náði
meirihluta.
í bókun borgarstjóra segir að
stjórn Landsvirkjunar hafi samþykkt
með samhljóða atkvæðum, þar á
meðal atkvæðum fulltrúa Sjáifstæð-
isflokks, að hækka gjaldskrá Lands-
virkjunar um 3,2% frá 1. apríl. í
kjölfar þess hafi Rarik hækkað
gjaidskrá sína um 3,2% sem og fjöl-
margar veitur. Bent er á að hækkun
Rafmagnsveitu Reykjavíkur sé að-
eins 1,7% og taki gildi 1. júní 1997.
Hafi sjálfstæðismenn eitthvað við
hækkanir á raforkuverði að athuga
ættu þeir að ræða það við fulltrúa
sína í stjórn Landsvirkjunar.
Hreppsnefnd Bessastaðahrepps hafnar
umsókn búddista um musterisbyggingu
Ohentug stað-
setning nálægt
forsetasetri
HREPPSNEFND Bessastaðahrepps hafnaði á fundi sínum í gær um-
sókn búddista um byggingu musteris og híbýla fyrir munka í Bessa-
staðahreppi, þrátt fyrir að skipulagsnefnd hefði mælt með bygging-
unni. Vegna tilmæla frá forsetaembættinu og forsætisráðherra sér
meirihluti hreppsnefndar sér ekki fært að verða við beiðni búddista.
LAURYN Hill og félagar hennar
í bandarísku rappsveitinni
Fugees, Wyclef og Praz, skemmtu
á sjötta þúsund áheyrenda í Laug-
ardalshöll í gærkveldi. Hljóm-
sveitin flutti blöndu gamalla og
nýrra laga og kynnti meðal ann-
ars lög sem ekki hafa komið út.
Áheyrendur tóku hljómsveitinni
vel og sungu með, fullum hálsi,
þegar við átti. Áður en Fugees
kom á svið léku íslensku hljóm-
sveitirnar Subterranean og
Quarashi.
Fjármögnun álvers Norðuráls hf.
Samið við
Banque Pari-
bas og ING
COLUMBIA Ventures Corporation
hefur valið ING Bank International
í Hollandi og Banque Paribas í
Frakklandi til að sjá um verkefnis-
fjármögnun fyrir álver Norðuráls hf.
á Grundartanga. ING og Paribas
gerðu sameiginlega tilboð í fjár-
mögnunina en alls bárust fimm til-
boð frá þeim fjórum bankasamstæð-
um sem kepptu um að fá að fjár-
magna verkið. Aðrir tilboðsgjafar
voru alþjóðlegar bankastofnanir en
Columbia Ventures vill ekki gefa upp
hveijar þær eru. ÍNG Bank Inter-
national og Banque Paribas fjár-
magna meira en 100 milljónir doll-
ara af verkefninu en Columbia Vent-
ures meira en 40 milljónir dollara
með eigin hlutafé.
„Við höfum valið okkur banka-
samstæðu tveggja banka. Þessi að-
ferð við fjármögnun verkefna, að
nota bæði eigið fé og lánsfé, er mjög
aigeng. Hér er því ekkert nýtt á
ferðinni," segir James F. Hensel,
aðstoðarforstjóri Columbia Ventures
Corporation.
Hensei sagði að bankarnir vildu
fjármagna verulegan hluta verkefn-
isins. Þeir veittu sína lánafyrir-
greiðslu að sjálfsögðu á þeim grund-
velli að tryggt væri að lánin yrðu
endurgreidd. Þeir teldu hag sínum
borgið þar sem Columbia Ventures
legði einnig til stóran hluta fjár-
mögnunarinnar í formi eigin fjár.
„Við völdum þessa tvo banka til
samstarfs fyrir u.þ.b. einni viku á
grunni þeirrar reynslu sem þeir hafa
af alþjóðlegri verkefnisfjármögnun.
Báðir stunda þeir verkefnisfjár-
mögnun um allan heim. Fulltrúar
bankanna eru staddir hér á iandi
núna. Þeir voru á byggingarstaðnum
á mánudag. Við áttum fund með
þeim þá en í gær hittu þeir fulltrúa
stjórnvalda og Landsvirkjunar.
Verkefnisfjármögnunin er því hafin.
Við væntum þess að endanlegt svar
bankanna um að þeir séu tilbúnir
að fjánnagna verkefnið liggi fyrir í
lok þessa mánaðar. Samþykki bank-
anna fer síðan fyrir lögfræðinga sem
færa það í skjöl og ég er viss um
að það þarf að fella mörg tré í papp-
írinn sem slíkri skjalagerð fylgir,"
sagði Jim Hensel.
Með stærstu bönkum
í sínum heimalöndum
Höfuðstöðvar ING eru í Amster-
dam og Paribas í París. Eins og fram
kom í máli Hensel hafa þeir mikla
reynslu af verkefnisfjármögnun fyrir
alþjóðleg verkefni, þ.á m. á sviði ál-
framleiðslu. Þess má einnig geta að
ING á Baringsbankann í London sem
var einn þeirra banka sem fjármögn-
uðu Hvalfjarðargöngin. Bankarnir
tveir hafa skrifstofur um allan heim
en Banque Paribas er fimmti stærsti
banki Frakklands og 37. stærsti
banki heims. ING er þriðji stærsti
banki Hollands og 58. stærsti banki
heims.
Fulltrúar bankanna kynntu sér í
gær aðstæður á Grundartanga og
ræddu við ráðgjafaverkfræðingana
sem undirbúa byggingu álversins um
framgang verksins. Gert er ráð fyrir
að verkefnið verði lagt fyrir lána-
nefndir bankanna til endanlegs sam-
þykkis undir lok þessa mánaðar.
Gert er ráð fyrir að samningarnir
verði undirritaðir síðar í sumar.
Háfell ehf. hefur lokið við fyrsta
áfanga lóðarundirbúnings á Grund-
artanga. Hensei segir að ístak hf.
hefjist handa við undirbúning
steypuvinnu í dag. Aðrir þættir
verksins verða samkvæmt áætlun.
„Einhvern tíma sumarið 1998
kemur fyrsta framleiðsla álversins á
markað. Markaðshorfur fyrir ál eru
góðar núna en horfurnar fyrir sumar-
ið 1998 eru enn betri,“ sagði Hensel.
Tilboð hafa verið opnuð í yfírbygg-
ingu kerskála og eru þau í athugun.
Skipulagsnefnd hafði á fundi sín-
um 14. maí sl. komist að þeirri
niðurstöðu að skipulagslega væru
engir annmarkar á því að byggja
búddamusteri í hreppnum en hins
vegar hefðu Bessastaðir óumdeil-
anlega sérstöðu í hreppnum sem
forsetasetur og taka yrði tillit til
þess við afgreiðslu umsóknarinnar.
í bága við siðareglur
Sigtryggur Jónsson, oddviti
Bessastaðahrepps, sagði í samtali
við Morgunblaðið að hreppsnefndin
hefði í raun fallist á niðurstöðu
skipulagsnefndar en endanleg
ákvörðun hefði verið tekin í ljósi
athugasemda frá forsetaembættinu
og forsætisráðherra. Sigtryggur
sagði að á óformlegum fundi sem
hreppsnefnd átti með forseta fyrir
nokkru um önnur mál hefði forseti
komið inn á það að bygging búdda-
musterjsins gæti brotið í bága við
siðareglur þjóðhöfðingja á milli
vegna tengsla við konungsfjöl-
skylduna í Tælandi, en prinsessan
af Tælandi, systir konungsins þar,
er verndari musterisins. Því teidi
forseti óviðeigandi að það yrði sett
niður í námunda við forsetasetrið.
„Með þá vitneskju í huga fór ég
fram á að fá staðfestingu ríkis-
stjómarinnar á því að þetta væri
brot á siðareglum og átti tal við
forsætisráðherra. Hann staðfesti í
sjálfu sér ekki að um væri að ræða
brot á siðareglum en sagðist þó
hafa fallist á það við forseta að
staðsetningin væri óhentug. Þegar
svo er komið eigum við ekki margra
kosta völ,“ sagði Sigtryggur.
VSÍ telur verkfallsvörslu
og samúðarverkfall ólögleg
VINNUVEITENDASAMBAND Islands telur aðgerðir verkfallsvarða
í Hafnarfjarðarhöfn í gær ólögmætar og hefur fyrir hönd Frosta hf.
á Súðavík lýst ábyrgð á hendur Alþýðusambandi Vestfjarða og hlutað-
eigandi stéttarfélögum vegna tjóns sem Frosti varð fyrir þegar lönd-
un var stöðvuð úr frystiskipinu Bessa í Hafnarfjarðarhöfn í gær.
--------------------------- Þá telur VSÍ að samúðarverkfall,
----—-------------------- sem verkalýðsféiögin Hlíf í Hafnar-
Sæluroitur fjölskyldunnar
hK)I!b vikunnar
BLAÐINU í dag fylgir fjög-
urra síðna auglýsingablað frá
BYKO.
fírði og Dagsbrún í Reykjavík hafa
boðað frá og með miðnætti í kvöld,
sé ólögmætt. VSÍ skoraði bréflega
á Hlíf í gær að aflýsa verkfallinu
og segir Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri VSÍ að málinu
verði skotið til félagsdóms komi
verkfallið til framkvæmda.
Bótaskylda
í bréfí sem VSÍ sendi Alþýðusam-
bandi Vestijarða í gær er skorað á
sambandið, Verkaiýðsfélagið Baldur
á ísafirði og Verkalýðs- og sjó-
mannafélagið Álftfirðing á Súðavík,
að aflétta þegar ólöglegum aðgerð-
um utan Vestfjarða. Segir í bréfinu
að aðgerðir til að stöðva afgreiðslu
Bessa séu ólögmætar enda sé ekk-
ert verkfall í Hafnarfírði og ekkert
verkfall meðal skipverja Bessa sem
séu því í fullum rétti að stunda vinnu
sína og útgerðin með sama hætti í
fullkomnum rétti að halda áfram
útgerð skipsins, burtséð frá því
hvemig fer með deilu landverka-
fólks. Aðgerðir verkalýðsfélaganna
séu því brot á lögum.
Pétur Sigurðsson, formaður ASV,
sagði að Vestfírðingar væru að verja
sinn rétt. „Það er verið að fara með
störf héðan, sem fólk hefði unnið
sem nú er í verkfalli. Ef það er
ekki verkfallsbrot þá er einhveiju
ábótavant í réttarfarinu í landinu,"
sagði Pétur.
Tjón vegna aðgerðaleysis
Þá sendi VSÍ bréf í gær til sýslu-
mannsembættisins í Hafnarfirði þar
sem því er beint mjög ákveðið til
embættisins að það hlutist til um
að lögum verði haldið uppi við Hafn-
arfjarðarhöfn en verulegir hags-
munir séu í húfi og augljóst að opin-
berir aðilar kunni að baka sér
ábyrgð á því tjóni, sem kunni að
leiða af aðgerðaleysi þeirra.
Fram kemur að starfsmenn Eim-
skipafélags íslands hafi í gærmorg-
un óskað liðsinnis sýslumannsemb-
ættisins við að fjarlægja bifreiðar
sem lagt hafí verið þannig að þær
hindruðu umferð vinnuvéla. Lög-
gæsluyfírvöld hafi hins vegar ekkert
aðhafst.
Guðmundur Sophusson sýslu-
maður sagði að lögregla hefði farið
fram á það við verkfallsmenn í
gærmorgun að fjarlægja bíla af
bryggjunni og fara sjálfír af svæð-
inu en við þeirri kröfu hefði ekki
verið orðið. Málið hefði þá verið
skoðað og haft samband við flesta
aðila málsins og niðurstaðan varð
að hafast ekki að. „Það var mat
okkar að ekki væri skynsamlegt að
blanda lögreglunni inn í þessar deil-
ur með öðrum hætti,“ sagði Guð-
mundur.
Samúðarverkfall í kvöld
Verkalýðsfélögin Hlíf og Dags-
brún hafa boðað til samúðaryinnu-
stöðunar á miðnætti í nótt. I bréfí
sem VSÍ sendi Hlíf í gær kemur
fram sú skoðun, að Hlíf sé óheimilt
að boða til samúðarvinnustöðvunar
til stuðnings kröfum um miklu meiri
hækkanir á kauptöxtum en Hlíf og
VSÍ sömdu um fyrir sömu eða sam-
bærileg störf 24. mars sl.
■ Komið í veg/6