Morgunblaðið - 21.05.1997, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ASÍ gagnrýnir breytingar á bótum almannatrygginga
Bætur til atvinnulausra
lækka að raungildi
ÁKVÖRÐUN ríkisstjórnarinnar
um hækkun bóta almannatrygg-
inga í tengslum við gerð kjara-
samninga felur í reynd í sér raun-
lækkun á greiðslum atvinnuleysis-
bóta til þeirra sem verið hafa á
atvinnuleysisbótum 87 daga eða
lengur að mati Alþýðusambands
íslands.
Ástæðan er sú að felldar verða
niður greiðslur svokallaðra upp-
bóta á atvinnuleysisbætur sem
greiddar hafa verið á undanförnum
árum, skv. reglugerð sem félags-
málaráðherra gaf út fyrir tveimur
árum, en þær byggðu á sama fyrir-
k.omulagi og launauppbætur í kja-
rasamningum launafólks á undan-
förnum árum, en í nýgerðum kjara-
samningum voru launauppbætur
Maður sem
kvaðst
sýktur beit
lögreglu-
þjón
MAÐUR sem kvaðst sýktur af
lifrarbólgu-C réðst á lögreglu-
þjón í fangageymslum lögreglu
í fyrrinótt og beit hann, eftir
að hafa bitið sjáifan sig í tung-
una til að fá fram blóð.
Lögreglumenn höfðu staðið
manninn að tilraun til innbrots
í miðbænum og var hann hand-
tekinn og færður í fanga-
geymslu.
Þegar átti að færa hann úr
járnum á svokölluðum fanga-
gangi, ærðist hann fyrirvara-
laust og beit sjálfan sig í tung-
una og náði síðan að bíta í fíng-
ur eins lögreglumannsins.
Hann kvaðst einnig vera sýkt-
ur af lifrarbólgu-C, en veiru-
sýkingar af vöidum hennar
hafa verið algengar í hópi
sprautufíkla undanfarin miss-
eri.
Lifrarbólga-C smitast ein-
göngu við blóðblöndun og verð-
ur að varanlegum sjúkdómi í
um 75% tilvika. Ekkert bólu-
efni er til gegn sjúkdóminum.
Lögreglumaðurinn var fluttur
á slysadeild þar sem hann
gekkst undir rannsókn og við-
eigandi ráðstafanir voru gerð-
ar, en ekki er talið að maður-
inn hafí náð að bíta lögreglu-
þjóninn til blóðs. Því er talið
ósennilegt að laganna vörður
hafí orðið fyrir sýkingu.
Grunaður um
innflutning
áLSD
RÚMLEGA tvítugur maður var
handtekinn seinasta fímmtu-
dag, grunaður um aðild að inn-
flutningi á um 3.300 skömmt-
um af LSD.
Tollverðir í tollpóststofu
pósthússins við Ármúla lögðu
hald á um 310 skammta af
efninu í bréfsendingu 11. apríl
síðast liðinn og síðan um 3.000
skammta 2. maí síðast liðinn.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald seinasta föstu-
dag í hálfan mánuð, eða til loka
maí. Hann hefur áður komið
við sögu hjá lögreglu.
settar inn í kauptaxta og felldar
niður sem sérstakar greiðslur. For-
ysta ASÍ telur að félagsmálaráð-
herra og ríkisstjórnin hafi með
afgreiðslu sinni ákveðið að taka i
engu tillit til viðvarana verkalýðs-
hreyfingarinnar í þessum efnum.
1,3% hækkun dagpeninga
í reynd að mati ASÍ
Ríkisstjórnin ákvað að umrædd-
ar bætur hækkuðu um 4% frá 1.
mars sl. en þær hækkuðu um 2%
um seinustu áramót eða um 6%
alls á þessu ári í takt við almennar
launahækkanir sem samið var um
í kjarasamningum.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segir að þessar breytingar
ríkisstjómarinnar bitni mjög illa á
BÚIÐ er að fjarlægja stefnið af
Víkartindi og draga það upp í
fjöru á strandstað. Einnig er ver-
ið að undirbúa að losa stýrishúsið
af skipinu og hifa það á land í
heilu lagi. Verkið vinnur banda-
RÍKISSJÓÐUR þarf að leggja ár-
lega að minnsta kosti 600-650
milljónir króna inn í Byggingarsjóð
verkamanna til að tryggia fjár-
hagsstöðu hans til frambúðar.
Þetta er mat Ríkisendurskoðunar á
stöðu sjóðsins en það byggist m.a.
á athugun Yngva Arnar Kristins-
sonar hagfræðings á fjárhagsstöðu
sjóðsins. Kemur þetta fram í
skýrslu Ríkisendurskoðunar vegna
beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur um
tiltekin atriði í félagslega íbúða-
kerfinu.
Svo tryggja megi fjárhagsstöðu
Byggingarsjóðs verkamanna er
m.a. gengið út frá að nýfram-
kvæmdir verði um 200 á ári og
þeim sem eru atvinnulausir um
langan tíma, og þeir njóti i raun
einskis af þeim launahækkunum
sem samið hefur verið um á vinnu-
markaði.
Umræddar uppbætur á atvinnu-
leysisbætur voru 27.685 kr. á sein-
asta ári, miðað við að viðkomandi
fýllti skilyrði um greiðslu uppbót-
anna og hefði verið á fullum bótum
allt viðmiðunartímabilið. Að mati
ASÍ þýðir ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um 2% hækkun bóta um
áramót og 4% hækkun frá 1. mars
í reynd aðeins rúmlega 1,3% hækk:
un dagpeninga til atvinnulausra. í
reynd sé því um að ræða raunlækk-
un á greiðslum atvinnuleysisbóta
til þessa hóps upp á meira en 1%
miðað við að verðbólga á árinu
ríska björgunarfyrirtækið Titan.
Krani skipsins er notaður til
að hífa hluta skipsins í land. Einn-
ig voru ónýtir gámar úr lest skips-
ins fjarlægðir. I gámunum var
m.a. matvara og varahlutir í reið-
endursöluíbúðir um 800 talsins.
„Ljóst er því að samsvarandi árlegt
framtíðarframlag til sjóðsins og
gert er ráð fyrir í fjárlögum ársins
1997, þ.e. 300 milljónir króna, mun
að öðru óbreyttu leiða til þess að
eigið fé sjóðsins þrýtur þegar til
lengri tíma er litið,“ segir í niður-
lagi skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Stefnir í þrot að óbreyttu
Yngvi Öm Kristinsson hefur
undanfarin ár gert úttektir á stöðu
byggingarsjóðanna og hafði Ríkis-
endurskoðun niðurstöður hans til
hliðsjónar við gerð skýrslunnar.
Skv. nýlegri athugun Yngva á
áhrifum af sameiningu byggingar-
verði um eða yfir 2,5% eins og
spáð hefur verið.
í mars sl. sendi forseti ASÍ fé-
lagsmálaráðheiTa bréf með þeim
eindregnu tilmælum að við ákvörð-
un atvinnuleysisbóta í kjölfar kjara-
samninga verði tekið fullt tillit til
þess að samið hefði verið um að
færa launabætur inn í kauptaxta
launafólks og að atvinnuleysisbæt-
ur taki ekki aðeins þeim hækkunum
sem kjarasamningar fela í sér, held-
ur hækki jafnframt um upphæð
sem samsvari þeim uppbótum sem
greiddar hafa verið undangengin ár.
Að sögn Grétars Þorsteinssonar
verður ekki við þetta unað og ætl-
ar ASÍ að fylgja þessu máii ertir
gagnvart félagsmálaráðherra og
ríkisstjórninni.
þjðl. Allur varningurinn var ónýt-
ur.
Hlutir sem losaðir eru úr skip-
inu eru fluttir lengra upp í fjör-
una en þeir verða síðan fluttir
þaðan á höfuðborgarsvæðið.
sjóðanna kom í ljós að ef miðað
er við að vextir af teknum lánum
sjóðanna verði um 5,9% og að ríkið
leggi engin framlög inn í hinn sam-
eiginlega sjóð verður eigið fé hans
á þrotum árið 2018. Ef ríkissjóður
leggur inn 400 millj. kr. árlega,
miðað við sömu vexti, verður eigið
fé hans neikvætt árið 2034. Ef
vextir af lántökum lækka hins veg-
ar í 5% og ríkið leggur engin fram-
lög í sjóðinn verður eigið fé hans
neikvætt árið 2037. Sé miðað við
5% lántökuvexti og að ríkið leggi
hinum sameinaða sjóði til um 400
millj. kr. árlega varðveitist hins
vegar eiginfjárstaða hans til fram-
tíðar að mati Yngva.
Reglur Norður-
landa samræmdar
Bönd sett
á happ-
drætti á
alnetinu
FULLTRÚAR happdrættisyfir-
valda á Norðurlöndum hittust
á fundi í Ósió nýlega, þar sem
þeir ræddu m.a. hugmyndina
um að gera Norðurlönd að ein-
um happdrættismarkaði með
því að samræma reglur land-
anna um happdrætti. Fyrst um
sinn beina menn helst sjónum
sínum að spilakössum og happ-
drættum á alnetinu.
Jón Thors, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu, sat
fundinn fyrir íslands hönd og
segir hann þetta hafa verið í
fyrsta skipti sem ísland tekur
þátt í umræðunni um að sam-
stilla norrænar reglur um happ-
drætti.
Jón sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fundinum loknum
að ekkert hefði enn verið
ákveðið en viss áhugi væri fyr-
ir því að samræma reglur á
þessu sviði, happdrættismark-
aðurinn væri svipaður í þessum
löndum og hagsmunirnir sam-
eiginlegir. Því væri á margan
hátt vænlegt að koma á ein-
hvers konar samstarfí. Hann
sagði að miklar umræður hefðu
spunnist um spilasali og einnig
hefði mikið verið rætt um þau
vandamál sem stafa af happ-
drættisrekstri á alnetinu, sem
þekkti engin landamæri.
í frétt norska dagblaðsins
Aftenposten segir að saman-
lagður happdrættismarkaður
Norðurlandanna nemi um 640
milljörðum íslenskra króna.
Lagt hald á
kókaín og
amfetamín
VIÐ leit í bifreið sem lögreglan
stöðvaði á mánudag á Skúla-
götu fannst lítilsháttar af am-
fetamíni. Tveir menn voru í
bifreiðinni og varð gerð leit á
heimilum þeirra í húsum við
Hverfísgötu og við Laugaveg.
Á báðum stöðunum fundust
fíkniefni; amfetamín, kókaín
og hass.
Þá var tilkynnt til lögreglu
um aðila er komið hafði akandi
að skóla í Austurborginni og
tekið þar eitthvert efni úr holu
við grindverk. Á staðnum fund-
ust síðan 2,5 gr. af amfetamíni.
Ók undir áhrifum
Lýst var eftir bifreiðinni og
var ökumaðurinn stöðvaður
skömmu síðar. Ökumaðurinn
var grunaður um ölvunarakstur
eða akstur undir áhrifum fíkni-
efna. Hann var færður til töku
blóðsýnis. Glöggur íbúi hafði
veitt framferði mannsins at-
hygli og lét lögregluna vita, sem
síðan leiddii til handtöku hans.
Um nóttina fundu lögreglu-
menn 3-4 skammta af ætluðu
amfetamíni þar sem efnið lá á
bílastæði við Vesturgötu.
Barn féll
af svölum
TVEGGJA ára gamalt barn
féll niður af svölum á annarri
hæð húss í Seljunum á sunnu-
dag með þeim afleiðingum að
það missti meðvitund.
Blásið var í barnið svo það
hafði komist til meðvitundar
þegar sjúkrabifreið kom á vett-
vang. Meiðsl þess voru ekki
talin alvarleg.
STEFNIÐ var skorið af og flutt upp í fjöruna.
Morgunblaðið/Júlíus
Stefnið farið af Víkartindi
Ríkisendurskoðun um stöðu Byggingarsjóðs verkamanna
600-650 millj. framlag á ári
ef tryggja á stöðu sjóðsins
i
c
4
C
c
c
í
í
í
;
í