Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 6

Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Olíubíll valt á Suðurlandsvegi A annað tonn af olíu lak út Á ANNAÐ tonn af gasolíu lak út þegar stór olíuflutningabíll frá Olíu- dreifingu valt á Suðurlandsvegi, rétt ofan við gatnamót Vesturlands- vegar og Suðurlandsvegar, um fjög- urleytið í gær. Svo virðist sem ökumaður olíu- bílsins hafi misst stjórn á honum í beygjunni, með þeim afleiðingum að bíllinn fór á hliðina. Ökumaður- inn var fluttur á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur og að sögn vakt- hafandi læknis þar voru nokkur rif hans brotin en annars virtist hann laus við meiriháttar áverka. Tvö göt komu á tank olíubílsins og út um þau streymdi olían þar til slökkvilið kom á vettvang og tókst að stöðva lekann með því að troða loftpúðum í götin og loka þannig fyrir þau. Að sögn Erlings Lúðvíkssonar, varðstjóra hjá Slökkviliðinu í Reykjavík var bíllinn fullhlaðinn, eða með um 40 tonn af gasolíu á tanknum en hann gisk- aði á að um eitt til tvö tonn hefðu farið niður. Froða dregur í sig olíu Slökkvilið sprautaði yfir svæðið froðu sem dregur í sig olíuna og þeirri olíu sem eftir var á bílnum var dælt yfir á annan tankbíl. Knút- ur Hauksson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar, sagði í samtali við Morgunblaðið að allt yrði hreinsað upp sem hægt væri og síðan yrði skipt um jarðveg ef með þyrfti. _________FRETTiR______________ Komið í veg fyrir löndun úr togara í Hafnarfirði Landað úr Páli Pálssyni í Reykjavíkurhöfn eftir stimpingar Morgunblaðið/Ásdís VERKFALLSVERÐIR frá Vestfjörðum komu í veg fyrir að land- að yrði 200 tonnum af frosinni rækju í Hafnarfirði í gær. VERKFALLSVÖRÐUM frá Vest- fjörðum tókst ekki að hindra lönd- un úr togaranum Páli Pálssyni ÍS í Reykjavíkurhöfn í gær en fyrr um daginn komu verkfallsverðir í veg fyrir að landað yrði úr togaran- um Bessa frá Súðavík í Hafnar- firði. Verkfallsverðir fóru til Hvammstanga um helgina þar sem Framnesið landaði og náðist sam- komulag við heimamenn um að það yrði síðasta vestfirska skipið sem landað yrði úr á Hvammstanga á meðan á verkfallinu stæði. Um 15 verkfallsverðir voru svo mættir í Hafnarfjarðarhöfn í gær- morgun til að koma í veg fyrir löndun úr Bessa frá Súðavík sem þangað var kominn með 200 tonn af frystri rækju. Verkalýðs- og sjó- mannafélag Alftfirðinga hafði áður neitað beiðni um að landað yrði úr skipinu í Súðavík. Verkfalls- verðirnir voru á fimm bílum sem þeir komu fyrir á hafnarbakkanum þannig að ekki yrði hægt að koma við löndun úr skipinu. Lögregla kom á staðinn og bað verkfalls- verði að færa bíla sína en þeir neituðu því og aðhafðist lögreglan ekkert frekar í málinu. Stimpingar Undir hádegið í gær var byijað að girða af svæði í Hafnarfjarðar- höfn með frystigámum og var tal- ið að færa ætti Bessa þangað til löndunar. Verkfallsverðir náðu að komast inn á svæðið áður en því var lokað og tókst þannig að koma í veg fyrir þessa fyrirætlan. í gær freistuðu verkfallsverðir þess síðan að koma í veg fyrir lönd- un úr Páli Pálssyni i Reykjavíkur- höfn og höfðu til þess stuðning verkalýðsfélagsins Dagsbrúnar. Til nokkurra stimpinga kom á bryggj- unni en undir kvöld var lokið við að landa úr skipinu, um 100 tonn- um af fiski. Að sögn Trausta Ág- ústssonar verkfallsvarðar beittu þeir sér ekki frekar því fólk hafði verið í hættu. Starfsmenn Löndunar hf. sem eru í Dagsbrún, unnu við að landa úr skipinu og gagnrýndi Stefán Sigutjónsson framkvæmdastjóri Löndunar hf. aðgerðir Dagsbrúnar í gær, en sagði að samúðarverkfall- ið, sem Dagsbrún hefur boðað í kvöld, yrði virt. Togarinn Stefnir ÍS lagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn í gær- kvöldi og stóðu verkfallsverðir vörð um skipið. Sagði Stefán að ákveðið hefði verið að landa ekki úr Stefni í gærkvöldi hvað sem yrði í dag. Ekki landað gegn vilja verkfallsvarða Verkamannafélagið Hlíf í Hafn- arfirði og Dagsbrún í Reykjavík hafa boðað samúðarverkfall frá og með miðnætti í nótt og frá þeim tíma verður ekki landað úr vest- firskum skipum í Reykjavík og Hafnarfirði þar til samningar í kjaradeilunni hafa tekist. Sigurður T. Sigurðsson, formaður Hlífar í Hafnarfirði, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki yrði hvikað frá þessari ákvörðun og hafnfirsk- ir hafnarverkamenn myndu ekki hafa sig í frammi þar til samúðar- verkfallið hefst. „Það verður ekki landað af hafn- firskum verkamönnum hér gegn vilja þessa fólks, þannig að þeir ætla hvorki að fara í handalög- mál, þrætur eða neitt slíkt, enda ekki ráðnir til slíks. Við skiljum þessa menn að vestan mjög vel. Þeir eru í hatrammri deilu og vilja fá einhvern botn í hana, en ég verð að lýsa yfir undrun minni á sjómönnum á Vestfjörðum. Hvar eru þeir? Af hveiju þarf þetta fólk að koma í aðra landsíjórðunga til að fá samúðarvinnustöðvun þar? Ég veit ekki til þess að sjómönn- um, t.d. á ísafirði, hafi dottið í hug að sýna þessu fólki samúð,“ sagði Sigurður. Morgunblaðið/Jón Svavarsson SLÖKKVILIÐSMENN sprauta froðu yfir olíuna sem flæddi úr tanki olíubílsins en 1-2 tonn fóru niður. Seinfeld sækir Island heim BANDARÍSKI leikar- inn Jerry Seinfeld er staddur hér á landi. Seinfeld er stjarna samnefndra sjón- varpsþátta, sem njóta mikillar hylli í Banda- ríkjunum og víða um heim. Seinfeld er upp- hafsmaður, framleið- andi og aðalleikari þáttanna, sem eru margverðlaunaðir og hafa m.a. hlotið Emmy-verðlaun. Þættirnir hafa verið sýndir á Stöð 2 og mun næsta sýningartímabil hefjast í septem- ber. Jerry Seinfeld er fæddur í Brooklyn-hverfi New York borg- ar 29. apríl 1954. Hann byrjaði sem grínisti („stand- up comedian") á seinni hluta áttunda áratugarins og kom reglulega fram í „The Tonight Show“ með Johnny Carson. Vin- sældir hans jukust jafnt og þétt á niunda áratugnum, ekki síst vegna þátttöku hans í „Late Night With David Letterman". Árið 1987 byrjaði hann með sinn eigin sjónvarpsþátt, „Jerry Seinfeld’s Stand-Up Confidential". Árið 1989 hófu Seinfeld-þættirnir göngu sína og á dögunum var samið um að þeir héldu áfram í haust. Ráðgert er að Seinfeld haldi af landi brott seinna í vikunni. Mökkur frá Skeiðarársandi berst um allt Suðurland Hitastig lækkar vegna mökksins Tnrmlr Morgunblaðið/Kristinn MÖKKUR hefur verið yfir Skeiðarársandi meira og minna í allan vetur. Undanfarna daga hefur dustið borist með austanátt- inni yfir allt Suðurland. MÖKKUR með fínu ryki af Skeiðar- ársandi hefur legið yfir Suðurlandi síðustu daga og segir Einar Svein- björnsson veðurfræðingur að rykið hafi náð til höfuðborgarsvæðisins. Hann segir mökkinn valda því að hitastig Iækki. Hiti á Kirkjubæjar- klaustri hafi t.d. verið 4-5 gráðum lægri af þessum sökum en við eðli- iegaj' aðstæður. „Ég fór um Suðurlandið um helg- ina og skoðaði þetta. Þetta var mjög skrýtinn mökkur. Hann var ótrúlega dökkur og hleypti lítilli birtu í gegnum sig. Það var brún móða yfír öllu Suðurlandi og vestur í Ölfus. Það eimdi minna af þessu á höfuðborgarsvæðinu, en þegar ég vaknaði í morgun sá ég að það var ryk á öllum bílum og það er komið austan af Skeiðarársandi." Vindstrókar myndast á sandinum Einar sagði að þetta efni væri ákaflega fínt og það hefði borist auðveldlega upp í andrúmsloftið þrátt fyrir að það hefði ekki verið mjög hvasst á Skeiðarársandi um helgina. „Þetta barst upp í loftið með dálítið merkilegum hætti. Efn- ið sópaðist ekki upp í loftið með vindinum heldur mynduðust litlir hvirflar, 3-5 metrar í þvermál, sem soguðu dustið upp í 100-200 metra hæð. Þaðan barst það áfram með austanáttinni til vesturs." Einar sagði ástæðuna fyrir því að svona vindstrókar myndast vera að það væri mjög staðbundinn óstöðugleiki í loftinu. Sólin næði að hita upp sandinn meira á einum stað en öðrum og þá byijaði upp- streymi. Hann sagði að þarna væri að verki sambærilegt veðurfarslega fyrirbærið og skýstrokkar í Banda- ríkjunum nema miklu kraftminni. „Það virðist sem það kólni mjög mikið þegar þessi mökkur nær sér á strik. Hitinn á Kirkjubæjar- klaustri í gær fór rétt yfir 6 gráð- ur. í gær var léttskýjað og þess vegna hefði hitinn átt að ná 10-12 gráðum. Mökkurinn náði að dreifa sólarljósinu og endurkasta því þannig að sólarljósið nýttist. ekki til upphitunar eins og venjulega. I Skaftafelli bar miklu minna á þessu vegna þess að dustið barst undan austanáttinni. Þar var líka talsvert hlýrra en annars staðar." Spáð óbreyttu veðri Einar sagði að það væri búið að vera sérstaklega þurrt á suðaustur- landi í vor. Úrkoma á Kirkjubæjar- klaustri það sem af er þessum mánuði væri aðeins 3 mm og það væri óvenjulega lítið. Við þessar aðstæður ætti vindurinn mjög auð- velt með að blása rykinu af stað. Það þyrfti góða rigningu til að binda þetta niður, en það væri hins vegar ekki útlit fyrir að það færi að rigna á næstunni. Samkvæmt veðurspá væri ekki sjáanlegt annað en að þurrviðrið héldi áfram svo lengi sem séð yrði. Einar sagði ljóst að grasspretta væri seinna á ferðinni í Síðu og Landbroti en í venjulegu ári. Kenna mætti þurrkum um það, en hann sagðist ekki útiloka að mökkurinn af Skeiðarársandi hefði haft þar einhver áhrif. Það væri greinilegt að dust austan af Skeiðarársandi væri á gróðri um allt Suðurland. Það mætti aftur á móti gera ráð fyrir að í dustinu væru áburðarefni sem hefðu jákvæð áhrif á gróðurinn þegar færi að rigna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.