Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Forystumenn skóla á háskólastigi segja þá ekki geta keppt við almennan markað í launum
R
i EKTORAR Háskóla íslands, Há-
skólans á Akureyri og Kennarahá-
skóla Islands eru sammála Guð-
brandi Steinþórssyni, rektor í
Tækniskóla Islands, sem sagði í Morgun-
blaðinu sl. fimmtudag að hækka verði laun
háskólakennara eigi skólarnir að geta keppt
um starfsmenn við almennan vinnumarkað.
Þórir Ólafsson, rektor KHÍ, segir að kennar-
ar vinni mikla yfirvinnu sem komi niður á
rannsóknum þeirra.
Sveinbjörn Björnsson, rektor HÍ, segir að
núna þegar atvinna hafi aukist í þjóðfélag-
inu sé greinilegt að færri umsóknir berist
um stöður í vissum greinum. Hann segir
að skólar á háskólastigi hafi getað boðið
kennurum yfirvinnu til þess að þeir næðu
upp hærri launum eða, sem stjórnendur
skólanna vilja síður, veitt þeim heimild til
að stunda aukastörf annars staðar. í Há-
skóla íslands hafi svokallaður vinnumats-
sjóður reynst sumum kennurum búbót en
úr honum er kennurum greitt fyrir rann-
sóknir.
„Sjóðurinn hefur getað bætt laun þeirra
sem eru duglegir við skriftir. Þeir sem hafa
hæstu laun hér meðal kennara hafa verið
með þriðjung sinna heildarlauna vegna yfir-
vinnu við kennslu og einstaka kennarar með
einn þriðjung til viðbótar úr vinnumatssjóðn-
um. En menn geta ekki unnið svo mikið
nema stuttan tíma starfsævinnar," sagði
Sveinbjörn.
Sveinbjörn telur að hætta steðji að há-
skólastiginu að óbreyttu launakerfi. Vonir
séu þó bundnar við að tekið verði upp
nýtt kerfi við kjarasamninga sem gefi
stofnununum meira frjálsræði um launa-
greiðslur.
Breyta þarf launastefnu
„Það gæti verið að við þyrftum að víkja
frá þeirri föstu stefnu að greiða öllum sömu
iaun og fara að greiða mishá laun sem
ráðast af markaðsaðstæðum. Þarna er ég
aðallega að tala um þær greinar sem okkur
gengur verst að ráða í, þ.e. viðskiptagrein-
ar, verkfræðigreinar og upplýsingatækni.
Þarna er gróskan í atvinnulífinu mest. Eg
sé enga aðra leið til þess að bæta laun
kennara og standast langvinna samkeppni
en að Háskólinn fái svigrúm og sjóði til
að geta boðið þeim starfsmönnum betur
sem við viljum umfram allt halda,“ sagði
Sveinbjörn.
Hann sagði að einnig kæmi til
greina að auka kostun fyrirtækja
á stöðum. Háskólinn sé engu að
síður bundinn af því núna að
greiða þann launataxta sem ríkið
býður. Umsækjendur um stöðurn-
ar eru því ekki margir þar sem
launakjörin eru ekki freistandi.
„Það væri þó vel hugsandi að auka kost-
un á stöðum en það eina sem menn þurfa
að vara sig á er að Háskólinn tapi ekki
sjálfstæði sínu gagnvart styrkjendum.
Mikil yfírvinna
kemur niður
á rannsóknum
Rektorar telja að hætta steðji að háskólastifflnu að
óbreyttu launakerfí. í grein Guðjóns Guðmundssonar
kemur fram að þeir binda vonir við að stofnununum
verði gefið meira frjálsræði um launagreiðslur.
Þórir
Ólafsson
Sveinbjörn
Björnsson
Þorsteinn
Gunnarsson
Hugsanlega
vikið frá því
að greiða öll-
um sömu laun
Styrkjendur mega ekki ráða því hvað er
kennt eða hvernig það er kennt,“ segir
Sveinbjörn.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans
á Akureyri, segir að þessi vandi blasi við
annars staðar á háskólastiginu. Hann tekur
þó ekki svo djúpt í árinni að telja að at-
gervisflótti sé brostinn á.
Stofnanirnar semji sjálfar
við sína starfsmenn
„Við höfum getað haldið þokka-
lega í okkar kennara en við fáum
fáar umsóknir um þær stöður sem
við auglýsum. Við höfum úr mjög
litlum hópi kennara að velja. Nýlega augiýst-
um við fimm eða sex kennarastöður en
umsækjendur eru fáir og lítið hefur verið
spurt um stöðurnar," sagði Þorsteinn.
Hann segir að ein lausn á þessum vanda
sé sú að stofnanirnar fái meiri völd til þess
að semja sjálfar við sína starfsmenn og losni
úr því miðstýringarkerfi spm er á kjarasamn-
ingum.
„Mér sýnist einhver viðleitni vera í þá
áttina. En einnig gæti það hjálpað mikið,
altént hvað varðar Háskólann á Akureyri,
að hafa aðgang að meira fjár-
magni til rannsókna. Það gæti
komið út í betri kjörum fyrir
kennara,“ sagði Þorsteinn.
Hann segir að sú hætta blasi
við háskólastiginu hér á landi að
vel menntað fólk flytjist úr landi
og skólarnir hafi ekki tök á því
að ná þeirri þekkingu sem þurfi til þess
að byggja upp grundvallargreinar eins og
upplýsingatækni og tölvutækni sem eru í
harðri samkeppni við einkamarkaðinn.
Þorsteinn segir að vandinn geti orðið afar
Grunnlaunin
eru tvöfalt
hærri á Norð-
urlöndunum
alvarlegur en bendir á móti á að stofnanirn-
ar verði að bregðast við með því móti að
auka samstarf sitt við fyrirtæki og atvinnu-
líf um fjármögnun á kennarastöðum í grund-
vallargreinum.
„Þær leiðir sem við höfum farið til þess
að bæta úr þessu ástandi hjá okkur er
annars vegar að gera samninga við rann-
sóknastofnanir atvinnuveganna um sam-
ráðningu á sérfræðingum og hins vegar að
gera samninga við fyrirtæki um kostun á
kennarastöðum. En það leysir þó ekki þann
vanda sem við blasir að grunnlaun háskóla-
kennara eru alltof lág. Að mínu mati þyrfti
að tvöfalda launin til þess að gera skólana
samkeppnishæfa við atvinnulífið," sagði
Þorsteinn.
Tvöfalt hærri grunnlaun
á Norðurlöndum
Þórir Ólafsson, rektor í Kennaraháskóla
íslands, segir að ekki sé farið að bera alvar-
lega á atgervisflótta frá KHÍ. Hann telur
að það byggist helst á því að kennarar séu
tiltölulega ánægðir með starfið og mikilli
yfirvinnu sem flestum bjóðist.
„Ef við berum okkur saman við Norður-
löndin eru grunnlaunin þar tvöfalt hærri
en þar tíðkast alls ekki yfirvinna. Heildar-
laun eru því svipuð en menn vinna baki
brotnu hér eins og reyndar víðar í íslenska
þjóðfélaginu. Við finnum það einnig mjög
á ákveðnum sviðum, t.d. upplýsingatækni-
sviði, að það er alls ekki hægt að keppa
við almennan markað sem býður mun betri
laun. Sama má reyndar segja um verk- og
tæknigreinar. Þó er ánægjulegt að allmarg-
ar umsóknir hafa borist um stöður sem við
höfum auglýst undanfarið. Sumir umsækj-
enda eru reyndar að koma erlendis frá og
bregður í brún þegar þegar þeir átta sig á
því hver launin eru. Þess eru dæmi að
menn, sem hafa fengið stöðu, hætti við
þegar þeir átta sig á því hver launin eru,“
segir Þórir.
„Það er mjög alvarlegt ástand þegar
háskólamenntað fólk, kannski með 6-10 ára
nám eftir stúdentspróf, er með um 100
þúsund krónur á mánuði í grunnlaun. Það
sem bjargar þessu er mikil vinna en hún
kemur auðvitað niður á rannsóknum. Sum-
ir ná styrkjum út á rannsóknaverkefni en
það er fyrst og fremst greidd yfirvinna
fyrir kennslu," sagði Þórir.
Þórir segir að KHÍ þurfi senn að taka
mið af vinnutímatilskipun ESB en
reyndar hafi verið yfirvinnuþak
vegna kennslu.
„Það verður enn erfiðara með
tilskipun ESB fyrir kennara að
ná upp laununum með mikilli yfir-
vinnu. En mér sýnist stjórnvöld
hafa skilning á því núna í fyrsta sinn um
nokkurra ára bil að það verði á einhvern
hátt að hækka grunnlaun háskólakennara
og færa hluta af yfirvinnu inn i grunnlaun-
in,“ sagði Þórir.
R-listi gagnrýndur fyrir seinagang við meðferð óskar um niðurrif tveggja húsa
Reynt verður
að vemda hús
við Laugaveg 21
ÁKVEÐIÐ hefur verið í borgarstjórn að reyna að leita leiða til
að vernda húsið við Laugaveg 21 með viðræðum við lóðareiganda.
BORGARSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum á fimmtudag að hefja
viðræður við eiganda lóðar nr. 21
við Laugaveg um leiðir til
verndunar húss á lóðinni en hann
óskaði eftir niðurrifi hússins sem
reist var árið 1887. Þá var sam-
þykkt að rætt yrði við sama aðila
um uppbyggingu á lóð við Klapp-
arstíg 30.
Málið á sér langa forsögu og
gagnrýndu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins meirihlutann harð-
lega fyrir seinagang við afgreiðslu
málsins en lóðareigandinn hafi
fyrst óskað eftir niðurrifi húsanna
við Laugaveg og Klapparstíg fyrir
sex mánuðum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi sagði að málið hafi
siglt í strand þegar ljóst var að
skiptar skoðanir voru um það hjá
R-listanum. Minnti hann á að full-
trúar meirihluta í byggingarnefnd
hafi ekki treyst sér til að synja
beiðni um niðurrif en fulltrúar
hans í skipulagsnefnd hafi á hinn
bóginn gert það. Vilhjálmur sagði
réttarstöðu borgarbúa oft mjög
óljósa í samskiptum við borgar-
kerfíð og kvað algengt að menn
yrðu að bíða mánuðum saman eft-
ir úrlausn mála sinna.
Tillögu um niðurrif vísað frá
Sjálfstæðismenn lögðu fram til-
lögu um að borgarstjórn sam-
þykkti fyrir sitt leyti að húsin yrðu
rifin. Tillögunni var vísað frá.
Tveir borgarfulltrúar R-lista,
sem jafnframt sitja í byggingar-
nefnd, lýstu yfir því að afstaða
þeirra væri óbreytt. Á hinn bóginn
greiddu þeir atkvæði með tillögu
um viðræður við lóðareiganda í því
skyni að hægt væri að reyna á
hvort tækist að vernda húsið í sátt
við eiganda þess.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, sagði ástæðu þess að
heimila ætti niðurrif húss við
Klapparstíg en ekki við Laugaveg
þá að húsið við Laugaveg væri
mikilvægur hlekkur í götumynd-
inni og hluti af verslunarsögu borg-
arinnar.
Hornfirð-
ingar vilja
taka við
flóttafólki
Á FUNDI bæjarstjórnar
Hornaijarðar 15. maí sl. var
til umræðu sú hugmynd að
Hornafjörður sækti um að
taka á móti flóttafólki frá ríkj-
um gömlu Júgóslavíu. Félags-
málaráðuneytið hefur nýlega
auglýst eftir sveitarfélögum til
þess að taka við u.þ.b. 15
flóttamönnum sem koma til
Iandsins í sumar.
Bæjarstjórn Hornafjarðar
samþykkti að kannaðir verði
til hlítar möguleikar á að
Hornafjörður taki á móti
flóttamönnum frá ríkjum fyrr-
um Júgóslavíu sem eru að
flytja til íslands í sumar.
Bæjarstjórn samþykkir að
fela bæjarráði Hornafjarðar
að vinna að málinu og sækja
um til félagsmálaráðuneytisins
að taka á móti flóttamönnun-
um, að því tilskildu að fjár-
magn og aðrar aðstæður til
móttöku verði tryggðar.
-
i
i
i
>
i
I
I
I
r
i
i
i
I
i
1
t
L