Morgunblaðið - 21.05.1997, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
AEG
Lavamat 538
Framkvæmdum við rússneskan togara lokið hjá Slippstöðinni hf.
Viðræður um
frekari viðskipti
VINNU við rússneska frystitogar-
ann Opon er lokið hjá Slippstöðinni
hf. og hélt togarinn frá Akureyri
áleiðis til Reykjavíkur sl. sunnudag,
þar sem tekin verða veiðarfæri um
borð. Framkvæmd var svokölluð
klassaskoðun á skipinu hjá Slipp-
stöðinni, auk þess sem gerðar voru
viðamiklar endurbætur á vinnslu-
búnaði þess og flokkunarbúnaður
frá Marel settur um borð.
Marel Trading, dótturfyrirtæki
Marel hf. gerði í byijun febrúar
sl. samning við rússneska sjávarút-
vegsfyrirtækið Karelrybflot um
viðamiklar endurbætur á tveimur
togurum. Vinna við seinna skipið,
Olenty, er komin vel af stað hjá
Slippstöðinni og er gert ráð fyrir
því að það verði klárt á veiðar um
miðjan ágúst.
Verkefnastaðan góð
Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar, segir að
vinna við Opon hafi gengið vel.
Verkið tók þtjá mánuði og stóðst
áætlun í öllum meginatriðum.
Rússneska sjávarútvegsfyrirtækið
á og gerir út 26 sams konar tog-
ara og Opon og Olenty en um er
að ræða systurskip togara Meck-
lenburger Hochseefischerei, dótt-
urfélags Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. í Þýskalandi.
Auk samninga um endurbætur
á tveimur togurum, var undirrituð
viljayfirlýsing um sams konar verk
á fjórum togurum í viðbót í eigu
sama fyrirtækis. Ingi segir að við-
ræður um frekari viðskipti af þessu
tagi standi yfir og vonast hann til
að af þeim geti orðið.
Ingi segir að verkefnastaða
Slippstöðvarinnar sé góð um þess-
ar mundir og fyrirsjáanleg séu næg
verkefni fram á haust. Við rúss-
nesku togarana hafa m.a. unnið
pólskir járniðnaðarmenn og eru 10
slíkir enn við störf í stöðinni. Þá
hefur nemum stöðugt verið að
ijölga hjá Slippstöðinni og þar
starfa nú um 25 nemar. Nýlega
voru ráðnir 5 nemar í stálsmíði og
vélvirkjun en alls bárust 20 um-
sóknir þegar auglýst var eftir nem-
um fyrir skömmu.
Morgunblaðið/Kristján
SLÖKKVILIÐSMENN leita af sér allan grun um að
enn sé glóð í ruslinu.
Eldur í Síðuskóla
Grunur um íkveikju
GRUNUR Ieikur á að eldur í
ruslageymslu í Síðuskóla á
Akureyri aðfaranótt mánudags
hafi kviknað af mannavöldum.
Slökkvilið Akureyrar var kallað
út um kl. 1 og þá logaði eldur
glatt í geymslunni, en hún er
undir tröppum skólans.
Slökkviliðsmenn voru fljótir
að slökkva eldinn og reykræstu
að því loknu en lítilsháttar
skemmdir urðu í geymslunni af
völdum sóts og hita.
Þyrla sótti slasaðan
mann á Glerárdal
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
slasaðan mann inn að Lamba, skála
Ferðafélags Akureyrar í Glerárdal
á mánudagskvöld.
Fjórir vélsleðamenn voru saman
á ferð í Glerárdal. Síðdegis fór einn
þeirra, maður um þrítugt, fram af
snjóhengju, hann féll af sleðanum
og er talið að hann hafi lent undir
honum. Var hann illa brotinn á
fæti og handleggsbrotinn.
Tilkynnt var um óhappið nokkru
fyrir kl. 19 á mánudag og voru
hjálparsveitarmenn þá þegar ræstir
út. Talið var að maðurinn væri al-
varlega slasaður þannig að ekki
væri óhætt að flytja hann landleið-
ina á sjúkrahús. Þyrlan var því
kölluð út og lenti hún með hinn
slasaða við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri nokkru eftir kl. 20.
Morgunblaðið/Kristján
FERMINGARBÖRN ganga til kirkju á undan kjörpresti sínum,
sr. Huldu Hrönn Helgadóttur í Hrísey.
Ferming í Möðruvallakirkju í Hörgárdal
Kjörprestur sá
um athöfnina
• „Öko-System" sparar allt a5 20% sópu
• Taumagn: 5 kg
• Vindingarhraði: 800 snúningar ó mín,
með hægum byrjunarhraða.
• Hitastillir: Sér rofi, kalt -95’
• Þvottukerfi: Öll hugsanleg
ósamt sparnaðarkerfi
• Ullarkerfi: Venjulegt mikið vatnsmagn,
haegur snúningur á tromlu
• 1 /2 hnappur: Minnkar vatnsnotkun
þegar lítið er þvegið
• Vbtnsnotkun: 98 lítrar
• Orkunotkun: 2,2 kwst
sjötíu og fírnm ára
afmælisárs
Bræðranna Ormsson
ara
922-1997
Þýskt vörumerkí
Hýskt liugvit
pýsk Iramleiðsla
Þriggja Ara
ÁBYRGÐ A ÖLLUM
...bjoðum vrn
Lavamat 530
þvottavél
á serstöku afmælisverði
57000,
Eitt venð kn:
ÞVOTTAVÉLUM
Umboösmenn:
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,”Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal.
Vestfiröir: Geirseyrarbúöin.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröi.Noröurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi. KEA, Ólafsfiröi. Kf. Þingeyinga,
Húsavík.Urö, Raufarhöfn.Lóniö, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupstaö.
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK.Djúpavogi. KASK, Höfn. Suöurland: Mosfell, Hellu.Rafmagnsverkstæöi KR, Hvolsvelli. Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavfk. Rafborg, Grindavík. _______________________
SÓKNARPRESTURINN á
MöðruvöIIum í Hörgárdal tók
ekki þátt í fermingarmessu i
kirkjunni að morgni annars dags
hvítasunnu. Alls voru 6 börn
fermd í athöfninni og höfðu for-
eldrar þeirra nýtt sér lög frá
árinu 1882 og leyst sóknarbönd.
Þeir höfðu því heimild til að kalla
til kjörprest, sr. Huldu Hrönn
Helgadóttur í Hrísey, en hún
hafðí séð um fermingarupp-
fræðslu barnanna í vetur í náms-
leyfi sr. Torfa Stefánssonar Hjal-
talín sóknarprests á Möðruvöll-
um. Foreldrar fermingarbarn-
anna höfðu farið fram á að sr.
Torfi tæki ekki þátt í ferming-
arathöfninni. Hann auglýsti fyrir
helgi messu í Möðruvallakirkju á
sama tíma og fermingin átti að
fara fram, en tekið var fram í
auglýsingunni að sr. Huida Hrönn
myndi sjá um ferminguna og alt-
arisgöngu. Sr. Torfi söng messu
í kirkjunni á hvítasunnudag.
Kynferðisbrot gegn börnum
Dómnum ekki áfrýjað
RÚMLEGA fimmtugur karlmaður
á Akureyri, Roy Svanur Shannon,
sem nýlega var dæmdur í 4 ára
fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands
eystra fyrir kynferðisbrot gegn sex
stúlkubörnum og dreifingu á klám-
efni á alnetinu, hefur ákveðið að
una dómnum. Honum var einnig
gert að greiða foreldrum ólögráða
stúlkubarna sinna 4,2 milljónir í
miskabætur og 140 þúsund vegna
lögmannskostnaðar. Þá var honum
gert að greiða allan sakarkostnað,
samtals 500 þúsund. Hjá ákæru-
valdinu, þ.e. embætti ríkissaksókn-
ara, var einnig tekin ákvörðun um
að áfrýja málinu ekki og fer það
því ekki fyrir Hæstarétt.
Aðalfundur
Ferðamálafélags Eyjafjarðar
verður haldinn
þriðjudaginn 10. júní kl. 20.30 á Stássinu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.