Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Félag um
framfaramál
í Snæfellsbæ
Ólafsvík - Haldinn var stofnfund-
ur félags um framfaramál í Snæ-
fellsbæ 14. maí sl. Félagið er opið
einstaklingum og forsvarmönnum
stofnana, félaga og bæjarfélags-
ins. Á fundinum fiutti Sigurður
Guðmundsson, forstöðumaður
byggðadeildar Byggðastofnunar,
erindi um þróun atvinnulífsins og
búsetuskilyrði í Snæfellsbæ. Að því
loknu svaraði hann fyrirspurnum.
Um 120 manns mættu á fundinn
og ríkti mikill samhugur um stofn-
un félagsins. Hlutverk félagsins
er að stuðla að framförum í menn-
ingar- og atvinnulífi Snæfellsbæj-
ar. í stjórn voru kosin: Stefán Jó-
hann Sigurðsson, formaður og aðr-
ir meðstjórnendur voru kosnir
Margrét Vigfúsdóttir, Guðlaugur
Berírmann, Erla Kristinsdóttir og
Sæyar Hansson.
Ákveðið var að auglýsa eftir
starfsmanni fyrir félagið og verður
starf hans ijármagnað með árs-
gjöldum félagsmanna og framlagi
úr Snæfellsbæ. Bæjarstjórn Snæ-
fellsbæjar lýsti eindregnum stuðn-
ingi við félagið og eflingu Snæ-
fellsbæjar á þennan hátt.
Mikill framfarahugur var í fund-
armönnum og bent var á nauðsyn
þess að kynna betur þá mikiu
möguleika sem felast í því að búa
í Snæfellsbæ í framtíðinni. Viðhorf
fólks til búsetu væri að breytast.
Auk atvinnuöryggis horfi fólk til
annarra mikilvægari þátta, s.s
menntunar, samgangna og aíþrey-
ingar. Með návist stórbrotinnar
náttúru við Snæfellsjökul í miðju
sveitarfélagi gæti Snæfellsbær
orðið dráumasvæði framtíðarinnar.
Verður það hlutverk félagsins m.a.
með stuðningi íbúanna að láta
þann draum verða að veruleika.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
ÞÓRDÍS Haraldsdóttir og Ólafur Tryggvason taka við 50.000
kr. gjöf frá Hauki Torfasyni grásleppusjómanni á Drangsnesi.
Krakkarnir fengn
50.000 vegna áheits
Drangsnesi - Haukur Torfason,
grásleppusjómaður, afhenti nem-
endafélagi Drangsnesskóla 50.000
kr. að gjöf nú nýverið. Sagði Hauk-
ur við það tilefni að hann hefði
ákveðið í vetur þegar nemendur
Drangsnesskóla voru að safna í
ferðasjóðinn sinn að ef hann fengi
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
hegar þú kaupir Aloe Vera gel.
□ Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlítra at Aloe geli
þegar þú getur fengið sama magn af Aloe Vera geli frá
Banana Boat á um 700 kr eða tvöfalt meira magn af Banana
BoatAloeVerageliálOOOkr.
0 Hvers vegna að bera á sig 2% al rotvarnarefnum þegar þú
getur fengið 99,7% (100%) hreint Banana Boat Aloe Vera gel?
O Banana Boat naeringarkremið Bnin-án-sólar í úðabrúsa eða
með sólvöm #8.
O Stýrðu sólbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat
dökksólbrúnkuoliunni eða -kreminu eða Banana Boat
Golden oliunni sem framkallar gyllta brúnkutðninn.
□ Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem allir eru að rala um,
uppskrift Birgittu Klemo, eins virtasta húðsérfæðings
Norðurtanda? Naturíca Ört-krám og Nalurica Hud-krám.
Banana Boat og Naturíca lásl i sólbaðsstofum, apótekum,
snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur.
Banana Boat E-gelið faest líka hjá Samtökum psoriasis-og
exemsjúklinqa._____________________________________
ákveðið tiltekið magn af grásleppu-
hrognum á vertiðinni í vor skyldi
hann gefa krökkunum 50.000 kr. í
sjóðinn þeirra. Og þau urðu við
áheitinu eins og stundum er sagt.
Undanfarnar vertíðir hafa verið
mjög lélegar, en nú er Haukur kom-
inn með það sem hann vonaðist
eftir og vertíðin er aðeins hálfnuð
en hann vildi standa við orð sín frá
í vetur og því afhendir hann þeim
þessa peninga nú.
Einnig sagði Haukur að það
gleddi hann mikið að heyra haft
orð á því að hvar sem þau kæmu
á ferðalögum á vegum skólans
væri eftir því tekið hvað þau væru
kurteis, prúð og skemmtileg.
Þórdís Haraidsdóttir, 11 ára og
Ólafur Tryggvason, 10 ára, tóku á
móti peningunum fyrir hönd nem-
endaráðs Drangsnesskóla.
Buxur frá kr. 1.690.
Dragtir, kjólar,
bldssur og pils.
Ódýr náttfatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
FORSETAHJÓNIN hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
ganga til kirkju ásamt oddvitahjónunum á Eyrarbakka Ingu Láru Baldvinsdóttur og
Magnúsi Karel Hannessyni.
Selfossi - Eyrbekkingar fögn-
uðu 100 ára afmæli sveitarfé-
lagsins um helgina, en 18. maí
voru liðin rétt 100 ár frá því að
Magnús Stephensen landshöfð-
ingi skipaði svo fyrir til amt-
mannsins í suðuramtinu að
Stokkseyrarhreppi skyldi skipt
í tvö sveitarfélög, Eyrarbakka-
hrepp og Stokkseyrarhrepp.
Dagskráin hófst með hátíð-
arguðsþjónustu í Eyrarbakka-
kirkju þar sem séra Úlfar Guð-
mundsson sóknarprestur þjónaði
fyrir altari. Hátíðarsamkoma
með fjölbreyttri dagskrá var síð-
ar um daginn í samkomuhúsinu
Stað og kaffi og afmælisterta í
framhaldi af henni í tjaldi á
Garðstúninu. Á miðnætti hófst
síðan afmælisdansleikur á Stað,
þar sem Eyrbekkingar dönsuðu
fram undir morgun.
Á sunnudag var síðan sprell-
dagur á Garðstúninu, útivistar-
og samkomusvæði Eyrbekk-
inga. Þar skemmtu börnin sér
konunglega í leik á meðan þeir
eldri sátu og horfðu á með vel-
þóknum.
Eyrbekkingar
fundu Ameríku
Magnús Karel Hannesson
oddviti rifjaði í hátíðarræðu
sinni upp nokkra þætti í sögu
Eyrarbakka og gat þess meðal
annars að frá Bakkanum var
farin ein merkasta sigling sem
Líflegir
afmæl-
isdagar
á Eyrar-
bakka
um getur í fornsögum þegar
Bjarni Herjólfsson sigldi í vest-
urátt og fann meginland Norð-
ur-Ameríku fyrstur norrænna
manna eins og sagt er frá í
Grænlendingasögu. Það hafi því
verið Eyrbekkingur sem fann
Ameríku. Hann rifjaði einnig
upp nokkur atriði frá blómatíma
verslunar og viðskipta á Eyrar-
bakka frá miðöldum og fram á
þessa öld. Þéttbýlismyndun
hófst á miðri 19. öld og mikil
viðreisn varð í menningar- og
félagslífi á Eyrarbakka.
„Það er því ekki ofmælt að
Eyrarbakki hafi verið höfðu-
staður Suðurlands og á þeim
grunni stofna menn svo nýtt,
sjálfstætt sveitarfélag fyrir eitt
hundrað árum.“ Hann sagði
mikilvægt að Eyrbekkingar
hugi að sögu staðarins og þeim
mönnum sem mótuðu hana.
„Framtíð byggðar og mannlífs
á Eyrarbakka er fólgin í því að
við séum meðvituð um grund-
völlinn. En fyrst og fremst
byggist framtíð Eyrarbakka á
því sama og hún hefur gert síð-
ustu eitt hundrað ár, á frum-
kvæði og dug þeirra einstakl-
inga sem hér kjósa að lifa og
starfa," sagði Magnús Karel
Hannesson oddviti.
Byggðarlög með
sögu eru auðlind
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Islands ávarpaði hátíð-
arsamkomuna og sagði meðal
annars að sérhver kynslóð hefði
unnið sína sigra á Eyrarbakka
sem annarstaðar í landinu. Hann
sagði Eyrarbakka hafa tengt
Island við umheiminn á sínum
tima með þeim verslunarumsvif-
um sem þar hefðu blómstrað.
Hann gat þeirra atriða í sögu
Eyrarbakka sem tengdu staðinn
við Islandssöguna og nefndi
Húsið, kirkjuna og Barnaskóla
Eyrarbakka. Þá sagði hann
byggðarlög með mikla sögu
vera auðlind að gjaldeyristekj-
um nýrrar aldar, Eyrbekkingum
og þjóðinni allri til heilla.
ÞAU flögguðu í blómapottinum fyrir afmæli Eyrarbakka.
Heilsuval - Barónsstíg 20 ■a 562 6275