Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 19
Afengt
gos vek-
ur ugg í
Bretlandi
London. Reuter.
NÝ STJÓRN Verkamanna-
flokksins í Bretlandi hefur
ákveðið að kanna vandamál
vegna áfengra drykkja með
ávaxtabragði - alcopops -
vegna vaxandi uggs um að
þeir séu helzta orsök ölvunar
og glæpa unglinga.
Jack Straw innanríkisráð-
herra hefur falið nefnd aðstoð-
arráðherra að „athuga hvaða
fleiri ráðstafanir kunni að vera
nauðsynlegar til að koma í veg
fyrir að þessi misnotkun auk-
ist“.
„Alkópopp," þar á meðal
Hooch, Lemonhead og Diam-
ond Zest, er sterkara en flestir
bjórar sem seldir eru á börum.
Þessir drykkir hafa notið vax-
andi vinsælda síðan sala þeirra
hófst 1995. Söluverðmæti nem-
ur 265 milljónum punda á ári.
Færzt hefur í vöxt að kenna
þessum drykkjum um aukna
drykkju unglinga og jafnvel
barna, þótt helztu framleiðend-
ur segi að markhópur þeirra
sé fólk yfir 18 ára aldri.
„Freklegt ábyrgðarleysi"
Dómari í Bolton á Norður-
Englandi gagnrýndi framleið-
endur fyrir „freklegt ábyrgð-
arleysi" þegar hann heyrði að
14 ára gamall drengur, sem
hefði drukkið alkópopp, hefði
kveikt í skóla og valdið 750.000
punda tjóni.
Samkvæmt könnun æsi-
fréttablaðsins Sun á drykkju
700 unglinga á aldrinum 14 til
17 ára drukku 94% þeirra ein-
hvers konar áfengi og 59% al-
kópopp.
„Heimilisfaðir okkar (Tony
Blair forsætisráðherra) verður
að gera eitthvað fljótt," sagði
blaðið í ritstjórnargrein.
Murdoch
kaupir LA
Dodgers
New York. Reuter.
NEWS CORP fyrirtæki fjölmiðla-
kóngsins Ruperts Murdochs hefur
komizt að bráðabirgðasamkomulagi
um kaup á hafnaboltaliðinu Los
Angeles Dodgers fyrir um 350 millj-
ónir dollara, að sögn Wull Street
Journal
Leikvangur Dodgers í Los Angel-
es og æfingaaðstaða á Flórída og í
Dóminíska lýðveldinu eru innifalin í
kaupunum samkvæmt heimildum
blaðsins.
Forseti Dodgers, Peter O’Malley,
kveðst hafa beðið tvær efstu deild-
irnar í bandaríska hafnaboltanum
um leyfi til samninga við News Corp
eins og venja er í málum sem þess-
um. Blaðið hermir að O’Malley segi
í yfirlýsingu að hinn hugsanlegi
kaupandi sé Fox Group, það er Fox-
íþróttadeild News Corps.
-----♦---------
Toyota spáð
methagnaði
Tókýó. Reuter.
TOYOTA er spáð methagnaði á yfir-
standandi fjárhagsári vegna veik-
leika jens til þessa og niðurskurðar.
Hiroshi Okuda forstjóri býst ekki við
að gengi jens og dollars hafi áhrif
á útflutning japanskra bifreiðaverk-
smiðja. „Gengið er ekki vandinn,"
sagði hann.
ESB hefur efasemdir um banda-
lag BA og American Airlines
London. Reuter.
FYRIRHUGAÐ bandalag flugfé-
laganna British Airways og Amer-
ican Airlines kann að hafa orðið
fyrir áfalli vegna vísbendinga um
að Evrópusambandið muni ganga
í lið með þeim sem telja að samn-
ingnum skuli breytt.
Samkeppnisstjóri ESB, Karel
Van Miert, hefur rætt við við-
skipta- og iðnaðarráðherra Breta,
Margaret Beckett, í London um
bandalagið.
Samkvæmt heimildum í ESB
tjáði ESB-fulltrúinn brezku ríkis-
stjórninni að fyrirhuguð tengsl BA
og American mundu skaða heiðar-
lega samkeppni, ef þeim yrði ekki
breytt.
í tiiefni frétta um mótbárur ESB
sagði BA að koma mundi á óvart
að sambandið léti í ljós slíkan ugg
og benti á að framkvæmdastjórnin
hefði ekki rætt slíkar áhyggjur við
flugfélagið.
Búizt hefur verið við niðurstöðu
framkvæmdastjórnarinnar síðan í
janúar þeger Van Miert benti
brezku stjórninni á það í bréfi að
bandalagið mundi tortíma sam-
keppni á mörgum mikilvægum
leiðum milli Bandaríkjanna og
Bretlands.
Reglur um lögsögu
Nefndin hefur birt drög að regl-
um um lögsögu sína í málum sem
varða bandalög flugfélaga í lönd-
um ESB og annarra flugfélaga.
Hún er einnig birt í kjölfar sam-
komulags Lufthansa, SAS, United
Airlines og fleiri flugfélaga um
„Stjörnubandalag."
Nýju reglurnar taka ekki gildi
áður en samningar um Stjörnu-
bandalagið og BA/American taka
gildi.
Van Miert hefur hótað brezkum
yfirvöldum málaferium, ef hún tek-
ur ekki afstöðu til uggs fram-
kvæmdastjórnarinnar um að sam-
keppnisreglur séu ekki hafðar í
heiðri.
Ny tilboð íFokker-
verksmiðjurnar
Amsterdam. Reuter.
SKIPTASTJ ORAR Fokker-flug-
vélaverksmiðjanna búa sig undir
könnunarviðræður við nefnd rúss-
neskra og kínverskra fjárfesta, sem
telja sig geta endurreist hið forn-
fræga fyrirtæki.
En Fokker hefur verið gjaldþrota
í rúmt ár, smíði síðustu þotunnar
lauk fyrir nokkrum vikum og
skiptastjórarnir segja að fyrirtæk-
inu verði aðeins bjargað með krafta-
verki.
Rússnesku og kínversku fjárfest-
arnir hafa komið til liðs við hol-
lenzkan iðnrekanda, Rosen Jacob-
son - sem komið hefur við sögu
fyrri tilrauna til að bjarga Fokker
- og sagt að þeir hafi fjárhagslegt
bolmagn og tæknilega þekkingu til
að tryggja samkomulag um að fyr-
irtækinu verði bjargað á síðustu
stundu.
Nefnd frá Kína og Rússlandi er
væntanleg til Hollands í næstu viku
til frumviðræðna við skiptastjórana.
Dularfullir fjárfestar
Lítið er vitað um ijárfestana. Ron
Rietti, talsmaður þeirra, segir að
áhrifamiklir rússneskir kaupsýslu-
menn styðji björgunartilraunina og
njóti flárhagslegs og tæknilegs
stuðnings fyrirtækja í kínverskum
hergagnaiðnaði.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
samtökum fjárfestanna eru þessi
fyrirtæki Turmile Group og Harbin
Aircraft Industry Company.
Rússarnir hafa sameinazt í Int-
erconversiya Group og Kínverjarnir
eru undir leiðsögn kaupsýslumanns-
ins Henry Ho.
Harbin Aircraft Industry er eitt
hundraða fyrirtækja sem hafa út-
vegað Fokker flugvéiahluti, að sögn
kunnugra.
Arabískur auðmaður
Almenni hlutabréfasjóðurinn
Kennitala 521090-2009
Laugavegi 170, Reykjavík
Almennt hlutafjárútboð
(jUpphæð að nafnvirði 10.000.000 -100.000.000 knj
Fyrsti söludagur: 20. maí 1997
Sölutímabil: 20. maí til 20. nóvember 1997
Sölugengi í upphafi: 1,93
Umsjón: Fjárvangur hf.
Söluaðilar: Fjárvangur hf. og skrifstofur VÍS um land allt.
Sölugengi er breytilegt eftir fyrsta söludag.
FJÁRVANGUR
lOCGUI VERÐBRtFAFYRIRTÆKI
Laugavegi 170, 105 Reykjavík, sími 540 50 60,
símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is
kaupir 3% í Cordiant
Dubai. Reuter.
SAUDI-ARABÍSKI auðmaðurinn al-
Waleed bin Talal prins hefur keypt
rúmlega 3% í auglýsinga- og mark-
aðssetningarfyrirtækinu Cordiant í
London fyrir 150 milljónir rijala eða
40 miljónir dollara.
Aðalframkvæmdastjóri Cordiants,
Bob Seelert, hefur fagnað kaupununt
segir í tilkynningu frá prinsinum, sem
____STEINAR WAAGE
f SKÓVERSLUN
Marc O’Polo
Tegund: 1930 Tegund: 1913
Verð 3.995 • Stærðir 36-41 • Ýmsir litir
hefur keypt hlutabréf í ýmsum bönk-
um, hótelum og fleiri erlendum fyrir-
tækjum.
Cordiant er eignarhaldsfyrirtæki
sem áður hét Saatchi & Saatchi. í
apríl var sagt að í ráði væri að gera
auglýsingadeildimar Saatchi & Saatc-
hi og Bates og fjölmiðladeildina Zen-
ith að þremur óháðum fyrirtækjum.
1 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
r STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN ' SÍMI 551 8519 # Voppskórinn Veltusundi viö Ingólfstorg • Slmi 5521212. STEINAR WAAGE SKÖVERSLUN SÍMI 568 9212 ^
ER HÆGT AÐ LOSNA VIÐ
„APPELSÍNUHÚÐ"?
CLINIQUE
100% ilmefnalaust
Nei - megrunakúr eða líkamsþjálfun duga
ekki til að fjarlægja „appelsínuhúð", en hjálp
er að finna.
Ójafnt yfirborð húðarinnar á mjöðmum og
lærum verða til vegna líkamsfitu og lélegs
húðstyrks. Hverjar fá þetta? Konur af öllum
stærðum í mismunandi formi á öllum aldri.
m believer
vody tomng
keatment
FIRM BELIEVER nýja líkamskremið frá Clinique
byggir upp og bætir teygjanleika húðarinnar
svo yfirborðið verður sléttara og styrkara
á 6-8 vikum.
• Firm Believer Body Treatment 200 ml.
• Ásamt kaupauka
• Facial Soap Mild, andlitssápa 42 gr.
• Moisture On-Call 7ml
• Different Lipstick varalitur 4gr.
Verð alls 2.815
Tilboðið fæst í eftirtöldum Clinique verslunum í Reykjavík og nágrenni:
Sara, Hygea, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hagkaup snyrtivörudeild, Brá, Gullbrá,
Snyrtistofan Hrund, Snyrtistofan Maja, 17 snyrtivörudeild, Garðs Apótek, Lyfja,
Vesturbæjar Apótek, Apótekið Garðabæ.
Verslanir utan Reykjavíkur og nágrennis:
Apótek Akraness, Amaró Akureyri, Hagkaup Akureyri, Apótek Siglufjarðar,
Krisma ísafirði, Apótekið Keflavík, Ninja Vestmannaeyjum.