Morgunblaðið - 21.05.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1997 21
Hundrað
talin af í
Bangladesh
HUNDRUÐ manna eru talin af
eftir að geysiöflugur hvirfilbylur
gekk yfir strendur Bangladesh á
mánudag. Landið liggnr lágt og
er fjöldi þorpa nú einangraður
eftir að flóðbylgjur gengu yfir
strandsvæðin við Bengalflóa. Auk
mannskaðans er fullvíst talið að
gífurleg eyðilegging hafi orðið á
híbýlum manna og uppskeru.
Ekki er vitað hversu margir
létu lífið í hvirfilbylnum, en
stærsta blað landsins taldi að um
500 manns hefðu farist og um
2.000 slasast. Það var þó lán í
óláni að fjara var þegar hvirfilbyl-
urinn gekk yfir og því varð flóð-
aldan í kjölfarið mun lægri en
ella. Einn mannskæðasti hvirfil-
bylur sem gengið hefur yfir
Bangladesh varð árið 1991 en þá
fórust að minnsta kosti 138.000
manns.
Reuter
Bill Clinton býr sig undir deilu við Bandaríkjaþing
Hyggst ekki skerða
viðskiptakjör Kína
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, kvaðst á mánudag hafa
ákveðið að Kínverjar héldu áfram
vildarkjörum í viðskiptum við
Bandaríkin á næsta ári þrátt fyrir
deilur ríkjanna í ýmsum málum,
einkum mannréttindamálum. Búist
er við að deilt verði um ákvörðun
forsetans á þinginu þar sem nokkr-
ir þingmenn hafa sagt að þeir hygg-
ist reyna að hnekkja henni.
Kínveijar fögnuðu ummælum
Clintons, sem hann viðhafði á fundi
með kaupsýslumönnum í Washing-
ton. „Ég tel að ef við ógildum eðli-
leg viðskiptakjör Kínveija myndum
við slíta sambandi okkar við kín-
versku þjóðina og draga úr áhrifum
okkar á kínversku stjórnina," sagði
Clinton.
Aðeins sex ríki njóta ekki vild-
arkjaranna í Bandaríkjunum, en
þau eru Afganistan, Kúba, Laos,
Norður-Kórea, Serbía og Víetnam.
íran, írak og Líbýa njóta þessara
kjara formlega en þau hafa hins
vegar sætt viðskiptabönnum af
hálfu Bandaríkjanna.
Clinton þarf að skýra þinginu frá
ákvörðun sinni ekki síðar en 3. júní.
Til að fulltrúadeildin og öldunga-
deildin geti hnekkt ákvörðuninni
þurfa þær að samþykkja sameigin-
lega yfirlýsingu gegn henni ekki
síðar en 31. ágúst. Beiti forsetinn
neitunarvaldi sínu gegn yfirlýsing-
unni getur þingið hnekkt því með
tveimur þriðju atkvæða.
Miklir hagsmunir í veði
Embættismenn í Hvíta húsinu
sögðust vongóðir um að Clinton
gæti komið í veg fýrir að andstæð-
ingar hans á þinginu gætu aflað
nógu margra atkvæða til að hnekkja
ákvörðun forsetans en vildu þó ekk-
ert segja um hversu miklar líkur
væru á að honum tækist það.
Clinton hefur samþykkt að ræða
við Jiang Zemin, forseta Kína, síðar
á árinu og hann hefur lagt mikla
áherslu á að bæta samskiptin við
Kínveija síðustu tvö ár. Bandaríkin
eiga mikilla efnahagslegra hags-
muna að gæta því bandarískir emb-
ættismenn áætla að 170.000 banda-
rísk störf séu háð útflutningi til
Kína og að ógilding viðskiptakjar-
anna myndi kosta bandaríska neyt-
endur 600 milljónir dala, sem svar-
ar 42 milljörðum króna, á ári vegna
verðhækkana á skóm, fatnaði og
heimilistækjum.
Sandy Berger, þjóðaröryggisráð-
gjafi Clintons, sagði að ógilding
viðskiptakjaranna myndi hafa lítil
áhrif á stefnu Kínveija en draga
úr áhrifum Bandaríkjamanna í
Kína. „Við myndum ekki einangra
Kinveija, heldur einangra okkur
sjálfa frá Kína. Þetta er kjarni
málsins."
Niðurstöður nýrrar
rannsóknar við
Harvard-háskóla
Óbeinar reyk-
ingar tvöfalda
hættuá
hjartaáföllum
New York. Reuter.
SAMKVÆMT New York Times
hefur rannsókn sem gerð var við
Harvard-háskóla sýnt fram á að
óbeinar reykingar tvöfaldi hættu á
hjartaáföllum.
I rannsókninni sem framkvæmd
var á tíu ára tímabili var fylgst
með rúmlega 32 þúsund heilbrigð-
um konum. Konurnar, sem voru á
aldrinum 36 til 61 árs, höfðu aldrei
reykt en komist reglulega í snert-
ingu við tóbaksreyk á heimili eða
vinnustað. Á tímabilinu fengu þær
152 hjartaáföll, þar af 25 banvæn.
„Samkvæmt rannsókninni getum
við gert ráð fyrir að 50.000 Banda-
ríkjamenn látist árlega úr hjarta-
áföllum vegna óbeinna reykinga,"
sagði Ichiro Kawachi, prófessor við
Harvard-háskóla og stjórnandi
rannsóknarinnar. Dauðsföll úr
lungnakrabbameini vegna óbeinna
reykinga eru hins vegar mun færri
eða um 3.000-4.000 á ári.
Stærð þorsk-
stofnsins
ofmetin
Atök blossa upp á ný í Afganistan
Taleban lýsir yfir
nýjum landvinningum
Ósló. Morgunblaöiö.
NORSKIR fiskifræðingar segja að
stærð þorskstofnsins í Barentshafi
sé ofmetin en veiðikvóti norskra og
rússneskra stjórnvalda þar er
óvenjumikill í ár, 850.000 tonn.
Hefur hann ekki verið eins mikill frá
árinu 1977. Fiskifræðingarnir segja
ástandið þó ekki svo alvarlegt að
skera þurfi niður áður ákveðinn
kvóta.
Fiskifræðingar við hafrannsókn-
arstofnunina í Björgvin segja
ástæðuna þá að líklega séu ekki
notaðar réttar aðferðir við mæling-
arnar. Erfitt sé að meta stofnstærð
og í ljós hafi komið að menn hafi
ofmetið stærð góðra árganga. Of
snemmt sé hins vegar að segja til
um raunverulega stærð.
Þetta kemur fram í bréfi fiski-
fræðinga í Björgvin til Alþjóðlegu
hafrannsóknarstofnunarinnar, IC-
ES, í Kaupmannahöfn. Leggja
norsku fiskifræðingarnir til að
rannsóknaraðferðir við mat á fiski-
stofnum verði teknar til endurskoð-
unar.
Kabul. Reuter
TALEBAN-hreyfingin, sem nú fer
með völd í tveimur þriðju hlutum
Afganistans, kveðst hafa náð á sitt
vald borgunum
Kunduz og Sar-i-
Pul auk Shibar
þjóðleiðarinnar
sem liggur til
borgarinnar
Bamiyan í Mið-
Afganistan og er
auk þess mik-
ilvægur tengilið-
ur við norðurhér-
uð landsins. And-
stæðingar þeirra
neita hins vegar öðru en því að
Kunduz hafi fallið.
Yfirlýsing Talebana um nýja
landvinninga kom degi eftir að
Abdul Malik, sem áður var háttsett-
ur í liði andstæðinga hreyfingarinn-
ar, gekk til liðs við hana.
Malik, fylkisstjóri Faryab-fylkis
var bróðir Rasul Pahlivan, sem
þjónað hafði sem herforingi í liði
Abdul Rashid Dostum, en tekinn
var af lífi í fyrra. Liðhlaup hans
kom af stað uppreisn í að minnsta
kosti fjórum norðurhéruðum lands-
ins sem eru á valdi Dostums.
Hóta „íslömsku réttlæti"
Talsmaður andstæðinga Tale-
ban sagði einnig að Taleban hefði
unnið landvinninga í suðurhluta
Faryab en ekki náð til höfuðborgar
fylkisins Maimana. Sagði hann alla
áherslu verða lagða á að endur-
vinna Malik í flokk uppreisnar-
manna og að lið hefði verið sent
til Jawzjan til að hefta framsókn
Taleban inn á landsvæði Dostum.
Æðsti leiðtogi Taleban, Mullah
Mohammad Omar, hvatti alla and-
stæðinga Taleban til að ganga til
liðs við hreyfinguna, ella muni þeir
mæta „íslömsku réttlæti". Einnig
varaði hann nágrannaríki Afganist-
ans við að blanda sér í innanríkis-
mál landsins.
Taleban hefur ásakað Rússland,
Iran og Úsbekistan um að styðja
andstæðinga sína, en andstæðingar
þeirra segja Taleban njóta stuðn-
ings Pakistans, Saudi-Arabíu og
Bandaríkjanna.
Yfirmenn öryggismála í ná-
grannaríkinu Tadjíkistan, sem bæði
óttast að átökin breiðist út svo og
nýja bylgju flóttamanna frá Afgan-
istan, héldu neyðarfund í kjölfar
átakanna.
Abdul
Rashid
Dostum
Norðmenn
unnu fyrir
CIAí
Víetnam
NORSKA sjónvarpið hefur
upplýst að þrír norskir skip-
stjórar hafi starfað fyrir banda-
rísku leyniþjónustuna, CIA, í
Víetnam, skömmu áður en Ví-
etnamstríðið braust út árið
1964. Voru mennirnir ráðnir
með milligöngu norsku leyni-
þjónustunnar ári fyrr og störf-
uðu í Norður-Víetnam. Norski
varnarmálaráðherrann, Jorgen
Kosmo, hefur lýst því yfír að
ráðning mannanna kunni að
hafa brotið í bága við lög.
Stóðst
vantraust
TYRKNESKA stjórnin stóðst
vantrauststillögu sem stjórn-
arandstöðuflokkarnir lögðu
fram á þingi í gær. Mjótt var
þó á mununum því 265 greiddu
atkvæði gegn stjórninni en 271
studdi hana. Gagnrýni hefur
aukist mjög á flokk heittrúaðra
múslima í stjórninni, þar sem
þeir þykja ýta undir starfsemi
ýmissa hópa heittrúarmanna.
Hafa m.a. þrír ráðherrar sam-
starfsflokks þeirra sagt af sér
vegna þessa.
• •
Okuþór í for-
setaframboð
FYRRVERANDI kappakst-
urshetja, Carlos Reutemann,
hefur lýst því yfir að hann
hyggist bjóða sig fram til emb-
ættis forseta Argentínu, en
Carlos Menem lætur af emb-
ætti forseta eftir tvö ár.
Kvaðst Reutemann í gær hafa
sagt Menem af fyrirætlunum
sínum og að forsetinn hefði
heitið sér fullum stuðningi.
Eignir
Harriman á
uppboði
EIGNIR Pamelu Harriman,
sendiherra Bandaríkjanna í
Frakklandi, sem lést fyrr á
árinu, voru
seldar á 4,7
milljónir
dala, rúm-
lega 330
milljónir ísl.
kr. á upp- s
boði hjá
Sotheby’s á'
mánudag.
Á meðal
muna í eigu
hennar var mynd sem Winston
Churchill, fyrrum forsætisráð-
herra Breta og tengdafaðir
Harriman, málaði af vínflösk-
um. Um 800 manns voru við
uppboðið og fékkst mun hærra
verð fyrir munina en búist
hafði verið við.
Tíkin
Millie dauð
MILLIE, tík George og Bar-
böru Bush, fyrrverandi for-
setahjóna, drapst á mánudag,
12 ára gömul. Millie öðlaðist
frægð er út kom bók, sem
eignuð var henni, um lífið í
Hvíta húsinu, en forsetafrúin
mun hafa aðstoðað hundinn
við ritun bókarinnar.
Pamela
Harriman