Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 23

Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 23 LISTIR Gunnar klárar með Rodolfo í Lyon París. Morgunblaðið. GUNNAR Guðbjörnsson tenór- söngvari syngur nú sitt stærsta hlut- verk til þessa í óperunni í Lyon. Hann syngur Rodolfo í La Boheme og á fímmtudaginn er síðasta sýn- ingin á dagskrá og þar með lýkur föstum samningi Gunnars í Lyon. Hann ætlar í lausamennsku, „meiri áhætta peningalega fyrir fjölskyldu- mann en meira spennandi fyrir söngvara". í júlí syngur hann með sinfóníu Savoie-héraðs, Serenöðu fyrir tenór og hom eftir Benjamin Britten (Marlhes 23., Taninges 24., Montsapey 26. og Clermont 31.) Skipst á við Gedda Síðan tekur við „sumarfrí" á ís- landi með upptöku geislaplötu og ef til vill tónleikum út um land og í október syngur Gunnar í Mahogony Kurts Weills í Bastillunni í París. í desember er ætlunin að syngja í Singapúr, nokkuð sem kom til vegna tónleikagesta sem heyrðu í Gunnari á Kirkjubæjarklaustri, og í Þýska- landi í tónleikaröð á móti Nicolai Gedda, sem hefur þjálfað Gunnar. Svo er söngvarinn bókaður í Hol- lendinginn fljúgandi í Lille eftir ára- mót og áður, í mars, heldur hann tónleika í Óðinsvéum og Flensborg í Danmörku. Fleiri verkefni bíða staðfestingar, „bíða eftir stjörnun- um, sem ganga fyrir minna þekktum mönnum“. ÁLAFOSSKÓRINN. Alafoss- kórinn með tvenna tónleika ÁLAFOSSKÓRINN lýkur vetrar- starfí sínu með tvennum tónleik- um. Þeir fyrri verða í Bæjarleik- húsinu í Mosfellsbæ miðvikudaginn 21. maí kl. 20.30 og þeir seinni í Grensáskirkju fimmtudaginn 22. maí kl. 20.30. Sungin verða íslensk lög og nýtt verk, Eyjan, eftir söngstjóra kórs- ins, Helga R. Einarsson. Undirleik- ari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Gersemar úr rafí SÝNING á hlutum úr rafher- berginu svokallaða hófst í Moskvu um hvítasunnuhelgina en þeir hurfu i heimsstyrjöldinni siðari frá Sovétrílyunum. Höfðu þýskir nasistar gersemar úr rafi og mósaíkmyndir úr herberginu á brott með sér í stríðinu og hefur ekkert til þeirra spurst, þar til nýlega, að þýskir og rúss- neskir tollverðir gerðu yfir 1.300 kg. af rafi og myndum upptæk hjá smyglurum. Eru munirnir nú á sýningu í höll Katrínar miklu í borginni Púshkín, skammt frá Pétursborg. Laxnessár í Norræna húsinu Matthías ræðir sam- töl sín við Halldór Ný tímarit ÚT ER komið vorhefti bókmennta- tímaritsins Andblæs, en tímaritið kemur nú út í sjötta sinn. í Andblæ hefur frá upphafí verið lögð áhersla á að birta nýjan frumsaminn skáld- skap. Eins og jafnan kennir margra og ólíkra grasa í ritinu, höfundar eru 22 á ýmsum aldri, sumir að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, aðrir þjóðkunn skáld. í hópi hinna síðarnefndu eru Kristján Karlsson, Matthías Johannessen og Þóra Jónsdóttir, ásamt norska skáldinu Knut 0degárd sem búsettur hefur verið hérlendis um árabil. Ljóð hans birtast í þýðingu Jóhanns Hjálmarssonar og Matthíasar Jo- hannessen. Tímaritið Andblær flyt- ur bæði ljóð og laust mál. Ritstjóri er Þorvarður Hjálmarsson og í rit- nefnd eru félagar úr Ritlistarhópi Kópavogs. Andblær er 73 síður, skreyttur myndum eftir íslenska grafíklista- menn. Forsíðumynd er eftir Ágúst Bjarnason. Ritið fæst íáskrift hjá ritstjóra ogritnefnd, ogeráskrift- argjald 500 kr., en einnig í lausa- sölu á 700 kr. Á 95. afmælisári Halldórs Laxness verður efnt til margvíslegrar um- fjöllunar um skáldið og verk þess á vegum Vöku-Helgafells og Laxness- klúbbsins. Þar á meðal er röð fyrir- lestra í Norræna húsinu. Fimmtu- daginn 22. maí heldur Matthías Jo- hannessen skáld og ritstjóri fyrir- lestur um samtöl sín við Halldór Laxness frá ýmsum tímum. Erindið hefst klukkan 17.15, er öllum opið og aðgangur ókeypis. Þetta er fyrsti fyrirlesturinn sem efnt er til í tilefni af afmælisári Halldórs Laxness, en Nóbelsskáldið varð sem kunnugt er 95 ára hinn 23. apríl síðastliðinn. í kynningu segir: „Samtöl Matt- híasar Johannessen við Halldór Lax- ness taka til ólíkra þátta, fy'alla jafnt um bernsku Halldórs og skoðanir hans á fyrirbærum í nútímanum, skáldskap og stjórnmál, nútíð og fortíð - í raun er þeim fátt óviðkom- andi í þessum samræðum. Þær vitna um viðhorf Nóbelsskáldsins á ýms- um tímum, verk hans og þau djúpu spor sem hann hefur skilið eftir í sögu og menningu þjóðarinnar. Samtölin eru þó öðru fremur skemmtileg, í tilsvörum skáldsins er oft leiftrandi fyndni en um leið djúp alvara, jafnvel harmur. í fyrir- lestri sínum í Norræna húsinu á fimmtudaginn klukkan 17:15 rifjar Matthías Johannessen upp þessi samtöl og kynni sín af skáldinu. Hann hefur víða birt samtöl sín við Halldór, m.a. í bókinni Skeggræðum gegnum tíðina. Annar fyrirlesturinn á vegum Lax- nessklúbbsins og Vöku-Helgafells verður miðvikudaginn 11. júní í Nor- ræna húsinu. Þá ræðir Skúli Bjöm Gunnarsson um handrit Halldórs Laxness sem afhent hafa verið Landsbókasafninu til varðveislu en hann hefur unnið að flokkun þeirra þar. Kraftlítið eldgos KVIKMYNPIR Iláskólabíó/ BíóhölI i n TINDUR DANTES (Dante’s Peak) Vi Leikstjóri: Roger Donaldson. Handrit: Leslie Bohem og Allan Scott Tæknibrellur: Ranch Entertainment/ CIS Hollywood/ Computer Film Company/ Digital Domain. 110 mín. Bandarísk. Universal Pictures/ Pacific Westem. 1997. í AUGLÝSINGUM fyrir Tind Dantes er áhorfendum lofað hraða, spennu og tæknibrellum. Það verður að segjast að kvik- myndinni tekst ekki að standa undir þessum loforðum. Leik- stjóri myndarinnar, Roger Don- aldson, virðist telja að það sé nóg að sveifla myndvélinni, skipa leikurum að hlaupa um og skella nokkrum tölvutæknibrellum með til þess að skapa hraða eða spennu. Söguþráður myndarinnar og aðalpersónur eru einstaklega óspennandi. Tindur Dantes skreiðist áfram milli rútínuatriða hamfaramynda án þess að vekja minnsta áhuga manns á yfirvof- andi eldgosi. Hetjan er að sjálf- sögðu ein fullviss um að eldgos sé á næsta leiti en enginn trúir honum. Tölum og línuritum er veifað í miklum ákafa en auðvit- að hefur hetjan rétt fyrir sér, það vita allir. Fólk keppist um að taka rangar ákvarðanir en þetta er stórslysamynd svo það er ekki við öðru að búast. Leikararnir fara með sínar aulalegu línur án nokkurra til- þrifa. Það var helst Charles Hallahan sem sýndi sannfæring- arkraft í hlutverki yfirmanns hetjunnar. Pierce Brosnan leikur hetjuna af þvílíku máttleysi að sjaldan hefur maður séð jafn óáhugaverða persónu á hvíta tjaldinu. Hann á að hrífast af bæjarstjóra smábæjarins sem er í hættu, en hann er leikinn af Lindu Hamilton. Það eina sem er gott hjá henni er útlitið. Hún er mjög þreytuleg alla myndina, enda á persóna hennar að vera einstæð tveggja barna móðir sem rekur sitt eigið fyrirtæki auk þess að vera bæjarstjóri. Þegar eldgos bætist við og hún þarf að þeytast upp og niður fjallið með Brosnan og börnin er ekki nema von að konan líti þreytulega út. Ég beið eftir eldgosinu og hugsaði, allt í lagi, hamfara- myndir eru ekki þekktar fyrir stórleik eða spennandi söguþráð heldur grípandi tæknibrellur, þetta hlýtur að batna. Loks gaus eldfjallið. Brosnan og Hamilton hlupu undan öskufalli, keyrðu yfir hrauneðju og reyndu að var- ast að fá steina í hausinn. Smá snurða hljóp á þráðinn, flestum var bjargað, síðan var allt búið en ég var ennþá að bíða eftir atriðum sem væru sambærileg við stórspennumynd síðasta sum- ars, Twister. Þau komu bara aldrei. Tæknibrellurnar voru þarna, en þær voru einfaldlega óspenn- andi og ekkert sérlega glæsileg- ar. Allt var reynt til þess að hrella aðalsöguhetjurnar. Aska, súrt vatn, hraunelfur, hraunhnullung- ar, eldsvoðar, sprengingar og flóð koma öll við sögu, en tókst engan veginn að skelfa mann. Þegar tæknibrellurnar vekja ekki aðdáun í hamfaratæknibrellu- mynd eins og Tind Dantes er ekkert eftir. Anna Sveinbjarnardóttir Damr ráða ekki við að kaupa Gauguin-mynd Kaupmannahöfn. Morgfunblaðið. NY Carlsberg-sjóðnum dugðu ekki til þær 20 milljónir danskra króna, sem ætlaðar voru til að kaupa sjálfs- mynd af Gauguin. Málverkið var í vikunni á uppboði í New York og þar ætlaði sjóðurinn að krækja í myndina í viðbót við safn mynda á Glyptotekinu eftir þennan franska málara, sem bjó um hríð í Danmörku og átti hér konu og börn. Myndin var á endanum seld óþekktum kaup- anda á 3,5 milljónir Bandaríkjadala. Danirnir hættu að bjóða í þegar verðið var komið upp í 3,1 milljón Bandaríkjadala, en ef þeir hefðu náð myndinni á því verði hefði myndin þar með orðið sú dýrasta sem keypt hefur verið á danskt safn. Forráðamenn sjóðsins segja að með þessu sé ljóst að Danir eigi ekki lengur erindi á alþjóðleg upp- boð, þar sem boðin eru upp málverk gömlu meistaranna. Dýrasta verkið á uppboðinu var konumynd eftir Renoir, sem seld var á 12,4 milljón- ir dala. Ny Carlsberg-sjóðurinn er öflugasti listaverkakaupasjóður Dana og er fjármagnaður með bjór- sölu Carlsberg. Til samanburðar má geta þess að Statens Museum for Kunst, danska ríkislistasafnið, hefur aðeins um fímm milljónir danskar til listaverkakaupa á ári. B rúðarkjólaefni. B rúðarkjólasnið. Blúnduefni. Leggingar o.fl. VIRKA Mörkinni 3 (við Suðurlandsbraut). Lokað á laugardögum frá 1/6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.