Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 29
AÐSENDAR GREINAR
Óbyggðir íslands og
almannahagsmunir
A SIÐASTA ári
voru málefni miðhá-
lendisins mjög til um-
ræðu manna á meðal
og létu þá fjölmiðlar
sig sannarlega varða
margt það, sem snertir
eignarrétt yfir há-
lendissvæðum, stjórn
skipulags- og bygging-
armála þar, fyrirhug-
aða eða mögulega
vegagerð eða annars
konar mannvirkjagerð,
framtíð ferðamála á
hálendinu almennt og
umferðar- og dvalar-
rétt almennings á land-
svæðum utan byggða.
Páll
Sigurðsson
af hálendinu (en ekki
annarra landsmanna,
sem þó eru margfalt
fleiri en hinir fyrr-
nefndu), hefur unnið
að hin síðustu árin, er
brýnt að vekja menn
til gagnrýnnar um-
hugsunar og umfjöll-
unar um skipulag og
önnur málefni hálend-
isins á almennum vett-
vangi.
Eins og margir
munu minnast, var á
fyrra ári m.a. talsvert
rætt um eignarrétt
(grunneignarrétt og
annars konar einka-
Kom þá í ljós, að almenningur læt-
ur sig þessi mál varða, enda um
mikla hagsmuni að ræða fyrir
landsmenn alla, sem nú eru uppi,
og ekki síður fyrir óbornar kynslóð-
ir íslendinga sökum þeirrar ómæl-
anlegu auðlegðar, sem felst í
óbyggðalendum okkar, þegar rétt
er metið. Skyldu menn þá minnast
þess, að miðhálendið er dijúgur
hluti fjóstuijarðar okkar, en sann-
ast sagna hefur þó margt verið á
huldu um margvísleg grundvallar-
atriði, sem það varða. Svo sem við
mátti búast og eðlilegt verður að
teljast í lýðræðisríki komu fram
margvísleg viðhorf til þessara mála
- og stundum látin í ljósi af tals-
verðri festu - en hvað sem því líð-
ur var mikilsvert, að líflegri um-
ræðu og umfjöllun var haldið uppi
um skeið og ljóst var að sú umfjöll-
un snart strengi tilfinninga meðal
margra og hvatti almenning til
umhugsunar um framtíð þess snara
þáttar af þjóðarauðlegð okkar, sem
felst í ósnortnum víðernum hálend-
isins - söndum, jöklum, hraunum
og gróðurvinjum. Um allnokkurt
skeið hefur þó verið hljóðara um
þessi mikilvægu mál en heppilegt
megi kalla, því að lifandi og örv-
andi umræða um þetta þjóðmála-
svið má síst niður falla. Með vak-
andi athygli og fijálsri umræðu
getur almenningur m.a. veitt ráða-
mönnum hollt aðhald, þannig að
ekki verði teknar vanhugsaðar
ákvarðanir um framkvæmdir eða
aðrar ráðstafanir, sem skipt geta
sköpum um framtíð hálendisins.
Ymislegt er nú á döfínni, sem
mikilvægt er, að áhugamenn um
þessi efni fylgist vel með, og annað
hefur einnig gerst, sem óhjákvæmi-
lega hefur áhrif á framtíðarskipan
tiltekinna þátta óbyggðamálefn-
anna. I ljósi þess m.a., að brátt
munu skipulagsyfirvöld hefja al-
menna kynningu á tillögum um
skipulag miðhálendisins, sem
nefnd, skipuð fulltrúum þeirra hér-
aða einna, er gera tilkall til skáka
Stóll aida
Hönnun Richard Sapper
Verð kr. 6.9S0, kr. 6.600 stgr.
réttindi) yfir hálendinu eða einstök-
um hlutum þess og ber þá jafn-
framt að minnast þess, að á undan-
förnum árum hafa gengið allnokkr-
ir hæstaréttardómar, þar sem skor-
ið var úr um eignarrétt á afmörkuð-
um hálendissvæðum. Hefur niður-
staðan þar oftar en ekki orðið sú,
að krefjendur eignarréttar hafa eigi
getað sannað beinan eignarrétt
sinn yfir svæðunum - og þess er
meira að segja alkunnugt dæmi,
að íslenska ríkið fékk ekki viður-
kenndan grunneignarrétt sinn yfir
allstóru öræfasvæði (Landmanna-
afrétt), enda þótt jafnframt væri
ljóst að aðrir þeir aðilar, sem hags-
muna höfðu að gæta, gætu ekki
heldur talist eigendur svæðisins.
En nýverið urðu enn tíðindi á
þessu sviði. Hinn 10. apríl sl. gengu
í Hæstarétti dómar í tveimur mál-
um, þar sem reyndi á kröfur tiltek-
inna sveitarfélaga norðanlands um,
að viðurkenndur yrði grunneignar-
réttur þeirra yfir afmörkuðum en
allvíðáttumiklum afréttarlöndum á
hálendinu. Var þar annars vegar
um að ræða kröfu Svínavatnshrepps
og Torfalækjarhrepps í Austur-
Húnavatnssýslu um, að þeim yrði
dæmdur fullkominn eignarréttur
Mörkinni 3, sími 588 0640
casa@treknet.is
Bolta- og skrúfufrítt kerfi
Hillukerfi með milligólfi
sem fullnýtir lofthæð
Auðvelt í uppsetningu
Fagleg ráðgjöf
ISOldehf.
Umbods- & heildverslun
Faxafeni 10 • 108 Reykjav/k
Sími 581 1091 • Fax 553 0170
Hæstiréttur hefur í
dómum á síðari áratug-
um, segir Páll Sigurðs-
son í þessari fyrri grein
sinni, markað skýra og
afdráttarlausa stefnu
um kröfur til sönnunar
um eignarhald.
yfir Auðkúluheiði, sem teygist inn
á Kjöl, vestan Blöndu, og tekur
m.a. yfir Hveravallasvæðið, sem
nokkuð bar á í fjölmiðlaumfjöllun á
síðasta ári. Hins vegar var jafn-
hliða, en í öðru dómsmáli, fjallað
um meintan eignarrétt Bólstað-
arhlíðarhrepps í Austur-Húnavatns-
sýslu og Lýtingsstaðahrepps og
Seyluhrepps í Skagafjarðarsýslu til
svonefndrar Eyvindarstaðaheiðar,
sem jafnframt nær inn til Hofs-
jökuls milli Blöndu og Jökulsár vest-
ari. Gerðu hreppar þeir, er hér voru
nefndir, kröfu á hendur Landsvirkj-
un um bætur vegna skerðingar á
hagsmunum, sem þeir töldu leiða
af hinum beina eignarrétti sínum
yfir þessum landsvæðum. Skemmst
er frá því að segja, að Hæstiréttur
féllst ekki á þessar kröfur hrepp-
anna. Varð það niðurstaða hans,
að ekki væri nægilega í ljós leitt,
að umrædd landsvæði hefðu nokk-
urn tíma verið undirorpin beinum
eignarrétti neins þess aðila, sem hér
gat komið við sögu fyrr á öldum
og allt til þessa dags, enda þótt
snemma hefði stofnast réttur til
hefðbundinna beitarafnota á þess-
um afréttum. Skipti þá ekki máli
allvíðtækt orðalag afsalsgeminga
yfir þessum svæðum frá fyrri tíð,
svo og annara löggeminga (sumra
einhliða) sem hugsanlega gátu bent
til þess að um beinan eignarrétt
væri að ræða, enda gæti aldrei fal-
ist í þeim afsölum víðtækari eignar-
réttur til handa kaupenda afréttar-
lendnanna (og þarmeð þeirra aðila,
er nú lögðu fram kröfur sínar), en
seljendumir hefðu sjálfir öðlast. Með
öðmm orðum: enginn getur selt
annað og meira en hann á sjálfur
með réttu. Þá var einnig tekið fram
í báðum hæstaréttardómunum, að
staðhættir og víðátta umræddra
heiðalanda væri með þeim hætti,
að líkur mæltu gegn óskomðum
eignarráðum einstakra jarðeigenda.
Skal áhugamönnum um þessi
efni, sem eru áreiðanlega margir,
bent á að kynna sér dóma þessa,
sem em vissulega merkir og stefnu-
markandi hvað varðar meintan
eignarrétt tiltekinna aðila yfir öðr-
um óbyggðasvæðum, þar sem að-
stæðum svipar til þeirra, er hér
áttu við. Verður að ætla, að sam-
bærilegar aðstæður eigi víða við
um önnur öræfasvæði og má reynd-
ar fullyrða, að kröfur til eignarrétt-
ar yfir sumum svæðum yrðu studd-
ar mun veikari gögnum og rökum,
ef til kæmi, en fyrmefndir hreppar
gátu þá teflt fram í umræddum
dómsmálum. Á hinn bóginn má
ekki gleyma því, að þess finnast
dæmi að dómstólar hafi viðurkennt
fullkominn eignarrétt tiltekinna
aðila yfir vissum skákum af hálend-
inu, þar sem fyrirliggjandi gögn
þóttu veita næga sönnun í því efni
- þótt þau dæmi séu mun færri
en hin, þar sem kröfum um viður-
kenningu eignarréttar var hafnað
með dómi. Sé litið heildstætt á þá
dóma, sem á síðari áratugum hafa
gengið um meintan eignarrétt til-
tekinna aðila yfir öræfasvæðum,
má hiklaust draga þá ályktun, að
Hæstiréttur hafi fyrir alllöngu
markað skýra og afdráttarlausa
stefnu um það, að gera verði mjög
ríkar kröfur til sönnunar um að
stofnast hafi beinn eignarréttur
einstakra aðilja að afmörkuðum
hlutum hálendisins eða að þess
háttar réttur sé enn við lýði. Þá
er og Ijóst, að dómstólar hafa nú
staðfest, að nokkrar vænar skákir
af miðhálendinu lúti ekki eignar-
ráðum þeirra aðila, sem gert höfðu
kröfu þar um, og ætla verður með
fullum rökum, að hið sama eigi við
um mörg önnur öræfasvæði. Hlýtur
þetta m.a. að hafa áhrif á umræðu
meðal almennings og stjórnmála-
manna um framtíðarskipan hálend-
ismálefnanna og móta jafnframt
að nokkru efni þeirrar löggjafar,
sem nauðsyn ber til að sett verði
um þau innan tíðar, svo sem nánar
verður vikið að í síðari grein minni.
Höfundur er prófessor við
Lagadeild Háskóla íslands
í tilefni sjötíu og fimm ára afmælisárs
.* ,í Bræðranna Ormsson
bjóðum við nokkra vöruf lokka á sérstöku sumarverði
á meðan birgðir endast!
OMEER
The Art of Entertainment
Eitt verð
DEH 425 Bíltæki m/geislaspilara
• 4x35w magnari • Útvarp/geislaspilari
• Laus framhliö-þjófavörn • Aðskilin bassi og diskant
• Loudness • BSM ♦ 18 stööva minni • RCA útgangur
M-COM 506
1 Þyngd 215g •
' Taltími 3 klst.
Biðtími 60 kl
• Data/Fax 9600 bps
Sf » lí & i lí
^ioonn-jpi
^lndesíl
Helluborö í stáli og hvitur ofn
• Ofn: undir og yfirhita • Blástur
*Gril1 Eittverð
Attu þ<
að gleym<
SHARP QZ-4000
Skipuleggjari
Afar nettur en öflugur skipuleggjari
sem gerir þér kleift að halda utan
um ýmsar upplýsingar á einfaldan
og þægilegan mála.
ffW39.900.-1