Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ELÍNEDDA
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Elín Edda Guð-
mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
2. október 1946. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 10. maí
siðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Guðmundur Guð-
mundsson, fyrrver-
andi slökkviliðsstjóri
á Reykjavíkurflug-
velli, f. 13. nóvember
1919, og Elín Guð-
mundsdóttir, hús-
móðir, f. 12. júlí
1923. Alsystkini
Eddu eru Birna Mar-
grét, f. 1943, Stefanía, f. 1945,
María Sigrún, f. 1948, ívar, f.
1952, Gunnlaugur, f. 1956, Auð-
ur, f. 1960 og Björn Valdimar,
f. 1966. Hálfsystir Eddu, sam-
feðra, er Rut Guðmundsdóttir,
f. 1940. Edda ólst upp á Njáls-
götu 40 í Reykjavík, lauk námi
í Gagnfræðaskólanum við Lind-
argötu og tók stúdentspróf frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
1988.
Árið 1965 giftist Edda Þor-
steini Þorsteinssyni, skólameist-
ara Fjölbrautaskólans í
Garðabæ. Foreldrar hans voru
Þorsteinn Ingvarsson, f. 12. mars
1908, d. 11. mars
1974, og Bergljót
Helgadóttir, f. 17.
júlí 1906, d. 14. nóv-
ember 1963. Börn
Eddu og Þorsteins
eru: 1) Guðmundur,
sagnfræðingur, f. 2.
ágúst 1965, kvæntur
Anný Hermansen,
sagnfræðingi. 2)
Bergljót, lyQafræð-
ingur, f. 15. maí
1967, gift Þorsteini
Bergmann, lækni.
Synir þeirra eru
Hörður Daði, f. 1990
og Hjalti Dagur, f.
1993. 3) Þorsteinn, lífefnafræði-
nemi, f. 9. desember 1968. Dóttir
hans er Anna Guðrún f. 1996.
4) Guðbjörg, f. 28. janúar 1983.
Edda starfaði sem einkaritari
hjá Samvinnutryggingum,
læknaritari á Borgarspítalanum
og Læknastöðinni Álfheimum.
Síðustu ár var hún læknafulltrúi
í Heilsugæslunni i Garðabæ.
Edda tók virkan þátt í starfi
soroptimistasystra og var félagi
í Soroptimistaklúbbi Fella- og
Hólahverfis.
Útför Eddu verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Stundum vantar Guð engla og
þá reynir hann að velja fallegasta
og hjartahreinasta fólkið.
Móðir mín var falleg bæði að utan
og innan. Hún trúði á hið góða í
lífinu og reyndi að vera góð fyrir-
* mynd fyrir okkur.
Eg veit ekki hvort hún vissi
hversu mikið ég dáði hana og reyndi
að líkjast henni bæði í huga og í
útliti. Hún var alltaf glæsileg, hafði
aðlaðandi framkomu og göfuga
hugsun.
Þegar móðir mín greindist með
krabbamein og var byijuð í meðferð
sagði hún mér að hún yrði að líta
á sjúkdóminn sem Guðs gjöf, þetta
væri próf eða reynsla sem hún yrði
að komast í gegnum og nú væri
verið að prófa styrk hennar. Hún
trúði líka á tilvist eftir dauðann og
ég er sannfærð um það að nú líti
hún eftir okkur.
Ein af sérstökum minningum
I* sem ég á um hana var í brúðkaupi
bróður míns, Guðmundar og Annýj-
ar. Þá vildi Hjalti Dagur, sonur
minn sem þá var tveggja ára gam-
all, dansa við ömmu sína því hann
heyrði tónlist. Ekki stóð á mömmu
að dansa vel og lengi við hann,
gestunum til mikillar gleði og
ánægju. Hún hafði svo sterkan og
áhrifaríkan persónuleika.
Onnur minning um hana er sú
að í hvert sinn sem við litum inn í
kaffi þá bakaði hún vöffiur og þessa
mánuði í vetur sem hún var erlend-
is ásamt Guðbjörgu og pabba, þá
keypti ég mér vöfflujárn og það
sama gerði Anný mágkona mín.
Pabbi, þú berð mikla sorg þegar
þú hefur misst lífsförunaut þinn, en
eftir sitja verðmætar minningar sem
við verðum að hlúa að.
Og kæra systir, þetta verður þér
erfítt þar sem þú ert aðeins 14 ára.
En mamma ól okkur vel upp og við
verðum að muna allt það góða og
göfuga sem hún kenndi okkur.
Sýndu okkur öllum hversu dugleg
þú ert og gakktu menntaveginn því
það hefði mamma viljað. Hún var
alltaf stolt af okkur öllum og þakk-
lát fyrir það sem hún átti. Guð veri
með ykkur.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í bijósti, sem brast
við biturt andsvar gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
(Einar Benediktsson.)
Bergljót.
Dóttir í dýrðarhendi.
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgr. Péturss.)
Vorið er komið en ekki getum
við fagnað vorkomunni í þetta sinn,
því stórt skarð hefur verið höggvið
í okkar hóp. Dóttir okkar og systir
var tekin frá sínum nánustu í blóma
lífsins.
Edda var þriðja elst af átta systk-
inum og ólst upp í Reykjavík. Hún
giftist eftirlifandi eiginmanni sínum,
Þorsteini Þorsteinssyni, ung að
árum og áttu þau fjögur börn. Edda
og Þorsteinn hreiðruðu um sig á
Reynimel 88 og bjuggu þar uns þau
byggðu draumahúsið sitt í Akraseli.
Edda starfaði sem ritari hjá Sam-
vinnutryggingum, þá sem læknarit-
ari á Slysadeild Borgarspítalans í
Reykjavík og Læknastöðinni Álf-
heimum og síðast sem læknafulltrúi
hjá Heilsugæslustöðinni í Garðabæ.
Stúdentspróf tók hún frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti árið
1988.
Edda var mikil áhugamanneskja
um heilbrigt líf og hugaði vel að
mataræði og hreyfíngu enda bar
útlit hennar því glöggt vitni. Hún
var glæsileg í fasi. Síðastliðið haust
héldu Edda, Þorsteinn og Guðbjörg
dóttir þeirra til Bandaríkjanna í
þeim erindagjörðum að afla sér auk-
innar menntunar. Ekki völdu þau
staðinn af handahófí því þau vildu
vera í návist Bimu systur okkar og
barna hennar. Ekki endaði sú ferð
sem skyldi. Edda varð að koma
heim fyrr en áætlað var því hún var
orðin sjúk af krabbameini. Þetta var
reiðarslag fyrir fjölskylduna. Edda
sem var svo sterk og átti svo margt
ógert.
Framkvæmdasemi og dugnaður
voru einkenni Eddu. Hún barðist
sem hetja með sverðið á lofti þar
til bardaganum lauk og hún varð
að játa sig sigraða, vágesturinn
hafði betur.
Mikil gæfa var að hún fékk Þor-
stein sem lífsförunaut. Hann vék
ekki frá henni nótt sem dag í þá
tvo mánuði sem hún barðist, og
ekki létu börn hennar sitt eftir liggja
í að veita henni styrk.
Við viljum nota þetta tækifæri
og þakka læknum og öðru starfs-
fólki deildar A-7 á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur fyrir frábæra umönnun
og hlýtt viðmót. Við viljum biðja
algóðan Guð að styrkja Þorstein,
Guðmund, Anný, Steina, Bergljótu,
Dodda og Guðbjörgu í þeirra miklu
sorg.
Foreldrar og systkini.
Elsku Edda. Við þökkum fyrir
þann tíma sem við áttum með þér
á síðasta ári. Ekki eru til orð yfir
það mikla áfall að þú skyldir hafa
verið orðin svona veik, er þú varst
hér með okkur í Flórída. Fimmtugs-
afmælið þitt og jólin eru okkur sér-
staklega minnisstæð. Við viljum
kveðja þig með þessum orðum úr
Biblíunni:
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast.
Leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta.
Birna, Barry, Elín,
Joel, Kane og fjölskyldur.
Á einum fegursta degi þessa
sumars, kvaddi hún Edda okkar
þennan heim eftir erfiða baráttu
við þann vágest sem alla hræðir.
Það syrti snögglega að. Spurningar
vakna. Hvers vegna? Hver er til-
gangur lífsins? Af hveiju hún, sem
allt vildi gera til að öðrum liði vel?
Svörin veit Hann einn sem öllu
ræður.
Við lítum til baka og minningarn-
ar hrannast upp. Það var fyrir rúm-
um þijátíu árum sem við Guðni
kynntumst Elínu Eddu og Þorsteini,
eða Eddu og Steina. Þau kynni
leiddu til góðrar og traustrar vin-
áttu, sem hefur verið okkur svo
dýrmæt. Á þessum tíma vorum við
að eignast okkar fyrstu íbúð, sem
var í fjölbýlishúsi sem Byggingar-
samvinnufélag verkamanna og sjó-
manna byggði við Reynimel undir
styrkri stjóm Guðmundar Guð-
mundssonar, föður Eddu. Blokkin
okkar var kölluð „ódýra blokkin við
Reynimel" og skemmtum við Edda
okkur konunglega við lestur greina
í dagblöðum á þessum tíma. Þar
voru birt viðtöl við eiginmenn okkar
í þessu sambandi undir fyrirsögninni
„Vandræðabömin á Reynimelnum".
Hinir ýmsu spekúlantar í bygging-
arfræði botnuðu nefnilega ekkert í
því hve íbúðimar voru ódýrar í
byggingu.
I þá daga unnu konur ekki eins
♦A
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HALLDÓRA JÓSEFSDÓTTIR
frá Arnarholti,
Biskupstungum,
lést fimmtudaginn 15. maí.
Theódóra Ingvarsdóttir,
Indriði Ingvarsson,
Gunnlaug Gunnlaugsdóttir,
tengdadóttir, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RÍKHARÐ ÓSKAR JÓNSSON,
Reykjabraut 4,
Þorlákshöfn,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstu-
daginn 23. maí kl. 13.30.
Rútuferð verður frá Félagsheimilinu í Þorláks-
höfn kl. 12.00.
Anja Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Faðir okkar,
ÁMUNDI JÓHANNSSON
tæknifræðíngur,
Drekavogi 12,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn 18. maí.
Börnin.
t
SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR
frá Strandseijum,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, mið-
vikudaginn 21. maí, kl. 15.00.
Arnór Hannibalsson, Ólafur Hannibalsson,
Elín Hannibalsdóttir, Guðríður Hannibalsdóttir,
Jón Baldvin Hannibalsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og tengdabörn.
mikið utan heimilis og nú er og
dagheimilavandi hafði ekki verið
fundinn upp. Við nutum því þeirra
forréttinda að vera heima hjá ung-
um börnum okkar á þessum dýr-
mæta tíma lífsins. Það var líka
notalegt að setjast niður og ræða
málin yfir kaffibolla og skiptast á
skoðunum. Umræðuefnið var föl-
breytt, allt frá stjórnmálum til trú-
mála. Ekki vorum við þó alltaf sam-
mála eins og gengur og voru um-
ræður stundum svo heitar að gust-
aði um ganga. En það stóð nú ekki
lengi.
Edda var mikill mannvinur og
góður vinur vina sinna. I djúpri
þökk minnumst við þess ætíð hvern-
ig hún á sínum tíma veitti okkur
ómetanlega hjálp í veikindum
Guðna. Þá kom vel í ljós eiginleiki
hennar til hjálpar öðrum og ákveðni
hennar til að sjá svo um að það
væri gert sem rétt væri. Hún var
þá læknaritari á Borgarspítalanum
og hefði hennar ekki notið við þá,
væri okkar staða trúlega önnur í
dag. Síðar, þegar hún var með Guð-
björgu litlu nokkurra mánaða
gamla, var eitt barnabarna okkar,
sem þá var nýfætt, fárveikt og gat
aðeins nærst á bijóstamjólk. Þegar
Edda heyrði það brá hún skjótt við
og sá til þess að litli drengurinn
fengi sína mjólk kvölds og morgna,
sem vafalítið hafði sín áhrif á bata
hans.
Þegar ég fletti minningabókinni,
er af mörgu að taka og koma ýmis
atvik upp í hugann, sem við síðar
hlógum að og botnuðum ekkert í
hve óttalega barnalegar við hefðum
nú verið í gamla daga. Ég minnist
þess er Edda kom eitt sinn til mín
og var henni mikið niðri fyrir er hún
sagði: „Gulla, nú er tækifærið, nú
verðum við ríkar!“ Galdurinn reynd-
ist vera peningakeðja, sem átti að
gera mann ríkan á örskömmum
tíma. Við Edda þutum af stað út í
ævintýrið, en eiginmennirnir urðu
eftir heima með bömin, vantrúaðir
á svip. Ekki urðum við nú milljóna-
mæringar, en minningin var
skemmtileg og við reynslunni rík-
ari. Einn veturinn datt okkur í hug
að reyna fyrir okkur sem listakonur
og dugði þá ekkert minna en að
fara til Keflavíkur til að nema list-
ina. Þótt sú listsköpun okkar næði
ekki að breyta veraldarsögunni, vor-
um við sjálfar hæstánægðar með
árangurinn.
Edda var einstaklega falleg og
glæsileg kona og var um tíma sýn-
ingardama á vegum Karon samtak-
anna. Þá naut ég þess heiðurs að
vera „þernan" hennar, eins og við
sögðum, og var ákaflega stolt af
því embætti. Mín dama var að sjálf-
sögðu alltaf sú glæsilegasta.
Árin liðu og við fluttum af Reyni-
melnum. Áfram var þó stutt á milli
okkar, því við Guðni byggðum hús
við Erluhóla, en Edda og Steini
byggðu sér hús við Akrasel. Fyrir
fáum árum byggðu þau við húsið
sitt stóra og fallega verönd og garð-
skála þar sem Edda ræktaði hin
fegurstu blóm. Hún var mikill nátt-
úruunnandi og lét sér annt um
umhverfi sitt. Henni þótti gaman
að ferðast innanlands sem utan, en
að vera heima í faðmi fjölskyldunn-
ar var alltaf númer eitt. Börnin
þeirra fjögur, Guðmundur, Bergljót,
Þorsteinn og Guðbjörg, bera foreldr-
um sínum gott vitni um þá alúð og
elsku sem ríkti í sambandi þeirra.
Þau sakna nú elskaðrar móður og
vinar. Bamabörnin litlu eru sólar-
geislar sem Edda naut í alltof
skamman tíma. Hún mun nú vaka
yfír þeim öllum frá æðri stað. Edda
og Steini voru samhent og góðir
vinir. Þau vom höfðingjar heim að
sækja og gott að koma til þeirra.
Þau kunnu þá list að taka vel á
móti fólki og láta öllum líða vel. Það
var ætíð glatt á hjalla þegar hin
glaðværa stórfjölskylda og vinir
Eddu og Steina komu saman á heim-
ili þeirra við hin ýmsu tækifæri.
Edda var stöðugt að bæta við
þekkingu sína varðandi starf sitt.
Hún settist líka á skólabekk og tók
stúdentspróf „á efri árum“, eins og
hún sagði sjálf. Hún er falleg ljós-
myndin sem ég hef fyrir framan
mig á meðan ég minnist hennar
vinkonu minnar. Þar er Edda bros-