Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSINGAR
' '■ w-.
Opin kerfi hf. er umboðsaðili Hewlett-Packard
og Cisco Systems hér á landi.
Fyrirtækinu er skipt ífjórar deildir og er
þjónustudeild þeirra stærst, með 17 starfsmenn.
Þjónustudeild kappkostar að veita viðskipta-
vinum fyrsta flokks þjónustu og þjónar hún
mörgum af stærstu fyrirtækjum og stofnunum
landsins.
Við leitum að Novell sérfræðinqi í þjónustodeild:
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu
og reynslu i Novell netstýrikerfinu og þarf að
eiga auðvelt með að tjá sig í rituðu og
töluóu máti, vinna undir álagi og starfa með
öðrum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi Novell
prófgráður.
Um er að ræða spennandi en um leið kreijandi
framtíðarstarf hjá þjónustufyrirtæki sem býður
upp á sérfræðiþjónustu í hæsta gæðaflokki.
Opin kerfi hf. býður spennandi starfsumhverfi. Starfsmenn eru nú 35 og velta fyrirtækisins á árinu 1996
var tæpar 900 m.kr. Fyrirtækið hefur sterka fjárhagsstöðu og greiðir hæstu meóallaun á tölvusviði hér á
Landi (skv. Frjálsri verslun, okt. 1996).
Lögð er áhersla á góða þjálfun starfsmanna og þeim eru gefin tækifæri til að vaxa í starfi.
Umsóknir skulu vera skriflegar og þurfa að hafa borist fyrir 6. júni n.k. merkt:
„Novell þjónusta" Opin kerfi hf., Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
OPIN KERFIHF
FRAMHALDSSKÓLINN Á HÚSAVÍK
Laus störf við
Framhaldsskólann
á Húsavík
Á næsta skólaári eru eftirtalin störf við Fram-
haldsskólann á Húsavík laus til umsóknar:
Kennarastöður í: Stærðfræði, ensku,
frönsku (1/2 staða), tölvufræði (1/2 staða)
og viðskiptagreinum (1/2 staða). Einnig
stundakennsla í sérgreinum verknáms-
brautar.
Þá auglýsum við eftir matmóður/föður í
hlutastarf fyrir 10—15 nemendur á heima-
vist skólans.
Framhaldsskólinn á Húsavík er 10 ára gamall
fjölbrautaskóli með áfangakerfi og hefur það
að höfuðmarkmiði að þjóna vel öllum íbúum
Þingeyjarsýslna. Nýbreytnistarf og skólaþróun
eralltaf á dagskrá. Nemendureru á bilinu 160-
180 og kennararog annað starfslið 25 talsins.
Jákvæðir straumar leika um skólann frá um-
hverfinu og samstarf við atvinnulíf staðarins
fer vaxandi. Starfsfólkskólans og nemendur
hafa mikinn metnað fyrir hönd skólans og því
koma ekki aðrirtil greina en vel menntaðir,
kraftmiklir og hæfileikaríkir einstaklingar, fullir
bjartsýni og með fastmótuð markmið.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum HÍK,
KÍ og ríkisins og meira er í boði!
Grípið tækifærið meðan það gefst!
Umsóknarfrestur ertil 1. júní 1997 og upplýs-
ingar eru veittar í síma 464 1344.
Húsavík, 20. maí 1997.
Guðmundur Birkir Þorkelsson,
skólameistari.
SJÚKRAHÚS SUÐURLANDS
v/Árveg - 800 Solfoss - Pósthólf 241 - Sími 98-21300
Ljósmæður
Ljósmóður bráðvantartil sumarafleysinga og
í fasta stöðu. Fæðingardeildin er nýlega endur-
nýjuð og er aðstaða fyrir fæðandi konur og
sængurkonur mjög góð. Valkostirtil fæðinga
eru mjög fjölbreyttir.
Á sama stað vantar
hjúkrunarfræðinga
til sumarafleysinga og í fastarstöðurá hand-
og lyflæknissvið og á langlegudeild ShS, Ljós-
heima. Um er að ræða fjölbreytt störf við góðar
aðstæður.
Á sjúkrahúsinu eru 30 rúm sem skiptast í hand- og lyflæknissvið.
Vinna hjúkrunarfræðingar til skiptis á þessum sviðum. Á öldrun-
ardeild ShS eru 26 rúm fyrir langlegu. Þar eru hjúkrunarfræðing-
ar á bakvöktum á nóttunni.
Kynnið ykkur sérkjör varðandi laun og hús-
næði. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrun-
arforstjóri í síma 482 1300.
Heilsugæslustöð
Selfoss
Hjúkrunarfræðingar/sjúkraliðar
Heilsugæslustöð Selfoss óskar eftir að ráða
hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga og
vegna fæðingarorlofs, sem er byrjað, nú þegar
og verður í 1 ár, þ.e. til febrúar og apríl 1998.
Einnig vantar sjúkraliða við heimahjúkrun frá
14. júlí til 29. ágúst vegna sumarafleysinga.
Störf við heilsugæslu eru fjölbreytt og gefandi.
Aðstoðað er við að útvega húsnæði.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri heilsu-
gæslu í síma 482 1300 og 482 1746.
Upptökusvæði Sjúkrahúss Suðurlands er Árnessýsla, Rangár-
vallasýsla og V-Skaftafellssýsla, alls 16 þúsund íbúar.
Starfssvæði Heilsugæslustöðvar Selfoss er um 6 þúsund íbúar.
Svæðið er Selfoss og nálægir hreppar. Þetta er upplagt tækifæri
fyrir hjúkrunarfræðinga og Ijósmæður sem vilja breyta til, kom-
ast burt úr borgarerlinum en samt stutt í borgina.
Selfoss er miðstöð verslunar og þjónustu á Suðurlandi og marg-
ar náttúruperlur í nágrenninu. Aðstaða til íþróttaiðkana er góð
og 4 dagvistarstofnanir fyrir börn eru starfandi í bænum.
A
r
Vopnafjarðarhreppur
Á Vopnafirði búa um 900 íbúar. Sveitin erfal-
leg og í þorpinu er rekinn öflugur sjávarútveg-
ur. Sveitarfélagið leggur mikla áherslu á fél-
agslegt öryggi íbúanna og góða menntun. Nú
vill svo til að eftirfarandi stöður eru lausar til
umsóknar og vonumst við eftir góðu fólki aust-
urtil okkar. Hlunnindi í boði.
v
Vopnafjarðarskóli s
í skólanum eru 140 nemendur í 1. —10. bekk. y
Einnig hefur verið rekin öldungadeild við skól- j
ann. Hér er um einsetinn skóla að ræða. Okkur
vantar eftirtalda kennara:
Almenn kennsla barna, sérkennsla, mynd-
og handmennt, tungumálakennara og
kennara í raungreinar. 0
Upplýsingar veitir Aðalbjörn Björnsson, skóla- 3
stjóri, í síma 473 1256 og Harpa Hólmgríms-
dóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 473 1556.
Tónlistarskóli Vopnafjarðar
í tónlistarskólanum eru um 45 nemendur. I
Á Vopnafirði er mikið tónlistarlíf. Við skólann
hefur jafnframt verið rekin tónlistarsmiðja.
Tónlistarkennarar staðarins hafa einnig annast
tónmenntakennslu í Vopnafjarðarskóla og
stjórnað Samkór Vopnafjarðar. Vid auglýsum >
eftir skólastjóra og kennara.
Upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 373 1300
og Hólmfríður Kristmannsdóttir í síma 473 1326.
Hjúkrunarheimilið Sundabúð
og Heilsugæslustöð Vopnafjarðar
Á Vopnafirði er rekin góð heilsugæsla með
færu starfsfólki og góðri vinnuaðstöðu. Að-
hlynning og almenn aðstaða aldraðra er óvíða !
betri á landinu en á Vopnafirði. Sundabúð er !
með leiguíbúðir fyrir aldraða og legudeild. 5
Hjúkrunarfrædinga vantartil starfa.
Upplýsingar veitir Emma Tryggvadóttir, hjúkr-
uanrforstjóri, í síma 473 1320 (heimasími
473 1168) og Emil Sigurjónsson, framkvæmda-
stjóri Heilsugæslustöðvarinnar í síma 473 1225
(heimasími 473 1478).
Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar eftir
að ráða tvo starfsmenn til starfa við fjölþjóðleg
rannsóknaverkefni í Gunnarsholti.
Mælingar
Mælingar á vexti og kolefnisjöfnuði aspartrjáa
í Gunnarsholti í sumar. Eftirlit meðtækja-
búnaði á staðnum. Ráðið verðurtil þriggjatil
fjögurra mánaða í þetta starf. Háskólamenntun
í náttúruvísindum er æskileg.
Úrvinnsla
Úrvinnsla gagna um koldíoxíðflæði, orkubú-
skap, uppgufun og veðurfar. Notkun hermilík-
ana um hringrás næringarefna. Vinnustaður
í Reykjavík. Mælingaferðir í Gunnarsholt. Kraf-
ist er háskólamenntunar í raunvísindum eða
verkfræði. Ráðið verðurtil sex mánaða í þetta
starf með möguleika á framlengingu.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf skulu berast Halldóri Þorgeirssyni, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins, Keldnaholti,
112 Reykjavík, eða í t-pósti til: dori@rala.is eigi
síðar en 28. maí.
Umsækjendur sem hafið geta störf fljótlega
ganga fyrir.