Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 49
FRÉTTIR
Málþing um lífs-
gæði sjúklinga
MÁLÞING verður haldið á morgun,
fimmtudag, undir yfirskriftinni
Hjúkrun - lífsgæði. Málþingið er
haldið í minningu Sigrúnar Ástu
Pétursdóttur hjúkrunarkonu sem
lést 12. október sl., en hún setti í
viðtali við Morgunblaðið sl. sumar
fram athyglisverðar skoðanir á
sambandi sjúklinga og hjúkrunar-
fræðinga.
Sigþrúður Ingimundardóttir
hjúkrunarfræðingur á sæti í undir-
búningsnefnd fyrrnefnds málþings,
sem fjallar um svipað efni og Sig-
rún barðist fyrir.
„Þetta málþing á rætur í fundi
sem haldinn var tveimur mánuðum
fyrir lát Sigrúnar. Þar mættu 60
hjúkrunarfræðingar og þetta varð
nánast „vakningarsamkoma", sagði
Sigþrúður Ingimundardóttir. „Á
fundinum ræddum við um lífsgæði
í_ þeirra víðustu mynd og Sigrún
Ásta sagði frá því hvernig það
væri að vera deyjandi einstaklingur
sem hefði náð sátt við dauðann.
Hún hafði hugmyndir um sérstaka
hjúkrunarakademíu og sagði þenn-
an fund vera vísi að henni. Við hin-
ar sem sátum þennan fund ætlum
nú að halda merki Sigrúnar hátt á
lofti og reyna að gera að veruleika
hugmyndir hennar um bætta hjúkr-
un,‘‘ sagði Sigþrúður.
Á málþinginu verður m.a. rætt
um lífsgæði sjúklinga út frá ýmsum
sjónarhornum. Einstaklingar koma
og segja frá sinni reynslu og bar-
áttu við sjúkdóma. Fjallað verður
um meðferðarsamband við sjúkl-
inga og loks verða pallborðsumræð-
ur. Fyrirlesarar á málþinginu eru
átta og það hefst klukkan 13.00 á
Grand Hótel í Reykjavík.
Vatnsveita Reykjavíkur
fær viðurkenningu
fyrir innra eftirlit
Fyrirlestur um
margfaldan
missi
NÝ dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, gangast fyrir fræðslu-
fundi í Gerðubergi fimmtudags-
kvöldið 22. maí í Gerðubergi.
Þar mun Páll Eiríksson geðlæknir
flytja erindið Margfaldur missir -
vááhrif. Efni þetta höfðar fyrst og
fremst til þeirra sem misst hafa fleiri
en einn ástvin, segir í frétt frá sam-
tökunum. Allir eru velkomnir.
Stj órnmálasam-
band íslands
og Armeníu
FASTAFULLTRÚAR íslands og
Armeníu hafa undirritað sameigin-
Iega yfirlýsingu um stofnun stjórn-
málasambands milli ríkjanna.
Gengið og siglt
hjá Hafnar-
gönguhópnum
HAFNARGÖNGUHHÓPURINN
fer í miðvikudagskvöldgöngu sinni
frá Hafnarhúsinu kl. 20 með höfn-
inni út í Örfirisey og til baka um
vesturbæinn.
Við lok göngunnar verður litið
við hjá Gunnari Marel um borð í
víkingaskipinu í Suðurbugt. Þar
verður val um að ljúka göngunni
eða fara í stutta siglingu með vík-
ingaskipinu út á Engeyjarsund.
Allir velkomnir.
Djass á Sólon
JASSTRÍÓ Óla Stef leikur á veit-
ingahúsinu Sóloni íslandusi í kvöld,
miðvikudagskvöld, og hefst leikur-
inn kl. 22.
Gestur kvöldsins verður Haukur
Gröndal, altósaxafónleikari.
Hafþór Sveinjónsson og Helgi
Eysteinsson verða sérstakir
„stuðstjórar" í ferðinni.
Portúgals-
ferð fyrir
ungt fólk
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval -
Útsýn efnir í samvinnu við Euro-
card og FM957 til ævintýraferðar
fyrir ungt og kraftmikið fólk til
Álgarve í Portúgal 2.-16. júlí nk,
segir í fréttatilkynningu.
Sérstakir fararstjórar frá FM957
og Úrvali — Útsýn hafa skipulagt
dagskrá, þar sem blandað verður
saman skemmtun, ævintýrum og
íjölbreyttu næturlífi.
Gist verður á Varandas íbúðar-
hótelinu í Albufeira, en í fyrstu ferð-
inni eru 40 sæti. Verð er kr.
49.900.- og innifaiið er: flug, gist-
ing, akstur til og frá flugvelli er-
lendis, sér fararstjórn þessa hóps,
jeppasafarí, skútusigling, ferð í Big
One vatnsrennibrautargarðinn,
óvæntur glaðningur eitt kvöldið og
að auki allir skattar.
Áður en lagt verður af stað til
Portúgal mun hópurinn koma sam-
an á Astró laugardaginn 28.júní,
segir í fréttatilkynningu frá Úrvali
— Útsýn.
Pólýfónfélagar
hittast
Á ÞESSU ári eru 40 ár frá því að
Pólýfónkórinn hóf starfsemi sína
undir forystu Ingólfs Guðbrands-
sonar. Af því tilefni hafa fyrrver-
andi kórfélagar ákveðið að hittast
í Gullhömrum, Hallveigarstíg 1,
Iðnaðarmannahúsinu, föstudaginn
30. maí.
Hlaðborð verður á boðstólum
með heitum og köldum réttum að
hætti hússins. Húsið verður opnað
kl. 19.30 og borðhald hefst kl. 20.
Aðgöngumiðar verða seldir í Salat-
barnum „Hjá Eika“, Fákafeni 9,
laugardaginn 24. maí, milli kl.
12-16.
í REGLUGERÐ um matvælaeftirlit
og hollustuhætti við framleiðslu og
dreifingu matvæla sem út kom árið
1994, voru vatnsveitur landsins skiL
greindar sem matvælafyrirtæki. I
sömu reglugerð er tekið fram að
matvælafyrirtæki skuli starfrækja
innra eftirlit til að tryggja gæði,
öryggi og hollustu matvæla og að
vörurnar uppfylli að öðru leyti þær
kröfur sem til þeirra eru gerðar.
Innra eftirlit skal taka mið af upp-
setningu og framkvæmd GÁMES
eftirlitskerfisins sem byggir á grein-
ingu áhættuþátta og mikilvægra
eftirlitsstaða.
Vatnsveita Reykjavíkur hefur nú
lokið við að koma up_p virku innra
eftirlitskerfí skv. GAMES kerfis-
greiningu. Þar er tekið á helstu kröf-
um matvælareglugerðarinnar m.a.
hafa verið gerðar hreinlætis- og
þjálfunaráætlanir og þeim fylgt eftir.
„Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
afhenti Vatnsveitu Reykjavíkur við-
urkenningu á innra eftirliti Vatns-
veitunnar 7. maí sl. Þar með er
Vatnsveita Reykjavíkur fyrsta
vatnsveitan á landinu til að hljóta
þessa viðurkenningu frá heilbrigðis-
yfirvöldum. Að vera með viðurkenn-
ingu og starfsleyfi frá opinberum
eftirlitsaðilum getur verið viðskipta-
vinum Vatnsveitunnar mikils virði.
Það getur t.d. hjálpað matvælafyrir-
tækjum að komast inn í viðskipta-
samninga þar sem kröfur eru gerðar
Vorfundur
Snigla
VORFUNDUR Sniglanna, Bifhjóla-
samtaka lýðveldisins, verður haldinn
miðvikudaginn 21. maí kl. 20 að
Bíldshöfða 18. Aðalumræðuefni
verða samskipti bifhjólamanna og
lögreglu, umferðarslys á mótorhjól-
um, tryggingamál o.fl.
LEIÐRÉTT
Föðurnafn
í FRÉTT Morgunblaðsins á föstu-
daginn af sjö bæjarlistamönnum
Kópavogs misritaðist föðurnafn eins
þeirra, Kristjáns Logasonar. Beðist
er afsökunar á þeim mistökum.
RÖGNVALDUR Ingólfsson
sviðsstjóri matvælasviðs Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur
(t.h.) afhendir Lofti Reimari
Gissurarsyni gæðasljóra
Vatnsveitu Reykjavíkur við-
urkenningu á innra eftirliti
Vatnsveitunnar í Gvendar-
brunnahúsi.
til gæða vatnsins sem þessi fyrir-
tæki nota við framleiðsluna,“ segir
í fréttatilkynningu frá Vatns-
veitunni.
Unnið er að því að koma á gæða-
kerfi skv. ISO 9001 staðlinum með
skráðum verklagsreglum, gæða-
stöðlum, vinnulýsingu og aukinni
skráningu á eftirlitsþáttum.
Eyrarbakki
VAKIN hefur verið athygli blaðsins
á að í afmælisgrein um Eyrarbakka
sé svo að orði komist um hið mynd-
arlega Sjóminjasafn, að Eyrar-
bakkahreppur „hafi komið [þvíj upp
og nýtega endurskipulagt". Stofn-
andi safnsins var reyndar Sigurður
Guðjónsson skipstjóri, sem á sínum
tíma ánafnaði hreppnum hið mikla
safn sitt. Láðst hafði að geta þess.
Garðastál, ekki Héðinn
ÞESS misskilnings gætti í umfjöllun
um utanhússklæðningar í Húsinu og
garðinum, fylgiblaði Morgunblaðsins
hinn 11. þessa mánaðar, að fyrirtæk-
ið Garðastál, sem framleiðir stál-
klæðningar, væri hluti af fyrirtæk-
inu Héðni og eru hlutaðeigandi beðn-
ir afsökunar á þeim mistökum.
Ur dagbók lögreglunnar
19 þjófnaðir um
hvítasunnuhelgina
16. til 20. maí
UM hvítasunnuhelgina eru 578
færslur bókfærðar í dagbók lög-
reglunnar. Af þeim eru 14 vegna
innbrota, 19 vegna þjófnaða, 35
vegna eignarspjalla og 10 vegna
slysa og óhappa.
Skráðar eru 6 líkamsmeiðingar,
fimmtíu og fimm sinnum þurfti að
hafa afskipti af fólki vegna ósæmi-
legrar ölvunarháttsemi á almanna-
færi og vista þurfti 46 manns í
fangageymslunum. Þar af voru 13
vegna fíkniefnamála. Kæra þurfti
69 ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur. Margir þeirra óku allnokkuð
yfir leyfilegum hámarkshraða-
mörkum áður en þeir voru stöðvað-
ir. Tíu ökumenn voru kærðir fyrir
að nota ekki bílbelti og 16 vegna
gruns um ölvunarakstur. Tilkynnt
var um 36 umferðaróhöpp.
Óhappalítil umferð
Um hvítasunnuna í fyrra þurfti
72 sinnum að hafa afskipti af ölv-
uðu fólki að kvöld- og næturlagi
og vista þurfti 42 í fangageymsl-
unum. Þá var á þriðja tug öku-
manna kærður fyrir of hraðan
akstur, tíu ökumenn voru grunaðir
um ölvunarakstur, tilkynnt var um
40 umferðaróhöpp til lögreglu, auk
þess sem tilkynnt var um 9 líkams-
meiðingar, 19 innbrot, 15 þjófnaði
og 29 eignarspjöll.
Talsverð umferð var út úr borg-
inni síðdegis á föstudag og síðan
aftur til borgarinnar síðdegis á
mánudag. Umferðin gekk að
mestu óhappalaust fyrir sig. Engin
afskipti þurfti að hafa af ungling-
um, hvorki í miðborginni né á
svæðum utan borgarinnar, þar sem
þeir eru vanir að tjalda um hvíta-
sunnuhátíðina.
Á föstudagskvöld var aðili flutt-
ur á slysadeild með sjúkrabifreið
eftir árekstur tveggja bifreiða á
Bústaðabrú. Kona á gönguferð
datt fram af klettum við Ásiand í
Mosfellsbæ og meiddist í andliti,
auk þess sem tennur brotnuðu.
Hún var flutt á slysadeild með
sjúkrabifreið. Tilkynnt var um eld
í íþróttahúsi Langholtsskóla. Tölu-
verðan reyk lagði frá húsinu þegar
lögregla og slökkvilið komu á vett-
vang, en greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins. Skemmdir
urðu aðallega af völdum reyks og
sóts.
Um nóttina gleymdist panna á
heitri eldavélahellu _ í mannlausri
íbúð í Vogunum. íbúi í húsinu
náði að taka pönnuna af og koma
í veg fyrir skemmdir. Slökkviliðið
reykræsti íbúðina. Menn fóru inn
í mannlaust hús í Vogunum og
gerðu tilraun til að stela sjónvarps-
tæki, en urðu að sleppa tækinu
og síðan frá að hverfa er þeir urðu
mannaferða varir.
Á laugardagsmorgun veittust
gestir að húsráðanda í Bergunum
er hann ætlaði að binda endi á
samkvæmi í íbúð sinni og vísa
þeim út. Flytja varð hann á slysa-
deild. Síðdegis endaði ágreiningur
milli starfsmanna veitingahúss í
miðborginni með slagsmálum svo
flytja varð þrjá þeirra á lögreglu-
stöð. Tilkynnt var um innbrot í
íbúð í Fellunum. Grunur er um
hver þar var að verki. Aðfaranótt
sunnudags var tilkynnt um innbrot
í hús við Grettisgötu.
Um kvöldið klemmdi átta ára
gömul stúlka sig á innihurð. Hún
var talin hafa fingurbrotnað. Ölv-
aður hestamaður féll af baki þar
sem hann var á ferð við Vestur-
landsveg. Hann tók þó lífinu með
ró og lagðist til svefns utan við
nálægt hús. Hestum hans var kom-
ið í hús.
Tilkynnt var um að tveir hundar
hefðu drepið gæs og hænsni við
bæ utan borgarinnar. Eigandi
fuglanna ætlaði að afgreiða málið
í samráði við dýraeftirlitsmann.
Lögreglan á Suðvesturlandi í
samvinnu við ýmis félög og samtök
bifreiðaeigenda biður alla öku-
menn um að taka þátt með sér í
sameiginlegu verkefni mánudag-
inn 26. maí nk. Hún beinir tilmæl-
um til allra ökumanna og hvetur
þá, hvern og einn, til að aka þann
dag innan leyfilegra hámarks-
hraðamarka á hveijum stað, þ.e.
að hver og einn verði sér meðvit-
andi um leyfðan hámarkshraða og
leggi sig fram um að aka í sam-
ræmi við það.
Það gæti orðið einhverjum erf-
itt, en flestum ætti að takast það
með góðri einbeitingu. Forvitnilegt
verður að sjá hvað gerist í umferð-
inni þegar „allir“ leggja sig fram
um að aka innan leyfílegra há-
markshraðamarka mánudaginn
26. maí nk.
„Húskarlar“ Páls
SÍÐASTLIÐINN laugardag var birt
hér í biaðinu grein eftir Þórhall Jós-
epsson með yfirskriftinni „Húskarl-
ar“ Páls á Höllustöðum. Eitt orð,
orðið ekki, féll niður í inngangi
greinarinnar, sem orðrétt átti að
hljóða svo: „Hún [Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir] taldi það ríkisstjórn-
inni til foráttu að „húskarlar" félags-
málaráðherrans í húsnæðismála-
stjórn hefðu ekki orðið við umsókn
Hússjóðs Öryrkjabandalags íslands
um lán til 40 félagslegra íbúða ...“
- Velvirðingar er beðist á þessum
mistökum.
IÐUNNAR
APOTEK
á faglega traustum grunni
I stsrstu læknamiðstöð landslns
OPIÐ VIRKA DAGA
9 -19
M + O
DOMUS
MEDICA