Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Smáfólk
Ég er með nýja lífsspeki.
/ WHAT DIP TOU
VjEXPECT, A MEPAL?
50ME PHIL050PHIE5 TAKE A
TH0U5AND TEAR5..I THINK
0F THEM IN TL)0 MINUTE5..
~Zí-------------------------
„Við hverju bjóstu, orðu?“
Sum lífsspeki er mynduð á þús-
und árum ... ég þarf aðeins tvær
mínútur til að hugsa mina . . .
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Heilsa, þrek og
hreyfing* á Islandi
Frá Svandísi Sigurðardóttur
og dr. Þórarni Sveinssyni:
í ÞEIM vestrænu þjóðfélögum þar
sem hreyfing fólks hefur verið
könnuð hefur komið í ljós að hlut-
fallslega fáir stunda reglubundna
hreyfingu. Þessi niðurstaða hefur
komið mörgum á óvart því mikill
áróður fyrir líkamsrækt og áhrif-
um hennar á heilsu hefur verið
rekinn undanfarna áratugi. Hvað
veldur þessu er ekki alveg ljóst
en víða standa einmitt yfir rann-
sóknir á þessu. Það sem menn
hafa þó komist að á allra síðustu
árum í erlendum rannsóknum er
að fjölmargir þættir ráða því hvort
fólk hreyfir sig reglulega eða ekki.
Einnig hafa komið fram vísbend-
ingar um að áreynslan þurfi ekki
endilega að vera svo mjög mikil
til þess að hafa bætandi áhrif á
heilsuna og auka daglega vellíðan.
Þess vegna ætti jafnvel að vera
nóg að flétta hreyfinguna inn í
daglegt líf, t.d. ganga í vinnuna,
nota stigana, sinna heimilisstörf-
um, vinna í garðinum o.s.frv. Auð-
vitað er öll önnur hreyfing í fullu
gildi líka, s.s. sund, skokk, göngu-
ferðir og hvaðeina annað.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum að undanförnu stendur nú
yfir könnun á hejlsu, þreki og
hreyfingu á meðal íslendinga. Það
er námsþraut í sjúkraþjálfun við
Háskóla íslands sem stendur að
könnuninni. Hún er gerð að fyrir-
mynd finnskrar rannsóknar sem
nýlega var gerð á vegum UKK-
stofnunarinnar í Finnlandi. UKK-
stofnunin er kennd við Kekkonen
fyrrum Finnlandsforseta og sér-
hæfir sig í rannsóknum tengdum
heilsurækt og útiveru. Allmargir
þættir eru kannaðir ítarlega í ofan-
greindri könnun, en alls fengu
l. 650 íslendingar (20-80 ára)
sendan spurningalistann. Niður-
stöðurnar verða mjög fróðlegar
fyrir okkur íslendinga. Við sjáum
hvar við stöndum í þessum efnum
í samanburði við Finna og aðrar
vestrænar þjóðir. Einnig eiga nið-
urstöðurnar að geta gefið upplýs-
ingar um hvernig við getum á
auðveldan hátt bætt úr ef þarf og
tekið þá mið af okkar séríslensku
aðstæðum. Og hver veit nema við
séum eins konar fyrirmyndareyja
m. t.t. hreyfingar án þess að vita
það? Allt veltur það á þeim 1.650
einstkalingum sem lentu í úrtakinu
(og eru þar með spegilmynd af
þjóðinni) hvort hægt verður að
taka mark á niðurstöðunum.
Margir hafa nú þegar sent inn
svör þótt enn vanti nokkuð á. Því
eru allir þeir sem mögulega geta
svarað hvattir til að senda inn sinn
lista sem fyrst.
SVANDÍS SIGURÐARDÓTTIR,
DR. ÞÓRARINN SVEINSSON,
lektorar við námsbraut
í sjúkraþjálfun
í Háskó'.a íslands.
Sammála Jóhannesi
Frá Árna Helgasyni:
EG vil með fáeinum orðum þakka
Jóhannesi Bergsveinssyni lækni
fyrir sérstaklega góða grein í Mbl.
11. maí sl. Eg er honum alveg sam-
mála og reynsla mín undanfarin ár
hefir svo sannarlega sýnt að eftir
því sem verð á áfengi og bjór og
öðrum fíkniefnum er hærra, því
meir minnkar neysla þess og ég er
líka þess fullviss að erlendir ferða-
menn sækja ekki hingað til að ná
í ódýrt áfengi.
En það er nú orðið svo að fólk
talar jafnan tveim tungum í þessum
málum. Þykist beijast móti allri
vímu en gerir svo ekkert annað en
að víðfrægja hana allstaðar sem því
verður við komið. í seinustu viku
var m.a. þáttur í Ríkisútvarpinu þar
sem rætt var við eiganda nýopnaðs
veitingahúss í Reykjavík. Stjórn-
andinn átti ekki nógu sterk orð til
að lofsyngja veitingamanninn og
húsið og sérstaklega vörurnar sem
hann hafði á boðstólum. M.a. væri
hægt að fá yfir 20 víntegundir með
öllum bragðgæðum. Og ekki dró
viðmælandi, sem var kvenmaður,
úr aðdáun sinni hvað væri gott eft-
ir leikhúsferð að koma inn og njóta
þessara veiga. Betri auglýsingu gat
þetta hús ekki fengið hjá Ríkisút-
varpinu og það ókeypis.
Eg man líka eftir því, þegar Bláa
bandið og AA-samtökin voru stofn-
uð, hvað menn voru öruggir um að
nú myndu ekki ölóðir menn sjást á
götum Reykjavíkur. En hver hefir
raunin orðið á og hvað segir reynsla
dagsins í dag? Meira að segja hafa
meðferðarstofnanir aldrei fyrr verið
yfirfullar og biðraðir jafnlangar.
Og ískyggilegar eru kannanirnar á
vímuefnanotkun grunnskólanem-
enda, jafnvel undir fermingaraldri.
Það er ekki talað mikið um gróða
ríkissjóðs af sölu áfengis í dag,
enda verður hann kannske þverr-
andi ef miðað er við allt sem áfeng-
ið veldur þjóðinni, allt það böl,
bæði andlegt og veraldlegt. Og öll
rýmkun á meðferð og sölu þess
hefir sýnt sig til ills hvert sem litið
er.
Vímulaus æska er orðtakið í dag
hjá hræsnurum sem vaða uppi í
þjóðfélaginu. En það getur ekki
orðið fyrr en við í alvöru förum að
sjá að það á að hefja sókn með
kjörorðinu: Vímulausir foreldrar,
sem við getum búist við einhveijum
árangri. En þar stendur nú hnífur-
inn í kúnni. Byrjum á byijuninni
og það eru heimilin sem eru í hættu
og þurfa viðreisnar við. Fyrr en
þetta hefir gerst er ekki hægt að
tala um vímulaust land.
ÁRNIHELGASON,
Stykkishólmi.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skipliborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL(a)CENTRUM.lS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.