Morgunblaðið - 21.05.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 51
BERÉF TIL BLAÐSINS
Foreldra-
vandamál
Frá Asgeirí Helgasyni:
EKKI barnið mitt er eitt vinsæl-
asta orðatiltæki sem til er í orða-
forða íslenskra foreldra. Barnið
mitt slæst ekki. Barnið mitt stelur
ekki. Barnið mitt lærir af mistök-
unum sínum. Barnið mitt mun
aldrei velja sér vini sem reykja.
Barnið mitt mun aldrei umgang-
ast rumpulýð sem drekkur áfengi.
Barnið mitt mun aldrei nota eitur-
lyf. Barnið mitt veit ekki einu
sinni hvað eiturlyf eru.
Hér eru góðar fréttir fyrir þá
I foreldra sem nota þetta orðalag.
Þetta er rétt hjá ykkur; auðvitað
getur ekki verið að ykkar eigið
hold og blóð sé að misþyrma sér
og öðrum. Það hljómar fáránlega.
Hvernig gætu þau brugðist ykkur
sem hafið alið þau upp og gert
allt ykkar besta til að veita þeim
allt sem þið getið? „Ég gaf þér
I sjónvarp í fermingargjöf og þú
( launar það með því að detta í það
i með Gunnu dóttur hans Sigga,
það er greinilegt að Siggi kann
ekkert að sjá um börnin sín. Barn-
ið mitt gerir ekki svona lagið.“
Nei, auðvitað ekki. Þetta var allt
Sigga að kenna, barnið hans er
alltaf til vandræða.
Hér að ofan er hún Gunna
slæmur félagsskapur, hún kenndi
| barninu þínu að drekka. En hvar
lærði Gunna að drekka? Jú auðvit-
að hjá barninu hans Skúla, en þá
< hljótum við að velta fyrir okkur
hvar barnið hans lærði að drekka
og síðan hvar allir hinir ljótu ungl-
ingarnir lærðu að drekka, reykja
og sprauta sig.
Það er kominn tími til að stoppa
og hugsa. Er endalaust hægt að
kenna öðrum um? Er endalaust
hægt að rétta sprengjuna áfram
’ eða mun hún springs einhvers
I staðar á leiðinni? Kannski í
| Kringlunni? Þar komu saman
ungmenni sem vildu ólm nálgast
það að verða fullorðin - eða er
þetta ekki að vera fullorðinn? Er
það ekki að vera fullorðinn að
geta drukkið sig út úr heiminum
alveg eins og mamma og pabbi á
síðasta ættarmóti? Er það ekki
svona sem við tjáum tilfinningar
okkar eða hvað? Er það ekki svona
i sem að við nálgumst hvort annað
og opnum okkur fyrir hvort öðru?
Er drykkjustund ekki tíminn sem
foreldrar eru viljugastir til að
ræða málin?
Foreldrar þagna ekki þegar
þeir eru drukknir, þeir eru upp-
fullir af heilræðum og umhyggju.
Það er ekkert jafn sannfærandi
og drukkið foreldri með sígarettu
lafandi í munnvikinu og bjórglas
um hönd muldrandi „þú veist að
þetta er óhollt“ eða „lofaðu mér
nú að byrja aldrei á þessu“. Ég
er sannfærður.
Nei annars, kannski ekki, en
það er greinilega erfitt að vera
foreldri þurfandi að sannfæra
sjálfan sig um það að vandamálin
séu ekki til að leysa þau heldur
til að skella þeim yfir á aðra. Þið
eruð greinilega ekki þess verð að
lifa undir ábyrgðinni sem þið eig-
ið að bera gagnvart börnum ykk-
ar. Afskiptaleysi foreldra virðist
vera orðinn erfðasjúkdómur sem
lýsir sér síðar í virðingarleysi
ungmenna á íslandi gagnvart
sjálfu sér.
Lausn hins almenna foreldris
virðist einskorðast við íþróttir og
líkan félagsskap. Enn og aftur
vill það finna lausnina einhvers
staðar annars staðar en hjá sjálfu
sér. Það getur ekki agað börnin
sín sjálft þannig að það ætlast til
að íþróttafélögin geri það.
Nú er svo komið fyrir flestum
íþróttafélögum á landinu að
drykkjuskapur er ein helsta að-
ferðin til að halda upp á sigur eða
þá drekkja sorgum yfir tapi.
Nú er svo komið fyrir íslensk-
um foreldrum að þeir eru að fá
afskiptaleysi sitt í hausinn aftur.
íslenskir foreldrar verða að skilja
hlutverk sitt sem ábyrgir uppa-
lendur. Svona gengur þetta bara
alls ekkil! Hættið að beija höfðinu
við stein og takið ábyrgð á eigin^.
lífi áður en þið farið að segjá
okkur hvað ábyrgð er.
Nú er svo komið fyrir íslensk-
um ungmennum að þau telja að
drykkjuskapur sé eðlileg sem-
skiptaleið. Þetta er mikið ti! ef
ekki að öllu leyti ykkur að kenna,
svo mikið er ljóst.
Auðvitað eru til undantekning-
ar sem sanna regluna, en Guð
hjálpi þeim sem heldur því fram
að „unglingavandamálið“ sé ungl-
ingunum að kenna.
Það læra börnin sem fyrir þeim
er haft.
Skammist ykkar öll sem eitt.
ÁSGEIR HELGASON,
Tjarnarlundi 17F, Akureyri.
Heitir pottar
mótaðir úr akrýl, níðsterkir,
hita- og efnaþolnir og
auðveldir að þrífa.
Margar gerðir.
Verð frá kr. 89.133 stgr.
Trefjar ehf.
Hjallahrauni 2, Hafnarfirði,
sími 555 1027.
hæðamælar og hallamál
Eins, tveggja og þriggja geisla
Teeki sem koma á óvart!
Tilvalið fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Ótrúlega hagstætt verð frá kr. 12.600 án/vsk.
Hólmgarði 2c, Keflavík, sími 421 4688, fax 421 1262.
\ Enginn staður á Flórída hefur notið
gf| eins mikilla vinsælda meðal farþega
okkar og Fort Myers Beach.
Glæsilegir gististaðir, stórkostlegar strendur,
fjölmargar náttúruperlur og fjölbreytt mannlíf
gera þennan sólríka strandbæ að
suðrænni paradís. Einstök
aðstaða er til hvers kyns íþrótta og útiveru,
34 golfvellir og stærsta verslunarmiðstöð
Suðvestur-Flórída er í Fort Myers.
LÍRnuila 4: simi 569 9300, gra:ut uúmer H0Q-6JQ0.
HufnurfirOi: sintí 565 2366. Keflurik: simí 421 1353■
Selfossi sinti 4H2 1666. Akureyri sími 462 5000
■ og bfti umboðsmönnum um lund ulll
á mann m.v. tvo fuilorðna og tvö böm 2ja-ll án
í 15 nætur í tveggja svefnherbergja íbúð
á Admirals Bay á Fort Myers Beach
á mann m.v. tvo fuliorðna
InnifaJið í ‘veröi: Flug, gisting og skattar.
■S.
OPEL
Astra 5 dyra kr. 1