Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Stækkanlegt borðstofuborð/ fundarborð úr hnotu- eða kirsuberjavið með hnífaparaskúffu úsamt lausum hjólaskúpum. QýCeimsljós Faxafeni (blátt hús), sími 568 9511. - Félag milliríkjaverslunar og vörudreifingar - Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupamanna Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupmanna verður haldinn föstudaginn 23. maí nk. kl. 14.00 í Hvammi, Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá skv. félagslögum. Fríhafnarversiun: Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra fjallar um breytingar í Fríhöfninni. Jón Ásbjörnsson Halldór Ásgrímsson formaður F(S utanrikisráðherra. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu félagsins í síma 5888910. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Landkynning þrátt fyrir verkalýð NÚ GETUM við íslending- ar borið höfuðið hátt eftir að okkur var haldið að 23 milljónum Bandaríkja- manna meðan þeir supu á morgunkaffinu. Það má deila um verðmæti þessár- ar landkynningar í bein- hörðum peningum, en ég tel óumdeilanlegt að sú upphæð væri svo langt umfram það sem landinn hefði efni á að eyða í svo- leiðis að það skipti bara ekki máli. Að þessi land- kynning komst til skila er ekki að þakka þröngsýnum og sjálfhverfum verkalýðs- félögum, heldur tilviljun einni saman. Símvirkjar í verkfalli synjuðu banda- rísku sjónvarpsstöðinni ABC um þjónustu sem sóst var eftir, og sáu enga ástæðu til að veita undan- þágu til þessa þrátt fyrir að hér væri greinilega á ferðinni stórkostlegt tæki- færi til að kynna ísland, allri þjóðinni til upphefðar. Það hefur ætíð verið haft fyrir satt að misjafn sauður sé í mörgu fé, og ekki laust við að mér sýn- ist að sumir af þessum misjöfnu sauðum hafi kom- ist til vegs og valda í verka- lýðshreyfíngunni. Skora ég hér með á alla meðlimi verkalýðsfélaga að huga betur að sínum gjörð- um, og neita að taka þátt í verkbönnum og verkföll- um sem valda öðrum skaða sem þeir gætu ekki rétt- lætt gagnvart sjálfum sér. Með kveðju frá Ástralíu, Sigurður Ingi Jónsson. Þalddr til Orku MIG langar að koma á framfæri ánægju minni á þjónustu sem ég hef fengið hjá Orku í Skeifunni. Það er fyrirtæki sem selur ýmislegt sem þarf til að sprauta bíla o.s.frv. Það er mjög lipur og góð þjónusta hjá þeim og þeir veita mjög góðar ráðleggingar. Og svo er til fyrirmyndar hjá þeim að þeir endurgreiða ef þarf að skila vöru til baka. Það þykir yfirleitt sjálfsagt erlendis en er ekki til siðs hérlendis. Halldór Bjarnason. Tapað/fundið Barnaskiði töpuðust í Bláfjöllum LÍTIL barnaskíði, hvít og rauð, töpuðust í Bláfjöllum á hvítasunnudag. Skilvís fmnandi vinsamlega hafi samband í síma 567-6245. Kvenmannsúr fannst KVENMANNSÚR fannst í Kolaportinu laugardaginn 17. maí. Uppl. í síma 552-6756. Læða í óskilum GRÁBRÖNDÓTT, mjög gæf læða með hvítar hosur og trýni hefur verið í óskil- um í Grænumýri 7 á Sel- tjamarnesi í tvær vikur. Hún var með ólarfar. Upp- lýsingar í síma 561-6304. Gulgrænn páfa- gaukur tapaðist GULGRÆNN páfagaukur tapaðist föstudaginn 16. maí frá Skaftahlíð 14. Fuglinn er mjög spakur. Ef einhver hefur orðið var við hann hafið samband í síma 551-2790. Grár og hvítur páfagaukur tapaðist Páfagaukur, grár og hvít- ur, tapaðist á föstudags- kvöld á Rauðarárstíg 41. Uppl. í síma 562-8538. Hundaeigendur ÞEIR hundaeigendur sem týnt hafa hundum sínum eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við dýra- spítalann í Víðidal strax í síma 567-4020. SKÁK Lmsjón Marjjcir Pctursson STAÐAN kom upp á alþjóð- legu skákmóti í Bentley í Englandi í vor. Skotinn Paul Motwani (2.490) var með hvítt og átti leik, en Jana Bellin (2.180) hafði svart. 32. Rxe5!! - fxe5 (Ef svartur tekur skiptamuninn og leikur 32. — Bxe4 þá hafði Skotinn undirbúið glæsilegan vinningsleik: 33. Rd7! - Hh7 34. Rxf6! og svartur er varnarlaus gegn fráskák með riddaranum) 33. Hxe5 - Kg6 34. De2 - Hd2 (Eða 34. - Hhe8 35. Hfxf5 - Rxf5 36. Dg4+ og hvítur vinnur) 35. He6+! — Bxe6 36. Dxe6+ — Kg7 37. Df7 mát. BRIDS llmsjón Guðmundur Páll Arnarson HVERNIG myndi lesandinn spila fimm tígla í suður með spaðagosa út? Norður ♦ 85 V ÁD76 ♦ ÁD54 ♦ ÁG3 Suður ♦ ÁD ? 1043 ♦ KG10962 ♦ 72 Spilið kom upp í boðs- móti Politiken 1995, sem Zia Mahmood og Peter Weichsel unnu. í grein um mótið sem Weichsel skrifaði í The Bridge World, gefur hann „salnum“ lága ein- kunn fyrir spilamennskuna í fimm tíglum: „Andstæðingar okkar spiluðu þrjú grönd, sem standa eins og stafur á bók, en mörg pör fóru upp í fimm tígla í slemmuþreifingum. Og það kostaði okkur Zia mörg stig, því flestir fóru niður á þeim samningi. Sem er ótrúlegt." Eftir spaða út, tóku flest- ir trompin og svínuðu hjartadrottningu. Austur drap og réðst strax á laufið. Sagnhafi gaf þar slag og annan á hjarta, þegar gos- inn féll ekki undir ásinn. „Þetta getur ekki verið besta spilamennskan," segir Weichsel. „Mun betra er að hreinsa upp laufið áður en hjartað er hreyft: Taka trompin og spila laufi á gosa. Austur drepur og spil- ar laufi um hæl. Sagnhafi hreinsar þá upp svörtu litina og spilar svo hjarta að blind- um. Ef vestur lætur Iítið hjarta, gerir sagnhafi slíkt hið sama og leggur upp. En komi áttan eða nían frá vestri, er drottningunni svínað. Austur drepur og spilar hjarta. Þá lætur sagn- hafi lítið heima, sem kostar vestur gosann. Eftir þessari leið tapast spilið því aðeins að vestur hafi byrjað með 98 í hjarta.“ HVÍTUR leikur og vinnur. Víkveiji skrifar... UM nokkurt skeið hefur Vík- verji tekið eftir því að mann- úðarsamtök sem nefna sig „Christ- ian Aid“ „Kristnihjálp" hafa staðið fyrir auglýsingaherferð á sjón- varpsstöðinni Sky - auglýsinga- herferð sem Víkverji telur afar áhrifaríka og vel heppnaða. Ein auglýsingin er þannig, að lítill og tötralegur drengur, líklega Indverji eða Pakistani, er sýndur, dapur á svip, þar sem hann krýpur og burstar skó á fæti. Þulurinn segir að við þessum dreng blasi ekkert annað en að eyða því sem hann á ólifað í störf sem þessi. Síðan seg- ir „We Believe in Life Before Death“, sem þýða má svo á ís- lensku: „Við trúum á líf fyrir dauð- ann“. Og því næst er þeim orðum beint til áhorfenda og áheyrenda, að þeirra framlag geti skipt þennan dreng og önnur börn sköpum og ráðið því hvort þau eignist líf fyrir dauðann. xxx AÐ er ólíkt að bera saman það mannúðarríka viðhorf sem kemur fram í auglýsingunum frá Christian Aid við viðbrögð verslun- armanns hér í Reykjavík, sem var spurður hvernig hann myndi bregð- ast við því að „Christian Aid“ hefur upplýst að íþróttavöruframleiðend- ur þekktra vörumerkja eins og Umbro, Mitra og Adidas notast við smáböm á Indlandi til þess að sauma ýmsar íþróttavörur, svo sem fótbolta og fá smánarlaun fyrir. Verslunarmaðurinn sem flytur inn bolta frá Umbro kvaðst hvorki telja það vera vandamál seljenda né framleiðenda að boltarnir væru sumaðir af börnum, heldur fyrst og fremst neytendanna sem vildu kaupa ódýra vöru. „Þetta hefur verið vitað í tugi ára en nú er bara verið að nafngreina einhverja sér- staklega og taka þá fyrir og það er mjög ósanngjarnt," sagði um- ræddur verslunarmaður orðrétt hér í Morgunblaðinu í síðustu viku. XXX JAÐRAR það ekki við mann- vonsku að tala með þessum hætti? Er það raunverulega svo, að verslunarmaður, sem verslar með og flytur inn vörur sem smábörn eru látin framleiða í þrælkunar- vinnu, líti fyrst og fremst svo á, að óréttlæti sé í því fólgið að upp- lýst er að hann verður sér úti um ódýra vöru, með því að versla við framleiðendur sem ástunda svo sið- ferðilega brenglaða framleiðslu- hætti?! Er það ekki hæpin fullyrðing að segja að þetta sé ekki vandamál framleiðenda og seljenda vörunnar, heldur neytenda? Er hægt að full- yrða að neytendur, kaupendur hinn- ar ódýru vöru, viti það sem fram- leiðandinn og seljandinn veit - að börn í ánauð hafa framleitt vöruna og þegið smánarlaun fyrir? Víkveiji trúir því ekki og telur, eins og bresku og írsku hjálparstofnair kirkjunnar gera, að skora verði á íþróttavöruframleiðendur að hætta barnaþrælkun við framleiðslu á varningnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.