Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 64

Morgunblaðið - 21.05.1997, Page 64
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@C.ENTRUM.IS / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTl 1 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Minna berst af • Rússafiski VERULEGA hefur dregið úr lönd- unum rússneskra skipa hér á landi sem og í Noregi og er búist við að sú þróun haldi áfram. Eru Rússar farnir að vinna sinn fisk í auknum mæli sjálfir auk þess sem nokkurrar aflatregðu er farið að gæta. Samtals hafa rússnesk skip landað um 2.582 tonnum af óslægðum þorski hér á landi það sem af er þessu ári. Það er mun minni afli en landað var hér á sama tíma á síðasta ári þegar landað hafði verið um 9.232 tonnum af jt Rússaþorski. Alls lönduðu rúss- nesk skip um 15.613 tonnum af þorski hér á landi á síðasta ári. Hærra verð sett upp Að sögn Sævars Hjálmarssonar, framleiðsiustjóra hjá Sjólastöðinni hf. i Hafnarfirði, kemur þessi lönd- unarþurrð Rússanna sér mjög illa fyrir fyrirtækið, sem byggt hefur mikið á þessum viðskiptum. Sævar segir þetta hafa mjög slæm áhrif á þá markaði, sem fyr- W irtækið hefur verið að byggja upp auk þess sem minna framboð af Rússafiski hafi leitt til þess að Rússar fari nú fram á miklu hærra verð en áður. Það litla sem þó sé landað af Rússaþorski hér á landi virðist að stærstum hluta vera flutt áfram til Kanada. ■ Verulega hefur/lD Morgunblaðið/RAX Olíubíll valt á Suður- landsvegi ALLT tiltækt slökkvilið var kall- að út þegar oiíubíll valt á hliðina á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar síðdegis í gær og á annað tonn af gasolíu flæddi út úr tanknum. Slökkvilið sprautaði yfir svæð- ið froðu sem dregur í sig olíuna og olíu úr bilnum var dælt yfir á annan tankbíl. ■ Á annað tonn/6 500 pör bíða eftir tæknifrj ó vgim 12-13 þríburameðgöngur vegna tæknifrjóvgunar hafa orðið frá því glasafijóvgunardeild Landsp- ítalans var opnuð fyrir fimm árum. Framkvæmdar verða á ijórða hundrað tæknifijóvganir á þessu ári en í fyrra voru þær 290 talsins. Um 500 pör eru nú á biðlista eftir meðferð. Þórður Óskarsson sérfræðing- ur á kvennadeild Landspítalans, segir að fleirburafæðingum fjölgi alltaf þegar teknar eru upp með- ferðir við ófijósemi. Þórður segir að meiri áhætta fylgi því þegar konur ganga með þríbura og almennt megi segja að ekki sé sóst eftir sh'kum þungunum. Tíðni þríbura- fæðinga í samfélaginu er einn á móti 8.100 en einn á móti 100 þegar glasafijóvgun er beitt. Barn lést í umferð- arslysi ÞRIGGJA ára drengur lést í um- ferðarslysi í Barðastrandarsýslu í gær. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Patreksfirði valt fólks- bifreið á veginum nálægt Arnórs- stöðum á Barðaströnd. Kona, sem ók bifreiðinni, slasað- ist töluvert og var lögð inn á Sjúkrahúsið á Patreksfirði, en þriggja ára systursonur hennar lést. Lögreglunni á Patreksfirði var tilkynnt um slysið kl. 18.30 í gær. Ekki er vitað um tildrög þess og er málið í rannsókn. ------» 4 ♦---- Hreinlætis- aðstaða í Heiðmörk BORGARRÁÐ hefur samþykkt að heimila Vatnsveitu Reykjavíkur að leggja fram 2 milljónir króna til að koma upp hreinlætisaðstöðu í Heiðmörk. í erindi frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur til vatnsveitustjóra, er bent á að með vaxandi umferð um Heiðmörk sé þörf fyrir aukna þjónustu, meðal annars að komið verði upp hreinlætisaðstöðu á Borgarstjóraplaninu í Heiðmörk. Íslenskt-bandarískt fyrirtæki umsvifamikið á fiskmarkaði -Hefur keypt 7001 af þorski á árinu FYRIRTÆKIÐ Nýhöfn sjávaraf- urðir ehf. á Seltjarnarnesi, sem er í eigu aðila hér á landi og í Banda- ríkjunum, hefur frá áramótum, en einkum í apríl og maí, keypt um 700 tonn af þorski á fiskmarkaði hérlendis fyrir 70-80 krónur kílóið og selt fiskinn að mestu leyti haus- aðan og slægðan en að nokkru leyti flakaðan til Bandaríkjanna þar sem hann er fullunninn og seldur á markað. Fyrirtækið var stofnað í febrúar og hafa umsvif þess, einkum síð- ustu vikur eftir að hrygningar- stoppi lauk, vakið athygli meðal annarra kaupenda á fiskmörkuðun- um, ekki síst vegna þess að Ný- höfn hefur ekki haft bankaábyrgð- ir sem bakhjarl sinna viðskipta eins og tíðkast á fiskmarkaði. Skylt er að greiða físk innan sjö daga á markaði en Nýhöfn greiðir, að því '■* er Morgunblaðið fékk staðfest í gær, fiskinn fyrirfram með inni- stæðu sem lögð er inn á reikning markaðanna. Unnið í Reykjavík og á Suðurnesjum Óskar Kristjánsson er fram- kvæmdastjóri Nýhafnar sjávaraf- urða ehf. Hann staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að ásamt honum sjálfum stæðu bandarískir fjárfestar að fyrirtækinu. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hlutafé- lagaskrá er fyrirtækið Internation- al Sea Products Llc í Newport, Rhode Island stofnandi Nýhafnar sjávarafurða ehf. ásamt Óskari og stjórnarformaður Nýhafnar er Bandaríkjamaður búsettur á Rhode Island. Fimm frystihús, eitt í Reykjavík og fjögur á Suðurnesjum, vinna þann fisk sem Nýhöfn kaupir á mörkuðum. Óskar segir að um það bil 15% sé flakað en afgangurinn hausaður, slægður og frystur. „Það stefnir í að meira verði flakað eftir því sem tíminn líður,“ segir Óskar. 70-80 krónur fyrir kílóið Allur fiskur Nýhafnar er svo sendur með Eimskipi til Bandaríkj- anna, þar sem hann er unninn í blokk, áður en hann fer á markað á Vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada, að sögn Óskars. Fiskurinn er seldur stórum kaupendum á svipuðum markaði og eru helstu viðskiptavinir íslensku fisksölufyr- irtækjanna í Bandaríkjunum. Óskar segir að Nýhöfn greiði milli 70 og 80 krónur fyrir kílóið af þorski og að sá markaður sem fyrirtækið selur á vilji helst minni þorsk. Morgunblaðið ræddi við tvo fiskverkendur án útgerðar sem vildu ekki koma fram undir nafni en sögðu Nýhöfn stunda yfirboð og að fyrirtækið „tæki hráefni" frá fiskvinnslunni. Óskar vísar því á bug að Nýhöfn stundi yfirboð á markaðnum og segir að allmarga daga hafi það ekki verið samkeppn- ishæft á markaði þegar verðið hafi jafnvel farið í 140-150 krónur. Hann segir algengt að keypt séu 10-20 tonn á dag og fyrir hafi komið að keypt hafi verið frá 50 og upp í 80 tonn á dag. Hann segir að fyrirtækið stefni að því að halda áfram rekstri á svipaðan hátt en býst við minnk- andi framleiðslu á næstunni, þegar fer að draga að lokum fiskveiðiárs- ins. „Ég vona að þetta verði líka til þess að minnka gámaútflutning og að meiri fiskur fari á markað hér. Það hefur verið tap á bolfisk- vinnslunni hér og menn hafa helst ekki viljað vinna fiskinn en við höfum skapað atvinnu og það eru tugir, jafnvel hundrað manns, sem hafa fengið vinnu við að verka fisk- inn fyrir okkur,“ segir Óskar Krist- jánsson. Davíð heimsækir Svíþjóð DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra hitti Karl Gústaf Svíakonung að máli í konungshöllinni í Stokk- hólmi í gærmorgun. Davíð, sem er í opinberri heimsókn í Svíþjóð ásamt Ástríði Thorarensen, eigin- konu sinni, ræddi einnig við Göran Persson forsætisráðherra Svía í gær og í gærkvöldi sátu forsætis- ráðherrahjónin kvöldverð Pers- son-hjónanna. Heimsókninni lýkur í dag með ferð til Lundar. ■ Opinber/32-33

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.