Morgunblaðið - 14.06.1997, Side 2
2 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Sleipmsmenn meta nyj-
ar hugmyndir frá VSI
ENGINN árangur var af samninga-
fundi fulltrúa Sleipnismanna og við-
semjenda þeirra hjá sáttasemjara í
gær og hefur nýr fundur verið
ákveðinn á mánudag. Alls eru um
150 bílstjórar í Sleipni sem boðað
hefur verkfall frá næsta laugardegi.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, segir að mestur ágreiningur
sé um vinnutímann og grunnkaupið
en bílstjórar vilja meina að vegna
ákvæða ESB skerðist vinna hjá bíl-
stjórum sem lengstum hafa bætt sér
upp lágt grunnkaup með yfirvinnu.
Vinnuveitendur telja að svo verði
ekki og segir Óskar að túlkun þess-
ara ákvæða sé enn mjög óljós. Ljóst
sé hins vegar að Sleipnisfélagar
muni standa á grunnkaupshækkun.
„Við sjáum fyrir okkur hliðstæðan
samning og gerður var við bílstjóra
hjá Landsvirkjun sem fengu í taxt-
ann 100 þúsund króna byijunar-
laun,“ sagði Óskar en eftir fundinn
í gær óskuðu vinnuveitendur eftir
nýrri kröfugerð og Sleipnismenn
munu meta yfir helgina hvemig
brugðist verður við en þeir settu
einnig fram nýjar hugmyndir til
lausnar deilunni.
Getur ekki orðið fyrirmynd
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir samninginn
við Landsvirkjun ekki geta orðið
fyrirmynd, m.a. þar sem hann sé
gerður vegna vinnu til fjalla. „Við
vörpuðum fram hugmyndum sem við
vonuðum að kæmu til móts við þeirra
hugmyndir í dag [í gær] og þeir
ætla að ræða þær í sínum hópi yfir
helgina og vonandi kemst hreyfíng
á málin í framhaldi af því,“ sagði
Þórarinn.
Komi til verkfalls falla bæði niður
áætlunar- og hópferðir víða um land.
Segir Óskar að bílstjórar muni koma
farþegum í örugga höfn, næsta
næturstað hjá þeim sem eru í hóp-
ferðum en ekki verður leyft að ljúka
ferð, eins og var í síðasta verkfalli.
Á höfuðborgarsvæðinu falla niður
ferðir Almenningsvagna, sérleyfis-
ferðir á vegum Norðurleiðar, SBS
og Austurleiðar, á Norðurlandi ferð-
ir með Sérleyfisbílum Akureyrar og
á Vestfjörðum með Allrahanda. Þá
nær verkfallið til starfsmanna hjá
Teiti Jónassyni, Vestfjarðaleið, Hóp-
bflum og Kynnisferðum.
!
\
Breytt félagslegt
húsnæðislánakerfi
Hefði áhrif
á markaðs-
verðá
fasteignum
BREYTING á félagslega eignar-
íbúðakerfinu á þann veg að lánað
yrði beint til einstaklinga til íbúða-
kaupa á almennum fasteignamark-
aði myndi væntanlega leiða til hækk-
unar íbúðaverðs, að sögn Jóns Guð-
mundssonar, formanns Félags fast-
eignasala. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær hefur nefnd á
vegum félagsmálaráðherra lagt til
að félagslega eignaríbúðakerfinu
verði breytt í félagslegt húsnæðis-
lánakerfi þar sem lánið færi beint
til einstaklinga til kaupa á almenn-
um markaði og kaupskylda sveitar-
félaga félli þar með niður.
„Við fögnum því auðvitað að þetta
fólk komi inn á hinn hefðbundna
fasteignamarkað og það hlýtur auð-
vitað að stækka þann markhóp sem
við erum að skipta við. Þetta leiðrétt-
ir kannski fasteignamarkaðinn frá
því sem verið hefur og ef til vill
kann þetta að hafa það aukna eftir-
spurn í för með sér að það hafí áhrif
á verð, því aukin eftirspum framkall-
ar auðvitað hærra verð. Sérstaklega
á þetta við um þær eignir sem falla
innan ramma þessara kaupa, en það
eru sennilega eignir á verðbilinu frá
5-6 milljónum króna til 8-9 millj-
óna,“ sagði Jón.
Morgunblaðið/Amaldur
Sendiherrar á vinadegi
ÖLLUM starfandi sendiherrum
á íslandi var boðið til óopinbers
„Vinamóts" við Reynisvatn í
gærkvöldi að frumkvæði Laxins
ehf. og Rússneska sendiráðsins.
Einnig var utanríkisráðherra,
ráðuneytisstjóra og borgar-
stjóra Reykjavíkur boðið ásamt
mökum og börnum. Þeir sem
mættu til leiks i ijómablíðu síð-
degis í gær gátu valið um veiði-
skap eða útreiðartúr. Shi Qiné,
kínverska sendiherrafrúin,
valdi veiðiskapinn og veiddi sinn
fyrsta fisk í sínu fyrsta kasti.
Morgunblaðið/Þorkell
Rafknúið
skip á þurru >
landi 1
SANDDÆLUSKIPIÐ sem notað
er á lóni Búrfellsvirkjunar er um
margt óvenjulegt skip. Það er
líklega eina skipið á Islandi og
þó víðar væri leitað, sem er ein-
göngu knúið með rafmagni.
Vegna viðgerða á Búrfellsvirkj-
un hefur lónið verið tæmt og
þess vegna hvílir skipið núna á
botni lónsins.
Sanddæluskipið var keypt frá
Hollandi fyrir mörgum árum, en
Hollendingar notuðu það við að
breyta grunnum flóum í land.
Það var knúið tveimur mjög
öflugum vélum, sem voru mjög
orkufrekar. Raunar notuðu þær
svo mikið eldsneyti að olíubíll
var í stöðugum ferðum milli
Reykjavíkur og Búrfellsvirkjun-
ar meðan skipið var í notkun.
Stjórnendur virkjunarinnar
brugðu því á það ráð að tengja
rafmagnskapal við skipið og
knýja það áfram með rafmagni.
Þegar skipið dælir sandi notar
það allt að einu megawatti. Eng-
inn vafi er á að þessi kapalteng-
ing hefur borgað sig mörgum
sinnum.
Fyrstu ár Búrfellsvirlgunar
barst mikill sandur inn í lónið
og var unnið á vöktum á skipinu
á sumrin við að dæla sandi úr
lóninu. Á seinni árum hefur dreg-
ið mikið úr framburði sands og
eru því lítil verkefni fyrir skipið.
í
I
i
I
1
i
i
25 ára afmæli heimsmeistaraeinvígisins í skák í Reykjavík
Spassky vill koma til
Islands komi Fischer
Morgunblaðið. París.
BORÍS Spassky, fyrrum heims-
meistari í skák, ræddi við Morgun-
blaðið í París í gær í tilefni af 25
ára afmæli heimsmeistaraeinvígis
þeirra Bobbys Fischers í Reykjavík.
Drengur-
inn sem lést
DRENGURINN sem lést í bílslysi
á Borgarfirði eystra í fyrradag hét
Reynir Örn Kárason til heimilis að
Ásbrún.
Reynir Öm var fjögurra ára gam-
all, fæddur árið 1993.
Hann kvaðst fús vilja koma til ís-
lands í sumar í tilefni afmælisins,
sér í lagi ef Fischer fengist líka.
Það gæti orðið ef takast myndi að
koma upp sjóði til að greiða Fischer
upphæð sem Spassky telur þurfa
að nema 40.000 Bandaríkjadölum
eða um tveimur og hálfri milljón
króna að lágmarki. „Ef þetta getur
orðið skal ég strax hringja í Fisch-
er,“ sagði Spassky, sem sjálfur vill
einungis þiggja það sem nemur ferð
og dagpeningum.
Fischer hefur búið í Búdapest í
Ungveijalandi frá því að hann var
gerður útlægur úr heimalandinu
Bandaríkjunum eftir mót við
Spassky í fyrrum Júgóslavíu haust-
ið 1992. Þar hlaut hann 184 milljón-
ir króna að sigurlaunum og Spassky
fékk 91 milljón í sinn hlut. Þetta
var í fyrsta sinn sem Fischer tefldi
opinberlega eftir einvígið á íslandi
og þar með fyrsta keppni þessara
gömlu félaga eftir „einvígi aldarinn-
ar“ á íslandi. Einvígið markaði ör-
lög þeirra beggja, eins og Spassky
útskýrir í viðtalinu við Morgunblað-
ið. Hann segist að mestu hættur
að taka þátt í mótum, það sé þá
ánægjunnar vegna að hann geri
það. Fischer fari huldu höfði en
þeir hafí reglulega samband og
ræði þá stundum skák. Skákgrein-
ing eigi huga þeirra frekar en tafl-
ið sjálft.
Sjúkrasjóður Verslunarmannafélagsins
Sjúkra- og slysa-
dagpeningar
hækkaum 17%
STJÓRN Sjúkrasjóðs YR hefur
ákveðið að hækka sjúkra- og slysa-
dagpeninga í 80% af meðallaunum
síðustu sex mánaða, frá og með
1. júlí nk.
Fyrir breytinguna voru dagpen-
ingar miðaðir við grundvallartaxta
samkvæmt aðalkjarasamningi
61.846 kr. á mánuði og síðan 60%
af launum umfram það. Sjúkra-
og slysadagpeningar greiðast til
félagsmanna eftir að samnings-
bundnar launagreiðslur falla niður
og greiðast í allt að 270 daga. Á
árinu 1996 fengu 319 einstakling-
ar greidda rösklega 51 milljón
króna í dagpeninga, þar af fengu
24 yfir 500 þúsund kr.
Með 80% tekjutengingu sjúkra-
og slysapeninga hefðu dagpening-
ar á síðasta ári verið rúmlega 60
milljónir. Hækkunin er um það bil
8,5 milljónir.
í ágúst gerði Talnakönnun hf.
tryggingafræðilega úttekt á
Sjúkrasjóði VR. Samkvæmt þeirri
úttekt þarf að leggja til hliðar fyr-
ir dánarbótum um 32% af iðgjöld-
um hvers árs og því er óhætt að
hækka aðrar bætur um nálægt 30
milljónir króna á ári. í þessum
áfanga eru sjúkra- og slysadag-
peningar hækkaðir, en í skoðun
er að hækka einnig dánar- og ör-
orkubætur svo og að taka upp
nýja bótaflokka.
i
i
«
í
*
i
4