Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 8

Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 8
8 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tímamót í rannsóknum á sjóbleikju JÓHANNES fiskifræðingur með fallega sjóbleikju sem er á leið í merkingu. Morgunblaðið/Jóhannes Sturlaugsson RÚMLEGA 4 punda sjóbleikja sem var mælimerkt í Hópinu í lok síðasta mánaðar. VEIÐIMÁLASTOFNUN hefur fyrst allra nýtt sér mælimerki tii að kanna lifnaðarhætti sjóbleikju. Rannsókn- unum stýrir Jóhannés Sturlaugsson hjá Veiðimálastofnun en auk hans standa að verkefninu þeir Ingi Rún- ar Jónsson og Tumi Tómasson, auk Veiðifélags Víðidalsár og Stjömu Odda sem er framleiðandi mæli- merkjanna. Auk þess er annað rann- sóknarverkefni í gangi sem byggir á slöngumerkingum og stýrir Tumi Tómasson því. Rannsóknir byggja á bleikju úr Hópinu og Víðidalsá en mikil sjóbleikjuveiði er jafnan á þess- um slóðum, 3-4 þúsund bleikjur veið- ast að jafnaði í ánni og annað eins í Hópinu. Nú í vor voru sérfræðing- ar Veiðimálastofnunnar og aðstoðar- menn þeirra við Hópið þar sem þeir veiddu og merktu 260 bleikjur, þar af töluvert af 3-4 punda fiski. Rannsóknirnar verða fyrst um sinn a.m.k. í Hópinu og Víðidalsá, en mikil sjóbleikjuveiði er jafnan á þessum slóðum, 3-4 þúsund fískar veiðast að jafnaði á stöng í ánni og annað eins í net í Hópinu. Auk Veiði- málastofnunar standa Veiðifélag Víðidalsár og Stjömu-Oddi, fram- leiðandi mælimerkjanna, straum af kostnaði við rannsóknirnar. Nú í vor voru sérfræðingar og aðstoðarmenn þeirra á ferð við Hóp- ið og veiddu og merktu um 200 bleikjur sem voru allt að 4 pund að þyngd. Vom margar á bilinu 3-4 pund. Alls voru 20 bleikjur merktar með mælimerkjum og er það í fyrsta sinn sem slík merki eru fest á sjó- bleikjur. Merkin mæla dýpi, seltu og hita- stig þess vatns sem bleikjan fer um. 40 bfeikjur til viðbótar voru merktar með mælimerkjum sem innihéldu ekki rafeindabúnað til þess að fá á ódýran hátt viðbótarupplýsingar um vöxt fískanna með hliðsjón af notkun merkjana á mismunandi fískstærðir. Til samanburðar við mælimerkja- gögnin voru gerðar mælingar á hita og seltu víðs vegar um hópið og auk þess settir niður síritandi hitamælar á svæðinu frá Víðidalsá niður í ós Hópsins, Bjargarós. „Það verður sér- lega fróðlegt að fylgja eftir göngu- mynstri bleikjunnar innan Hópsins og á ytri svæðum og því hvernig göngum er háttað úr Hópinu í sjó og öfugt,“ sagði Jóhannes Stur- laugsson í samtali við blaðið. Slöngumerkin Hinn hluti verkefnisins hófst reyndar í fyrrasumar með því að stofnvistfræði bleikju var könnuð á vatnasvæði Hópsins og Víðidalsár. Samspil bleikjustofna í þessum tveimur kerfum var skoðað með það fyrir augum að bæta nýtingu þeirra. Samsetning stofna Hópsins var könnuð þrisvar um sumarið og í Víðidalsá var rafveitt um haustið. Að veiðitíma loknum voru síðan á þriðja hundrað bleikjur merktar slöngumerkjum. Tvö hundruð til við- bótar bættust í hópinn á dögunum. Verður fylgst með dreifingu merktra físka út frá endurveiði í net og á stöng og jafnframt fengið mat á öðrum þáttum svo sem vexti fisk- anna og heiidarfjölda físka af þeim stærðum sem halda uppi veiðinni. Rannsóknir og merkingar á sjó- bleikju hófust einnig í Vatnsdalsá á síðasta sumri. Að sögn þeirra Jóhannesar og Tuma er forsenda þess að rannsókn- irnar skili góðum árangri sú, að sam- starf við veiðimenn verði gott. „Mik- ilvægt er að góðar skýrslur séu haldnar um veiðina og að þeir sem stunda sjóbleikjuveiði á Húnaflóa- svæðinu líti eftir merkjum og komi þeim til skila. Allan merktan fisk verður að aflífa og mælimerkta físka þurfum við að fá til skoðunar. Slöngumerkjum þarf að skila til veiðivarðar eða á Veiðimálastofnun með upplýsingum um veiðistað, veiðitíma, nafni og heimilisfangi veiðimanns, lengd og þyngd fisksins. Sérstök verðlaun eru greidd fyrir skil á mælimerktum fiski,“ segja þeir félagar. Heimkoma handritanna Sýningin Sögn í sjón í Reykholti Dagný Emilsdóttir HNN 17. júní nk. verður opnuð sýning í Reyk- holti í Borgarfírði undir yfirskriftinni Sögn í sjón. Heimskringla, Reykholti ehf., stendur að sýningunni. Sýning- in er sett upp í sam- vinnu við Stofnun Árna Magnússonar á ís- landi, Norræna húsið í Reykjavík og Listasafn íslands. Dagný Emils- dóttir er forstöðumað- ur Heimskringlu ehf. í Reykholti sem sér um sýninguna þar. — Hvað er Heims- kríngla ehf.? „Þetta er fyrirtæki sem hefur því hlutverki að gegna að sinna þeim mikla fjölda ferðamanna sem í Reykholt koma. Heimskringla stendur að sýningum og veitir ferðamönnum almenna þjón- ustu jafnframt því að annast tónleikahald í Reykholtskirkju. Reykholt hefur verið vinsæll ferðamannastaður, Snorri Stur- luson laðar stöðugt að. Margir gera sér ekki grein fyrir hversu frægur Snorri er, en við sem búum hér í Reykholti verðum áþreifanlega vör við þann mikla áhuga sem bæði erlendir og innlendir ferðamenn hafa á staðnum vegna Snorra.“ — I sambandi við sýninguna talar þú um yfirskriftina Sögn í sjón. „Þær þijár stofnanir sem standa að sýningum undir yfír- skriftinni Sögn í sjón ákváðu síðastliðið haust að standa sam- eiginlega að sýningum í tengsl- um við heimkomu handritanna. Það þótti við hæfi að Reykholt tengdist þessum sýningum og þess vegna verður þar opnuð sýning hinn 17. júní, sem unnin er í samvinnu við þessar stofn- anir.“ — Hvað verður til sýnis í Reykholti? „Á sýningum í sumar verða þættir úr sýningu um handritin sem eru varðveitt í stofnun Árna Magnússonar í Árnagarði. Málverk eftir Vigni Jóhannsson þar sem að túlkun hans á forn- sögunum kemur fram að ógleymdri sýningu dr. Jónasar Kristjánssonar á verkum Snorra Sturlusonar. Jónas hefur verið ómetan- legur bandamaður í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Reykholti og eins stofnun Árna Magnússonar. Á sýningu Jónasar eru ljósprentaðar út- gáfur af nokkrum þeirra hand- rita sem til sýnis eru í Árna- stofnun, má þar nefna Flateyj- arbók, en þar er um að ræða útgáfu frá 1930 sem kennd er Munksgaard. Einnig eru ljós- prentuð Edduhandrit auk Lög- bókahandrita, það er Jónsbók og Konungsbók Grágásar. Á sýningunni eru líka ýmsar prentaður útgáfur Eddu og Heimskringlu eins og til dæmis fyrsta útgáfa Heimskringlu sem kennd er við Peringskjöld frá ► Dagný Emilsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1952. Hún varð stúdent frá MR 1972 og útskrifaðist í febrúar er leið frá HÍ með B.A.-próf í dönsku. Hún kenndi við hér- aðsskólann í Reykholti á ár- unum 1978 til 1990. í haust tók hún við stöðu forstöðu- manns við Heimskringlu í Reykholti sem starfar á veg- um Snorrastofu. Hún er gift og á fjögur börn. 1697 og danska útgáfan sem kennd er við Schönning frá of- anverðri 18. öld. Erfíngjar Torfa Hjartarsonar hafa sýnt okkur þann sóma að lána þess- ar bækur á sýninguna ásamt fleiri bókum. Sýningu Jónasar fylgja textar á fjórum tungu- málum og lítið kver um Snorra Sturluson og verk hans: Heims- kringlu, Snorra-Eddu og Egils sögu sem Jónas hefur tekið saman og verður það gefið út á sex tungumálum." — Þú nefnir tónleikahald í Reykholtskirkj u ? „Hljómburðurinn í Reyk- holtskirkju er sérstaklega góður og kirkjan því eftirsóknarverð til tónleikahalds. í vetur voru haldnir margir tónleikar þar. Miðvikudaginn 25. júní mun Ingveldur Yr messósópran halda tónleika í kirkjunni. Dag- ana 25.-27. júlí verður haldin tónlistarhátíð í Reykholti í tengslum við vígsluafmæli kirkjunnar en hún var vígð 28. júlí 1996. Steinunn Birna Ragnarsdótt- ir píanóleikari er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Áhersla er lögð á norræna tón- list. Steinunn hefur fengið til liðs við sig framúrskarandi tón- listarmenn eins og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Þorstein Gauta Sigurðsson og Zilia-kvartettinn, en hann skipa Auður Hafsteins- dóttir, Guðmundur Kristmunds- son, Bryndís Halla Gylfadóttir og Steinunn Birna. Sérstakur gestur hátíðarinnar er einn kunnasti fíðluleikari Litháens Martynas Svégzda. Tónleikarn- ir verða fernir með fjölbreyttri efnisskrá sígildra og nýrri verka. Stefnt er að því að halda Reykholtshátíð árlega. Reykholts- hátíð verður haldin árlega

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.