Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 10

Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 10
10 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Níelsar Dungals minnst í Odda „Kennari af Guðs náð“ Morgunblaðið/Ásdís NÍELS Dungal, myndin var tekin um það leyti er hann tók við forstöðu Rannsóknarstofunnar 1926. FRÁ hátíðarfundin- um vegna fæðingar- afmælis Níelsar Dungals og 80 ára afmælis Rannsókna- stofu Háskólans í húsi félagsvísinda- deildar Háskólans, Odda, í gær. JÓNAS Hallgrímsson prófessor í ræðustól á fundinum í Odda. STJÓRN sjóðs Níelsar Dungals efndi í gær til fundar í Odda í tilefni af 100 ára fæðingaraf- mæli Níelsar Dungals prófess- ors en jafnframt eru 80 ár lið- in síðan Rannsóknastofa Há- skólans var stofnuð. Dungal sljórnaði Rannsóknastofunni í 39 ár og lagði grundvöllinn að nútímalegu rannsóknastarfi í læknisfræði hér á landi auk margvíslegra umbóta í heilsu- gæslu. Níels lést árið 1965. Jónas Hallgrímsson, pró- fessor og núverandi forstöðu- læknir Rannsóknastofunnar, flutti erindi og stiklaði þar á stóru í lífshlaupi Níelsar en hann lét til sín taka á mörgum sviðum þjóðlífsins. Að auki flutti Alexander Tomasz, pró- fessor við Rockefeller Univers- ity í New York, erindi er hann nefndi „Accelerated Evolution: Emergence and Global Spread of Multidrug-Resistant Bacter- ial Pathogens" og Hallgrímur Benediktsson, læknir við Uni- versity of Calgary í Kanada, flutti erindi um langvinna höfnun líffæra. Jónas sagði Níels hafa verið fjölgáfaðan, hugmyndaríkan og framkvæmdasaman, hann hefði yfirleitt ekki látið standa við orðin tóm. Jónas minntist andlátsorða sem Þórarinn heitinn Guðnason læknir ritaði á sínum tíma um Níels þar sem sagði að Níels hefði borið „ótakmarkaða virðingu fyrir vísindalegri hugsun“ og fyrir- litið „af heitu hjarta allt kukl og hindurvitni.“ Jónas sagði að Níels hefði verið kennari „af Guðs náð“ alla tíð. Hann hefði hafið starfsferil sinn sem almennur læknir og alla tíð síðan haft mikinn skilning á þörfum fólks fyrir læknishjálp og heilsu- vernd. Hann hefði frá upphafi fengist við bólusetningar og aðrar varnir gegn barnasjúk- dómunum mislingum, kíghósta og barnaveiki og verið mjög vel að sér í sýklafræði. Níels hefði öðrum fremur staðið fyr- ir því að taugaveiki og barna- veiki var útrýmt hérlendis. Jónas greindi einnig frá störfum Níelsar á sviði líffæra- meinafræði og réttarlæknis- fræði en um hríð voru verk- efni hans að mestu á sviði krufninga og blóðrannsókna í barnsfaðernismálum. Níels stóð ásamt fleiri lækn- um að stofnunfyrsta krabba- meinsfélags á íslandi og stund- aði rannsóknir á krabbameini í lungum og maga sem vöktu heimsathygli. Jónas rifjaði upp rannsóknir Níelsar á búfjár- sjúkdómum en bóluefni sem Níels fann upp gegn bráðapest hefði verið betra en nokkurt annað á alþjóðamarkaði og verið notað hér á landi og í Færeyjum. Nýjar á söluskrá m.a. eigna: Gott verð - bílskúr - frábært útsýni Suðuríbúð 3ja herb. 83 fm á 1. hæð í vesturenda við Ugluhóla. Rúm- góðar sólsvalir. Geymsla í kjallara. Bílskúr 21,7 fm. Vinsæll staður. Fyrir smið eða laghentan Efri hæð og rishæð, um 150 fm. Sérinngangur. Sérhiti. Sérþvottaað- staða á rúmgóðu baði. þarfnast nokkurra endurbóta. Húsið stendur á eignarlóð skammt frá danska sendiráðinu. Endurnýjuð - útborgun kr. 0,5 millj. 2ja herb. endurnýjuð jarðh./kj. 54,3 fm við Hjallaveg. Nýtt eldhús. Nýtt gler. Ný gólfefni. Nýtt þak o.fl. Sérinngangur. Nánar á skrifstof- unni. Eins og ný - útborgun kr. 0,8 millj. Glæsileg suðuríbúð 82,8 fm á 3. hæð á vinsælum stað í Selási. 40 ára byggingarsjóðslán kr. 2,5 millj. Útsýni. Nánar á skrifstofunni. Fjöldi fjársterkra kaupenda Margskonar eignaskipti möguleg. Sérstaklega óskast einbhús og raðhús (Árbæjarhverfi, Smáíbúðarhverfi og Fossvogi. Sérhæðir í Heimahverfi, við Stóragerði í Vesturborginni og á Nesinu. íbúðir í borginni og nágrenni af flestum stærðum og gerðum. Seljabraut 12 - endaraðhús Opið hús laugardag og sunnudag • • • Opið í dag frá kl. 10-14. Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar upplýsingar. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370 Tæplega 200 fm endaraðhús á góðum útsýnisstað. Húsið er allt í mjög góðu ástandi og hefur nýlega verið standsett að utan. Tvennar suðursvalir. Á jarðhæð er sér 2ja-3ja herb. íbúð. Ræktuð lóð. Stæði í bílskýli. Hagstætt verð 12,2 millj. Möguleiki að taka minni íbúð uppí. Til sýnis laugardag og sunnudag kl. 14-18. Gjörið svo vel að líta inn. Eignasalan, Ingólfsstræti 12, símar 551 9540 og 551 9191. Breytt um- ferðarlög taka gildi í júlíbyrjun FRUMVARP til laga um breyting- ar á umferðarlögum, þar sem með- al annars refsingar eru þyngdar og punktakerfi innleitt í tengslum við ökuferilsskrá, var samþykkt á Alþingi á vorþingi og munu nýju lögin taka gildi um næstu mánaða- mót. Lagabreytingar þessar eru liður í heildarendurskipulagningu á meðferð sektamála til að auka skilvirkni þeirra. I athugasemdum með frumvarpinu segir m.a. að mikilvægt sé að punktakerfið verði einfalt, sanngjarnt, án undanþágu og skapi viðbótarvarnað en dragi ekki úr varnaráhrifum annarra við- urlaga samkvæmt umferðarlögum. Gert er ráð fyrir að komið verði upp sameiginlegri ökuferilsskrá yfir allt landið sem nota megi sem grundvöli undir punktakerfið. Fyrirbyggjandi áhrif punkta- kerfisins byggjast á því að upp- söfnun punkta vegna umferðar- lagabrota leiði til sviptingar öku- réttar í 3 mánuði. Gert er ráð fyr- ir að reglunum verði háttað þannig að einungis síbrotamenn í umferð- inni sem ekki láta segjast missi ökuréttinn. Þannig verði punkta- fjölda fyrir einstök brot hagað þannig að tiltölulega fáir ökumenn verða sviptir ökurétti á hveijum tíma. í inngangi með athugasemdum við lagafrumvarpið kemur fram að punktakerfi vegna umferðarlaga- brota hefur verið tekið upp í ýms- um myndum víða um heim og hef- ur hvarvetna verið talið fækka umferðarlagabrotum og draga verulega úr slysatíðni. Telja verði fullvíst að skilvirk beiting slíks úrræðis muni samhliða skilvirkari innheimtu sekta skapa þann varn- að að umferðarlagabrotum og þar með umferðarslysum fækki hér á landi. Vestur- Islending'ar fylgjast með Bjarna MIKILL áhugi er fyrir geim- ferð Bjarna Tryggvasonar meðal félaga í Islendingafé- laginu í Vancouver í Kanada. Erlendur Óli Leifsson, sjó- maður frá Vancouver, sem fluttist frá Reykjavík til Kanada árið 1956, segir að íslendingafélagið hafi í tilefni af geimferð Bjarna látið gera sérstakt merki sem á að vera táknrænt fyrir ferð hans. Merkið teiknaði Warren Oddsson. Á merkinu er mynd af vík- ingaskipi en fremst á stefni þess er mynd af Discovery geimskutlunni. Seglið er fáni Kanada. Erlendur Óli segir að margir í Kanada fylgist spenntir með undirbúningi geimferðarinnar. íslendinga- félagið gefur út fréttarit einu sinni í mánuði og hefur fjallað um þetta mál. Erlendur Óli hefur þekkt Bjarna Tryggvason frá því hann var lítill snáði. „Ég og pabbi hans Bjarna vorum saman á sjó í gamla daga,“ sagði Erlendur Öli, sem kem- ur til íslands á hveiju ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.