Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Vegaframkvæmdir á Fljótsheiði
Framkvæmt fyrir
100 milljónir í ár
VEGAFRAMKVÆMDIR á Fljóts-
heiði hefjast á ný í næsta mánuði
en vinna þar hefur legið niðri frá
síðasta hausti. Fljótsheiðin er
stærsta einstaka verkefnið á vegum
Vegagerðarinnar á Norðurlandi
eystra. Til verksins í ár er varið 100
milljónum króna samkvæmt vegaá-
ætlun og er stefnt að því að ljúka
við undirbyggingu og neðra burðar-
lag nýja vegarins fyrir 15. október.
Verklok eru áætluð 1. ágúst á næsta
ári og þá unnið við efra burðarlag
og klæðingu, fyrir samtals 95 millj-
ónir króna.
Á Mývatnsöræfum verður haldið
áfram framkvæmdum við Jökuisá-
Biskupsháls en þær hófust á síðasta
ári. Ráðgert að vegurinn verði tilbú-
inn með bundnu slitlagi 1. septem-
ber nk. Um næstu mánaðamót verð-
ur boðin út vinna við Norðausturveg
í Kelduhverfi, Lindarbrekka-Lyngás.
I næsta mánuði verður boðið út
verk í Mývatnssveit, Stekkjarnes-
Kísilvegur. Til viðhalds í kjörd'æminu
á þessu ári verður varið 120 milljón-
um króna. Þar af fara 50 m. kr. í
yfirlagningu á bundnu slitlagi, 30
milljónir til lagfæringa á malarslit-
lögum, 30 milljónir í styrkingar og
10 milljónir til efnisvinnslu. Vega-
gerðin hefur boðið út akstur á malar-
slitlagi á 25 km kafla á Kísilvegi
og verður hafist handa þar í næstu
viku. Einnig verður lagt malarslitlag
á 10 km kafla á Aðaldaisvegi. Þá
er búið að bjóða út styrkingu og
yfirlögn á 7 km kafla á Norðaustur-
vegi í Aðaldalshrauni.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón-
usta í Akureyrarkirkju sunnudag kl.
11.00, séra Birgir Snæbjörnsson.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14.00. Stúlknakór
Húsavíkur syngur við athöfnina und-
ir stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur.
Tónleikar Stúlknakórsins kl. 16.00.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Safn-
aðarsamkoma sunnudag kl. 11.00.
Ræðumaður verður Omar Mando frá
Burkina Faso. Kl. 20.00 almenn
samkoma, ræðumaður Omar Mando.
Miðvikudag 18. júní kl. 20.30, and-
legar þjálfunarbúðir. Föstudag 20.
júní kl. 20.30, unglingasamkoma.
Mikill og fjölbreyttur söngur, allir
velkomnir. Bænastundir mánudags-,
miðvikudags- og föstudagsmorgna
kl. 6-7.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
daginn 15. júní kl. 20.00, almenn
samkoma. Unglingaklúbbur eftir
samkomu. Allir velkomnir.
LAUFÁSPRESTAKALL: 17. júní
verður messa í Munkaþverárkirkju
kl. 11.00. Ræðumaður Birgir Þórð-
arson, oddviti Eyjafjarðarsveitar.
Allir veikomnir.
M A-STÚ D ENTAR!
Hinn árlegi afmælisfagnaður MA-stúdenta
verður haldinn í íþróttahöllinni á Akureyri
16. júní nk. og hefst samkoman með
fordrykk í anddyri hallarinnar kl. 18.00.
Miðaverð er kr. 4.000 en miðarnir verða
seldir í anddyri hallarinnar 15. júní kl. 13-17
og 16. júní kl. 12-15.
Góða skemmtun!
Undirbúningsnefndin.
Háskóla-
hátíð í dag
BRAUTSKRÁNINGARHÁTÍÐ Há-
skólans á Akureyri verður haldinn í
Akureyrarkirkju í dag, laugardag
kl. 14.00.
Brautskráðir verða alls 73 kandí-
datar, úr heilbrigðisdeild, kennara-
deild, sjávarútvegsdeild og rekstr-
ardeild. Þetta er næst fjölmennasti
hópurinn sem útskrifast hefur frá
skólanum.
Eitt blað
fyrir alla!
- kjarni málsim!
NAUSTAHVERFI, AKUREYRI
hugmyndasamkeppni
um heildarskipulag
Úrslit í hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Naustahverfis
á Akureyri verða kynnt sunnudaginn 15. júní nk.
Að verðlaunaafhendingu lokinni kl. 16.00 verður opnuð sýning
á skipulagstillögunum í Listasafninu á Akureyri.
Bæjarbúar og allir þeir, sem áhuga hafa á skipulagsmálum og
þróun bæjarins eru boðnir velkomnir á sýninguna til þess að
skoða áhugaverðar hugmyndir um framtíðarbyggð og
íbúðarumhverfi.
Tillögumar verða til sýnis í Listasafninu í Grófargili
kl. 14.00-18.00 alla daga nema mánudaga til júníloka.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
REKSTRARAÐILAR Varpholts, hjónin Ingjaldur Arnþórsson og Áslaug Brynjarsdóttir, með börn
sín Brynjar Dag og Margréti Nönnu. Fyrir aftan þau standa Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu og Bryndís Guðmundsdóttir, uppeldisfræðingur á Barnaverndarstofu.
Varpholt í Glæsibæjarhreppi
Nýtt meðferðarheimili fyrir
unga vímuefnanotendur
BARNAVERNDARSTOFA hefur
hafið rekstur meðferðarheimilis fyr-
ir unga vímuefnaneytendur í Varp-
holti í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði.
Rekstraraðilar eru hjónin Ingjaldur
Arnþórsson og Áslaug Brynjars-
dóttir og búa þau á staðnum. Bæði
hafa þau starfað við meðferð vímu-
efnaneytenda og aðstandenda
þeirra um árabil.
Meðferðarheimilið í Varpholti er
sérhæft meðferðarúrræði fyrir
unga vímuefnaneytendur, byggt á
sama 12 spora kerfinu og AA bygg-
ir sína vinnu á. „Þetta er þroska-
leið og gengur út á að viðurkenna
vanmátt og vanda sinn og er lykill
að lausn vandans," segir Ingjaldur.
6 unglingar vistaðir í einu
Gert er ráð fyrir að þangað vist-
ist allt að 6 unglingar í einu á aldr-
inum 14-16 ára. í kjölfar breytinga
á sjálfræðislögum mun heimilið
væntanlega koma til með að taka
unglinga upp að 18 ára aldri. Ungl-
ingarnir munu hafa tækifæri til að
dvelja á heimilinu í a.m.k. eitt skóla-
ár og hér er því um langtímameð-
ferð að ræða. Skólinn verður rekinn
í nánu samstarfi við Þelamerkur-
skóla og verður jafnframt sniðinn
eftir þörfum hvers og eins nemanda.
Áhersla verður lögð á að skapa
unglingunum heimili og gefa þeim
tækifæri til að stunda heilbrigðar
tómstundir, eins og útivist og íþrótt-
ir. Einnig að þeir geti kynnst um-
hverfinu og lært af því og að þeir
geti nýtt sér möguleikana sem það
býður upp á, jafnt í þéttbýli sem og
í dreifbýli.
íbúar hreppsins jákvæðir
í vikunni var haldinn kynningar-
fundur með íbúum Glæsibæjar-
hrepps og aðilum sem heimilið kem-
ur til með að hafa samstarf við.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnavemdarstofu, segir að fund-
urinn hafí verið mjög jákvæður og
gagnlegur. „Ég gat ekki fundið ann-
að en að heimilið væri mjög velkom-
ið í þetta samfélag og það er okkur
mikið gleðiefni," sagði Bragi.
Ingjaldur sagðist hafa fundið
fyrir miklum hlýhug á fundinum
og að íbúar hreppsins stæðu ein-
huga að baki heimilinu. „Það er
alltaf svolítil hræðsla í fólki, ekki
síst eftir umræðu eins og varð af
stroki ungmenna á Bakkaflöt í
Skagafirði í vetur.“
Rekstrarforminu verið breytt
Varpholt er sjötta meðferðar-
heimilið sem starfrækt er undir
hatti Barnaverndarstofu. Þar af eru
nú þrjú á Norðurlandi, Bakkaflöt í
Skagafirði, Árbót í Aðaldal og
Varpholt. Einnig em rekin meðferð-
arheimili á Torfastöðum í Biskups-
tungum og Geldingalæk á Rangár-
völlum. Til viðbótar er greiningar-
og meðferðarstöðin Stuðlar í Graf-
arvogi í Reykjvík.
Bragi segir að unnið hafi verið
að því að breyta rekstrarforminu
yfir í svokallaða fjölskylduvæðingu
og flytja heimilin úr höfuðborginni
út í hinar dreifðu byggðir. „Við trú-
um því að það sé bæði faglega og
fjárhagslega betri leið. Þannig
skapast betri Iíðan hjá krökkunum
og okkur hefur jafnframt tekist að
fjölga rýmum um fjórðung án þess
að kosta meiru til.“
Stúdentsefn-
in gróður-
settu plöntur
BRAUTSKRÁNING Menntaskól-
ans á Akureyri fer fram sam-
kvæmt gamalli hefð 17. júní.
Margar skemmtilegar venjur
hafa skapast í kringum skólalok-
in og mannmargt í kringum gleð-
skap afmælisárganganna.
Síðastliðna tvo áratugi hefur
það verið venja að stúdentsefnin
gróðurselja tijáplöntur í skóg-
ræktinni á Þelamörk í Hörgár-
dal. Sl. fimmtudag fór hópur
stúdentsefna með Tómasi Inga
Olrich, fyrrum konrektor, í gróð-
urreitinn og gróðursetti plöntur.
Menntaskólanum verður slitið
þriðjudaginn 17. júní og stúdent-
ar brautskráðir kl. 10 í íþrótta-
höllinni. Milli kl. 15 og 17 þann
sama dag verður opið hús í MA.
Stúdentar munu að venju selja
svip sinn á hátíðarhöldin á þjóð-
hátíðardaginn en hátiðarveisla
þeirra verður sett í íþróttahöll-
inni kl. 20 um kvöldið. Á mynd-
inni er Ólöf Elsa Björnsdóttir að
gróðursetja í Þelamörk.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason