Morgunblaðið - 14.06.1997, Síða 15

Morgunblaðið - 14.06.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 15 LANDIÐ Innistöðu- skjögur læknað Vaðbrekka, Jökuldal - Það er mörg búmanns raunin og í mörg horn að líta við sauðburð og fyrst eftir hann. Þó að lömbin lifi af sauðburðinn eru hætturnar fyrir þau ekki úr sögunni því ýmsir sjúk- dómar geta beðið handan við horn- ið. Það fékk svarta gimbrin, sem hér er á myndinni, að reyna. Gimbrin er gemlingslamb, fædd fyrstu dagana í maí, og þegar henni var sleppt úr húsi tæplega mánaðargamalli fékk hún innistöð- uskjögur. Innistöðuskjögur er efnaskipta- sjúkdómur er stafar af selen- skorti, og lýsir sér í því að lambið verður reikult í spori og getur ekki staðið í fæturna. Lækningin er fólgin í að sprauta lambið með selen undir húð og það er Eva Ásgeirsdóttir einmitt að gera á myndinni. Þá líður ekki á löngu þar til lambið verður fullfrískt á ný. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir UNGA kynslóðin var í aðalhlutverki þegar fyrsta skóflustugan var tekin að íþróttahúsinu á Þórshöfn. Fyrsta skóflustungan að íþróttahúsi Þórshöfn - Unga kynslóðin var í aðalhlutverki þegar fyrsta skófl- ustungan var tekin að íþróttahús- byggingu hér á Þórshöfn en það voru einmitt börnin í bænum sem saman hófu það verk, að beiðni oddvita Þórshafnarhrepps, Jó- hanns A. Jónssonar. Jóhann sagði m.a. við það tækifæri að mikii vöntun væri á góðu íþróttahúsi í byggðarlaginu og bygging íþróttamannvirkis hefði árum saman verið í umræðunni. Það væri því gleðiefni að nú loks yrði umræðan að veruleika. Börnin virtust hjartanlega sammála því þau gengu rösklega til verks og virtust vilja húsið upp sem fyrst. Þegar þau höfðu mokað nægju sína var boðið upp á grillaðar pylsur úti í sólinni og þar borðuðu moldug en ánægð börn af bestu lyst. Bygging íþróttahúss var eitt af stefnuskrármálum beggja fram- boða við síðustu sveitarstjórnar- kosningar hér og var gerður hönnunarsamningur við VT teiknistofuna á Akranesi. Verkið var síðar boðið út og þijú tilboð bárust í þennan fyrri áfanga byggingarinnar. Lægsta tilboði var tekið en það áttu ÞH-verktak- ar hér á Þórshöfn ásamt Tré- vangi hf. á Reyðarfirði en tilboð þeirra var um 96% af kostnaðará- ætlun. Áætlaður heildarkostnað- ur mannvirkisins er um 150 millj- ónir króna. Þetta nýja íþróttahús verður myndarleg bygging; heildarstærð hússins verður 1.720 fermetrar og þar er 800 fermetra íþróttasal- ur, sundlaug með léttri yfirbygg- ingu en auk þess verður mötu- neytisaðstaða þar fyrir skóla ásamt félagsaðstöðu og ýmsu þjónusturými. Áætlað framlag frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga er um 85-40% af heildarkostnaðinum. Aðstaða til íþróttaiðkana hér á Þórshöfn mun gjörbreytast með tilkomu íþróttahússins, t.d er sundlaugin lítil útilaug sem aðeins er opin yfir sumartímann. Nýja húsið kemur til með að verða mikil lyftistöng fyrir byggðarlag- ið og íbúar hér á svæðinu líta björtum augum til framtíðarinn- 100 ár frá því Grundarfjörður var lögiltur verslunarstaður Saga verslunar í Grundarfirði mun lengri Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir VIÐGERÐ er nú hafin á Barnaskóla Siglufjarðar. Bamaskólinn endurbyggður Siglufirði - Um leið og skóla lauk í vor var hafist handa við endur- byggingu Grunnskólans á Siglu- firði, enda kominn til ára sinna. Fyrsti hluti hússins var byggður 1913 og síðan var byggt við húsið í áföngum. Endurbygging skólans sem hýsir 1.-7. bekk Grunnskóla Siglufjarðar hófst fyrir tveimur árum með klæðningu og gluggaskiptum en í ár og á næstu árum verður mesti hluti verksins unninn. Gömul við- bygging við skólann verður rifín og ný reist, auk þess sem skipt verður um þak. Við breytingarnar fjölgar kennslustofum úr 9 í 10, kennslu- stofur stækka og vinnuaðstaða kennara verður endurnýjuð. Reikn- að er með að þessum verkáfanga ljúki í júlí 1998. Heildarkostnaður við þennan verkhluta er 44 millj. kr. og verktaki er Byggingafélagið Berg á Siglufirði en hönnun var unnin af AB4 teiknistofu arkitekta o.fl. Síðar er áætlað að ljúka endur- bótum innanhúss og er reiknað með að það verk taki um tvö ár. Að því loknu verður endurnýjun hússins að fullu lokið. Við hönnunina var haft að leiðarljósi að láta útlit húss- ins og svipmót halda sér, jafnt inn- an húss sem utan enda reiknað með að húsið verði mikil bæjarprýði að loknum viðgerðum. Grundarfirði - „Vjer Christian hinn Níundi, af guðs náð Danmerk- ur konungur, Vinda og Gauta, hertogi í Sljesvík, Holtsetalandi, Stórmæri, Þjettmerski, Láenborg og Alsinborg, gjörum kunnugt: Alþingi hefur fallizt á lög þessi og Vjer staðfest þau með samþykki Voru: Á Grafarnesi við Grundar- Qörð skal vera löggiltur verzlunar- staður. Eptir þessu eiga allir hlut- aðeigendur sjer að hegða. Gefið á Amalíuborg, 18. desember 1897.“ Svo hljóða lög nr. 35 frá 18. desember 1897 um löggilding verzlunarstaðar á Grafamesi við Grundarfjörð. Grundfirðingar halda upp á það á árinu að 100 ár em liðin frá því að verslunarstaðurinn var færður af Grundarkampi út í Grafames þar sem gmnnur var lagður að núverandi byggð í Gmndarfírði. Ekki er um eiginlegt verslunaraf- mæli að ræða því saga verslunar í Gmndarfirði er mun lengri. Heim- ildir em til um það allt frá land- námsöld að verslunarskip hafi komið til Grundarfjarðar, enda var Grundarfjörður talinn ein besta höfn við Breiðafjörð frá náttúrunn- ar hendi. Grundarfjarðarkaupstað- ur var svo einn sex kaupstaða sem stofnaðir voru við afnám versluna- reinokunar með tilskipun Dana- konungs þann 18. ágúst 1786. Hátíðin hefur hlotið nafnið 100 ár í Nesinu og verður margt gert til hátíðarbrigða á árinu. I dag, þann 14. júní verður afhjúpuð önn- ur af tveimur fallbyssum sem fund- ust á Kirkjufellssandi sumarið 1996. Byssurnar eru af frönskum hvalfangara sem steytti á skeri við Melrakkaey á Jónsmessu 1720. Opnað verður handverkshús í hjarta GrundarfjarSar og siglt verður á söguslóðir Eyrbyggju, fram í Eyrarodda með leiðsögn þar um svæðið. Golfklúbburinn Vestarr í Grund- arfirði stendur fyrir sérstöku Jóns- messugolfmóti þann 23. júní og að kvöldi dags verður gengið á Klakk en um miðnæturskeið eiga að fljóta óskasteinar á Klakkstjörn eftir því sem þjóðsagan segir. Aðal- hátíðarhöldin verða helgina 25.-27. júlí. Hefjast þau með tón- leikum kirkjukórs Grundarfjarðar í samkomuhúsinu þar sem kram- búð verður opin alla helgina með samfelldri dagskrá tónlistar, myndlistar o.fl. Að kvöldi 26. júlí verður unglingadansleikur undir j berum himni og konunglegt dansi- ] ball í samkomuhúsinu. Sunnudag- inn 27. júlí verður gengið á Stöðina i og síðan niður í Sandvíkurfjöru þar sem kveiktur verður varðeldur og sungið. Þann 2. ágúst verður gengið 1 þvert yfir Snæfellsnesfjallgarðinn i - frá bláfeldi í Staðarsveit um i Arnardalsskarð til Grundarfjarðar <j - og að göngu lokinni farið í sund i og grillað. 7. september heldur | Hulda Guðrún Geirsdóttir sópran ! einsöngstónleika í Grundarfjarðar- kirkju og 10-12. október verður þar kirkjutónlistarhelgi. Loks verð- ; urhaldiðuppásjálfanafmælisdag- , inn 18. desember. » Lionsklúbbur Stykkishólms á 30. starfsári sínu „Við leggjum lið“ er kjörorð klúbbsins Stykkishólmi - Nú er að ljúka þrí- tugasta starfsári Lionsklúbbs Stykk- ishólms. Starfsemin hefur verið góð í vetur og félagar klúbbsins tekið að sér ýmis verkefni og fjáraflanir. Klúbburinn starfar undir kjörorðinu „Við leggjum lið“ og hefur starfið miðast við það. Starfsárinu lauk um daginn með því að félagar og makar þeirra gerðu sér dagamun. Farið var í skemmti- siglingu með nýjum bát Eyjaferða um Breiðafjarðareyjar. Boðið var upp á veislumat og dansleik um borð og tókst ferðin mjög vel. Klúbburinn hefur í vetur fært Grunnskólanum í Stykkihólmi og Skátafélaginu Hólmveijum peninga- gjafir til styrktar starfi þeirra. Næsta verkefni klúbbsins er að halda uppboð á notuðum munum á Dönskum dögum sem er bæjarhátíð Hólmara og verður 15.-17. ágúst nk. Lionsuppboðin hafa sett skemmtilegan svip á Dönsku dagana sem haldnir hafa verið síðustu þrjú ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.