Morgunblaðið - 14.06.1997, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Básafell hf. með 68,7 milljóna króna tap á reglulegri starfsemi fyrstu fjóra mánuðina
Söluhagnaður eigna
nam 288,7milljónum
Básafí < Arshlutareikningur janúartil apríl 1997 !ll' SAIVIS' 4 mán. ifi <51>v Cx rÆÐA <0- 12 mán.
Rekstrarreikninnur 1997 1996 Breyt.
Rekstrartekjur Miiijónir króna 791,0 2.044,0 ■61,3%
Rekstrargjöld 673,7 1.966,4 ■65,7%
Hagnaður án afskrifta og fjárm.kostn. 117,3 77,6 +51,2%
Fjármagnsgjöld (94,8) (101,4)
Haqnaður/(tap) án áhrifa dótturfél. 220,1 (221,3)
Hagnaður/(tap) ársins 220,1 (230,3)
Efnahagsreikningur 30/4-97 31/12 '96 Breyt.
I Eianir: I Veltufjármunir Milljónir króna Fastafjármunir 1.040,5 4.348,2 836,5 4.362,9 +24,4% ■0,3%
Eignir samtals 5.388,7 5.199,4 +3,6%
I Skuldir on eigiO fód Skammtímaskuldir 1.386,5 1.577,0 ■12,1%
Langtímaskuldir 2.444,5 2.527,4 ■3,3%
Eigið fé 1.540,8 1.078,2 +42,9%
Skuldir og eigið fé samtals 5.388,7 5.199,4 +3,6%
REKSTRARTAP Básafells hf. nam
68.7 milljónum króna fyrstu íjóra
mánuði ársins. Að meðtöldum
288.7 milljóna króna söluhagnaði
nemur hagnaður fyrirtækisins á
tímabilinu hins vegar 220 milljón-
um. Til að bæta rekstur fyrirtækis-
ins hefur verið ákveðið að draga
úr bolfiskvinnslu en auka rækju-
vinnslu og vonast framkvæmda-
stjórinn til að reksturinn verði réttu
megin við núllið á árinu.
Hagnaður fyrir vexti og afskrift-
ir nam 117 milljónum króna, af-
skriftir námu 91 milljón króna og
fjármagnsgjöld umfram fjár-
magnstekjur 91 milljón. Frá ára-
mótum hefur eigið fé aukist um
462,6 milljónir og hefur eiginfjár-
hlutfallið hækkað úr 20,7% í 28,6%.
Þá hafa nettóskuldir, þ.e. skuldir
að frádregnum veltufjármunum,
lækkað um 477 milljónir. Heildar-
skuldir fyrirtækisins nema nú 3,8
milljörðum króna. Veltufjárhlutfall
var 0,53 frá áramótum en hafði
hækkað í 0,75 í lok apríl.
Fjárhagsleg
endurskipulagning
Nú stendur yfir endurskipulagn-
ing á fjárhag Básafells og er hún
vel á veg komin að sögn Arnars
Kristinssonar framkvæmdastjóra.
Er stefnt að því að veltufjárhlutfall-
ið verði komið í 1,5 fyrir lok þessa
árs og að eiginfjárhlutfallið verði
þá 35%.
Til að bæta rekstur fyrirtækisins
hefur verið ákveðið að loka frysti-
húsi þess á ísafirði vegna viðvar-
andi taprekstrar. Hins vegar hefur
verið fjárfest í fuilkominni pökkun-
arstöð fyrir rækjuafurðir og fram-
kvæmdir við frystiklefa eru á loka-
stigi. „Við ætlum okkur að auka
vinnslu á rækju og að störfum
vegna hennar fjölgi enda eru batn-
andi horfur á rækjumörkuðum og
birgðir fara ört minnkandi. Aukn-
ing á úthlutuðum aflaheimildum í
rækju og þorski munu auka mögu-
leika til hráefnisöflunar til vinnsl-
unnar og bæta afkomumöguleika
útgerðarinnar," segir Arnar.
Söluhagnaður vegna
hlutabréfa í SH og TM
Auk fjárfestinga í rækjuvinnsl-
unni var á tímabilinu fjárfest í einu
skipi, Páli Jónssyni GK. Það var
keypt með rækju og síldarkvóta og
ætlunin er að selja það aftur án
aflaheimilda. Hinn mikli söluhagn-
aður félagsins skýrist af sölu á
togaranum Hafrafelli ÍS án kvóta,
sem seldur var í febrúar, og sölu
á hlut félagsins í SH og hlutabréf-
um í Tryggingamiðstöðinni. „Með
þessari eignasölu hafa skuldir fyrir-
tækisins lækkað verulega og er það
nú þegar farið að hafa jákvæð
áhrif með lækkun vaxtagjalda,"
segir Arnar.
Arnar segir að einnig verði gerð-
ar breytingar á útgerðarþætti fyr-
irtækisins. Of snemmt sé að segja
til um til hvaða ráða verði gripið
en ljóst sé að fleiri skip verði seld
og öðrum breytt þannig að þau
henti vinnslu fyrirtækisins betur.
Básafell er nú með sjö skip í rekstri,
þijá frystitogara, einn ísfisktogara
og þijá línubáta.
Samkvæmt áætlun fyrirtækisins
var gert ráð fyrir 80 milljóna króna
hagnaði af reglulegri starfsemi í ár.
Arnar segir ólíklegt að áætlunin
standist vegna nýafstaðins sjö vikna
verkfalls og sé nú verið að endur-
skoða hana. „Við gerum þó ráð fyr-
ir því að vinna upp stóran hluta
veltutapsins með aukningu í rækju-
vinnslunni og eins eru skilyrði okkar
á markaði hagstæðari en búist var
við. Það lítur ekki út fyrir að við
náum áætluðum rekstrarhagnaði en
vonumst til að halda okkur réttu
megin við núllið. Við gerum þó
áfram ráð fyrir 300 milljóna króna
hagnaði vegna sölu á hlutabréfum,
skipum og fasteignum.“
Verkfallið mikill
ódráttur
Arnar segir að nýafstaðið verk-
fall hafi valdið fyrirtækinu miklum
vandræðum og skaða en menn séu
þó staðráðnir í að vinna sig út úr
því. „Heildaráhrif verkfallsins eru
langan tíma að koma fram og hef-
ur það t.d. áhrif á rækjuvinnsluna.
Eftir samningana hefur nætur-
vinnukaup hækkað svo mikið að
fyrirtækið getur ekki borgað svo
hátt kaup og hingað til höfum við
einungis unnið rækjuna í dagvinnu.
Við höfum því óskað eftir viðræðum
við verkalýðsfélagið um þetta atr-
iði,“
í apríl síðastliðnum ákvað stjórn
Básafells að auka hlutafé fyrirtæk-
isins um 250 milljónir króna að
nafnvirði á genginu 3,86 til for-
kaupsréttarhafa. Síðustu viðskipti
með hlutabréf fyrirtækisins á Opna
tilboðsmarkaðnum urðu sl. mið-
vikudag á genginu 3,85.
Amar segir að útboðið hafi
gengið framar vonum og nú hafi
þegar selst hlutabréf fyrir rúmlega
200 milljónir að nafnverði. „Stjórn
fyrirtækisins hefur ákveðið að af-
gangurinn verði innan skamms
settur í almenna sölu hjá Lands-
bréfum á genginu 4,15.
Boðeind
á tímamótum
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
JOHANN Þór Sigurðsson fylgist með starfsmanni Steinsmiðju S.
Helgasonar saga grjót fyrir Bang & Olufsen fyrirtækið.
íslenskt grjót
flutt út
BOÐEIND fagnar 10 ára afmæli
fyrirtækisins um þessar mundir og
heldur formlega upp á það í dag,
laugardag. Fyrirtækið var stofnað
af Bjarna og Gunnari Sigurðssonum
árið 1987 og var allt fram til ársins
1995 til húsa að Austurströnd 12
á Seltjarnarnesi. í ágúst 1995 flutti
fyrirtækið í nýtt húsnæði að Mörk-
inni 6 Reykjavík.
Býður heildarlausnir
í frétt frá fyrirtækinu kemur
fram að í upphafi hafi verið lögð
áhersla á vörur sem tengdust
gagnavinnslu tölva. Helstu söluvör-
ur fyrirtækisins voru á sviði gagna-
geymslu og afritunar og kemur
fram að þær hafa alltaf skipað
mikilvægan sess hjá Boðeind. Með
tímanum bættist við vöruúrval fyr-
irtækisins og í dag býður fyrirtæk-
ið upp á heildarlausnir í tölvumál-
um, segir ennfremur í fréttinni.
Meðal vörumerkja sem Boðeind
býður má nefna More einmenningst-
ölvur, MORE netþjóna, ViewSonic
tölvuskjái, Reflection skjáherma og
hugbúnaðarmæla, Planet netbúnað,
Prolink mótöld, Avision skanna, HP
prentara og margt fleira.
Afmælisveisla
Haldið verður upp á afmælið
laugardaginn 14. júní kl. 14 og eru
allir velkomnir í Mörkina 6 þar sem
dregið verður úr innsendum lausn-
um í afmælisleik Boðeindar, segir
í fréttinni en einnig verða á staðnum
margs konar leiktæki og skemmti-
atriði fyrir börn á öllum aldri ásamt
veitingum.
STEINSMIÐJA S. Helgasonar er
að smíða gólf- og veggflísar úr
íslensku basalti fyrir nýtt húsnæði
stórfyrirtækisins Bang & Olufsen
í Danmörku. Að sögn Jóhanns
Þórs Sigurðsson, tæknifræðings
þjá Steinsmiðju S. Helgasonar, er
um 50 tonn af steinflísum að ræða
og er áætlað að verkinu ljúki í
ágúst næstkomandi.
„Basaltið kemur úr landi
Hrepphóla í Arnessýslu. Við
flytjum það hingað í Kópavoginn
og sögum það í flísar í tölvustýrð-
um sögum og pökkum því á
bretti. Um leið og við fyllum gám
er hann fluttur með skipi til Dan-
merkur þar sem flísarnar eru
settar á bæði gólf og veggi húss
sem Bang & Olufsen er að
byggja.“
Jóhann Þór segir að flutnings-
kostnaðurinn á gijótinu sé tölu-
verður en kaupendurnir hafi ver-
ið tilbúnir til þess að greiða hann
vegna sérstöðu efnisins. „Hér er
um allt öðruvísi gólf- og veggefni
en þeir eiga að venjast en í Dan-
mörku er aðallega notaður
marmari og granít í gólf- og
veggflísar. Þetta er í þriðja skipt-
ið sem við flyljum út íslenskt
gijót en við höfum aldrei flutt
út jafnmikið magn og í þetta
skipti.“
Aðspurður segir Jóhann Þór
að Steinsmiðjan hafi ekki þurft
að leita eftir verkefnum erlendis
heldur hafi í öllum tilvikum verið
leitað til þeirra. „Þrátt fyrir þessi
erlendu verkefni eru flest okkar
verkefni fyrir innanlandsmark-
að. Við smíðum töluvert magn
af legsteinum og sólbekkjum auk
þess að vinna gólf- og veggflísar
bæði úr innlendu og erlendu
grjóti. Vandamálið við íslenskt
gijót er að það er ekki mikið af
smíðahæfu grjóti á íslandi vegna
þess að það er oft svo sprungið
og götótt. Þess vegna höfum við
flutt töluvert inn af hálfunnu
gijóti til fullvinnslu hér frá hin-
um Norðurlöndunum og Ítalíu."
Pizza 67
Opnar
veitinga-
stað í
Malaysíu
PIZZA 67 veitingastaður
verður opnaður í Malaysíu inn-
an skamms. Staðurinn verður
rekinn af malaysískum aðilum
samkvæmt sérleyfi frá Haf-
meyjunni ehf. Samningar hafa
verið undirritaður um að
a.m.k. fjórir slíkir staðir verði
opnaðir í landinu fyrir árslok
1998.
Hafmeyjan ehf. hefur unnið
að vþví undanfarin misseri að
breiða íslenska pizzumenningu
út til annarra landa. Á vegum
fyrirtækisins hafa þegar verið
opnaðir slíkir staðir í Dan-
mörku, Noregi, Tékklandi og
Færeyjum. Markmið fyrirtæk-
isins er að selja sem flestum
veitingastöðum sérleyfí en það
felur m.a. í sér að þeir nota
vörumerki, uppskriftir og við-
urkennt hráefni frá Pizza 67.
Unnið að frekari
útbreiðslu
Opnun staðarins í Malaysíu
er í tengslum við verkefnið
„Útflutningsaukning og hag-
vöxtur“ hjá Útflutningsráði.
Haukur Björnsson, sem hefur
umsjón með verkefninu fyrir
hönd ráðsins, segist telja það
mjög ánægjulegt að nú skuli
íslendingar vera farnir að
selja sérleyfi í útlöndum enda
séu þeir vanari því að vera
hinum megin borðsins. Hann
segir að verið sé að kynna
Pizza 67 í fleiri löndum og að
árangur þess starfs ætti að
koma í ljós innan tíðar.
Morgunblaðið/Amaldur
STARFSMENN Boðeindar fagna afmæli í dag með veislu í húsa-
kynnum sínum. F.v. Baldur Gestsson, Njörður Tómasson, Bjarni
Sigurðsson framkvæmdastjóri, Helga Arnþórsdóttir, Hallgrímur
Jónsson, Þór Clausen og Rúnar Reynisson.