Morgunblaðið - 14.06.1997, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.06.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 23 PENNI sem Kennedy Banda- ríkjaforseti notaði í Kúbudeilunni, sem var metinn á 1000 dollara, en seldist á 27.600 dollara. Á SOFASETTI UH ÁRBÆIN n\m Gn Flestir láta sér nægja að dreyma um að aka Rolls Royce og það hafði ívar Páll Jónsson gert þar til Jón Sigurjónsson leyfði honum að láta drauminn rætast. ANDI algleymis („Spirit of Ecstasy) fer fyrir öllum Rolls Royce-bifreiðum. STÓLAR frá Viktoríutímabilinu, frá því um 1850, sem seldust fyrir 79.500 dollara eða um 5,6 milljónir íslenskra króna. Bandaríkjanna í Rússlandi. Gerðist Pamela bandarískur ríkisborgari og aflaði fjár íyrir demókrata. Áttu þau hjónin stóran þátt í að blása nýju lífi í Demókrataflokkinn á níunda ára- tugnum og stofnuðu þau pólitískt ráð til að safna fé fyrir flokkinn. Veislur Harriman á heimili hennar voru eftirsóttar og fólk var tilbúið að greiða nokkur þúsund dollara til að fá að sitja við hlið þingmanna og for- setaframbjóðenda. Deilur w'ð erfingjanu Averell Harriman lést árið 1986, 94 ára að aldri. Pamela erfði stóran hluta af auðæfum hans og áttu dæt- ur hans og barnabörn að erfa það sem eftir var, að henni liðinni. Árið 1994 sóttu erfíngjar Harrimans hana til saka fyrir að hafa sólundað stórum hluta þeirra auðæfa sem faðir þeirra ánafnaði þeim. Ári síðar náði hún samkomulagi við erfíngj- ana og greiddi þeim um 16 milljón dollara. Hún neyddist til að selja listaverk fyrir 15 milljón dollara, þar á meðal „Móðir og barn“ eftir Picasso, „Portrait of Mademoiselle Demarsy" eftir Renoir og „Bláa hattinn" eftir Matisse. Rismesti kaflinn í lífi Pamelu var þegar hún gegndi sendiherraemb- ættinu í París, en þar nutu glæsi- leiki hennar og skynsemi sín til fulls, blandin viðeigandi eigingirni og óbilgirni. Hún hafði stutt fram- boð Clintons með ráðum og dáð og safnaðist demókrötum meira fé en repúblikönum í fyrsta skipti um árabil og var það að miklu leyti rak- ið til starfa Pamelu Harriman. Clinton sýndi henni þakklæti sitt með því að skipa hana sendiherra í Frakklandi árið 1992. Pamela Churchill Harriman lést af heilablóðfalli í París í febrúar síð- astliðnum 76 ára að aldri en hafði í hyggju að láta af sendiherraemb- ætti í sumar. En hvernig sem allt veltist lét þessi kona ekki deigan síga og var alltaf staðföst í að ná settu marki, en í þeim efnum var hún hvorki hverful né auðunnin. Eríingi að eignum hennar er einka- sonurinn, Winston Churchill, fyrr- verandi þingmaður breska íhalds- flokksins. Morgunblaðið/Golli JÓN Sigurjónsson gullsmiður flutti bílinn, Rolls Royce Silver Shadow Long Wheelbase Saloo'n, til landsins í haust og hefur verið að dytta að honum síðan. Haim hyggst nota hann á nokkuð sérstakan hátt í sumar, bjóða þeim sem kaupa giftingarhring eða morgungjöf hjá Jóni & Óskari afnot af drossíunni yfír brúðkaupsdaginn. „Eg verð að fara að gifta mig,“ er það fyrsta sem mér dettur í hug eftir að hafa sest í bílstjórasætið. Kannski það sé best að slá tvær flugur í einu höggi og svipast um eftir kvonfangi á leiðinni. Nei, það er svo erfitt að hugsa um tvennt í einu. Fyrir mann eins og undirritaðan, sem hefur nánast aðeins ekið japönskum bflum þau sex ár sem hann hefur haft bflpróf, er eins og að keyra sófasett að sitja undir stýri Rolls Royce-bifreiðar. Þetta er alvöru bfll, þéttur væri gott lýsingarorð. Krafturinn er yfirdrifinn, vélin er nærri 7 lítrar og þegar bifreiðin er komin á siglingu er eins og maður fljóti áfram, tfminn stöðvist. Umhverfið hreyfist, maður sjálfur sitji kyrr. Bfllinn er 25 ára, árgerð ‘72 og ekinn ótrúlega lítið, aðeins 22 þúsund mflur. Því er Ijóst að hann hefur staðið kyrr mánuðum og árum saman. „Það er ekki endilega æskilegt að hann standi óhreyfður, það verður að hreyfa hann endrum og sinnum til að „halda honum í formi.“ Eg hef þurft að huga að ýmsum smávægilegum vandamálum sem rekja má til lítillar notkunar," segir Jón. Við svífum um Árbæinn líkt og í draumi. Hraðahindranir eru engar hindranir, bifreiðin lyftist varla. Ekkert hljóð heyrist, nema dauft vegarhijóð. Gamla 8 rása segulbandstækið er á sínum stað og útvarpstækið er milli sætanna. Bfllinn er afar léttur í stýri og lætur fullkomlega að stjórn. Upp í hugann koma fræg ummæli Sir Henry Royce: „The quality will remain long after the price is forgotten" eða „Verðið gleymist en gæðin ekki.“ Hann hafði lög að mæla gamli maðurinn. Dreymalerð ttil Foroyar -fyri mínna en teg hevðí droymt umt Verð frá: NDRRÆNA FERÐASKRIFSTDFAN Laugavegur 3, sfmi: 562 6362 Austfar ehf. Seyðisfirði, sími: 472 I I I I og umboðsmenn. Börn yngri en 3 ára ferðast ókeypis. *Verð á mann I vikuferð miðað við 4 I bíl. Gisting á farfuglaheimili innifalin. Hættu að hugsa um Borneó, Mexíkó eða Ástralíu. Draumaferðin er nær en þig grunar, hún liggur frá Seyðisfirði til Færeyja á bílnum þínum með Norrænu. Þú kemst þangað ódýrt og Færeyjar koma þér skemmtilega á óvart. Skelltu þér til Færeyja, þar bíður „dreymurinn".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.