Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 29

Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAU GARDAGUR 14. JÚNÍ1997 29 )anki ínsson, forstjóri Kaupþings hf. við hefjum sölu á erlendu sjóðunum til þessara aðila mun breytingin í fjárfestingarbanka skila sér í auk- inni sölu. Eignir sjóða okkar í Lúx- emborg eru nú samtals um 3 millj- arðar króna. Það sýnir e.t.v. stefnu fyrirtækisins að í heild sinni eru verðbréfasjóðir okkar nú um 10-11 milljarðar, en þar af er meira en helmingur í erlendum fjárfestingum. Á næstu árum sjáum við fyrir okkur að langtímasparnaður muni vaxa og færast úr hinum hefð- bundna skuldabréfafarvegi, þar sem um 90% eru í íslenskum ríkisskulda- bréfum eða jafngildi þeirra, yfír í miklu breiðari flóru. Þar munu er- lend verðbréf og innlend hlutabréf hafa miklu stærra hlutverki að gegna en áður.“ Kemur lítið við starfsemina innanlands Útgáfa starfsleyfisins kemur mun minna við starfsemina hér innan- lands en erlendis, eins og fyrr segir. Kaupþingi er nú heimilt að veita lán í eigin nafni og afla sér í því sam- bandi ijár með útgáfu og sölu á skuldabréfum til almennings, en engar fyrirætlanir eru hins vegar um slíkt. Þá er félaginu nú til dæm- is kleift að fjármagna hluta verð- bréfakaupa viðskiptavina ótíma- bundið. „Við fjármögnum eingöngu verð- bréfaviðskipti og fáum aukið svig- rúm til þess. Kaupþing hf. verður því eftir sem áður skilgreint sem fyrirtæki í alhliða verðbréfaþjónustu hér innanlands. Eignaraðilar okkar og systurfélög annast langtímafjár- mögnun og það er ekki markmiðið að fara inn á þá braut,“ sagði Bjarni Ármannsson að lokum. Spá frá sjávarútvegsráðuneytinu um fjölda sóknardaga smábáta á næsta ári Heimilt verður að róa 19 daga á næsta fiskveiðiári SAMKVÆMT spá um fjölda sóknardaga krókabáta verður bátum í línu- og handfærakerfi heimilt að róa 19 daga á næsta fískveiðiári. Krókabátar i handfærakerfi fá 32 daga. Þessa miklu fækkun má eink- um rekja til mikils afla þessara báta á yfirstandandi fiskveiðiári. Formað- ur Landsambands smábátaeigenda segir að enn eigi eftir að taka tillit til margra þátta varðandi veiðarnar og telur að skerðingin verði ekki jafn mikil og spáin segir til um. í sjávarútvegsráðuneytinu fást hins- vegar þau svör að fiskveiðistjórnun smábáta á næsta ári verði sam- kvæmt gildandi lögum. Breytingar á lögum um stjórn fiskveiða krókabáta voru gerðar vorið 1996. Höfuðatriði þeirra breyt- inga var að hlutfallstengja fastar heildarþorskaflaheimildir króka- báta, 21.000 tonn, við þágildandi heildarþorskafla, 155.000 tonn. Þorskaflaheimildir krókabáta áttu þannig að fara vaxandi umfram það sem áður var ráðgert, með vaxandi heildarþorskafla. Heimildirnar voru ákveðnar 13,9% af heild í stað fastr- ar tonnatölu áður. Nú er komið í ljós að þetta samkomulag mun hafa í för með sér um 41% hækkun veiði- heimilda krókabáta í þorski á tveim- ur fiskveiðiárum, úr 21.500 tonnum fiskveiðiárið 1995-6, í 30.302 tonn fiskveiðiárið 1997-8. Hlutdeild einstakra krókabáta í heildarþorskafla þeirra er byggð á veiðireynslu þeirra tvö bestu árin af þremur, almanaksárin 1992, 1993 og 1994. Eigendum krókabáta gafst fyrir upphaf yfirstandandi fiskveiðiárs kostur á að velja þá hlut- deild sem einstaklingsbundið þorsk- aflahámark og njóta frelsis í veiðum á öðrum tegundum. Ennfremur var heimilt að leggja veiðireynsluna í sameiginlegan pott í öðrum af tveimur aðgreindum hópum króka- báta á dagatakmörkunum. Val krókabáta á veiðikerfum þróaðist þannig að meirihluti bátanna, með um 82% af veiðireynslunni, valdi þorskaflahámark. I sóknardags- hópnum eru veiðiheimildir á hvem bát mun minni að meðaltali, eða innan við 10 lestir á bát í upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs. Krókabátar í sóknardagakerfinu fengu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár úthlutað 84 sóknardögum, miðað við veiðar með handfærum. Á tímbilinu 1. maí til 1. september reiknast sóknardagurinn sem 1,9 sóknardag- ar sé róið með línu, en sem 1,35 sóknardagar á tímabilinu 1. septem- ber til 1. maí. Fjöldi sóknardaga á næsta fiskveiðiári ræðst síðan af heildarafla hvors hóp fyrir sig á yfirstandandi fiskveiðiári og leyfi- legum heildarþorskafla á næsta fisk- veiðiári. Margir sem ekki hafa nýtt dagana Krókabátar í línu- og handfæra- kerfinu hafa nýtt 30,3% af sóknar- dögum þessa fiskveið- ------------ iárs, eða 4.711 daga af 15.540 dögum alls. Þorskafli þeirra hefur hinsvegar farið 214% umfram þann þorskafla sem þeim er ætlaður. Handfærabát- ar hafa nýtt 17,1% sóknardaganna, 4.177 daga af samtals 24.444 dög- um, en farið 22% fram yfir viðmiðun. Mjög misjafnt er hve marga daga einstakir bátar hafa nýtt. Af þeim 169 línu- og handfærabátum sem hafa veiðileyfi, höfðu 25 bátar ekki farið til veiða 27. maí sl. Af 277 handfærabátum höfðu 49 ekki enn farið til veiða. Línu- og handfærabátum í sóknardagakerfí verður heimilt að róa 19 daga á næsta fískveiðiári, gangí eftir spá sjávarútvegs- ráðuneytisins um fjölda sóknardaga. Helgi Mar Arnason skoðaði spána og ræddi við menn um framhald málsins. Sóknardagabátar Línu- og handfæra- bátar Handfæra- bátar Fjöldi báta 1. sep. '96 - | J 185 291 Fjöldi báta 27. maí '97 169 277 Þorskaflaheimild 96/97 1.836 2.554 Þorskafli frá 1. sep. '96 til 27. maí '97 5.767 3.117 Þorskafli sem hlutfall af þorskaflaheimild 314% 122% Spá um fjölda sóknardaga fiskveiðiárið 1997/1998 Línu- og handfæra- bátar Handfæra- bátar Fjöldi báta 27. maí'97 169 277 Þorskaflaheimild 96/97 1.836 2.554 Þorskaflaspá 96/97 10.321 8.317 Þorskaflaheimild 97/98 2.158 3.002 Fjöldi sóknardaga á fiskveiðiárinu 97/98 19 32 Þorskaflahámark Fjöldi báta 1. sep. '96 ^ M 533 Fjöldi báta 27. maí'97 f? 413 Þorskaflahámark 96/97 |K f 20.964 Þorskaflahámark hver bátur, meðalt. 96/97X\ ' * . 7 39 Þorskaflahámark 97/98 24.642 Þorskaflahámark hver bátur, meðalt. 96/97 60 MJÖG er misjafnt hversu marga sóknardaga einstakir bátar hafa nýtt. Afli mun meiri en allir bjuggust við í spá um fjölda sóknardaga á næsta fiskveiðiári, sem gerð er af sjávarútvegráðuneytinu, miðað við að fjöldi báta í hvoru veiðikerfi verði sá sem hann er í dag. Áætlaður þorskafli fyrir tímabilið 28. maí til 31. ágúst á þessu ári er fenginn með því að reikna aukningu þorsk- afla þeirra báta sem hafa veiðileyfi 27. maí 1997, milli tímabilsins 1. september 1995 til 27 maí 1996 og tímabilsins 1. september 1996 til 27. maí 1997. Reiknað er með að afli bátanna aukist jafn mikið milli ________ tímabilsins 28. maí 1996 til 31. ágúst 1996 og tímabilsins 28. maí 1997 til 31. ágúst 1997. Þorskafli línu- og handfærabátanna 169 hefur aukist um 75,6% milli fiskveiði- ára en þorskafli handfærabáta hefur aukist um 53,3% milli fískveiðiára, séu borið saman tímabilin 1. septem- ber 1995 til 27. maí 1996 og 1. sept- ember 1996 til 27. maí 1997. Fáir hafa úrelt Það þykir því ljóst að við blasir verulega fækkun veiðidaga hjá sóknardagabátum á næsta fiskveiði- ári. Spáin er reyndar í samræmi við eldri spár um þróunina í sóknar- dagakerfinu og með hliðsjón af þeim var lögum um Þróunarsjóð sjávarút- vegsins breytt þannig að tilboð um úreldingu var framlengt til 1. júlí nk. Er það gert til að koma til móts við þann fjárhagsvanda sem blasir við mörgum eigendum sóknardaga- báta vegna fækkunar veiðidaga. Samkvæmt tilboðinu eru greidd 80% af markaðsverði báts gegn afsali leyfis til veiða í atvinnuskyni og afsali endurnýjunarréttar, en eig- endur halda bátum sín- _________ um til annarra nota. Nú hafa 9 línu- og hand- færabátar og 13 hand- færabátar verið úreltir með styrk frá Þróun- arsjóði. Vegna endumýjunar króka- báta hafa komið inn 2 nýir línu- og handfærabátar og 4 nýir handfæra- bátar, en 9 línu- og handfærabátar og 5 handfærabátar hafa afsalað sér krókaleyfi á móti. Menn hafa ekki aðra atvinnu Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að ekki hafi verið gengið end- anlega frá málinu í viðræðum við sjávarútvegsráðuneytið á sínum tíma. Ekki hafi náðst að setja ákveðinn lámarksfjölda sóknardaga svo öllum yrðu tryggð viðunandi starfsskilyrði. Hann segir að ennþá ' sé margt sem ekki hafi verið tekið tillit til í umræðunni. „Það var gengið út frá því í ráðuneytinu á sínum tíma að bátum myndi fækka um nokkur hundruð og þannig rýmkast um fyrir þá sem eftir yrðu. Enginn gerði hinsvegar ráð fyrir að afli yrði jafn óhemju mikill og hann hefur verið á þessu ári. Bátum hefur ekki fækkað meðal annars vegna þess að menn áttuðu sig á því að þegar þeir ætluðu að úrelda var enga atvinnu að fá í þjóðfélag- inu. Spá stjórnvalda um aukna at- vinnu hefur ekki gengið eftir, at- vinnuleysi er ennþá yfir 4%. Um leið og menn úrelda og þiggja greiðslur frá Þróunarsjóði fyrir veiðiréttinn, þá eru þeir búnir að afsala sér atvinnunni. Þess vegna hafa menn verið hikandi, því þó menn hafi ekki atvinnu af því að róa 19 daga á ári, hafa þeir heldur ekki efni á að afsala sér atvinn- unni,“ segir Örn. Umhverfisvænar veiðar Örn segir umræðu um umhverfis- vænar veiðar aldrei verið jafn mikla '•i og nú. Það skjóti því skökku við að fækka þeim bátum sem stundi hvað mest vistvænar veiðar. „Þegar greinileg aukning er í þorskveiðum teljum við að skapast ætti svigrúm í lögum á þann hátt að þessum bát- um sé tryggður lámarksfjöldi daga. Það má líta á það hvað þessi veiði- skapur er mun vistvænni en til dæm- is botntroll. Trollið veiðir mun meira heldur er nokkumtímann er landað. Öllu því sem krókabátar veiða er landað. Ennfremur er ekkert brott- kast á fiski, kerfið er þannig. Það er umtalað að tugum þúsunda tonna af þorski sé hent í öðrum kerfum,“ segir Örn. Órn segist reikna með að teknar verði upp viðræður við sjávarútvegs- ráðuneytið um þessi rriál síðla sum- ars. Hækkun heildarveiði- heimilda útilokuð Ari Edwald, aðstoðarmaður sjáv- arútvegsráðherra, leggur áherslu á að hér sé aðeins um spá að ræða. Endanlega tala liggi ekki fyrir fyrr en að afloknu þessu fiskveiðiári. „Það blasir hinsvegar við að gild- andi stjórnun krókabáta mun fara eftir lögum. Ef tryggja ætti króka- bátum á sóknardögum 60 daga, með því að hækka veiðiheimildina til þeirra, höfum við reiknað út hluL' deild krókabáta í þorskafla þyrfti að hækka úr 13,9% í 30%. Það blas- ir því ekki við að það sé gerlegt að útvega öllum sem hafa fjárfest í krókabát nægilegar veiðiheimildir. Það lá fyrir þegar samkomulag var __________ gert um framtíð þessara mála. Miðað við þær umræður sem fóru fram um þessi mál síðasta vor á Alþingi tel ég að útlok- að sé að heildarveiði- verði hækkuð. Þessi hlut- Lítið verið úrelt af krókabátum heimild fallstenging hefur fært krókabáturi? 41% hærri aflaheimild á tveimur árum. Það hefur alltaf legið fyrir að fjárfesting í krókabátum á und- anfömum árum á sér ekki rekstrar- grundvöll og menn verða að horfast í augu við það. Alþingi er að þvf fyrir sitt leyti með því að fram- lengja umsóknarfresti um úrelding-^ arstyrk," segir Ari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.