Morgunblaðið - 14.06.1997, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.06.1997, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ því er, hvort hún er úti, eða sjálf- sagt er það bara tekið inn á dælu og út, en ég varð alla vega ekki var við neinn leka inní vélarrúm frá því. KG: Hafði nokkuð verið dælt úr þessu stafnhylki síðustu daga? HRG: Nei, ég hef ekkert átt við það.“ Þarna kemur berlega fram að þekking vélstjóra á búnaði skipsins í þessari síðustu veiðiferð þess verður að teljast langt frá því að vera viðunandi. Þarna er auðvitað kannski hvað helst við útgerð skipsins að sakast að ráða ekki reynda menn. Enda hafði skipinu iðulega verið róið í mun verri veð- rum en-var þennan dag. Aðdróttanir og dylgjur Guðmundar eru slíkar, segir Rúnar Garðarsson, að undir þeim verður ekki setið. Það er alrangt hjá Guðmundi að ég hafi ekki tíundað kosti og galla skipsins við þá sem tóku við því af mér. Það sem gerist er það að skipt er um alla áhöfn skipsins einhveijum vikum fyrir slysið, Iöngu eftir að ég hætti þar um borð. Hin nýja áhöfn samanstóð að stórum hluta af óvönum mönn- um sem lítt eða ekkert þekktu til skipsins. Það væri nær fyrir Guð- mund að grafa upp hversvegna skipt var um áhöfn og reynslunni kastað á glæ heldur en að vera að fúkyrðast við mig. Mér er þó kunnugt um að Róbert vélstjóri hafði lagt ríka áherslu á mikilvægi þess við Hjört Rúnar að hafa oiíu í framtönkum skipsins og gæta sérlega vel að því að dæla í stafn- hylki ef einhverra hluta vegna þyrfti að brenna olíu af framtönk- unum, sem og að nota stafnhylkið til að „trimma" skipið af eftir þörf- um. í grein Guðmundar koma fram mjög alvarlegar aðdróttanir í minn garð þar sem hann dylgjar með það að mér hafi verið sama þó öll áhöfnin hefði farist þarna og vill fá að vita hvaða hvatir liggi að baki hjá mér. Við lestur sem þenn- an verður manni orðs vant lengi á eftir. Þetta eru slíkar aðdróttanir og dylgjur að undir þeim verður ekki setið og er langur vegur þar frá að ég hafí sagt mitt síðasta orð vegna þessa. Það eru mér mikil vonbrigði að Morgunblaðið skuli birta slíkan óhróður. En það get ég sagt Guðmundi að mér er ekki sama um það hvort fólk ferst eða yfir höfuð lendir í slysum eða sköð- um. Þar gildir einu hvort fólk er ungt eða gamalt, frá fjölmennum stöðum eða fámennum. Ég get líka sagt Guðmundi að ég hef aldrei skorast undan því að mæta hjá viðkomandi stofnunum eða yfirvöldum sem fara með rann- sókn sjóslysa. En einhverra ,'hluta vegna hafa viðkomandi yfirvöld ekki séð ástæðu til þess að leita til mín eða Róberts fyrrum yfírvél- stjóra vegna þessa máls. Hvað svo sem ræður því. Að lokum skil ég ekki alveg fullkomlega hvað snjóflóðið á Flateyri árinu áður kemur þessu máli við, mér virðist svona við fyrstu sýn að þetta séu tvö al- gjörlega aðskilin mál. Það hefði eins verið hægt að draga ill örlög refabænda í landinu inn í málið. í fyrirsögn greinar sinnar spyr Guðmundur hvort menn geti sagt hvað sem er. Því miður Guðmund- ur eftir lestur þessara ritsmíða þinna sýnist mér að menn séu þegar farnir að segja hvað sem er. Þú ættir að hafa það í huga næst þegar þú steðjar fram ritvöll- inn. Höfundur er fv. skipstjóri Æsu ÍS 84 frá Flateyri. _________________________LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 33 SKOÐUIM FRÁ LEIKHÚSITIL VEITINGAHÚSS INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgar- stjóri, er iðin við að skreyta sig með fjöðr- um annarra. Það er kannski eðlilegt, ann- ars yrði pólitísk nekt hennar öllum ljós. Nú síðast ritar hún grein í Mbl. sl. miðvikudag 4. júní og reynir að eigna sér endurreisn Iðnó. Það er ijarri öllu sanni, - það veit hún einnig manna bezt. Þegar Borgarleik- húsið var tekið í notk- un haustið 1989, fór Leikfélag Reykjavíkur úr Iðnó. Þáverandi eigandi, Alþýðu- húsfélag Reykjavíkur h/f, reyndi í framhaldi af því að selja húsið. Ýmsar hugmyndir voru settar fram um framtíðarhlutverk þess. Þó gerðist ekkert fyrr en í marz-apríl 1992. Þá yfirtóku Verkamannafé- lagið Dagsbrún, Verkakvennafélag- ið Framsókn og Sjómannafélag Reykjavíkur Iðnó, og gerðu svo samkomulag við Reykjavíkurborg um að endurbyggja þetta gamla hús. Þau, sem þar komu aðallega við sögu, voru: Guðmundur J. Guð- mundsson, form. Dagsbrúnar, Guð- mundur Hallvarðsson, form. Sjó- mannafélags Reykjavíkur, Guðrún Alfreðsdóttir, form. Félags ísl. leik- ara, Óttar Yngvason hrl., form. Alþýðuhúsfélags Reykjavíkur h/f, Sigurður Rúnar Magnússon, stjóm- armaður í Dagsbrún, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi og Markús Örn Antonsson, borgar- stjóri. Þá kom ég einnig að þessu máli. Endurbygging Iðnó var eina samþykktin, sem gerð var í borgar- stjórn á vígsludegi Ráðhússins 14. apríl 1992. I endurbyggingamefnd Iðnó voru skipaðir Hjörleifur Kvaran, núv. borgarlögmaður, af hálfu borgar- stjóra. Guðmundur J. Guðmunds- son, þáv. formaður Dagsbrúnar, var fulltrúi eigenda, en ég var tilnefnd- ur af beggja hálfu sem formaður. Arkitekt hússins var Ingimundur Sveinsson, en Þorsteinn Gunnars- son, arkitekt og leikari, var sérlegur ráðunautur um endurbygginguna. Fundur var haldinn með Félagi ís- lenzkra leikara og tillögur kynntar og komu þar fram margar ágætar ábendingar, sem tekið var tillit til. Af hálfu borgarinnar sá bygging- ardeild hennar um framkvæmdir, fyrst undir stjóm Magnúsar Sædals Svavarssonar, núv. byggingarfull- trúa, en síðar undir forustu Guð- mundar Pálma Kristinssonar, núv. forstöðumanns byggingardeildar. ístak h/f sá um verklegar fram- kvæmdir, fyrst skv. útboði. Aldrei varð ágreiningur í nefndinni um framkvæmdir og aldrei varð ágrein- ingur við borgaryfirvöld, og aldrei við borgarstjóra, hvorki Markús Öm Antonsson, Árna Sigfússon né Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. All- ar framkvæmdir voru unnar í sam- ráði við húsafriðunarnefnd og með samþykki hennar. Einu sinni varð smá ágreiningur um það, hvort gluggar í húsinu ættu að vera með einföldu eða tvöföldu gleri. Sá ágreiningur leystist farsællega, svo að báðir gátu vel við unað. Er tvö- falt gler í gluggum hússins nema í átta gluggum á norðurhlið þess. Árbæjarsafni var að sjálfsögðu gerð grein fyrir því, hvað stæði fyrir dymm. Safnið gat lítið sinnt eftirliti, en byggingarsaga hússins var skráð eins og hægt var, eftir því sem hún kom í ljós. M.a. fannst þarna gamalt kröfuspjald, líklega frá þingrofinu, þar sem segir: Niður með konungsvaldið! Hið dökka gler Rétt er að taka fram, að full samstaða var um glerskálann fræga. Húsafriðunar- nefnd samþykkti hann, og það vora engar at- hugasemdir gerðar, hvorki í byggingar- nefnd né borgarráði, en þar sátu þá Guðrún Ágústsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir. Það er rétt hjá borg- arstjóra, að glerið varð dekkra en arkitekt og nefndin hafði viljað. Þegar ég sá hið dökka gler, hafði ég strax samband við borgarstjóra, sem þá var orðin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og var það skoðun hennar, að ekki væri nein ástæða til þess að ijúka upp til handa og fóta. Réttara væri að bíða og sjá til. Skildi ég og nefndin öll hana svo, að rétt væri að láta glerskálann standa, þar til endurbyggingu húss- ins yrði lokið. Var það líka skyn- samlegt, því að þá fyrst var hægt að meta, hvort skipta þyrfti um gler, en allir vora þá sammála um nauðsyn hans og framtíðamot. Nú er búið að rífa brott glerskál- ann. Ástæðap fyrir byggingu hans var einföld. Á suðurhlið hússins eru þrír langir bogagluggar og era neðri hlutar þeirra jafnframt opnanlegir. Nauðsynlegt er að hafa þessa glugga opnanlega vegna brana- vama. Nauðsynlegt var að hljóðein- angra þennan hluta hússins vel, til þess að gera húsið betra til þess að flytja leik og hljómlist. Meginástæð- umar fyrir tvöföldu gleri í gluggum vora m.a. betri hljóðeinangran. Þá era þessir stóra gluggar viðkvæmir fyrir hnjaski, ekki sízt, ef einfalt þunnt rúðugler er haft í þeim, eins og húsafriðunamefnd vildi, og hægt var vegna glerhússins. Nú verður það ekki hægt. Og síðast en ekki sízt þarf að veija þá fyrir votvið- risáttunum. Er rétt að benda á, að árið 1930 var byggður steinkum- baldi við Iðnó, sem hýsti fatageymsl- ur og miðasölu. Það var gert vegna þess, að pláss vantaði til þess að hljóðeinangra, og til þess að veijast land- og útsynningnum. Sú bygging var ekki rifin fyrr en 1993. Þeir menn era komnir á áttræðisaldur, sem muna Iðnó með gömlu gluggun- um sínum, eins og það lítur út núna. En jafnframt þessu höfðu menn í huga, að hægt yrði að njóta útsýn- isins við Tjörnina frá Iðnó, og var hugmyndin sú, að glerskálinn yrði notaður sem veitingaskáli í tengsl- um við útiveitingar, eins og hjá Cafe París, og eins var hægt að nota hann í tengslum við aðalsal Iðnó, bæði til þess að stækka aðal- sal og nota í hléum. Ég er þeirrar skoðunar, að það hafi verið mikil mistök að rífa glerskálann. Það mun sýna sig, að hans var vissulega þörf. Og hann verður endurreistur í einhverri mynd. En með misjöfnu móti tjá menn skapferli sitt. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir hefur látið rífa niður mynd af síra Bjarna Jóns- syni í Ráðhúsinu og mynd af Bjama Benediktssyni úr Höfða. Hví skyldi lítill glerskáli standast ofsa hennar? Nýting hússins alltaf ljós Ingibjörg Sólrún Gísladóttir seg- ir, að aldrei „hafi verið gerðar nein- Ég tók menningarhlut- verk hússins fram yfír veitingahlutverk þess, segir Haraldur Blön- dal. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er á önd- verðri skoðun. ar áætlanir um nýtingu hússins í tíð fyrrverandi meirihluta.“ Þetta er rangt og það veit borgarstjóri vel. Það hefur frá upphafi verið ljóst, til hvers átti að nota húsið. Húsið var á sínum tíma reist sem samkomuhús. Svonefndum Kúlissu- sjóði var eytt í húsið, og því má segja, að kvöð sé á húsinu, að þar sé leikhús. Það var alltaf ætlun þeirra, sem stóðu að samkomulag- inu frá 14. apríl 1992, að húsið yrði endurgert til þess að nota það sem samkomuhús. Mér sýnist, að „nýjar hugmyndir“ borgarstjóra séu nákvæmlega þær sömu og nefndar- innar, að öðru leyti en því, að borg- arstjóri ætlar veitingastarfsemi meiri hlut en skynsamlegt er. Borgarstjóri veit, að Bandalag íslenzkra listamanna sendi ítarlegar og skynsamlegar tillögur um not hússins, og þessar tillögur voru vit- anlega hafðar til hliðsjónar. Borgar- stjóri veit einnig, að þegar hús er byggt eða endurbyggt, er það ævin- lega gert með hliðsjón af væntan- legu hlutverki þess. Ég útskýrði fyrir borgarstjóra þessar hugmynd- ir á eina fundinum, sem ég átti með henni um málefni Iðnó. Þar sagði ég, að nefndin væri þeirrar skoðunar, að húsið myndi fyrst og fremst verða leikhús, ekki sízt vegna sögu þess. En húsið væri einnig vel fallið til tónleikahalds og bókmenntaviðburða. Þar mætti halda smærri fundi og aðrar slíkar samkomur, jafnvel árshátíðir og dansleiki. Hins vegar var nefndin þeirrar skoðunar, að daglegur veit- ingarekstur færi illa saman við þetta hlutverk hússins. Leiðir það m.a. af því, að lítil verkrými era í húsinu til annars en að „þjóna lista- gyðjunni". Ef setja á veitingaeldhús í húsið, kemur það niður á annarri starfsemi í húsinu. Ég tók menning- arhlutverk hússins fram yfir veit- ingahlutverk þess. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er á öndverðri skoðun. Ég tel, að auðvelt hefði verið að nýta húsið með því að leigja það út til einstakra viðburða, og slík starfsemi er ekki mannfrek. Ég hefi aldrei haft áhyggur af því, að eftirspumin yrði ekki nóg. Endurbygging ætíð dýr Menn vissu, að Iðnó var ekki í góðu ásigkomulagi, en ástand húss- ins reyndist mun verra en ætlað var. Húsið var í verra en fokheldu ástandi, enda lítið verið haldið við, m.a. höfðu raflagnir aldrei verið jarðtengdar. Mun ódýrara hefði verið að rífa það og byggja það upp frá granni. Borgarstjóri býsnast nokkuð yfir því, að „kostnaðaráætlun" frá 1992 hafí hljóðað upp á 107 millj. kr. en hafi hækkað án skýringa í 184 millj. kr. árið 1994. Það er marg- búið að gefa skýringar á þessu. Jafnframt er rétt að taka enn einu sinni fram, að þegar hugmyndir nefndarinnar vora kynntar í borgar- ráði 1992, tók ég sérstaklega fram, að hér væri ekki um áætlun að Haraldur Blöndal ræða, heldur lauslega kostnaðar- hugmynd. Útilokað væri að segja til um endanlegan kostnað fyrr en búið væri að sjá raunveralegt ástand hússins. Þetta veit Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ákaflega vel. Hún veit líka, að starfsmenn byggingar- deildar, sem gerðu áætlanirnar, eru samvizkusamir og hafa engan áhuga á að ljúga til um tölur. Staðreyndin er nefnilega sú, að þegar verið er að gera upp gömul hús, er fjarska erfitt að segja til um, hvaða viðgerðir þarf að gera. Það er dýrt að gera upp gömul hús. Það sanna þau dæmi, sem þekkt era: Viðgerðin á Bessastöð- um, viðgerðin á Ráðherrabústaðn- um, viðgerðin á Þjóðleikhúsinu og endurbyggingin í Viðey. Reykjavík- urborg hefur ætíð hingað til staðið myndarlega að því, þegar hún end- urgerir hús, en ekki klastrað saman hlutunum, eins og nú er ætlunin að gera. Nefndin hafði fyrirmæli um að koma húsinu í það horf, sem næst var hinu upphaflega. Húsa- friðunarnefnd lagði á það áherzlu, að reynt yrði að nýta sem mest þá fornu viði, sem voru í húsinu og laga frekar en láta nýtt koma fyrir gamalt. Eitt af því, sem ákveðið var að gera, var að færa stiga hússins á upphaflegan stað og láta inngang hússins vera frá norðurhlið húss- ins. Þar átti síðan að vera miða- sala og fatahengi. Ákveðið var, að gólf aðalsalar yrði lyftanlegt að hluta, svo að salurinn nýttist betur til leiksýninga. Þá var ákveðið að setja lyftu fremst við sviðið til þess að auðveldara væri að nota kjallara undir sviðinu sem geymslu, en búningsaðstöðu leikara átti að færa upp á loft. Gert var ráð fyrir brunakerfi í húsinu. Gert var ráð fyrir fullkomnum sviðs- og ljósa- búnaði með hljóðkerfi. Allt er þetta dýrt, en allt nauðsynlegt. Gert var ráð fyrir að mála sali hússins sem næst því, sem þeir voru upphaf- lega. Slík vinna er nostursvinna og dýrari en þegar farið er með rúllu og vatnsmálningu á steyptan vegg. Mér skilst, að hætt verði við flest af þessu. Fyrir bragðið verður húsið verr fallið til menningarstarf- semi. í staðinn verður veitt fé í veitingaaðstöðu. Búið er að snúa öllum tillögum nefndarinnar við til þess að fella hlutverk hússins að veitingarekstri, og jafnframt hefur verið ákveðið að kosta eins litlu til endurbótanna og hægt er, nema í þóknanir til nýs arkitekts og laun handa formanni nefndarinnar. Gamla nefndin tók ekki þóknun fyrir störf sín. Skrítnar afmælisgjafir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, þoldi ekki, að sjálf- stæðismaður skipaði formannssæti í endurbyggingamefnd Iðnó. Hún hefur marglýst því yfir, að hún hafi ekkert haft að athuga við störf mín eða byggingarnefndarinnar. Hún hefur jafnframt lýst því yfir, að hún hafi neitað að tala við nefnd- ina S formannstíð minni, þótt óskað væri eftir, þar sem hún sá ekki ástæðu til þess. Hún hafði hins vegar aldrei kjark til að óska eftir því við mig, að ég léti af störfum. Hún spurði mig á þessum eina fundi okkar, hvernig við gætum unnið saman. Ég sagði henni, að ég hefði ekki áhyggjur af því. Felldi hún þá talið. Ég veit, að hún margreyndi að fá Guðmund J. Guðmundsson til þess að samþykkja að setja mig út. Þegar því var hafnað, kom hún því til leiðar, að Guðmundi var sparkað úr nefndinni. Það var hennar sjö- tugsafmælisgjöf til hans. Afleiðing- in af pólitísku ofstæki hennar er, að vinna við endurbyggingu Iðnó stöðvaðist í nærri þrjú ár. Nú hefur hún vaknað upp við vondan draum á hundrað ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur, en hún hljóp í fússi út úr afmælisveizlunni, og reynir að bjarga sér með því að gera Iðnó að veitingahúsi. Verði henni að góðu. Höfundur varformaður endiurbyggingarnefndar Iðnó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.