Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 35 JAKOBINA GUÐRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR + Jakobína Guð- ríður Jakobs- dóttir fæddist í Vík í Mýrdal 8. ágúst 1910. Hún lést í Fjórðungssjúkra- húsinu á Isafirði 4. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jakob Björnsson trésmið- ur, f. 14. ágúst 1864, drukknaði 26. maí 1910, og Guðríður Pétursdóttir, f. 14. júní 1863, d. 12. nóvember 1923. Þau hjónin bjuggu í Vík í Mýr- dal og eignuðust alls tíu börn sem öll eru látin. Elstur var Björn, f. 1893, sjómaður í Vest- mannaeyjum, Eyjólfur Þórar- inn, f. 1895, dó í bernsku, Sæ- mundur, f. 1896, drukknaði 1920, Pétur bóndi á Rauðhálsi í Mýrdal, f. 1897, Eyjólfur Þór- arinn, smiður i Reykjavík, f. 1899, Kári, f. 1901, drukknaði ásamt Sæmundi bróður sínum 1920, Magnús Þorbergur, smið- ur í Vestmannaeyjum, f. 1903, Halldóra, f. 1905, dó í frum- bemsku, og Ólöf Guðfinna, saumakona í Reykjavík, f. 1908, d. 1995. Hinn 16. júní 1934 giftist Jakobína Sigursteini Þorsteini, f. 9. október 1901, d. 5. janúar 1988. Foreldar hans vora Þor- steinn Jónsson f. 15. október 1868 d. 29. september 1948, og kona hans Sigríður Jónsdóttir, f. 16. febrúar 1878, d. 4. desem- ber 1911. Þau bjuggu á Búr- felli í Hálsasveit allt til ársins 1973, þegar þau fluttu til Flat- eyrar þar sem þau bjuggu til æviloka. Jakobina og Sigursteinn eignuðust þijú börn. Þau era: 1) Sigríður, f. 3. mars 1936, umboðsmaður á Flateyri, eklq'a Jóns Trausta Siguijónssonar sjómanns og verslunarstjóra. Þeirra böra eru: I. Reynir, blaðamaður á DV, f. 18. nóvem- ber 1953, kona hans er Hall- dóra Jónsdóttir og eiga þau fimm börn, sem eru: Róbert, sjómaður, f. 26. júlí 1974; Hrefna Sig- ríður, f. 27. septem- ber 1977, hennar sambýlismaður er Þórður Ólason; Jón Trausti, f. 11. apríl 1980, nemi; Símon Örn, f. 4. apríl 1988; Harpa Mjöll, f. 31. október 1996. II. Halldór, vél- stjóri, f. 6. septem- ber 1959. III. Björn Jakob, f. 22. febr- úar 1961, d. 25. maí 1961. IV. Þor- steinn, starfsmaður á Hjól- barðaverkstæði ísafjarðar, f. 18. júní 1962, sambýliskona hans er Jóna Símonía Bjaraa- dóttir sagnfræðingur. V. Þórir, nemi og sjómaður, f. 2. desem- ber 1977. 2) Ólöf Guðríður, f. 29. mars 1939, húsmóðir á Akranesi. Maður hennar er Sig- urður Magnússon bílsljóri. Böra þeirra era I. Jón rafvirki, f. 11. maí 1957, sambýliskona hans er Brynhildur Magnús- dóttir jarðfræðingur; II. Jakob Sævar, bílstjóri f. 4. október 1968; III. Magnús Hersteinn, málmiðnaðarmaður, f. 1. sept- ember 1970. Eiginkona hans er Aðalheiður Anna Einarsdóttir. 3) Þorsteinn, bóndi á Búrfelli, f. 18. september 1950, kvæntur Kolfinnu Þórarinsdóttur. Þau eiga fimm böra sem eru: I. Sig- ursteinn, f. 24. mars 1973; II. Þórunn Sigríður, f. 24. mars 1973, sambýlismaður hennar er Baldur Reynir Hauksson sjó- maður og eiga þau tvö böra, Kolfinnu Jónu, f. 15. ágúst 1993, og Atla Reyni, f. 12. febr- úar 1996; III. Lára Guðbjörg, f. 16. júní 1975, hún á eitt barn, Særúnu Ösp, f. 13. febrúar 1994; IV. Guðni Már, verkamað- ur, f. 3. júní 1979, sambýliskona hans er Kolbrún Ósk Pálsdótt- ir; V. Jóhanna Kristín, f. 9. febr- úar 1983. Utför Jakobínu fer fram frá Reykholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þeir eru fáir sem búa yfir sama glaðlyndi og góðmennsku og ein- kenndi Jakobínu Guðríði Jakobs- dóttur. Það er engum orðum aukið þó sagt sé að hún hafi ekki lagt illt til nokkurs manns. Hún eignað- ist á lífsleiðinni trausta vini hvort sem var vestur á Flateyri, þar sem hún bjó síðustu 23 ár ævi sinnar, eða í Borgarfirðinum þar sem hún eyddi stærstum hluta ævinnar ásamt eiginmanni sínum, Sigur- steini bónda á Búrfelli. Þau bjuggu að Búrfelli í Hálsaveit allt frá 1934 og fram yfir 1970 eða hátt í 40 ár. Búskapur þeirra var farsæll þó ekki safnaðist þeim auður. Það var regla á öllum hlutum og þess ætíð gætt að fjármálin færu ekki úr skorðum. Bruðl var óþekkt á heimilinu og lif- að var af því sem landið gaf. Þau voru ólík um margt hjónin. hún var glaðlynd, kvik og félagslynd. Bóndi hennar var ekki eins mannblendinn og ekki allra. Hún var aftur á móti jarðbundnari og minna fyrir heim- spekilegar vangaveltur sem áttu á tíðum hug bóndans á Búrfelli. Bæði voru þau þó samstiga í því að halda búinu gangandi og til þess að svo mætti verða var lögð nótt við dag ef því var að skipta. Hún Jakobína á Búrfelli fór í sína síðustu ferð í sveitina sem henni var svo kær fyrir nokkrum vikum. Hún beinlínis geislaði af gleði þegar hún undir ferðalok lýsti stundunum sem hún átti í sveitinni sinni þar sem útsýnið minnti helst á málverk. Strútur og Eiríksjökull mynda sam- an heild sem flest slær út í ís- lenskri náttúrufegurð. Þarna hafði Jakobína átt sín bestu ár við bú- skap ásamt manni sínum. Hún fæddist í Vík í Mýrdal og þangað leitaði hugurinn oft og hún sagði gjarnan sögur frá uppvaxtar- árum sínum. Hún var yngst systk- inanna tíu og henni auðnaðist aldr- ei að kynnast föður sínum, Jakobi trésmið, sem fórst í lendingunni í Vík meðan hún var enn í móður- kviði. Sjórinn tók einnig tvo bræður hennar, Kára og Sæmund, þegar hún var tíu ára þannig að ljóst má vera að sorgin lét ekki fjölskylduna í Vík ósnerta. Hún talaði oft um þessa bræður sína sem komu henni í föðurstað á bernskuskeiði. Það var alla tíð sterk taug milli systranna Jakobínu og Ólafar Guðfinnu. Ólöf lést fyrir nokkrum misserum og þá var aðeins eitt barnanna frá Vík eftir. Jakobína missti mann sinn árið 1988 þegar hann féll frá þrotinn að kröftum eftir að hafa unnið erfið- isvinnu frá barnsaldri. Henni fannst einmanalegt í litla húsinu við Brim- nesveg eftir að hafa í hálfa öld lifað deilt öllu með manni sínum. Þá reyndust vinir hennar vel og hún komst yfir mesta söknuðinn með þeirra hjálp. Hún tengdist fólki auðveldlega traustum böndum og þær eru ófáar gönguferðirnar sem hún fór ásamt vinkonum sínum á Flateyri. Síðustu árin var Jónína Hjartardóttir næsti nágranni henn- ar. Það er ekki á neinn hallað þó sagt sé að enginn óskyldur hafi staðið Jakobínu nær. Þær vinkonur heimsóttu hvor aðra daglega og Jónína og Kristján maður hennar voru vakin og sofín yfir velferð hennar. Jakobína var henni líka þakklát og henni varð tíðrætt um þessa vinkonu sína sem vildi helst alltaf vera að færa henni glaðning. Það var henni því mikið áfall þegar Jónína lést fyrir um ári og ekki fráleitt að fráfall vinkonunnar hafi verið henni það áfall að ekki hafi um gróið. Skömmu eftir fráfall Jón- ínu flutti Jakobína úr litla húsinu við Brimnesveg og fór á elliheimilið Sólborg. Það er óhætt að segja að Jakob- ína hafi verið fyrirmyndaramma ef slík skilgreining er á annað borð til. Tvær kynslóðir urðu þess happs aðnjótandi að umgangast hana sem ömmu að staðaldri. Fyrst voru það bamabörnin sem voru fastagestir á Búrfelli og síðar á Flateyri. Þá tóku barnabamabörnin við og það var alltaf passað upp á að eiga ís og frostpinna eða gos á lager allt eftir smekk hvers og eins. Aldrei var hún svo tímabundin eða þreytt að heim- ilið stæði ekki börnunum opið. Það er nærtækt að álykta sem svo að stundum hafi verið þreytandi að taka á móti ærslafullum bömum en það kom aldrei fram og alltaf var opið hús hjá langömmu og lang- afa meðan hann lifði. Leikföng vom til staðar svo ekki þyrfti smáfólkinu að ieiðast. Eini tíminn sem hún tók frá fyrir sjálfa sig var þegar mess- að var í Flateyrarkirkju. Þá mætti hún alltaf til fundar við Guð sinn og því fékk enginn mannlegur mátt- ur breytt. Það var áhrifaríkt að heyra séra Gunnar Björnsson í Holti lýsa því við kistulagningu Jakobínu þegar hún mætti ein sókn- arbarna til messu eitt sinn. Það varð að samkomulagi prestshjón- anna í Holti og hennar að ekki skyldi falla niður messuhald þrátt fyrir að þau yrðu aðeins þijú við messuna. Það var og gert og séra Gunnar lýsti því hversu minnisstæð þessi athöfn var. Jakobína sat ætíð á sama stað í kirkjunni og hún átti sinn eigin púða í kirkunni sem hún notaði til að styðja við bakið. Sú ræktarsemi sem hún sýndi kirkju sinni og trú er dæmigerð fyrir allt hennar líf. Hún reyndist ævinlega þeim sem stóðu henni nærri vel og var þeim trygg umfram allt. Jakobína var alla tíð annálaður dugnaðarforkur. Hún var smávaxin en krafturinn virtist ótæmandi og ekki leið á löngu áður en hún varð ein af bónusdrottningunum í frysti- húsinu á Flateyri. Það stóð ekki í vegi að hún var komin nokkuð á sjötugsaldur þegar hún hóf störf við fískvinnslu. Það var hvergi gef- ið eftir og ekki féll dagur úr vinnu á meðan hún var í fiskinum. Ekki lét hún sig muna um að rótast í garðinum sínum eftir vinnu ef því var að skipta. Garðyrkjan var reyndar áhugamál hennar allt þar til yfír lauk. Garðurinn hennar vakti athygli fyrir allt blómskrúðið meðan hún hafði orku til að halda honum við. Þrekið entist henni reyndar allt þar til í fyrrasumar þegar hún varð að láta undan fyrir elli kerlingu og leggja frá sér garðáhöldin. Garð- ræktin hófst meðan hún bjó á Búr- felli þar sem hún kom upp fallegum skrúðgarði. Þar gat hún unað sér löngum stundum og það er sumar- dreng og ömmubami minnisstætt þegar hún gaf honum tré í garðin- um og vísaði til þess að tré og drengur bæru sama nafn. Þá var árlega fylgst með vexti og viðgangi trésins og amma og barnabörn áttu sameiginlegt áhugamál í gróðri jarðar. Það var í raun dæmigert að á sama hátt og Jakobína ræktaði garðinn sinn af alúð sáði hún fræj- um góðsemi í lífsins garð. Hún inn- prentaði afkomendum sínum guðs- ótta og góða siði með sínum hætti án þess þó að þreyta börn með sí- felldum predikunum. Nú er hún komin til nýrra heimkynna þar sem hún ræktar nýjan garð. Þar hittir hún á ný eiginrnann, foreldra og systkinin níu. Víst er að hún á góðri heimkomu að fagna handan landa- mæranna þar sem íjöldi samferða- manna er þegar fyrir. Langömmu- börnin eiga eftir að sakna hennar sárt þó að hún hafí verið orðin 86 ára og síðustu árin hafí ættingjar og venslafólk hugsað til þess hve langan tíma hún ætti eftir af jarð- vist sinni og nýttu því hvert tæki- færi sem gafst til að hitta hana. Það er huggun harmi gegn að hún var í fullu fjöri allt sitt líf og það var ekki fyrr en síðasta árið sem hún lifði að halla tók undan fæti. Síðustu mánuðina var hún á köflum fjarræn og lífsorkan fór þverrandi. Hún hélt þó fjöri allt þar til hún veiktist skyndilega og var flutt á sjúkrahúsið á ísafírði. Þar var dvöl- in stutt og eftir aðeins örfáa sólar- hringa var hún öll. Fjölskylda henn- ar var með henni þegar yfír lauk og fékk tækifæri til að kveðja. Minningin um góða konu lifir og staðfestir að þar sem góðir fara eru Guðs vegir. Takk fyrir samfylgdina. Reynir, Dóra og böra. Út um græna grundu gakktu, hjörðin mín. Yndi vorsins undu. Eg skai gæta þín. (Steingr. Thorst.) Þegar ég minnist ömmusystur minnar Bínu detta mér alltaf þessar ljóðlínur í hug. Ég varð þeirrar hamingju aðnjótandi að fá að fara í sveit að Búrfelli í Hálsasveit til Bínu frænku. Hún bjó þar ásamt manni sínum Sigursteini Þorsteins- syni. Bína var ein af þessum konum sem geta allt eða það fannst mér. Hún var ekki há í loftinu en með stórt hjarta og óþijótandi þolin- mæði. Einn var hennar hæfíleiki fram yfír aðra, að laða að sér dýr. Það var eins og hún gæti tamið öll dýr, jafnvel lóuna úti í móa. Ég minnist til dæmis aldrei að hún hafí verið að temja hvolpinn sem var nýkominn rétt á undan mér á bæinn en samt gerði hann allt fyrir hana. Hænurnar flykktust um hana og átu úr lófa hennar og fræg var sagan um folaldið sem setti framfæ- turna upp á axlir hennar þegar það sá hana. Svona má lengi telja. Ég gat aldrei beðið á vorin eftir að komast að Búrfelli og vildi fyrir alla muni ekki missa af sauðburðin- um. Þar báru kindurnar úti á túni og við fórum oft saman að athuga hvort allt gengi ekki vel. Þá má ekki gleyma hvað mér leið vel í eld- húsinu hjá henni við sólóvélina, en svo nefndist eldavélin. Þar ristuðum við kaffibaunir, bökuðum brauð og sungum. Fyrir tveimur árum var ég svo heppin að fara með Bínu í ferð um Hálsasveitina. Við áttum saman góða stund, skoðuðum tijárækt á Auðsstöðum, heilsuðum upp á Imbu í skóginum á Steindórsstöðum, spjölluðum saman og rifjuðum upp gamlar minningar. Bína hafði ákaflega gaman af ræktun tijáa og blóma og átti lítinn garð ekki langt frá bænum. Þar leið henni vel og fannst gaman að fylgjast með birkinu vaxa. Mér fannst það nú vaxa heldur hægt en þolinmæði Bínu var mikil. í þess- um garði æfðum við Bína söng, og þar sungum við og sungum. Ég minnist sérstakiega lagsins „Ég kyssti hana kossa einn - kossa einn“ o.s.frv. - og svo hlógum við yfír vitleysunni í okkur. Ég gleymi seint þeim stundum þegar Bína leyfði sér þann munað að koma til Reykjavíkur og skunda inn í Verð- lista til að kaupa kápu, kjól og hatt. Bína var eins og hún hefði unnið í fegurðarsamkeppni, geislaði af gleði og fannst hún svo f?n og það fannst mér líka. Síðar fluttu hún og Sigursteinn til Flateyrar, keyptu hús uppi á kambi þar sem sjórinn buldi yfir garðana. Þar var Bína fljótlega búin að koma sér upp skrúðgarði með blóm í öllum regnbogans litum. Þegar síðan inn í hús var komið, kom í ljós að þar var heldur ekki setið auðum höndum, því myndir útsaumaðar af Bínu þöktu veggina. Hún hafði ákaflega gaman af út- saumi og allri handavinnu. Á hillun- um voru síðan myndir af börnum og barnabörnum og barnabarna- bömum og Bína sýndi okkur mynd- irnar og fylgdist vel með hveijum og einum. ^ Þegar Bína og Sigursteinn voru flutt til Flateyrar var ekki sest nið- ur og hvílst eftir gott ævistarf í sveitinni. Nei, þau hófu bæði störf hjá frystihúsinu Hjálmi og unnu þar á meðan þrek og heilsa leyfðu. Sig- ursteinn lést síðan árið 1988. Faðir Jakobínu, Jakob Bjömsson trésmiður, hafði látist ásamt tveim- ur sonum sínum af slysfömm áður en Bína fæddist. Langamma mín, Guðríður Pétursdóttir, hélt síðan heimili þar til hún lést. Þá var amma mín Ólöf einungis 15 ára og tók við heimili. Að sjálfsögðu sá hún um yngri systur sína. Þær voru reyndar afskaplega ólíkar en báðar nokkuð ákveðnar og fóm sínu fram. Ég vil heim - ég vil heim yfir hyldjúpan sæ, - heim í dálitinn dal, heim að dálitlum bæ. Hver vill bera mig blítt um hinn bláheiða geim? Ó, þú blíðasti blær! Vilt þú bera mig heim? Ég vil þakka Bínu fyrir öll sumr- in og allt það sem ég nam hjá henni. Sá lærdómur hefur komið sér vel í lífinu, ekki síst þegar ég síðar flutt- ist í Hruna og eignaðist sjálf mínar eigin kindur og hesta. Guðrún Þ. Björnsdóttir. Himneski faðir, heimsins úr dðlum hef ég nú augun í hæðir til þín. Ljúk þú upp, faðir, ljðsanna sðlurn; himininn opinn í anda mér sýn! Aldanna faðir, ævin er liðin; W tíminn er kominn, að kveðji ég hér. Langar mig, faðir, ljósið og friðinn aftur að fá, sem ég átti hjá þér! Ljósanna faðir, liðin er stundin. Leið mig um dauðann í ljósið til þín. Gef þú mér, faðir, gleðinnar fundinn, ástvina fundinn, sem aldregi dvín! (V. Briem) Jóna Símonía Bjarnadóttir. Skilafrest- ur minn- ingar- greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fímmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Sérfræðingar í blóniaskreytingum yið i)ll tækifæri 1 blómaverkstæói H | itlNNA," | Skólavörðustig 12, á horni Bergstaðastrætis, simi 551 9090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.