Morgunblaðið - 14.06.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1997 39
FRETTIR
Kynning’ardagiir
miðbæj ar starfs
KFUM og KFUK
Kvennahlaup
í Mosfellsbæ
KFUM og KFUK í Reykjavík hafa
í vetur rekið starf í miðbænum á
föstudagskvöldum og aðfaranótt
laugardagsins. Starfið hefur ekki
verið kynnt annars staðar en með-
al ungs fólks í miðbænum þar sem
hugmyndin var ekki að draga fólk
sérstaklega niður í bæ vegna þess
heldur að koma til móts við þau
sem þegar eru þar. A efri hæð
hússins, Austurstrætis 20, hefur
verið opið hús þar sem ungt fólk
hefur verið boðið velkomið inn til
að fá sér hressingu, ræða málin
og taka þátt í helgistund þegar
húsinu hefur verið lokað kl. 3.
Á morgun verður opið hús á
Rabbloftinu og er gengið inn um
dyr til hægri við veitingastað
McDonalds. Húsið verður opið kl.
14-17 og verður stutt helgistund
í upphafi og í iokin. Boðið verður
upp á „næturhressingu" þ.e. kaffi,
kakó, te og kex og einhveijar kök-
ur. Starfið verður kynnt og fólki
gefst kostur á að styrkja það. Um
kvöldið verður samkoma í Dóm-
kirkjunni og hefst hún kl. 20. Þar
mun Gísli Friðgeirsson, forsvars-
maður miðbæjarstarfsins, flytja
ávarp, Helga Vilborg Siguijóns-
dóttir, syngja einsöng við undirleik
Bjarna Gunnarssonar og Helgi
Hróbjartsson, predika. Að lokinni
samkomu verður aftur opið hús í
Austurstræti 20.
Með kynningardegi miðbæjar-
starfsins vonast félögin til að for-
eldrar og allir áhugasamir um
starfið komið og kynni sér það
með því að koma við á Rabbloftinu
eða mæta á samkomu kvöldsins.
Suðræn
rómantík á
Hótel Borg
SPÆNSKUNEMENDUR í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og kennarar
þeirra bjóða til hátíðar í Gyllta saln-
um, Hótel Borg, sunnudaginn 15.
júní kl. 14, gengið inn við Skuggabar.
Þar mun Jón Hallur Stefánsson
flalla um rómantík og skáldið Pablo
Neruda; Karl Guðmundsson, Ingvar
Sigurðsson, Baltasar Kormákur og
Hilmir Snær Guðnason lesa upp úr
bókinni „Tuttugu ljóð um ást og einn
örvæntingarsöngur" eftir Pablo
Neruda; Gerður Kristný og Andri
Snær lesa upp úr verkum sínum um
ástina.
Á milli atriða verða sýndir tangó-
dansar og flutt tónlist úr spænsku-
mælandi heimi. I lokin sýnir Carlos
Sanchez salsadans og býður siðan
viðstöddum upp í dans, segir í kynn-
ingu.
Kynnir er Aðalsteinn Bergdal nem-
andi.
Myndbönd fýrir böm verða sýnd á
Skuggabamum.
NÚ stendur fyrir dyrum hið árlega
Kvennahlaup ÍSÍ og ÍFA sunnu-
daginn 15. júní. í fyrsta sinn er
nú boðið upp á að hlaupa í Mos-
fellssveit en það er ungmennafé-
lagið Afturelding í samvinnu við
bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar sem
sér um framkvæmd og skipulagn-
ingu hlaupsins. Boðið verður upp
á tvær vegalengdir, 3 km skemm-
tiskokk og 7 km hlaupahring. Leið-
in sem farin verður er sérlega
skemmtileg, gróðursæl og falleg
svo þarna er um spennandi valkost
að ræða fýrir konur sem vilja nýj-
ar hlaupaleiðir.
Ráðgert er að hefja hlaupið kl.
12 við Iþróttamiðstöðina að Varmá
en upphitun hefst kl. 11.30 undir
undirleik skólahljómsveitar Mos-
fellsbæjar. Skráning er með þeim
hætti að greitt er 650 kr. í skrán-
ingargjald og innifalið í því er bol-
ur merktur Kvennahlaupinu og
viðurkenningarpeningur sem kon-
ur fá að loknu hlaupi, einnig verð-
ur boðið upp á veitingar þegar
komið verður í mark.
Forskráning fer fram í íþrótta-
miðstöðinni að Varmá og skrif-
stofu Fjölnis í Grafarvogi en einnig
er hægt að skrá sig frá kl. 10.30
sama dag og hlaupið fer fram. Það
er rétt að taka fram að hver og
einn getur ráðið sínum hraða þ.e.
gengið eða skokkað svo allar konur
ættu að geta tekið þátt hvort sem
þær eru í toppformi eða ekki byr-
jaðar „fyrirhugað átak“. Einnig er
hægt að taka með sér börn í kerr-
um eða á hjólum í styttri vega-
lengdina þar sem hún er að stærst-
um hluta malbikuð. Sama gildir
um konur í hjólastólum, leiðin sem
farin verður ætti ekki að aftra
þeim þátttöku.
ATVINNU-
AUGLÝSING AR
Framkvæmdastjóri
Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurpró-
fastsdæmum (Æ.S.K.R) auglýsir starf fram-
kvæmdastjóra sambandsins lausttil umsókn-
ar. Leitað er eftir starfskrafti með háskólapróf
(helst í guðfræði) og/eða með umtalsverða
reynslu af kirkjustarfi með unglingum. Viðkom-
andi þarf að hafa góða skipulags- og stjórnun-
arhæfileika og lifandi áhuga á að efla unglinga-
starf þjóðkirkjunnar, auk þess að hafa gott vald
á íslensku, ensku og helst einu Norðurlanda-
máli.
Nánari upplýsingar og gögn um starfið má
fá í Hallgrímskirkju, sími 510 1030.
Umsóknum, ásamt ítarlegum upplýsing-
um um menntun og fyrri störf skal skilað
á skrifstofu Reykjavíkurprófastsdæmis
vestra í Hallgrímskirkju, 101 Reykjavík,
fyrir 30. júní nk. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf eigi síðar en þann 1. ágúst nk.
íþróttakennarar
Kennara vantar að Grenivíkurskóla næsta
skólaár til að kenna íþróttir og bóklegar
greinar.
Skólinn er fámennur, nemendur á næsta vetri
verða um 50 í 1.—10. bekk.
Aðstaða til kennslu er öll hin besta og nýtt
íþróttahús og sundlaug eru við skólann.
Gott húsnæði á lágu verði ertil reiðu fyrir
kennara.
Umsóknarfrestur er til 25. júní.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson, skóla-
stjóri, í síma 463 3118 eða 463 3131.
Rafvirkjar
— rafvirkjanemar
óskast til starfa sem fyrst.
Upplýsingar í símum 564 1012 og 896 1012.
Rafrún ehf.,
Smiðjuvegi 11e, Kópavogi.
Embætti
yfirdýralæknis
Landbúnaðarráðuneytið auglýsir hér með laust
til umsóknar starfyfirdýralæknis samkvæmt
lögum nr. 77/1981 með áorðnum breytingum.
Starfið er laustfrá og með 1. september 1997
og er veitt til fimm ára.
Um launakjörfersamkvæmt lögum nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Umsóknir um starfið, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist landbúnaðar-
ráðuneytinu fyrir 15. júlí nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í landbúnaðar-
ráðuneytinu og hjá embætti yfirdýralæknis.
Landbúnaðarráðuneytið,
12. júní 1997.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum fasteignum verður háð á
þeim sjálfum sem hér segir:
Hafnarbraut 8 (áður 6), Blönduósi, talin eign Jóhannesar Þórðarsonar,
gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi, föstudaginn 20. júnf
1997, kl. 13.00.
Mýrarbraut 18, Blönduósi, þingl. eig. Hallgrímur Stefánsson, gerðar-
beiðandi Byggingasjóður verkamanna, föstudaginn 20. júní 1997,
kl. 13.30.
Ránarbraut 22, íbúð 0101, Skagaströnd, þingl. eig. Strönd ehf., bygg-
ingarfélag, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, föstudag-
inn 20. júní 1997, kl. 11.00.
Skagavegur 11 b (Héðinshöfði), Skagaströnd, þingl. eig. Guðrún Þór-
unn Ágústsdóttir, gerðarbeiðandi Rafmagnsveitur ríkisins, föstudag
inn 20. júní 1997, kl. 11.30.
Þórshamar, Skagaströnd, eignarhl. gþ., þingl. eig. Einar Ólafur Karls-
son, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi, föstudaginn
20. júní 1997, kl. 10.30.
Blönduósi 12. júni 1997.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Kjartan Þorkelsson.
TILKYNNINGAR
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Sumartími ráðgjafa
í viðtölum
15. júní til 29. ágúst kl. 11.00—15.00.
Þriðjudagar: Norðurlönd.
Miðvikudagar: Enskumælandi og önnur lönd.
Fimmtudagar: ísland.
Engin viðtöl mánudaga og föstudaga.
Jíloröunlitaííiíi
- kjarni málsins!
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAC
ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 15. júní
Kl. 08.00 Þórsmörk, dags-
ferð. Stansað í um 3 klst. í
Þórsmörkinni. Verð kr.
2.700. Helgarferðir byrjaðar
um hverja helgi. Næturganga
yfir Fimmvörðuháls um
næstu helgi.
Fjölskyldu- og afmælishelgi
Þórsmörk 27.-29. júní.
Kl. 10.30 Reykjavegur 4.
ferð. Gengið frá Lambafelli i
Bláfjöll. Verið með í öllum áföng-
um. Verð kr. 1.000.
Kl. 13.00Heiðmörk — Kolhóll
— Búrfellsgjá. Auðveld ganga
með nýrri leið í Búrfellsgjá, fal
legustu hrauntröð Suðvestan-
lands. Verð kr. 800, frítt f. börr
m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ,
austanmegin, og Mörkinni 6.
Ný, glæsileg og fróðleg ár-
bók F.í. er komin út „í fjall-
högum milli Mýra og dala".
Gerist félagar og eignist þar
með bókina. Ferð á slóðir ár-
bókarinnar verður 5.-6. júlí.
Skráið ykkur á heillaóska- og
áskriftarlista í afmælisriti
Ferðafélagsins, Ferðabók
Konrads Maurers.
Dagsferðir
Sunnudaginn 15. júní.
Reykjavegurinn
4. áfangi í þessari skemmtilegu
göngusyrpu Útivistar og Ferða-
félags íslands. Gengið verður fré
Lambfelli til Bláfjalla. Brottför fré
BSÍkl. 10.30.
Tilboðsverð kr. 1.000.
Þriðjudaginn 17. júní
Leggjabrjótur
Gengin verður hin forna þjóðleié
úr Botnsdal um Leggjabrjót að
Svartagili í Þingvallasveit.
Brottför frá BSI kl. 10.30.
Verð kr. 1.600/1.800.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI6-SjMI_ 568-2533
Dagsferðir Ferðafélagsins
Sunnudagur 15. júní:
1) Kl. 10.30 Reykjavegur (R-
4). Samvinna Ferðafélagsins og
Útivistar. Gengið verður frá
Lambafelli að þjónustumiðstöð-
inni í Bláfjölium. Verð kr. 1.000.
2) Kl. 13.00. Heiðmörk - Kol-
hóll — Búrfellsgjá. Verð kr.
1.000.
Þriðjudagur 17. júní kl.
10.30: „þjóðhátíðarganga"
Móskarðshnjúkar — Trana.
Föstudagur 20. júní kl. 18.00
Sólstöðuganga á Heklu.
Brottförfrá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin, og Mörkinni 6.
TILKYNNINGAR
Þingvellir
þjóðgarður
Sumardagskráin á Þingvöllum er
nú óðum að komast á skrið og
um helgina verður lagt í fyrstu
skipulögðu gönguferðirnar á
vegum Þjóðgarðsins á þessu
sumri. Þá mun þjóðhátíðardag-
urinn 17. júní verða hátíðlegur
haldinn með messu í Þingvalla-
kirkju og gönguferð um þing-
staðinn forna.
Laugardagur 14. júní
Kl. 13.00 Skógarkot
Gengið um gamlar slóðir i Þing-
vallahrauni og hugað að búsetu
almúgafólks að fornu og nýju i
nágrenni þingstaðarins.
Ferðin hefst við Fossagjá (Pen-
ingagjá) og tekur u.m.b. 3 klst.
Sunnudagur 15. júní
Kl. 13.00 Lambhagi
Róleg og auðveld náttúruskoð-
unarferð. Gengið verður með
vatnsbakka Þingvallavatns þar
sem gróðurfar og dýralíf verður
skoðað í samhengi alls sem er.
Farið verður frá bílastæði við
Lambhaga. Gera má ráða fyrit
að ferðin taki u.þ.b. 3 klst., verið
því vel búin til útiveru og takií
með ykkur nesti.
Þriðjudagur 17. júní
Kl. 14.00 Guðþjónusta í
Þingvallakirkju
Prestur sr. Heimir Steinsson, or-
gelleikari Ingunn Hildur Hauks-
dóttir.
Kl. 15.30 Þinghelgi
Gönguferð um hinn forna þing-
stað í fylgd sr. Heimis Steinsson-
ar. Lagt verður af stað frá útsýn-
isskífu á Haki og gengið ofan Al-
mannagjá.
DULSPEKI
Jón Rafnkelsson huglæknir
frá Höfn í Hornafirði verður i
bænum frá 15. 6. og næstu daga.
Tímapantanir í síma 551 5322.