Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 44

Morgunblaðið - 14.06.1997, Page 44
44 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FERMINGAR I DAG Fermingar 15. o g 17. júní Ferming í Þingmúlakirkju 15. júni kl. 14. Prestur sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Fermdur verður: Jón Mar Jónsson, Geirólfsstöðum, Skriðdal. Ferming í Bergsstaðakirkju 15. júní kl. 11. Prestur sr. Stína Gísladóttir. Fermdur verður: Jakob Ólafur Óskarsson, Steiná 2. Ferming í Svínavatnskirkju 15. júní kl. 14. Prestur sr. Stína Gísladóttir. Fermd verða: Ásgerður Kristrún Sigurðardóttir, Guðlaugsstöðum. Ingvar Kári Þorleifsson, Sólheimum. Jakob Víðir Kristjánsson, Stóradal. Ferming í Stóra-Vatnshorns- kirkju 15. júní kl 14. Prestur sr. Óskar Ingi Ingason. Fermd verð- ur: Sesselja Bæringsdóttir, Saursstöðum, Haukadal. Ferming í Kvennabrekkukirkju 17. júní kl. 14. Prestur sr. Óskar Ingi Ingason. Fermdur verður: Guðmundur Þór Guðmundsson, Kvennabrekku, Miðdölum. Fermingar í Hellnakirkju, Ingj- aldshólsprestakalli, 17. júní kl. 15. Prestur sr. Ólafur Jens Sig- urðsson. Fermd verða: Margrét Bára Þórkelsdóttir, Bjargi, Arnarstapa. Jón Fannar Tryggvason, Noregi/ Bjargi, Arnarstapa. Ferming i Akraneskirkju 17. júní kl. 13. Prestur sr. Björn Jónsson. Fermd verða: Hjördís Inga Jóhannesdóttir, Brekkustíg 6, Reykjavík. Skagabraut 33, Ákranesi. Bjarki Þórður Sigurðsson, Lundi, Svíþjóð. Skagabraut 33, Akranesi. Ferming í Sauðlauksdalskirkju 15. júní kl. 14. Prestur sr. Hann- es Björnsson: Fermdir verða: Oddur Þór Rúnarsson, Neðritungu. Egill Ólafsson, Dalbraut 10, Bfldudal. ■ ■ 4 /«i SLIM-LINE Vogg usængur, dömubuxur vöqquse+t, frá gardeur* Pós+sendum Qhrntv tískuverslun ” jttBgjS&rjriiðil* _ V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 ^ SlcóUvOrBuítíg 2T Sámi551 4050 ReykimUt smáskór sérverslun með barnaskó Mikið úrval af skóm Dúndur tilboö af eldri gerðum af skóm. Erum í bláu húsi við Fákafen Leður • st. 26-35 Verð frá 2.790 y........ ..'......— .....-..... ~ Málverkasýning Helga Jónssonar í Suðurhlíð 35 í Fossvogi (sama hús og Blómabúðin Garðshorn) verður opin kl. 14-19 alla daga frá og með 14. þessa mánaðar til mánaðarmóta. Trjáplöntur - runnar (- túnþökur - sumarblóm Verðhrun á eftirtöldum tegundum meðan birgðir endast: Runnamura kr. 340. Gljámispill kr. 160-180. Alparifs kr. 190. Blátoppur kr. 220-380. Birki kr. 240-290. Hansarós kr. 390. Rifsberjarunnar kr. 650. Fjallafura kr. 1.200. Birkikvistur kr. 290. Sírena kr. 390. Yllir kr. 350. Sólbroddur kr. 300. Skriðmispill kr. 340. Rauðblaðarós kr, 300. Himalayaeinir kr. 900-1.600. Gljávíðir kr. 85-110. Dökk viðja kr. 79. Brekkuvíðir kr. 79. Hreggstaðavíðir kr. 79-110. Aspir kr. 490. Verðhrun á Aiaskavíði, brúnn, (tröllavíðir) kr. 69. Einnig tunþökur, sóttar á staðinn kr. 80 eða fiuttar heim kr. 110. Mjög hagstaett verð. Vérið velkomin. Trjáplöntu- og túnþökusalan, Núpum, Ölfusi. (Beygt til hægri við Hveragerði). Sími 892 0388 og 483 4388. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Vísað á dyr Þannig er að við hjónin keyptum fellihýsi af fyrir- tækinu Evró hf. og fórum með það í ferðalag um síð- ustu helgi. Það kviknaði ekki á miðstöðinni í felli- hýsinu og var það vægast sagt ömurleg nótt sem við áttum, þar sem mjög kalt var í veðri. Við vorum með lítil börn með okkur sem kvörtuðu mikið undan kulda og þar af leiðandi varð engum svefnsamt um nóttina. Það skal tekið fram að þrátt fyrir ítrek- aða beiðni um kennslu varðandi notkun á fellihýs- inu var okkur aðeins bent á bækling sem reyndist ekki fullnægjandi. Þegar við komum til Reykjavíkur fórum við beint til að kvarta yfir hremmingum okkar en þrátt fyrir að tveir menn væru í af- greiðslu og enginn annar en við hjónin í búðinni þá sneru þeir aðeins út úr fyrir okkur og sýndu okkur vægt til orða tekið mikinn dónaskap. Þeir tilkynntu okkar m.a. að viðskipti okkar skiptu litlu máli þar sem við værum aðeins 1 af hundraði viðskiptavina. Þar sem ekki lá vel á okk- ur eftir volkið svaraði kon- an þessum dónaskap og vorum við þá einfaldlega rekin á dyr. Eggert Ólafsson. 111 meðferð á villtum dýrum VIÐ erum tvær stúlkur sem heita Sara, 10 ára, og Aþena, 8 ára. Við erum mjög hneykslaðar útaf manni sem heitir Páll Reynisson sem skýtur villt dýr og hengir hausana upp á vegg hjá sér. Okkur fínnst þetta heimskulegt og okkur fínnst að það ætti að bera virðingu fyrir villtum og fallegum dýr- um. Sara og Aþena. Tapað/fundið Fann einhver stokkabelti 1994 17. JÚNÍ 1994 fór fjöl- skylda í ferðalag á Þing- velli. 5 ára stúlka í hópnum tapaði stokkabeltinu sínu í nánd við Háagerði. Nú er annað bam í fjölskyld- unni sem vantar stokka- beltið og hefur fjölskyldan áhuga á því að vita hvort einhver hafi fundið stokka- beltið. Vinsamiega látið Gunnar vita í síma 568-6804. Barnapeysa fannst í Oskjuhlíð BARNAPEYSA, blá, hvít og rauð, fannst í Oskju- hlíðinni miðvikudaginn 11. júní. Uppl. í síma 551-2902 á daginn. Gullhringur tapaðist FYRIR þremur vikum tap- aðist merktur gullhringur (herra) í miðbæ Reykjavík- ur. Skilvís finnandi vin- samlega hafi samband í síma 551-5756. Dýrahald Fallega læðu vantar lieimili ÁTTA vikna læða, þrílit og einstaklega falleg, kassavön, vantar gott heimili. Uppl. í síma 551-5075. Kettlingar óska eftir heimili FJÓRIR kettlingar, kassa- vanir, óska eftir heimili. Uppl. í síma 551-3269 eftir kl. 18. Páfagaukur fannst BLAR páfagaukur fannst í Akurgerði 38 miðviku- daginn 11. júní. Uppl. í síma 553-3499. Týndur köttur FIGARÓ sem er svartur fress með hvítar loppur, hvítan háls og hvítan maga týndist þriðjudaginn 10. júní. Hann sást seinast hjá bensínstöðinni Esso á Ægissíðu. Sá sem finnur Fígaró og hefur samband við okkur fær fundarlaun. Hafið samband í síma 552-6219 eða skilið honum á Fálkagötu 23. skák bmsjón Marjjcir Pétursson STAÐAN kom upp í fyrri skákinni í úrslitaeinvíginu um Rússlandsmeistaratit- ilinn í ár. Evgení Barejev (2.665) hafði hvítt og átti leik, en Peter Svidler (2.640) var með svart. 32. d6+! (En alls ekki 32. Rxa8? — Hxa8 og svartur hótar 33. — Hd8 og stend- ur síst lakar. Nú vinnur hvítur hins vegar heilan hrók) 32. - Kxd6 33. e7 - Hfe8 34. Rxa8 - Hxe7 35. Hxe7 - Kxe7 36. Hbl - b4 37. Kg2 - Kd6 38. Kf3 - Kc6 39. Ke2 og þar sem svörtu frípeðin verða auðveldlega stöðvuð þá gafst Svidler upp. En hann var ekki af baki dottinn og náði að jafna metin í seinni skák- inni. Þeir unnu svo hvor sína atskákina og réðst þá meistaratitillinn í hrað- skákum. Það þurfti að tefla fjórar til að fá fram úrslit. Tveimur fyrstu lykt- aði 1—1, en Svidler, sem er aðeins tvítugur að aldri, vann tvær næstu og er því Rússlandsmeistari, annað árið í röð. HVÍTUR leikur og vinnur. Víkveiji skrifar... VÍKVERJA hefur borizt bréf frá Hrefnu Ingólfsdóttur blaða- og upplýsingafulltrúa Pósts og síma. Þar gerir Hrefna að umtalsefni umsögn Víkverja um símaskrána, hvers vegna ekki sé unnt að kaupa hana í tölvutæku formi og umkvört- un Leós M. Jónssonar í bréfi til blaðsins 10. júní síðastliðinn. Þar kvartar Leó yfír því að fá mörg eintök af símaskránni, þar sem hann hafi fleiri síma en einn. Eitt- hvað hljóti skráin að kosta og því vilji hann geta skilað aukaeintökun- um gegn afslætti á afnotagjaldi. x x x BRÉF Hrefnu er svohljóðandi: „Víkveiji veltir því fyrir sér hvenær Póstur og sími muni gefa út símaskrána á tölvutæku formi. Ég get glatt Víkveija með því að samningur var gerður í desember 1996 við fyrirtækið Úrlausn - Að- gengi ehf. sem mun m.a. sjá um að hanna hugbúnað fyrir útgáfu símaskrárinnar á geisladisk. Gert er ráð fyrir að diskurinn komi út ekki síðar en í nóvember á þessu ári. Áætlað er að símaskráin á geisladiski verði seld á um 4 þús- und krónur og þá er innifalin upp- færsla á skránni fjórum sinnum yfir árið þannig að þar verði alltaf að finna nýjar upplýsingar. Pappírsskráin stendur enn fyrir sínu hjá þorra símnotenda og með- an svo er þykir rétt að láta eitt eintak fylgja hveiju númeri. Það er rétt að símaskránni er ekki hægt að skila gegn afslætti á af- notagjaldi, en ekki er heldur hægt að skila aukablöðum Moggans, gegn lægri áskrift eða hvað? En tímarnir breytast og menn- irnir með og allar ábendingar um breytta og bætta þjónustu eru vel þegnar. Ábending Víkvetja um götukort í tölvusímaskránni er góð og hver veit nema kortin verði í næstu skrá.“ XXX JÁ, SATT segir Hrefna, tímarnir breytast og mennirnir með. Nú er Póstur og sími orðinn hluta- félag og á döfinni er að símnotend- ur geti keypt geisladisk með síma- skránni á 4 þúsund krónur. Allt annað var uppi á teningnum áður en Póstur og sími var gerður að hlutafélagi, þá seldi hann síma- skrána á tölvutæku formi á einar litlar 60.000 krónur eintakið og kippti svo að sér hendinni; hætti við allt saman, þegar hann varð þess var að fólk fjölfaldaði heldur skrána en kaupa hana á þessum dæmalausa frekjuprís. XXX ARÐANDI aðfinnslu Leós M. Jónssonar og þau ummæli Hrefnu að ekki sé unnt að skila aukablöðum Moggans, vill Víkvetji vinsamlegast benda Hrefnu á, að mönnum er í sjálfsvald sett, hvort þeir kaupa blaðið eða ekki. Sá sem er áskrifandi að Morgunblaðinu fær og eitt eintak óski hann þess, honum eru hvorki afhent tvö né fleiri eintök og gerður reikningur fyrir þau. Aukablöðin eru hluti Morgun- blaðsins. Hins vegar er verið að ræða um tvítak eða kannski þrítak af Símaskránni og að selja fleiri símaskrár en markaður er fyrir, er bara pappírsbruðl, sem sæmir ekki fyrirtæki eins og Pósti og síma, sem eflaust vill láta líta á sig sem vistvænt fyrirtæki — ekki satt? -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.