Morgunblaðið - 22.06.1997, Síða 1
104 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
138 TBL. 85. ÁRG.
SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ómar
________________SPEKTARSTUND í STRÆTÓ___________________
Bjóða geymslur fyrir
kjarnavopn í Grænlandi
Kaupmannahöfn. Reuter.
Ráðherrann
skildi ekki
skýrslu sína
FYRSTI fundur Davids Blunketts mennta-
málaráðherra Bretlands með Tony Blair
forsætisráðherra tók óvænta stefnu er
hann hugðist lesa upp helstu ráðstafanir
sínar í menntamálum, eftirlætismál Blairs,
frá því hann tók við starfi. Reyndist
skýrslan vera á sænsku, en Blunkett, sem
er blindur, skilur ekki orð í henni. Hélt
hann þó ró sinni, mælti nokkur orð eftir
minni og bað aðstoðarmann sinn að taka
við og tala um kennslugæði. í ljós kom að
tæknileg mistök höfðu átt sér stað er emb-
ættismenn, þjakaðir af álagi við að upp-
fylla þarfir fyrsta blinda ráðherrans,
hugðust prenta skýrsluna. Yttu þeir á
rangan takka á lyklaborði tölvunnar sem
snarar efni á blindraletur og prentuðu
hana á sænsku í stað ensku. Sakir þekk-
ingarskorts á blindraletri áttuðu þeir sig
ekki á mistökunum.
Varað við nýrri
E-töflu
BRESKA lögreglan hefur varað við nýrri
E-töflu, gráhvítri og demantslaga, sem
virðist komin í umferð þar í landi. Er það
gert í beinu framhaldi af andláti 13 ára
pilts í bænum New Stevenston í Lanark-
skíri af völdum nýju E-töflunnar. Ekki er
vitað til þess að yngra fórnarlamb hafi lát-
ist af völdum töflunnar í Bretlandi. Tókst
að bjarga lífí tveggja félaga hans, 13 og
15 ára. Fundust þeir meðvitundarlausir á
akri eftir að hafa gleypt þijár töflur hver.
Áður höfðu þeir drukkið ókjör af vatni til
þess að reyna að minnka áhrif töflunnar.
Piltunum þremur hefur verið lýst sem
„venjulegum unglingum úr góðu um-
hverfi".
Dýrkeypt um-
ferðarmerkja-
hnupl
TVEIR tvítugir piltar og 21 árs stúlka
voru á föstudag dæmd í héraðsdómi í
Flórída til 15 ára fangelsisvistar hvert
fyrir að stela stöðvunarskyldumerki á
gatnamótum þar sem þijú ungmenni
týndu lífi í umferðarslysi í febrúar í fyrra.
Samkvæmt lögum gátu þau hlotið allt að
52 ára fangelsi hvert. Játuðu þau að hafa
af prakkaraskap fjarlægt 19 önnur um-
ferðarmerki í Hillsborough-sýslu, þó ekki
merkið á gatnamótunum sem banaslysið
varð. Á grundvelli óbeinna sannana voru
þau engu að síður fundin sek um mann-
dráp af gáleysi.
GRÆNLENSKA landsstjórnin er reiðubúin
að semja við Bandaríkjamenn og Rússa um
að koma upp geymslum fyrir aflögð kjarna-
vopn í Thule-stöðinni í norðanverðu Græn-
landi. Lýsti Lars Emil Johansen, formaður
stjórnarinnar, þessu yfir í samtali við danska
blaðið Jyllands-Posten í gær og sagði, að
risaveldin tvö ættu að snúa sér beint til
Grænlendinga sjálfra og sniðganga danska
utanríkisráðuneytið.
í blaðinu er því haldið fram, að danska
stjómin hafi spilað sig úr leik í spumingunni
um geymslu kjamavopna í Grænlandi. Lætur
Niels Helveg Petersen utanríldsráðherra
undrun í ljós á ákvörðun Grænlendinga í sam-
tali við blaðið. „Hún er ekki í samræmi við það
sem mér hefur áður verið skýrt frá af hálfu
landsstjómarinnar. Sé þetta hins vegar raun-
veruleikinn verð ég að ganga út frá því að
okkur verði sent erindið,“ sagði ráðherrann.
Helveg Petersen lýsti á sínum tíma and-
stöðu við tillögur hinnar virtu bandarísku
ráðgjafarstofnunar Rand, sem lagði til, í
febrúar sl., að geymslum yrði komið upp í
Grænlandi fyrir kjarnavopn sem til hefðu
fallið vegna afvopnunarsamninga risaveld-
anna. Benti stofnunin í því sambandi einnig á
ísland sem ákjósanlegan geymslustað vopna
af þessu tagi. Jyllands-Posten sagðist hins
vegar hafa fengið fullvissu fyrir því, að utan-
ríkisráðherrann hefði neitað því að svara er-
indi, sem Rand-stofnunin sendi dönsku
stjóminni vegna málsins.
Frumkvæði grænlensku landsstjórnarinn-
ar hefur því vakið athygli sérfræðinga í utan-
ríkismálum. „Pað era góðar fréttir fyrir
heimsbyggðina alla, að grænlenska lands-
stjómin er reiðubúin að eiga frumkvæði í
málinu. Það mun hafa áhrif á bandarísk
stjórnvöld,“ sagði Richard Speier hjá Rand-
stofnuninni. Hann bendir á Thule-stöðina
sem bestu geymslustöð kjarnavopna í öllum
heiminum, þar verði þau ekki lengur í hönd-
um Bandaríkjamanna og Rússa. Bandaríkja-
stjórn hefur ekki tekið afstöðu til hugmynd-
ar Rand-stofnunarinnar en sérfræðingar
hennar eru í nánum tengslum við áhrifa-
menn í bandaríska stjómkerfinu.
Uffe Elleman-Jensen, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, gagnrýnir aðgerðarleysi
dönsku stjórnarinnar harðlega í Jyllands-
Posten. „Ahugaleysi hennar á málinu er
stórandarlegt. Það er of mikilvægt til þess
að því verði sópað undir teppið. Málið snýst
um að finna leiðir til þess að fjarlægja hinar
miklu kjarnavopnabirgðir heimsins," er eftir
honum haft.
Thule-stöðin í norðanverðu Grænlandi var,
samkvæmt sérstökum samningum við Atl-
antshafsbandalagið (NATO), fram á sjöunda
áratuginn heimavöllur bandarískra flugvéla
sem búnar vora kjamorkusprengjum. Eiga
Grænlendingar enn í deilum um skaðabætur
vegna tjóns af völdum geislunar sem hlaust
af flugslysi í stöðinni árið 1968.
Lars Emil Johansen segir, að Grænlend-
ingar vilji ekki að land þeirra verði ralsa-
haugur fyi’ir kjarnavopn. Þeir vilji aftur á
móti stuðla að friði í heiminum. „Lega lands-
ins hafði mikla hernaðarlega þýðingu meðan
á vopnakapphlaupi stórveldanna stóð. Hún
hefur ekki minni þýðingu nú,“ sagði hann.
Vinnukonustéttin
endurlífguð