Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/Sambíóin Álfabakka, Kringlubíó, Bíóborgin og Borgarbíó á Akureyri sýna hasartryllinn Fangaflug, Con Air, með þeim Nicholas Cage, John Cusack og John -A Malkovich í aðalhlutverkum, en myndin er nýjasta afurð kvikmyndaframleiðandans Jerry Bruckheimer sem m.a. á að baki The Rock og Crimson Tide. Hasar í háloftum Hetja af nýrri kynslóð komnir á sextugsaldurinn og Schwarzenegger er að verða fimmtugur. Sjálfur er Cage aðeins 33 ára gamall og má því segja að hann sé af nýrri kynslóð hasarhetja. Cage er bróðursonur leikstjórans og kvikmyndaframleiðandans Francis Ford Coppola og segist hann frekar hafa goldið þess en notið, en engu að síður hefur hann fengið hlutverk í a.m.k. þremur mynda frænda síns. Cage breytti nafni sínu þegar hann ákvað að gerast leikari til þess að komast úr skugganum langa sem ættar- nafnið virtist ætla að varpa á leikarann. Nicolas Cage er fæddur og uppalinn á Long Beach í Kalifomíu en þar kom hann í heiminn 7. janúar 1964. Faðir hans heitir August Coppola, er fyrrverandi prófessor í samanburðarbókmenntum við háskóla Kaliformufylkis á Long Beach. Nicolas lauk ekki framhaldsskólaprófi heldur hélt út í heim að freista gæfunnar sem leikari. 17 ára gamall var hann farinn að leika í sjónvarpsþáttunum Fast Times at Eidgemont High, ásamt Sean Penn, Judge Reinhold og fleirum. Ur sjónvarpsþáttunum lá leiðin í auka- hlutverk í mynd Francis frænda, Rumble Fish, og að því loknu beið aðalhlutverkið í kvikmyndinni Valley Girl (1983). Francis frændi hjálpaði Cage með lítið hlutverk illskeytts glæpamanns í mynd sinni Cotton Club (1984). í Birdy (1984) lék Ca- ge síðan hermann sem skaddast hafði í Víetnam og lét hann draga úr sér tvær tennur til að geta túlkað hlutverkið sem best. Engu munaði að Nicolas Cage yrði rekinn þegar hann lék í Peggy Sue Got Married (1986). Stjarna myndarinnar, Kathleen Turner, þoldi illa óheflaða framkomu hans. I kjölfarið kom Moonstruck (1987), vinsæl rómantísk gamanmynd með Cher í aðalhlutverki og þá Raising Arizona, mynd Coen-bræðra þar sem Cage var í aðalhlutverki á móti Holly Hunter. Sama ár lék hann í Vamp- ire’s Kiss þar sem hann sporðrenndi t.d. lifandi kakkalakka. Meðal annarra mynda sem þessi kraftmikli leikari hefur komið fram í eru Wild at Heart eftir Da- vid Lynch, Fire Birds, Amos & Andrew, Red Rock West, Deadfall, It Could Happen to You, með Rosie Perez og Bridget Fonda, Honeymoon in Vegas, með Sarah Jessica Parker og James Ca- an, Guarding Tess með Shirley MacLaine, Kiss of Death á móti David Caruso. Næst á hvíta tjaldið er svo vænt- anleg hasarmyndin Face Off sem John Woo leikstýrir og John Travolta leikur aðalhlutverkið í á móti Nicolas Cage og einnig Superman Lives þar sem Cage leikur ofurhetjuna. Cage hefur átt í ástarsamböndum með ýmsum glæsikonum í gegnum tíðina og meðal þeirra eru leikkonurnar Jenny Wright, Uma Thurman og Kristina Fulton, sem ól honum soninn Weston árið 1992. Árið 1995 kvæntist hann hins vegar leikkonunni Patricia Arquette sem hann hafði reyndar verið með um skeið átta árum áður. POE (Nicholas Cage) drýgir mikla hetjudáð þegar hann aðstoðar við að koma í veg fyrir ætlunarverk Cyrus og félaga hans. gerðu þeir félagar samning við Paramount um að framleiða fimm kvikmyndir og þáðu þeir 300 miUj- ónir dollara fyrir. Þrátt fyrir að fyrsta myndin, Days of Thunder, skilaði á endanum hátt í 400 miUj- óna dollara tekjum gekk allt á aft- urfótunum við gerð hennar og kostnaðurinn rauk upp úr öllu valdi. Þetta varð til þess að upp úr sam- vinnunni við Paramount slitnaði og Simpson og Bruckheimer sömdu við Disney, en þar komust þeir ekki upp'með það sem þeir vildu. Þeir lentu því loks á samningi hjá Col- umbia, sem réðst í gerð Bad Boys sem Disney hafði hafnað, og sömu sögu er að segja um Crimson Tide. Bruckeheimer hefur haldið merki þeirra félaga á lofti eftir að Simp- son lést og meðal væntanlegra mynda hans er Armageddon með Bruce Willis í aðalhlutverki og Enemy of the State sem Bruck- heimer gerir í samvinnu við leik- stjórann Tony Scott (Top Gun, Da- ys of Thunder, True Romance. JOHN Malkovich leikur Cyrus „The Virus“ Grissom sem skipuleggur ránið á fanga- flutningavél bandarískra rík islögreglumanna. Á JÖRÐU niðri verður lög- reglumaðurinn Vince Larkin (John Cusack) að reyna að koma í veg fyrir ætlunarverk glæpamannanna. CON Air er heitið á loftflutn- ingadeild bandarískra ríkis- lögreglumanna sem sér um flutning rúmlega 150 þúsund glæpamanna landshluta á milli vegna réttarhalda, sjúkraflutninga og fangaflutninga milli fangelsa. Þegar flytja á hættulegustu fang- ana sem fyrirfínnast í betrunar- húsum Bandaríkjanna saman í nýtt öryggisfangelsi af nýjustu gerð fær hinn nýlega náðaði Ca- meron Poe (Nicholas Cage) að fljóta með í fluginu. Hann er á leið til að hitta kærustuna sína Tricia (Monica Potter) eftir að hafa af- plánað refsivist fyrir að hafa af ógát orðið manni að bana sem réð- ist á hana, og jafnframt er hann að flýta sér í afmæli átta ára gamall- ar dóttur þeirra sem hann hefúr aldrei litið augum. Poe lendir í miðju ráðabruggi fanganna um að ræna flugvélinni, en þeim aðgerð- um stjórnar hinn illskeytti Cyrus „The Virus“ Grissom (John Mal- kovich). Á jörðu niðri þarf lög- reglumaðurinn Vince Larkin (John Cusack) að horfast í augu við það erfíða hlutverk að koma í veg fyrir ætlunarverk glæpa- mannanna og um leið verður hann að hindra þá ráðagerð yfirmanna sinna að sprengja flugvélina með fangana innanborðs í loft upp. Til- neyddur drýgir Poe mikla hetju- dáð þegar hann í samvinnu við Larkin heyr baráttu við Cyrus og þrjótana sem eru í slagtogi með honum, en þeir hyggjast myrða alla þá sem um borð í flugvélinni eru þegar hún stefnir í brotlend- ingu á aðalgötunni í Las Vegas. Framleiðandi Con Air er Jerry Bruckheimer, sem ásamt Don Simpson hefur verið meðal happasæl- ustu kvikmyndafram- leiðenda allra tíma, en Simpson lést í fyrra skömmu áður en mynd þeirra The Roek var frumsýnd. Áratugurinn milli 1980 og 1990 var nánast ein samfelld sigurganga hjá þeim félögum, en þá stóðu þeir m.a. að baki myndunum Flashd- ance, Beverly Hills Cop og Top Gun. Það sem af er þessum áratug kom hins vegar ekkert sérstaklega bitastætt úr smiðju þeirra félaga fyrr en Bad Boys leit dagsins ljós árið 1995. Tvær aðrar myndir þeirra slóu í gegn sama ár en það voru Crimson Tide með Denzel Washington og Gene Hackman í aðalhlutverkum og Dangerous Minds með Michelle Pfeiffer í að- alhlutverki. Bruckheimer ólst upp í Detroit, og var faðir hans afgreiðslumaður í fataverslun. í fyrstu starfaði hann við auglýsingagerð en hóf fljótlega að framleiða kvikmyndir, en þeirra á meðal voru Cat People og American Gigolo. Fyrsta mynd- in sem þeir Bruckheimer og Simp- son framleiddu saman var Flashd- ance og ekkert lát varð á vinsæld- um þeirra mynda sem Simpson og Bruckheimer framleiddu. Talið er að Flashdance, Beverly Hills Cop I og II, Top Gun, Days of Thund- er, Bad Boys, Dangerous Minds, Crimson Tide og The Rock hafí samtals skilað rúmlega þrem millj- örðum dollara í tekjur. Þeir félag- ar voru taldir einkennandi fyrir allt það besta og versta sem Hollywood hafði upp á að bjóða á síðasta áratug. Þeir framleiddu stórmyndir og gerðu stórstjörnur úr Eddie Murphy og Tom Cruise, þeir keyptu sér risastór íbúðarhús og óku um á nákvæmlega eins kolsvörtum Ferrari- bílum. Árið 1988 NICHOLAS Cage hefur greinilega stundað líkamsrækt af nægilega mikl- um ákafa undanfarin misseri til að verða gjaldgengur sem hasarmynda- hetja, en í þá átt virðist hugur leikar- ans helst hneigjast upp á síðkastið. Cage hefur hingað til aðallega verið flokkaður sem leikari af alvarlegri sortinni og er hlut- verk hans sem rómantíski drykkjumaðurinn í Leav- ing Las Vegas ágætt dæmi um þá hliðina á leikaran- um, en fyrir það hreppti hann óskarsverðlaunin í fyrra, og þá hefur hann leikið i nokkrum róman- tískum gamanmyndum. Skömmu eftir ósk- arsverðlaunafhending- una í fyrra var svo frumsýnd hasarmynd- in The Rock með Ca- ge í aðalhlutverki og þótti hann skila sínu með miklum sóma í þeirri mynd og því vekur það litla furðu að sjá hann i aðalhlutverkinu í Con Air, enda Bruckheimer fram- leiðandi beggja myndanna. Það undrar kannski engan að Cage skuli þykja gjald- gengur sem hasar- helja þegar liaft er í huga að t.d. þeir Stallone og Ilarri- son Ford eru báðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.