Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1997 31' ~ IL FÉLAGS VÆÐING HJÁ REYKJAVÍKURBORG NÝJAR hugmyndir í stjórnmálum og stjórnsýslu hafa þróast hratt eftir að klakabönd kaldastríðs- stjórnmálanna tóku að þiðna fyrir alvöru eftir miðjan síðasta áratug. Þetta var raunar löngu tímabært þar sem þau hugmyndakerfi sem við höfum búið við á síðustu ára- tugum, hvort heldur er hið pólitíska eða stjórnsýslan, þróaðist um eða eftir aldamótin síðustu, Hvort tveggja var barn síns tíma. Þó að við formælum gjarnan „bjúrókras- íunni“ í dag var henni engu að síður ætlað, á sínum tíma, að tryggja samfellu í stjómarathöfn- um, reglufestu og jafnræði, og koma í veg fýrir að stjórnmála- menn misnotuðu völd sín og opin- bert fé. Hið miðstýrða opinbera kerfi var ekki ýkja stórt í upphafi aldarinnar en það hefur farið sí- fellt stækkandi og átt æ erfiðara með að laga sig að breyttum tímum sem einkennast af stöðugum og hröðum breytingum. Allt hefur sinn tíma þ.á m. hugmyndir manna um sitt nánasta umhverfi. Vandinn sem menn standa þó oft frammi fyrir er ekki fólginn í því að þróa nýjar hugmyndir, heldur losna undan þeim gömlu. Vanahugsunin er býsna lífseig. Vald- og verkefnadreifing Engu að síður hafa nýjar hug- myndir leitt til þess að áherslur í stjórnmálum og stjórnsýslu eru að breytast. Breytingarnar einkenn- ast m.a. af tilfærslu á völdum, ábyrgð og verkefnum. Verkefni flytjast frá ríki til sveitarfélaga og frá sveitarfélögum til nærsamfé- lagsins, þ.e. til félagasamtaka og annarra sem nær standa þiggjend- um þjónustunnar. Reykjavíkurborg hefur á undanförnum misserum fikrað sig inn á þessa braut og í auknum mæli fært verkefni í hend- ur félagasamtaka á grundvelli þjónustu- eða stjómunarsamninga. Tilgangurinn með þessu fyrir- komulagi er þríþættur, í fyrsta lagi að færa þjónustu- og fram- kvæmdahlutverk nær þeim sem gleggst til þekkja, í öðm lagi að auka hagkvæmni í rekstri og í þriðja lagi að stuðla að aukinni vald- og verkefnadreifingu í borg- inni. í þessari grein ætla ég að fjalla aðeins um þá þróun sem átt hefur sér stað hjá Reykjavíkurborg á undanförnum misserum og þær hugmyndir sem að baki liggja. í fyrsta lagi ætla ég að segja stutt- lega frá nokkrum samningum sem gerðir hafa verið við félagasamtök um rekstur og umsýslu á ýmsum sviðum, í annan stað fjalla um breytt rekstrarfyrirkomulag leigu- húsnæðis Reykjavíkurborgar og í þriðja lagi um samstarf við Búseta - tilraunaverkefni sem hófst í júní 1995 samkvæmt sérstökum samn- ingi. Samningur við KSÍ um Laugardalsvöllinn Rekstur Laugardalsvallar, sem er aðalleikvangur Reykjavíkur og þjóðarleikvangur í knattspymu og ftjálsum íþróttum, hefur verið á vegum borgarinnar frá upphafi. Á síðari árum hafa alþjóðlegar reglur um slik mannvirki verið hertar verulega og löngu ljóst að Laugar- dalsvöllurinn var að falla á tíma. Höfðu viðræður um þessi mál stað- ið linnulítið frá 1989 milli borgar- yfirvalda og KSÍ, en án niður- stöðu. Það var mín skoðun, þegar ég kom að málinu 1995, að eðli- legt væri að ríkið axlaði hluta Mikil þróun hefur átt sér stað hjá Reykjavíkur- borg á undanförnum misserum. í þessari grein fjallar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um þá þróun og þær hugmyndir sem að baki liggja. kostnaðar vegna endurbótanna, þar sem þær tengjast ekki aðstöðu fyrir íþróttafélögin í Reykjavík, heldur kröfum sem gerðar eru vegna þátttöku okkar í alþjóðlegu iþróttastarfi. Menntamálaráðu- neytið, sem er ráðuneyti íþrótta- mála, vildi ekki koma til móts við þessi sjónarmið borgarinnar. Þetta, ásamt nauðsyn þess að leggja strax á þessu ári og því næsta út í mjög kostnaðarsamar endurbæt- ur á stúku- og vallaraðstöðu, varð kveikjan að því að borgaryfirvöld og KSÍ hófu viðræður um breytt rekstrarform á Laugardalsvelli. Niðurstaðan varð sú að gerður var samningur um að KSÍ tæki að sér allan rekstur vallarins og mann- virkja á honum. Gildir samningur- inn frá ársbyijun 1997 til 15 ára. í samningnum eru ákvæði sem tryggja rétt annarra íþróttasam- banda til aðgangs að vellinum og borgaryfirvöld eiga aðild að vallar- stjórn sem hefur umsjón með fram- kvæmd samningsins. Reykjavíkur- borg greiðir fast árlegt framlag til rekstrar vallarins auk þess sem KSÍ axlar alla ábyrgð á því að nauðsynleg mannvirki verði reist. KSÍ er sá aðili sem mesta hags- muni hefur af því að völlurinn standist kröfur og sé vel rekinn. Það treystir sér til þess að gera þetta með ódýrari hætti en borgar- yfirvöld, m.a. vegna þess að það á aðgang að fjölda sjálfboðaliða og getur tryggt meiri sveigjanleika í rekstrinum heldur en opinber yfir- völd treysta sér til. Aðrir samningar Fleiri samningar af svipuðum toga hafa verið gerðir að undan- förnu sem lúta sömu markmiðum. Hliðstæður samningur, þótt hann sé mikju smærri, hefur verið gerð- ur við íþróttabandalag Reykjavík- ur (ÍBR) um rekstur og uppbygg- ingu skautasvellsins í Laugardal. Þar hafa lengi verið uppi óskir um yfirbyggingu sem tryggt geti nýt- ingu svellsins mun lengri tíma á árinu en nú er. Nú hefur ÍBR tek- ið þetta verkefni að sér með samn- ingi við borgina. Forsendan í þeim samningi er sú hin sama og ég lýsti varðandi Laugardalsvöll - á vettvangi íþróttahreyfingarinnar sjálfrar treysta menn sér til þess að annast framkvæmdir og rekstur með ódýrari hætti en opinberir aðilar. Þessu til viðbótar má nefna samning við Hestamannafélagið Fák um rekstur Reiðhallarinnar í Víðidal, samning við Bandalag at- vinnuleikhópa um rekstur Tjarnar- bíós og samning um rekstur hljóð- kerfis Reykjavíkurborgar. Þá má nefna samning við Félagsstofnun stúdenta (FS) um rekstur tveggja leikskóla. Leikskólarnir eru sam- eign FS og borgarinnar, Dagvist barna sér um að úthluta leikskóla- plássunum en FS sér um reksturinn og fær til þess fast árlegt framlag. Hlutafélag um rekstur leiguíbúða Reykjavíkurborgar Þróun húsnæðis- mála hefur á undan- fömum árum og ára- tugum verið með nokk- uð öðrum hætti hér á landi en í ýmsum ná- grannalöndum okkar, t.d. á Norðurlöndum. Víðast hvar á Norður- löndunum hafa sveit- arfélög unnið markvisst að því að losa sig við rekstur og eignarhald á leiguhúsnæði og falið það öflug- um félögum sem sérhæft hafa sig í rekstri fasteigna eða að stofnuð hafa verið sérstök félög í þeim til- gangi. Hjá Reykjavíkurborg er nú verið að leggja út á svipaða braut og nýverið var stofnað hlutafélag, Félagsbústaðir hf., um rekstur og umsýslu leiguíbúða Reykjavíkur- borgar. Reykjavíkurborg á nú um l. 100 íbúðir sem hún leigir ein- staklingum og fjölskyldum sem ekki eru talin ráða við þau kjör sem bjóðast á almennum leigu- eða fasteignamarkaði. Til þess að eiga aðgang að leiguíbúðakerfi borgar- innar eru umsækjendur metnir m. a. á grundvelli tekna og annarra aðstæðna þeirra. Umsýsla leigu- íbúðanna hefur verið nokkuð flókin og enginn einn aðili hefur haft heildaryfirsýn yfir íbúðaeign borg- arinnar; Félagsmálastofnun hefur annast mat á umsækjendum og úthlutun, byggingadeild borgar- verkfræðings nýbyggingar og við- hald, gatnamálastjóri hirðingu og viðhald lóða, fjárreiðudeild inn- heimtu húsaleigu, borgarbókhald séð um bókhald vegna reksturs o.s.frv. Þess sér víða stað í kerfinu að ábyrgðin á því hefur ekki verið nægilega afmörkuð og heildaryfir- sýn hefur skort. M.a. hafa leigu- tekjur verið langt undir raunkostn- aði án þess þó að fyrir liggi sam- þykkt húsaleigustefna eða menn geri sér grein fyrir raunverulegum niðurgreiðslum til einstakra fast- eigna innan kerfisins. Mjög fáar íbúðir hafa losnað á ári hveiju, enda vart við því að búast að fólk flytjist úr niðurgreiddu, tiyggu húsnæði ef ekki er kallað eftir því. Fyrir vikið hafa biðraðir eftir húsnæði ekki styst þótt nýjar íbúð- ir hafi bæst í kerfið á hveiju ári. Viðhaldi hefur víða verið áfátt og engar reglubundnar áætlanir um viðhald ‘verið gerðar. Sama gildir um lóðir sem víða eru í niðumíðslu og innheimta hefur til skamms tíma verið mjög ófullnægjandi, þótt þar hafí orðið á mikil bót á síðustu misserum. Markmiðið að veita betri þjónustu Þetta var myndin sem við stóð- um frammi fyrir þegar ákveðið var að setja á stofn sérstakt félag, sem tæki við allri ábyrgð á rekstri og umsýslu leiguíbúða borgarinnar. Þar höfum við leitað fyrirmynda annars staðar á Norðurlöndum og fór starfshópur okkar m.a. í heim- sókn til höfuðborganna og kynnti sér fyrirkomulag þar. Staðan nú er sú að félagið hefur verið sett á stofn og við höfum fengið heimild félagsmálaráðuneytis til þess að það sinni þeim verkefnum sem ég hef lýst. Kostnaðarmat hefur verið lagt á fasteignir og í framtíðinni verður leiguverð ákveðið á grundvelli raunkostn- aðar. Forsenda þess er þó sú að áður náist fram endurskoðun á húsaleigubótakerfinu þannig að einstakling- ar sem þurfa á aðstoð að halda fái hana eftir sem áður. Ávinning- urinn sem borgin væntir af þessari breytingu er sá að ná betri heildarsýn yfir leiguíbúðir borgarinn- ar. Jafnframt von- umst við til þess að þjónustan batni, viðhorfið til leiguíbúða borg- arinnar breytist og ekki síst að það skapist aukin hreyfing innan fé- lagslega íbúðakerfisins. Nýtt mat á aðstæðum einstaklinga og fjöl- skyldna leiðir vonandi í ljós að nokkur hluti leigjendanna er nú þannig settur að hann getur hag- nýtt önnur úrræði sem bjóðast, t.d. eignaríbúðir í félagslega kerfinu. Með hliðsjón af því að leiguíbúða- kerfi sveitarfélaganna er ætlað að þjóna þeim sem lakast eru settir og enn fer því fjarri að okkur hafi tekist að útrýma biðlistum hjá borginni er mikið kappsmál að koma þessari hreyfingu á innan kerfisins. Ef allt fer að óskum er ekkert því til fyrirstöðu að ná- grannasveitarfélögin komi að þessu máli og nýti sér þjónustu hins nýja félags. í framtíðinni hlýt- ur líka að koma til álita að fela félaginu einnig umsjón með öðru húsnæði á vegum borgarinnar s.s. skrifstofuhúsnæði, skólum, leik- skólum o.s.frv. Rekstur fasteigna er ekki hluti af opinberri stjóm- sýslu - jafnvel þótt opinberir aðilar eigi fasteignir sem annast þarf rekstur á. í rekstri fasteigna er þörf fyrir tiltekna faglega þekkingu - en hins vegar er ekkert sem kallar á að hinar flóknari reglur sem gilda um opinbera stjómsýslu ríki þar. Samstarf við Búseta í júní 1995 var undirritaður samningur um tilraunaverkefni milli Reykjavíkurborgar og Búseta varðandi viðhald og rekstur hluta af leiguíbúðum Félagsmála- stofnunar, alls 98 íbúðir. Megintil- gangur verkefnisins var að fá sam- anburð á viðhaldi og rekstri íbúða í umsjón Búseta miðað við núver- andi fyrirkomulag á rekstri íbúða borgarinnar og um leið að kanna hvort hægt sé að bjóða út við- halds- og eignaumsjón. Á þessum tíma hefur verið leitast við að þróa hagkvæmari leiðir í viðhaldi og rekstri íbúðanna. Safnað hefur verið saman grunnupplýsingum varðandi fasteignaskráningu og eignaumsýslu íbúðanna. Á grund- velli þessara upplýsinga hefur ver- ið gerð langtímaáætlun um viðhald og tekið saman yfirlit yfir heildar- húsnæðiskostnað þannig að hægt er að bera saman tekjur og gjöld vegna þessara íbúða. Í samstarfinu við Búseta hefur einnig verið gert átak í frágangi lóða, orkusparnaði og öryggismálum og gerð athugun á breyttu fyrirkomulagi með hús- vörslu. Tilraunatímabilinu lýkur um næstu áramót og því er enn of snemmt að segja til um niður- stöðu þess en þó má fullyrða að reynslan af þessu tilraunaverkefni mun án efa koma að góðum notum við þá endurskipulagningu sem nú Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er hafin á rekstrarformi leiguíbúða Reykj avíkurborgar. Reykjavíkurborg á réttri leið _ Félagsvæðingu þá sem hér hefur verið fjallað um þarf að skoða í víðu samhengi. Hún er einn hlekk- ur í þeirri viðhorfsbreytingu í opin- berum rekstri sem ég gat um í upphafi greinarinnar. Hún ber vott um ný vinnubrögð sem hafa það að markmiði að nýta takmarkað skattfé Reykvíkinga betur en gert hefur verið. Þörfm fyrir þjónustu opinberra aðila er takmarkalítil og alltaf má hugsa sér að gera betur og veija meira fé í rekstur fjöl- margra málaflokka. Það sem víö^hj vitum þó öll er að því eru takmörk sett hvað hægt er að sækja mikið fé í vasa skattborgaranna til þess að standa undir sívaxandi kröfum. Víðast eru verkefni stjórnmála- manna því ekki lengur að stjórna vexti eins og verið hefur lengst af þessari öld, heldur að stjórna breytingum. Viðfangsefnið felst meðal annars í því að skilgreina hver eru mikilvægustu verkefnin og raða þeim fremst í forgangsröð- ina þegar fjármunum er skipt milli verkefna. Þá er nauðsynlegt að velta því fyrir sér hvort rekstur sem sveitarfélög hafa sinnt er ekki allt eins vel - og jafnvel betur -mu kominn í höndum annarra. Það þarf hins vegar ekki að breyta neinu um þá pólitísku ábyrgð sem sveitarstjórnmenn bera á því að veita viðunandi félagslega þjón- ustu á fjölmörgum sviðum. Áðrir þættir, sem ég tel ekki síður mikil- væga, eru fólgnir í að endurskoða vinnubrögð og vinnuferla í þeim rekstri sem eftir stendur hjá opin- berum aðilum til þess að gera hann hagkvæmari og bæta þjónustu. Endurskoðun af þessu tagi er haf-Jfy in hjá Reykjavíkurborg og trúlega erum við heldur síðar á ferðinni í því efni en höfuðborgirnar annars staðar á Norðurlöndum. Við höfum einsett okkur að leita fyrirmynda um það sem vel hefur gefist ann- ars staðar. Það mun taka tíma að endurskipuleggja rekstur og við- horfin hjá Reykjavíkurborg - en I mínum huga er ekki vafi á því að við erum á réttri leið. Höfundur er borgarstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.