Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 35 MINNIIVIGAR BAKLAND Guðmundar J. Guðmundssonar var löngum meðal verkamanna við Reykjavíkurhöfn, í minningu Guðmundar J. Guð- mundssonar. Vestan um haf barst helfregn köld horfínn var góður drengur bak við óræðust tímans tjöld, titraði ómsár strengur. Foringi fallinn var frækinn af verkum sínum hljóðnaði í huga mínum harmljóðið sungið var. Lengi hann fremst í stafni stóð styrjaldir ýmsar háði. Vaskastur allra á vígaslóð vinninpm mörpm náði. Atti hann dáð og dug djörfung og viljann hreina, hann lét ei hindrun neina hefta né vísa á bug. Otrauður hann um æviskeið alþýðu krafta léði. Framtíðarsýnin há og heið hugsjónin göfga réði. Atti á ögurstund eggjan heita til dáða, lét hann réttlætið ráða rómuð hans karlmannslund. Félaga kæran kveð ég nú klökkvi er mér í sinni. Yfir hans sögu bjarma ber bjartan í framtíðinni. íslensk alþýða fær aldrei þakkað sem vildi. Skarð er nú fyrir skildi. Skínandi er minning tær. Helgi Seljan. Guðmundi J. Guðmundssyni (þá í Ingimarsskólanum) kynntist ég í Æskulýðsfylkingunni veturinn 1943-44. Þann vetur sem hinn undanfarandi gekk allmargt pilta - og allnokkrar stúlkur - í fylking- una. Hófst þá skeið vaxtar hennar og viðgangs, sem stóð fram til loka sjötta áratugarins, og í breyttri mynd nokkru lengur. Flestir þess- ara nýliða voru frá heimilum verka- manna, iðnaðarmanna og sjó- manna, mótaðir af viðhorfum kreppuára fjórða áratugarins, og litu þeir sósíalisma sem fyrirheit um bætt samfélag. Flestir þeir, sem í fararbroddi fylkingarinnar höfðu verið fyrstu ár hennar, svo sem Snorri Jónsson og Stefán Magnússon, höfðu þá alfarið snúið sér að verkalýðsmálum, og í forsvari á styijaldarárunum voru einkum Haraldur Steinþórsson, Lár- us Bjamfreðsson, Gísli Halldórsson og Halldór Stefánsson, að ógieymd- um Bóasi Emilssyni, er sem formað- ur 1945 beitti sér fyrir byggingu skála í Rauðhólum, sem örvaði útilífsþáttinn í starfi fylkingarinnar, sem hámarki náði á sjötta áratugn- um með ferðum á heimsmót æsk- unnar. Eins og önnur pólitísk æsku- lýðsfélög á þessum árum safnaði fylkingin nýrra félagsmanna í skól- um og á vinnustöðum og kom nokkr- um hundruðum á skrá og átti alla jafna á annað hundrað virkra félags- manna. Hittust þeir á félagsfundum og á skemmtunum, vínlausum fram yfir miðjan sjötta áratuginn. Við Guðmundur J. urðum strax í hópi áhugasamra, sem fundi sóttu reglulega og reyndu að leggja til máia. I fyrstu hafði hann sig lítt í frammi, en vakti ósjálfrátt traust og fór brátt að gegna trúnaðarstörf- um. Og varð hann forseti landssam- bands Æskulýðsfylkingarinnar 1950-52. Á þessum árum fóru skoðanir okkar mjög saman, og leit hann stundum til mín á kvöldin. Ræddum við þá það, sem hæst bar innan sjóndeildarhrings okkar. Og síðan í hálfan annan áratug rædd- umst við öðru hverju við, oftast á Miðgarði eða í risinu á Tjarnargötu 20. Frá styrjaldarlokum og fram undir miðjan sjötta áratuginn vann Guðmundur J. ýmist sem verka- maður eða lögreglumaður, og varð hann ötull félagsmaður Dagsbrún- ar. í verkfalli Dagsbrúnar og all- margra annarra verkalýðsfélaga í desember 1952 var hann formaður verkfallsstjórnar hennar. Að verk- fallinu loknu var hann kjörinn í stjórn Dagsbrúnar, og um sumarið var hann í framboði til Alþingis fyrir Sósíalistaflokkinn. í verkföllunum miklu í mars- apríl 1955, ef til vill mestu verkföll- um sem hériendis hafa verið háð, var Guðmundur J. enn formaður verkfallsstjórnar Dagsbrúnar og sá, sem verkfallsvarsla hvíldi öðrum fremur á. í þeim átökum kom glögglega fram hógværð, lagni og festa hans, ef til vill helstu eðlis- þættir hans. Og var hann upp frá því talinn til forystusveitar verka- lýðshreyfingarinnar. Ári síðar var hann kjörinn í miðstjórn Sósíalista- flokksins, en í henni og miðstjórn Alþýðubandalagsins sat hann til 1987; borgarfulltrúi var hann 1958-62 og alþingismaður 1979-87. í verkfalli Dagsbrúnar og Fram- sóknar tíu árum síðar, 1965, sýndi Guðmundur J. enn lagni sína og festu, en verkfallið háðu félögin með yfirvinnubanni og dagsverk- föllum. I veikindum Eðvarðs Sig- urðssonar lagði Guðmundur til þá lausn, í samráði við Finnboga Rút Valdimarsson, að fallist yrði á 4% kauphækkun og styttingu vinnu- viku í 44 stundir, ef ríkisstjórnin stæði að byggingu 1.250 félags- legra íbúða. „Þannig varð Breiðholt til,“ sagði hann Ómari Valdimarssyni, sem tók saman viðtalsbók við hann (síðara bindi, bls. 56). Haraldur Jóhannsson. Það var í „stóra verkfallinu“ 1955 að Morgunblaðið sór þá ímynd inn í þjóðarvitundina að Guðmundur jaki væri eins konar séríslenskur Che Guevara sinnar kynslóðar: Uppreisn- armaður og skæruliðaforingi. Verkfallið stóð að mig minnir í allt að sex vikur. Þjóðfélagið var lamað. Ólafur Thors var forsætisráð- herra og réð ekki neitt við neitt. Hannibal stýrði ASÍ. Á hveijum morgni las hann um sig óbóta- skammir með morgunkaffinu, enda var hann óvenju léttur í spori og glaðbeittur þessa dagana. Verka- lýðshreyfingin var staðráðin í að knýja fram hvort tveggja: Verulegar kauphækkanir og loforð stjórnvalda um lögbindingu atvinnuleysistrygg- inga. Tuttugu árum áður, í ríkisstjórn hinna vinnandi stétta, lagði Haraldur Guðmundsson, atvinnumálaráðherra Alþýðuflokksins, fram frumvarp til laga um almannatryggingar, þar með talið atvinnuleysistryggingar. Framsókn setti það sem skilyrði fyr- ir stuðningi við stjórnarfrumvarpið, að kaflinn um atvinnuleysistrygg- ingar yrði tekinn út. Það þótti þeim of dýru verði keypt - í miðri krepp- unni. Nú var verkalýðshreyfingin staðráðin í að bæta fyrir þessi mi- stök. Nú skyldi hefna þess í héraði sem hallast hafði á Alþingi, 20 árum áður. Guðmundur joð sá um verkfalls- vörsluna með víkingasveit Dags- brúnar. Höfnin var harðlæst. Ekki bensíndropi afgreiddur. Mjólkinni var hellt niður - og Guðmundur sakaður um að hafa líf saklausra bijóstmylkinga á samvizkunni. En verkfallsbijótar komust ekki upp með moðreyk. Þá var Guðmundi jaka að mæta og víkingasveit hans. Það lögðu fáir í ’ann. Þjóðin skiptist í tvær fylkingar með og móti Guðmundi jaka. Blöðin voru full ýmist af bænakvaki eða baráttukveðjum. Sumir báðu guð sér til hjálpar að nú yrði að koma á „röð og reglu"; sjálf siðmenningin væri í húfi. Aðrir vitnuðu í Skáldið með stórum staf: Vont væri þeirra ranglæti en verra þeirra réttlæti. Og sögðust aldrei myndu feija kóngsins bífalningsmann yfir Skerjafjörð stéttabaráttunnar. Við skólastrákar í MR höfðum brennandi áhuga á þessum hasar. Við kröfðumst þess að fá leyfi úr tíma til að sækja útifund á Lækjar- torgi. Því var umsvifalaust hafnað. Þá rifum við alla glugga upp á gátt svo að boðskapurinn buldi í hlustum okkar úr hátölurum harkaliðsins. En þegar Ebbi í Dagsbrún fór að tíunda „árangrana af kjarabarátt- onum“ var Jóni Guðmundssyni, ís- lenskukennara, öllum lokið. Hann skellti aftur gluggum með þeim ummælum, að hvað svo sem liði öll- um kaupkröfum, skyldi engurn líðast að spilla svo málkennd skólapilta að andleg örkuml gætu hlotist af. Við það sat. En hann reiknaði ekki með radd- styrk jakans. Fimmbulbassinn buldi á glerinu. Við fengum að vísu ekki að sjá hann. En þá heyrði ég hann í fyrsta sinn - en ekki það síðasta. Með Guðmundi J. Guðmundssyni er horfinn af sjónarsviðinu seinasti verkalýðsleiðtoginn af gamla skól- anum. Honum sveið svo sárlega nið- urlæging fátæktarinnar á kreppuár- unum, að hann gat engum fylgt að málum, sem ekki lét hendur standa fram úr ermum. Hann heimtaði heil- agt stríð gegn ranglætinu. Hann krafðist mannsæmandi lífskjara fyr- ir sitt fólk - og það strax. Og engin undanbrögð, engar refjar. Þess vegna hreifst Guðmundur t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ALBERT FINNBOGASON, fyrrverandi bóndi, frá Erpsstöðum Dalasýslu, Álfheimum 36, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. júní kl. 13.30. Elísabet Benediktsdóttir, Anna Margrét Albertsdóttir, Hildiþór Kr. Ólafsson, Guðrún Albertsdóttir, Páll Björnsson, Svanhildur Albertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, STEINAR BJARNASON trésmiður, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, áður Dvergasteini, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 24. júní kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Heimahjúkrun Krabbameinsfélagsins. Hróðný Pálsdóttir, Steinunn Steinarsdóttir, Garðar Steinarsson, Sigurður Steinarsson og fjölskyldur. t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐMUNDAR M. ÞÓRÐARSONAR, bryta, Laugarásvegi 1. Sæmunda G. Pétursdóttir, Hilmar Guðmundsson, Guðrún M. Valgeirsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir, Sigvaldi Viggósson, Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir, Brynjar Eymundsson, Hulda C. Guðmundsdóttir, Stefán Finnbogason, Ólafur D. Guðmundsson, Valgerður Jónasdóttir, og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra JÓNMUNDAR EINARSSONAR stýrimanns, Engjaseli 84, Reykjavík. Hrafnhildur Eiríksdóttir, Harpa Dís, Einar Sævar, Anna Karen, Valdís Pálsdóttir og systkini hins látna. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför, SIGURÐAR TRYGGVASONAR kennara, Kópavogsbraut 86, Kópavogi. Inga Hanna Ólafsdóttir, Hulda Björg Sigurðardóttir, Haukur Sigurðsson, Anna Margrét Sigurðardóttir, Ólafur Atli Sigurðsson. Lokað Skrifstofa mín verður lokuð eftir hádegi mánudaginn 23. júní nk. vegna jarðarfarar GUÐMUNDAR J. GUÐMUNDSSONAR. Atli Gfslason hrl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.