Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 15/6-21/6 Aw%—-- ► 17. JÚNÍ hátíðarhöld fóru vel fram um allt land. Á höfuðborgarsvæðinu var óveiýugóð þátttaka vegna blíðviðris en á landsbyggð- inni þurfti sums staðar að færa hátíðarhöld, sem vera áttu utandyra, í hús. ► GRASMAÐKUR hefur valdið miklu tjóni á túnum jarða í Landsveit, en hann hefur eytt grasi á hátt í 100 hektara túnum á nokkrum bæjum. Þá hefur maðkur valdið gróðurskaða undir Eyjafjöllum og talið er að hann hafi eytt nokkur hund- ruð hekturum af úthaga. ► VEGNA mikilla kulda er sauðfé víðast hvar í Þingeyj- arsýslum enn á túnum, sein nú eru að verða uppurin. Ekki hefur verið hægt að setja kýr út, þar sem enginn hagi er fyrir þær, og þar við bætist að nokkurt kal er í túnum. Enn er ekki Jjóst hvort kuldinn hefur haft áhrif á fuglalíf norðanlands. ►ATVINNULEYSI í Reykjavík eykst samkvæmt úttekt atvinnumálanefndar borgarinnar. 3.129 einstakl- ingar voru atvinnulausir í júní í fyrra en eru nú orðn- ir 3.155. Af öllum atvinnu- lausum í Reykjavik í lok árs 1996 bjuggn um 15% utan höfuðborgarsvæðisins 1990. ►FISKAFLI innan lögsögu Islands og á Reykjanes- hrygg var í lok maimánaðar orðinn 1,4 milljónir tonna. Auk þess var afli utan lög- sögu orðinn um 184.000 tonn. Heildaraflinn er því að nálgast 1,6 milljónir tonna. Það er með þvi mesta sem áður hefur veiðst á einu ári, en enn eru þrír mánuð- ir eftir af fiskiveiðiárinu. Flugleiðir kaupa fjórar nýjar þotur FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að kaupa flórar nýjar þotur af Boeing verksmiðj- unum bandarísku á næstu fímm árum sem kosta munu milli 14 og 15 millj- arða króna. Jafnframt hefur verið gengið frá rammasamningi um kaup- rétt á allt að átta þotum til viðbótar og hefur fyrirtækið þannig markað stefnu um þotukaup til ársins 2006. í kjölfar frétta af kaupunum hækkuðu hlutabréf í Fiugleiðum um 14%. Síðustu handritin komin heim SÍÐUSTU handritin sem Danir af- henda íslendingum úr Konungsbók- hlöðunni og Árnasafni í Kaupmanna- höfn komu til landsins á miðvikudag. Þau voru formlega afhent við setningu dansks-íslensks málþings um handritin, sem haldið var í hátíðasal Háskóla ís- lands. Þrengt að norskum skipum GEFIN hefur verið út reglugerð, þar sem mjög er þrengt að veiðum norskra loðnuskipa innan íslensku lögsögunnar frá því sem verið hefur. Ríkisstjómin áætlar að auka fjárveitingar um 20 milljónir króna á þessu ári vegna auk- ins eftirlits með veiðum erlendra loðnu- skipa innan lögsögunnar. Meintar falsanir kærðar til RLR TUTTUGU verk, vatnslitamyndir og málverk, hafa verið kærð til Rannsókn- arlögreglu ríkisins vegna gruns um meinta fölsun, en í mars síðastliðnum voru þrjú verk eignuð þjóðkunnum listamönnum kærð til RLR af sömu ástæðu. Ellefu verkanna eru í eigu Kjarvalsstaða, eitt í eigu Listasafns íslands og átta í eigu fjögurra einstakl- inga. Samanlagt söluverð verkanna er tæpar 5 milljónir króna. Hague kjörinn leið- togi íhaldsflokksins WILLIAM Hague var kjörinn leiðtogi breska íhaldsflokksins á fimmtudag er hann sigraði keppinaut sinn, Ken- neth Clarke, með 92 atkvæðum gegn 70, í þriðju umferð leiðtogakjörsins. Hague er 36 ára og verður yngsti leið- togi flokksins í nærri 200 ár. Hann tekur við af John Major sem ákvað að draga sig í hlé eftir að íhaldsflokk- urinn hafði beðið mikinn ósigur í þing- kosningunum 1. maí sl. Hinn nýi leið- togi sagði að sitt fyrsta verk yrði að sameina flokkinn, en leiðtogakjörið hefði skerpt deilur innan hans vegna Evrópumála. „Ég lít svo á, að hlut- verk mitt felist ekki eingöngu í því að leiða flokkinn, heldur einnig í því að bera klæði á vopnin. Ég skulda hvetjum einasta flokksfélaga fullvissu um það að ég muni rétta öllum sáttar- hönd,“ sagði Hague. Afþakkaði Clarke ábyrgðarstöðu í skuggaráðuneyti hans á þeirri forsendu að hann hefði verið frambekksmaður i þinginu samfleytt í 26 ár. Samkomulag um myntbandalagið FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evrópu- sambandsins (ESB) náðu samkomu- lagi um stöðugleikasáttmála Evr- ópska myntbandalagsins (EMU), á fundi sínum í Amsterdam sl. mánu- dag. Með þessu samkomulagi má ætla að síðustu hindrun evrópska myntbandalagsins hafi verið rutt úr vegi. Samkomulagið felur m.a. í sér að efnt verður til sérstakrar ráð- stefnu um atvinnumál á vegum ESB í haust auk þess sem Evrópska fjár- festingarbankanum (EIB) verður falið stærra hlutverk í atvinnusköp- un innan ESB. Er þar komið til móts við þá kröfu Frakka að meiri áhersla verði lögð á hagvöxt og at- vinnusköpun í inntökuskilyrðum EMU. ► FÉL AGAR í írska lýð- veldishernum (IRA) myrtu á mánudag tvo lögreglumenn í fyrirsát við bæinn Lurgan á N- írlandi. Dregur árásin enn úr friðarvonum þar í landi og hefur breska stjórnin ákveðið að slíta viðræðum við Sinn Fein, stjórnmálaarm IRA, en stjórnvöld hófu þær að nýju í síðasta mánuði eft- ir árs hlé. ► MESUT Yilmaz, leið- toga Föðurlandsflokks- ins, var falin stjórnar- myndun í Tyrklandi í fyrradag, í kjölfar af- sagnar Necmettins Er- bakans, leiðtoga Velferð- arflokksins. ► BÖRN sem alin eru upp hjá feðrum sínum ná betri tengslum við hitt foreldrið, báða afa sína og ömmur, en börn sem alin eru upp hjá móður, samkvæmt danskri rann- sókn. Það kemur fram að börn sem búa þjá feðr- um sínum missa síður tengslin við móður sína, hitta afa og ömmur oftar og í mörgum tilfellum er um sameiginlegt forræði að ræða. ► FRANJO Tudjman fór með sigur af hólmi í for- setakosningum í Króatíu á sunnudag en hlaut að- eins atkvæði 37% kjós- enda. Kjörsókn var ein- ungis 57% og sögðu stjórnmálaskýrendur þátttökuna og úrslitin endurspegla áhugaleysi almennings. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Jónsmessugleði í Eyjum V estmannaeyjum - Árleg Jóns- messuhátíð var haldin í Vest- mannaeyjum á föstudagskvöld en slík hátíð hefur verið haldin í Eyjum í áraraðir. Hátíðin er haldin í Ilerjólfsdal og það er ÍBV sem stendur fyrir henni. Sú hefð hefur skapast hjá mörgum fyrirtækjum í Eyjum að halda grillkvöld sama kvöld og Jónsmessuhátiðin er haldin. Er þá grillað í lautum víðsvegar um Heimaey og er líða tekur á kvöldið halda menn I Heijólfs- dal. Vel viðraði til hátíðarhalda í Eyjum á föstudagskvöld og voru um 700 manns saman komnir í Heijólfsdal á hátíðinni sem fór þokkalega vel fram að | sögn lögreglunnar. Talsverður k erill var samt hjá lögreglunni og gistu tveir fangageymslur og einn var tekinn grunaður um ölvunarakstur. Iðnaðarráðuneytið um gjaldskrár veitufyrirtækja Afnema ber ( engingu t þeirra við vísitölur Gjaldskrárbreytingar nokkurra hita- og rafveitna áriö 1996, og miðað við neysluverðsvísitölu HITAVEITUR Breyting á verði gjaldskrðr Breyting neysluverðs- vísitölu MIS- MUNUR Hitav. Akraness og Borgarfjarðar +2,8% +2,0% +0,8% ÍHitaveita Akureyrar -1,8% +2,0% -3,8% Hitaveitra Hríseyjar 0,0% +2,0% -2,0% gHitaveitra Mosfellsbæjar +7,4% +2,0% +5,4% Hitaveitra Reykjavíkur +4,0% +2,0% +2,0% Hitaveitra Þorlðkshafnar +7,0% +2,0% +5,0% Orkuveita Húsavíkur +12,0% +2,0% +10,0% ÍRafmagnsveitur ríkisins +3,3% +2,0% +"1)3% Hitaveita Suðurnesja 0,0% +2,0% ■2,0% Meðaltal allra hitaveitna RAFVEITUR +1,7% +2,0% Rafveita Akureyrar -5,8% +2,0% ■7,8% jRafveita Reyðarfjarðar 0,0% +2,0% -2,0% Rafmagnsvelta Reykjavíkur +3,0% +2,0% +1,0% (Rafveita Sauðárkróks 0,0% +2,0% -2,0% Orkuveita Húsavíkur +3,0% +2,0% +1,0% {Rafmagnsveitur rikisins +3,0% +2,0% +1,0% Hitaveita Suðurnesja -12,5% +2,0% ■14,5% Meðaltal allra rafveitna -0,2% +2,0% ÞEIM tilmælum hefur verið beint til veitustofnana af hálfu iðnaðarráðu- neytisins að felld verði úr gjaldskrám þeirra ákvæði um að heimilt sé að hækka verð samhliða hækkun bygg- ingavísitölu. „Við viðurkennum í raun og veru þá staðreynd að þessu ákvæði hefur ekki verið beitt og þess vegna teljum við það ekki eiga erindi í reglugerðirnar," segir Hall- dór J. Kristjánsson ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytis. Vinnuveitendasamband íslands beindi þeim tilmælum til ráðuneyt- isins að það beitti sér fyrir afnámi þessarar heimildar. Telja forráða- menn VSÍ að heimildir til hækkunar gjaldskrár samkvæmt hækkun byggingarvísitölu séu minjar frá löngu liðnum tímum óðaverðbólgu. „Við viljum að þetta sé alveg af- tengt. Það er engin ástæða til að ætla annað en að raunverð á orku geti farið lækkandi, m.a. i kjölfar samninga Landsvirkjunar og þá verður þessi tenging ennþá óeðli- legri. Þessi vísitala mælir alls ekki þann tilkostnað sem veiturnar hafa og er þess vegna óeðlileg viðmiðun," segir Halldór J. Kristjánsson einnig og segir ráðuneytið þegar hafa sent hlutaðeigandi veitum bréf um að þetta ákvæði verði tekið til endur- skoðunar. Ekki hentugur mælikvarði í greinargerð sem iðnaðarráðu- neytið sendi frá sér vegna þessa máls tekur ráðuneytið undir sjónar- mið VSÍ um að byggingarvísitalan sé ekki hentugur mælikvarði á verð- lagsbreytingar og að slík gjaldskrár- heimild geti kallað á sjálfvirkar verð- hækkanir hjá veitufyrirtækjum. Jafnframt segir að því sé fjarri að veiturnar hafí notfært sér þessi ákvæði. „í fæstum tilfellum taka veitufyrirtæki mið af hækkun bygg- ingarvísitölu við ákvörðun gjald- skrár, enda hefur fjárhagur flestra veitna vænkast á síðustu árum og þær því betur i stakk búnar að lækka raunverð rafmagns og hita.“ Þá kemur fram í gögnum sem ráðuneytið hefur tekið saman að flestar veitur hafí hækkað gjaldskrá sína minna en nemi hækkun bygg- ingarvísitölu og lítil fylgni virðist vera milli gjaldskrár veitna og bygg- ingarvísitölu. „Verð á rafmagni og hita í neysluverðsvísitölu hefur sam- tals hækkað um 2,4% á síðustu þremur árum á meðan vísitalan í heild hefur hækkað um 5,6% á sama tímabili. Því fær það ekki staðist að veitufyrirtæki hafi almennt ýtt undir verðbólgu með sjálfvirkum hækkun- um sem taka mið af hækkun bygg- ingarvísitölu," segir i greinargerð ráðuneytisins. Sé gluggað í samantekt iðnaðar- ráðuneytisins um gjaldskrárbreyt- ingar hitaveitna í samanburði við byggingarvísitölu kemur í Ijós að gjaldskrá Hitaveitu Hríseyjar hefur aðeins hækkað um 5% frá í janúar 1990 til febrúar í ár en vísitalan um 95% á sama tíma. Gjaldskrá Hita- veitu Brautarholts hefur staðið í stað frá í mars 1991 fram í maí í ár en á sama tíma hækkaði vísitalan um 20,9% og Hitaveita Laugaráss í Biskupstungum lækkaði gjaldskrá sína um 12% frá janúar 1995 og fram í mars í fyrra meðan bygging- arvísitalan hækkaði um 4,9%. Hita- veita Reykjavíkur hækkaði hins veg- . ar sína gjaldskrá um 4% á tímabilinu 1 júní 1995 til maí 1996 en á þeim ( tíma hækkaði byggingarvísitalan um ■ 2,9%. 1 Þá má nefna að gjaldskrá Raf- veitu Sauðárkróks hefur staðið í stað frá árinu 1991 en byggingarvísitala hækkaði um 16,9% á sama tíma, þjá Akranesveitu hefur gjaldskrá hækk- að um 3,1% frá september 1996 til mars 1997 á sama tíma og bygg- ingavísitalan hækkaði um 0,6%. Meðaltalshækkun hitaveitna 1996 1 er 1,7% en hækkun neysluverðsvísi- | tölu á sama tíma var 2% og hjá raf- ■ veitum er meðalhækkun gjald- " skránna á sama tímabili 0,2%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.