Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 8
8 SUNNUDÁGUR 22. JÚNÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ nægir ekki lengur að geta talið saman á puttunum . . . Þijátíu ár frá stofnun Umferðarskólans Yfir 75% 5 og 6 ára barna sækja skólann MIKIL aðsókn er að Umferðarskól- anum í sumar og nú þegar hafa mætt yfir 75% allra fímm og sex ára barna sem fengið hafa boð um að koma á námskeið. Á námskeiðunum spjalla lög- regluþjónar og leikskólakennarar við bömin um þær aðstæður í umferðinni sem þau þekkja af eig- in raun og lögð er áhersla á að börnin fái að tjá skoðanir sínar og reynslu. Þá er sögð umferðarsaga um Binna bangsa og vini hans eftir Sigrúnu Eddu Bjömsdóttur leikara en leikmynd við söguna er eftir Helgu Rún Pálsdóttur, leik- mynda- og búningahönnuð. Einnig eru sýndar stuttar kvikmyndir og umferðarmyndir á glærum. Mikilvægi hjólreiðahjálma Það sem af er þessu ári hafa böm í 26 bæjar- og sveitarfélögum átt þess kost að sækja umferðar- námskeið. Öllum fímm og sex ára bömum í umdæminu eru send boðsbréf og eru foreldrar þeirra og forráðamenn einnig hvattir til að mæta. Kennslan fer fram í grunnskólum á hverjum stað og er hún ókeypis. Umferðarskólinn er samstarfsverkefni Umferðar- ráðs, lögreglu og sveitarfélaga, en þrjátíu ár eru nú liðin frá því að skólinn hóf starfsemi. Tilgangur námskeiðanna er að vekja athygli-barnanna á atriðum í umferðinni sem varða öryggi þeirra og er því sérstaklega fjallað um reglur fyrir gangandi fólk, um hjólreiðar bama og mikilvægi þess að þau noti hjólreiðahjálm. Einnig er rætt um notkun barnabílstóla og bílbelta. Húsavík Hjólreiðamað- ur fyrir bíl MAÐUR á reiðhjóli varð fyrir bíl á Húsavík í fyrradag. Að sögn lög- reglu hjólaði maðurinn í veg fyrir bílinn, sem hann virðist ekki hafa séð, en bíllinn var ekki á mikilli ferð. Maðurinn var fluttur á sjúkra- húsið á Húsavík, þar sem hann er til eftirlits. Að sögn Gísla Auðuns- sonar læknis er hann óbrotinn og líðan eftir atvikum. Colon Care gegn ýmsum ristilkvillum C()U)> JS M * * < #' : * Itrif # » # - gegn hœgðatregðu - gegn niðurgangi - gegn minni ristilbólgum - vinnur að eðlilegum þarmahreyfingum - byggir upp heilbrigða þarmanóru, t.d. eftir töku fukkalyjja eða eftir ferðalög - mjög árangursrtkt en samt milt - íslenskar leiðbeiningar - blanda sem á sér enga lika - aðeitis hágteða hráefni án nokkurra aukaefna -fiest í apótekum og heilsuverslunum Hver skammtur innihcldur: 5 gr. af Psyllium husk/mjúkar trefjar. 17 gr. bygg/malt extrakt með vítamínum og steinefnum. 1 billjón af lífvænlegum Adidiphilus (Lactobacillus Acidophulus). 1 billjón af lífvænlegum Bifidus (Bifidobacterium Longum). 250 mg af C-vítiamfni (Calsim Ascorbate). Ekki súrt í maga. Medico Scandinavia House í New York Frumkvæði Islendinga skiptir sköpum STOFNUNIN American- Scandinavian Found- ation í Bandaríkjunum var stofnað árið 1910 og er markmið þess að auka skiln- ing og vináttu milli Banda- ríkjamanna og þjóða Norð- urlandanna. Er þetta gert með ýmsum hætti, þ.ám. nemendaskiptum. Einnig veitir hún stofnunum og ein- staklingum verðlaun fyrir menningarafrek og stendur fyrir margvíslegri útgáfu, myndlistarsýningum, tónleik- um og kynningarsamkomum. Reksturinn er fjármagnað- ur með vöxtum af stofnfé auk stuðnings frá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum en um 4.000 manns eiga aðild að ASF vestanhafs. Stofnunin stendur nú fyrir herferð til að afla fjár til hönnunar og framkvæmda Scandinavia House og er markmið- ið að safna rúmum milljarði króna. „Húsakynnin sem keypt voru fyrir Scandinavia House eru í hjarta New York og á mjög góðum stað, á Park Avenue nr. 56-58, milli 37. og 38. strætis og stutt í samgöngumiðstöðvar eins og Grand Central-járnbrautastöðina," segir Gallagher. „Við verðum með fyrirlestrasal, myndlistarsali, tón- leika- og kvikmyndasali, bóksölu og kaffíhús, funda- og móttöku- herbergi. Þetta verður mikil um- bylting á öllum aðstæðum, fyrsta norræna húsið af þessu tagi í Bandaríkjunum. Hægt verður að auka veg nor- rænna hagsmuna á sviði menning- ar og viðskipta með langtum víð- tækari hætti en hingað til. Við munum geta efnt til hvers kyns menningarviðburða í eigin húsi og haldið ráðstefnur um efnahagsmál og fleiri efni þar sem Bandaríkja- menn geta fengið innsýn í líf og menningu Norðurlandaþjóðanna." - Gera Bandaríkjamenn sér yfír- leitt grein fyrir muninum á Norð- urlandaþjóðunum? „Ég held að Bandaríkjamenn ættu að vera betur upplýstir um Norðurlöndin og það er eitt af markmiðum okkar að auka skiln- ing á því hve menning og saga þjóðanna fímm er margbrotin. Það er sennilega rétt að banda- rískur almenningur er ekki jafn alþjóðlega sinnaður og gerist t.d. á Norðurlöndunum og annars stað- ar í Evrópu en þessu viljum við gjarnan breyta. Við vonumst til að geta nýtt húsakynnin til fulls árið 2000. Hvert fyrir sig geta Norðurlöndin ekki gert mjög mikið til að efla veg menningar sinnar, vísinda og viðskipta í Bandaríkjunum en með sameiginlegu átaki geta þau miklu meira. Þetta á einnig við um hugmynd á borð við Scandinavia House. Þar verður alltaf eitt- hvað að gerast sem vekur athygli í menn- ingarheimi New York og annars staðar í Bandaríkjunum.“ - Hvemig gengur fjáröfiunin? „Hún gengur vel. Féð er að mestu leyti framlag einkaaðila, um tveir þriðju hlutar kostnaðarins. íslendingar hafa verið afar áhuga- samir um framgang ASF og verið hinum góð fyrirmynd, sýnt hvað hægt er að gera. íslenskir stuðn- ingsmenn vestra hafa lagt fram yfír 100.000 dollara, um sjömilljón- ir króna, og íslensk fyrirtæki tvö- faldað þá fjárhæð. EDWARD P. Gallagher er Bandaríkjamaður og var kjör- inn forseti The American- Scandinavian Foundation (ASF) sl. haust. Hann lauk MBA-námi í viðskiptafræðum við Columb- ia-háskóla og BA-námi við Ber- keley-háskóla. Eitt helsta verk- efni hans núna er að undirbúa starfsemi norræns menningar- seturs, Scandinavia House and Nordic Center, sem á að hefjast á næsta ári í New York. Gallag- her sér einnig um útgáfu tíma- ritsins Scandinavian Review. Hann var áður einn af yfir- mönnum Nútímalistasafnsins í New York og Smithsonian- stofnunarinnar og frá 1990 var hann stjórnandi Hönnunaraka- demíu Bandaríkjanna. í síðast- nefnda starfinu skipulagði hann fjölda sýninga og kynningu á norrænni menningu í Banda- ríkjunum. Það er einnig búist við því að ríkisstjómir Norðurlandanna veiti fé til hússins. Viðbrögð íslenskra ráðamanna hafa verið jákvæð. Ríkisstjómin hefur heitið að leggja fram 250.000 dollara, 17,5 millj- ónir króna, gegn því að hin Norð- urlöndin leggi einnig fram fé. Fmmkvæði íslenskra ráða- manna hefur verið afdrifaríkt, það skipti sköpum að utanríkisráð- herra íslands skyldi taka þetta mál upp. Með þessum hætti þrýsti hann mjög á um að það fengi stuðning og við gerum okkur nú vonir um að ákvarðanir verði tekn- ar um fjárstuðning fljótlega, jafn- vel á næsta ári.“ - Halda íslendingar vel sínum hlut gagnvart hinum Norðurlönd- unum þegar kemur að námsstyrkj- um? „Það eru nokkrir sjóðir sem styrkja fólk til náms og á hverju ári fá um 20 íslenskir stúdentar styrk. Öflugasti ís- lenski styrktarsjóður- inn er minningarsjóður Thors Thors. Alls hafa rúmlega 500 íslendingar fengið samanlagt rúmlega milljón dollara í styrki frá honum til náms, framhaldsrann- sókna og þjálfunar í Bandaríkjun- um undanfarin 30 ár. íslendingar sem fá styrk eru núna mun fleiri hlutfallslega en frá hinum Norðurlandaþjóðunum. Þeir eru mjög hæfír og duglegir námsmenn, leggja stund á ýmiss konar fræðigreinar, allt frá örveru- fræði yfir í lögfræði, og eru í há- skólum um öll Bandaríkin." IMá athygli með sameig- inlegu átaki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.