Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Höfðatúni 12 «105 Reykjavík • Sími 552-6200 & 552-5757 • Fax: 552-6208
SEQLAQfcRÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 107 REYKJAVÍK Sími 5112200
RISA SAMK0MUTJALDI9
J iéMjíC/íj
Sallý: Verð fró kr. 75.000,-
Cppfyllnm allar .vérþarfir nm áferd, liti og lögim.
•1«
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/SJÓNVARP-ÚTVARP
Sjónvarpið ►22.25 Aake Sandgren
er af mörgum talin ein bjartasta von
Svía meðal kvikmyndaleikstjóra af
yngri kynslóð og mynd hans Slöngu-
byssan fór víða. Nýrri er Stór-
ir karlar og litlir (Stora
och smaa man, 1995),
þar sem lýst er ævin-
týraferð þriggja sæn-
skra djassgeggjara til
fyrirheitna landsins -
Bandaríkjanna. Aðalhlut-
verk Peter Engman, Torgny
Kingen Karlsson og Thommy
Berggren. Umsagnir liggja
ekki fyrir en ég veðja á góða
skemmtun.
Stöð2 ►15.00 Sjónvarps-
myndin Flóttinn til Norna-
fjalls (Escape To Witch Mounta-
in, 1995) e rendurgerð sam-
nefndrar Disneymyndar (1975)
um tvo munaðarleysingja sem
búa yfir dulrænum hæfileikum.
Nær ekki alveg sama sjarma og frun
myndin en þokkaleg afþreying samt.
Aðalhlutverk Robert Vaughn. ★ ★
Robert DeNiro sýnir
snilldarleik í kvik-
myndinni Brasilía.
Stöð 2 ►20.50 Fáir vestrænir sam-
tímaleikstjórar hafa náð viðlíka tökum
á og einbeitt sér jafn eindregið að
fantasíunni og Terry Gilliam, sem er
Bandaríkjamaður en starfaði lengi
með Monty Pythongenginu
breska. Fyrsta bíómynd hans
eftir að því samstarfi lauk
var Brasilía (Brazil, 1985)
sem er sérstæð blanda af
Kafka og Orwell með magn-
aðri myndsýn Gilliams og
segir frá litlu peði í skrif-
finnskubákni framtíðarþjóðfé-
lags, draumum hans og veru-
leika. Myndin er of löng og
sagan verður veikari eftir því
sem á hana líður, en stíllinn
er snilldarlegur, leikurinn líka
- hjá Jonathan Pryce og Ro-
bert DeNiro m.a. - og ekki verð-
ur Gilliam vændur um skort á
hugmyndaflugi. ★ ★ ★
Og hér með fara þessir pistlar í
sumarfrí.
Árni Þórarinsson
Morgunblaðið/Jim Smart
DAVID Bristow í góðum félagsskap,
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Leyndarmál Roan Inish
(The Secret of Roan Inish)k k 'h
Eigi skal skaða
(First Do No Harm)-k ★ ★
Ótti
(Fear)-k k 'h
Jack
(Jack)-k k
Vondir menn í vígahug
(Marshall Law)k'h
Helgi í sveitinni
(A Weekendin the Country)kí)
k k
Köld eru kvennaráð
(The First Wives Club)k k k
Ofbeldishefð
(Violent Tradition)k k'h
Óvæntir fjölskyldumeð-
limir
(An Unexpected Family)* ★ ★
Flagð undir fögru skinni
(Pretty Poison)k 'h
Eiginkona efnamanns
(The Rich Man’s Wife)k 'h
Djöflaeyjan
(Djöflaeyjan)k k k 'h
Plágan
(The Pest)k k k
*
Islenskur markaður er
mikilvægur
NÚ ER staddur hér á landi
David Bristow sem er dreifing-
arstjóri fyrirtækisins United
International Pictures (UIP).
UIP er í eigu þriggja stórfyrir-
tækja á bandarískum kvik-
myndamarkaði, Paramount,
Metro Goldwyn Mayer og Uni-
versal. Hlutverk UIP er að sjá
um dreifingu og markaðssetn-
ingu kvikmynda fyrirtækjanna
þriggja fyrir utan Bandaríkin.
David er hér á landi til að hitta
fulltrúa íslenskra kvikmynda-
húsa og ræða markaðssetningu
myndarinnar Horfinn heimur
(„The Lost World: Jurassic
Park“) sem er framhald af stór-
myndinni „Jurassic Park.“
„I dag er markaðssetning kvik-
mynda mjög mikilvæg. Fólk hef-
ur svo mikið val á afþreyingu
að það þarf að sannfæra áhorf-
endur um að kvikmynd sé þess
virði að fara á,“ segir David,
„það er hins vegar n\jög misjafnt
hvernig myndir eru markaðssett-
ar. Horfinn heimur er t.d. ein af
þeim myndum sem höfða til mjög
breiðs aldurshóps, allt, frá 12 til
80 ára. Markhópur myndarinnar
er því mjög stór. Sumar myndir
höfða til mun þrengri hóps og
því eru auðvitað aðrar áherslur
í markaðssetningu."
í starfi sínu sér David um
mjög víðfemt svæði sem nær frá
Evrópu til Afríku. Hann segir
það misjafnt hvernig staðið er
að markaðssetningu. „Stundum
höldum við fundi og boðum full-
trúa kvikmyndahúsa frá nokkr-
um löndurn til skrafs og ráða-
gerða. Þá er hægt að skiptast
á hugmyndum. Stundum ferð-
umst við á staðinn eins og ég
er að gera núna.“
David er nú á Islandi í fyrsta
skipti og líkar mjög vel. „Islend-
ingar fara mjög mikið í bíó og
því er markaðurinn mikilvægur
þrátt fyrir smæðina. Hér eru
dyggir kvikmyndaaðdáendur
og við viljum viðhalda því. Ein
af leiðunum sem við notum til
að koma til móts við íslendinga
er sú að við bjuggum til vegg-
spjöld með þýddum titli í stað
þess að hafa íslenska titilinn
fyrir neðan þann enska.“ David
segir markmiðið að sjálfsögðu
vera að enn fleiri komi og sjái
Horfinn heim en komu á „Ju-
rassic Park“ sem sló öll met.