Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.06.1997, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR GUÐMUNDURJ. GUÐMUNDSSON + Guðmundur J. Guðmundsson fæddist 22. janúar árið 1927 í Reykja- vík. Hann lést 12. júní síðastliðinn í Bandaríkjunum. Foreldrar hans voru Sólveig Jóhanns- dóttir frá Svigna- skarði í Borgarfirði, f. 7.8. 1897, d. 10.6. 1979, og Guðmundur Halldór Guðmunds- son sjómaður frá Hrafnseyrarhúsum í Arnarfirði, f. 4.10. 1887, d. 15.2. 1982. Bræður Guðmundar eru Jóhannes Óskar, f. 14.6. 1924, látinn, Friðrik, f. 9.11.1925, Jóhann, f. 16.2.1930. Eftirlifandi eigin- kona Guðmundar er Elín Torfadóttir fóstra og kennari, f. 22.9. 1927 í Reykjavík, Eignuð- ust þau fjögur börn sem öll eru á lífi, en þau eru: Gunnar Órn dýralæknir, f. 17.11. 1948, maki Elísabet Haralds- dóttir, og eiga þau þijú börn. Sólveig fulltrúi, f. 18.12. 1951, hún á tvö börn. Guðmund- ur Halldór deildarstjóri, f. 1.5. 1953, maki Jónína Jónsdóttir, og eiga þau fjögur börn, og Elín Helena fulltrúi, f. 20.1. 1962, sambýlismaður hennar er Runólfur Þór Andrésson, og eiga þau tvö börn. Guðmundur stundaði ýmis verkamannastörf á árunum 1941 til 1953 og var nokkur sumur lögregluþjónn á Siglu- firði. Árið 1953 varð Guðmund- ur J. starfsmaður verkamanna- félagsins Dagsbrúnar og tók einnig sæti í sljórn félagsins. Guðmundur J. var varaformað- ur Dagsbrúnar frá 1961 til 1982 og formaður félagsins frá 1982 til 1996. Guðmundur var formað- ur Verkamannasambands Is- lands frá 1975 til 1991. Hann átti sæti í miðstjórn Alþýðusam- bands íslands, stjórn fulltrúaráðs verkaiýðsfélaganna í Reykjavík frá 1953 og var um árabil í samn- inganefndum Verkamannasam- bandsins og Dagsbrúnar. Guð- mundur var einn af helstu for- ystumönnum íslenskrar verka- lýðshreyfingar áratugum saman og þátttakandi í gerð margra stærstu kjarasamninga sem gerðir voru á vinnumarkaði. Guðmundur var meðal þeirra sem forystu höfðu um gerð svo- Elsku heimsins besti afi minn! Þú ert demanturinn minn sem hefur skinið svo skært í mínu lífi. En hvað getur afastelpa sagt núna þegar ég fyrst átta mig á því hvað fólk virkilega meinar þegar það talar um að tilvera þess hrynji á einu augnabliki. Þú veist að ég elsk- aði þig út af lífinu og það náði ég að segja þér margoft. En sár er sorgin og söknuðurinn. Ég þakka Guði fyrir allar þær stundir sem við deildum saman. Koma þá fyrst í huga mér þær plokkfiskmáltíðir sem við áttum á Þrem Frökkum. Þar gátum við gleymt stund og stað. Eins og þú sagðir var það okkar tími. Þá spáðum við í lífið og tilver- una, sagði ég þér þar frá mínum hugsunum og lífí. Alltaf hafðir þú svör og ábendingar um leiðir sem vert væri fyrir mig að skoða. Enda ertu hetja, þótt þú vildir aldrei við- urkenna það. Það var nú heldur ekki að ástæðulausu að ég laug því að öllum sem heyra vildu að þú réðir landinu þegar ég var aðeins 6 ára. Minningarnar streyma um okkur sem eru mér svo dýrmætar á þessari stundu. Þegar ég 5 ára hljóp heim til þín og ömmu beint úr sunnudagsskólanum, settist í kjöltu þér, benti á hjarta þitt og sagði þér að Jesús bankaði alltaf á hjarta þitt. Þú brostir að mér, tókst utan um mig og bentir mér á að hann væri í hjarta okkar allra. Þetta fannst mér stórmerkileg uppgötv- un. Þegar við sátum tímunum sam- an og fórum yfir íslendinga sögum- ar fyrir próf og þú vissir alltaf meira og betur en bókin. Amma varð alltaf að koma inn í stofu við og við til að stoppa þig í frásagnar- kallaðra þjóðarsátt- arsamninga í febrúar árið 1990. Guðmundur tók mikinn þátt í sljórn- málum og var þing- maður Reykjavíkur fyrir Alþýðubanda- lagið 1979 til 1987, borgarfulltrúi á árun- um 1958 til 1962 og varaborgarfulltrúi 1962 til 1964. Guð- mundur var í mið- stjórn Sósíalista- flokksins 1953 til 1956 og í miðstjórn Alþýðubandalagsins óslitið frá 1956 til 1987. Guðmundur gegndi fjölmörgum trúnað- arstörfum um ævina. Hann sat í Hafnar- stjórn Reykjavíkur um árabil, var í stjórn Framkvæmdanefnd- ai' byggpngaráætlun- ar frá 1965 til 1977, stjórn Verka- mannabústaða í Reykjavík 1974 til 1982, auk fjölmargra annarra nefnda og ráða á vegum verka- lýðshreyfingarinnar. Guðmundur sat í síld- arútvegsnefnd 1991 til 1994. Þá var hann í sljórn SÁÁ frá stofnun þeirra sam- taka og í stjórn Verndar frá 1983 til 1989. Guðmundur sat allsheijarþing Sameinuðu þjóð- anna sem fulltrúi Alþingis og var einnig fulltrúi ASÍ hjá AI- þjóðavinnumálastofnuninni í Genf frá 1986 til 1991. Guðmundur sinnti nokkuð ritstörfum og eftir hann liggja einnig tvær endurminn- ingabækur skráðar af Ómari Valdimarssyni, sem komu út 1989 og 1990. Útför Guðmundar fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun klukkan 13.30. gleði þinni og benda þér á bókina. Eg gæti alveg gleymt mér og hald- ið endalaust áfram. En nú er komið að þeirri stund sem afastelpan mun efna loforð sitt, að passa hana ömmu, sem við elskum svo heitt. Elsku afí minn, það voru forrétt- indi mín að eiga þig sem afa. Ég elska þig. Þín alltaf, Sandra. Þegar ég minnist Guðmundar J. Guðmundssonar kemur mér fyrst í hug að við áttum eftir að tala um margt; það stóð alltaf til að hittast og fara yfir margt úr sameiginlegri sögu okkar og að rifja margt upp um þær rætur sem við áttum sam- an pólitískt og persónulega. Fyrstu kynni mín af Guðmundi voru á ræðumennskunámskeiði upp við súðina í Tjarnargötu 20; hann sýndi okkur hvernig mætti beita vasaklút og neftóbaki á örlagaríkum augna- blikum í ræðuhöldum. Það var eina ræðunámskeiðið mitt um ævina; ég hef því miður enn ekki lært að beita neftóbaki og rauðum vasaklút. En ræður Guðmundar voru magnaðar; röddin sterk og orðaforðinn beittur. Guðmundur var einn af leiðtogum Dagsbrúnar, yngstur þeirra sem þar réðu ríkjum er ég var sendur 16 ára til að smala í Dagsbrúnarkosn- ingum. Hinir voru Hannes og Eð- varð. Af Guðmundi stafaði ljómi sem var með þeim hætti að svokall- aðir menntamenn töldu hann ævin- lega jafningja sinn; hann var sjó- fróður í bókmenntum og kunni Kilj- an eins og allir almennilegir sósíal- istar á þeirri tíð. Hann gat stundum brugðið honum fyrir sig með leift- ursnöggum setningum sem voru eins og nokkát í boxi þegar mikið lá við á verkfallsvöktunum. Þá var eins gott fyrir auðvaldið að pakka saman og skammast sín. í fylking- unni hélt Guðmundur sig yfirleitt með skólafólki þó hann væri oft seinna á ævinni að tala um gáfu- mannafélagið með lítilli virðingu. Staðreyndin var sú að hann kunni vel að meta nauðsyn þess að ungt fólk gengi í skóla og leit á það sem lið í lífskjarabaráttu fátæks fólks á íslandi. Guðmundur var kosinn til forystu í samtökum ungra sósíalista með Inga og þeim félögum og seinna inn í bæjarstjórn Reykjavík- ur. Hann skipaði þar sæti verka- lýðshreyfingarinnar en Sósíalista- flokkurinn taldi það jafnan sjálfsagt að hafa leiðtoga reykvískra verka- manna annað hvort í borgarstjórn eða á alþingi eða á báðum stöðun- um. Guðmundur var í borgarstjórn góður málflytjandi og svo skemmti- legur félagi að af bar; fyndinn, hitt- inn og svakalega góður sögumaður. Fáir sögumenn hafa orðið á vegi mínum jafngóðir; fyrir mér er hann í_ flokki með Stefáni Jónssyni og Ola komma. Guðmundur jaki vann með föður mínum í Mjólkurstöðinni um skeið; þaðan voru margar sög- ur. Þeir voru útkastarar að emb- ætti eins og það hét þá. Þeir voru orðlagðir fyrir það að þurfa aldrei að taka á nokkrum manni. Þeir beittu mannviti og fortölum; það var fyrir stera. Guðmundur sagði mér ótal sögur af lögregluárum sínum, skemmti- sögur úr flokknum og hreyfingunni og af mönnum og málefnum. Við vorum samverkamenn í Lindarbæ um margra ára skeið. Hann fór fyrir minnihluta kjörnefndar á Tónabíósfundinum sæla sem var haldinn fyrir réttum 30 árum er Alþýðubandalagið í Reykjavík klofnaði í hið fyrra sinnið. Hann talaði fyrir okkur eins og það hét; taldi sig einn af uppeldissonum Ein- ars og var alltaf stoltur af. Við urðum svo smátt og smátt heima- gangar hvor hjá öðrum og skipt- umst á verkefnum; við pössuðum fyrir hann kött og hann borgaði í tolli. Svo falaðist hann eftir hesti hjá mér; því miður var hesturinn ekki falur. Ég sé hálfpartinn eftir því; sá hestur hefði borið Guðmund höfðinglega. Guðmundur var seinna kosinn á alþingi þegar Eðvarð hætti. Guð- mundur var fjórði Dagsbrúnarform- aðurinn sem sat á alþingi fyrir flokk íslenskra sósíalista; fyrst Héðinn, þá Sigurður Guðnason, svo Eðvarð Sigurðsson og síðast Guðmundur J. Reykjavíkurkjördæmi hefur alltaf talið sér í senn ljúft og skylt að tefla fram frambjóðendum sem hefðu skírskotun utan hins almenna flokksfylgis; svo er enn. Á alþingi vorum við samferða í átta ár við Guðmundur. Hann kom á óvart í þingstörfunum og tókst til dæmis ágæta vel að stýra erfiðri þingnefnd sem fulltrúi stjórnarflokks á tíma- bili ríkisstjórnar Gunnars Thorodd- sens. Það voru erfið ár bullandi verðbólgu sem seinna urðu okkur báðum hvatning til þess að taka erfiðar ákvarðanir með þjóðarsátt- inni síðar í tíð ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar þar sem Al- þýðubandalagið átti aðild að. í orð- ræðu á alþingi vógu orð Guðmund- ar þungt og þó kannski þyngst í þingflokknum þar sem hann hafði mikil áhrif. Ekki eru störfin á al- þingi alltaf ánægjuleg og stundum leiddist Guðmundi ákaflega á þing- inu og það var ekki alltaf auðvelt að vera heidur ungur formaður flokksins með ráðríka félaga og mörg stórveldi innanborðs í þing- flokknum. En hann lagði oft á sig mikla vinnu í þágu flokksins; var duglegur að ferðast um landið til fundarhalda í flokksfélögunum og á leiðinni sagði hann endalausar sögur; fyndnar sem alltaf verða mér í minni. Um daginn var ég að hugsa um þessar sögur og þá stað- reynd að enginn mun nokkurn tíma skrá þær. Þó verður saga hreyfing- arinnar aldrei fullskráð fyrr en þessar sögur eru líka komnar á pappír. Eini maðurinn sem hefur sýnt tilþrif í þeim efnum er Einar Már Guðmundsson rithöfundur. Og það eru tilþrif í lagi því Einar Már Guðmundsson er partur af blóði þess fólks sem bar hreyfinguna uppi. Guðmundur J. líka. Það var oft góður tími þegar Guðmundur var á þingi og við hitt- umst daglega. En það var ekki allt- af góður tími. Stundum töldu menn Guðmund vera fyrir sér og þá var að honum vegið. Stundum óvægið að ekki sé meira sagt; það var bein- línis gerð atlaga að mannorði hans. Þá var mér legið á hálsi fyrir að hafa slegið skjaldborg um Guð- mund, var gagnrýndur sem formað- ur flokksins fyrir linkind í garð hans. Ég er enn þakklátur fyrir að hafa haft þrek til að sýna þá linkind. Guðmundur og Elín voru alger- lega sem ein manneskja. Það var hollt að kynnast sambandi þeirra. Þau gáfu hreyfingunni, málstað réttlætis og jafnréttis, sósíalista, allt sem þau gátu um áratuga skeið. í endurgjald fengu þau of fátt að ekki sé lengra.leitað eftir lýsingar- orðum um það smáa. Ég var ekki alltaf sammála Guð- mundi og Guðmundur ekki mér. Aðallega greindi okkur á um menn, en ekki um málstað. Svo lengi stóðu kynni okkar að hann er mér mikil- vægur hluti þess iífs sem ég hef lifað. Og lærdómsríkur. EIlu, börnum og tengdabörnum, barnabörnunum öllum, flyt ég fyrir mína hönd og konu minnar hlýjar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Al- þýðubandalagsmanna í Reykjavík færi ég honum þakkir sem þing- manni okkar, borgarfulltrúa og verkalýðsleiðtoga. Mikil kempa er fallin en baráttan heldur áfram. Svavar Gestsson Mér hefur sjaldan verið jafn brugðið og þegar ég frétti að eld- klerkurinn, vinur minn, Guðmundur J. Guðmundsson, væri fallinn frá, ég leyfi mér að segja langt um ald- ur fram. Margir urðu til að samfagna honum nýverið á sjötugs- afmæli hans og ég veit að ýmsir deildu þeirri von minni að þau Elín gætu nú tekið við að njóta lífsins. Ég kynntist Guðmundi jaka seint, því miður alltof seint. Samband okkar hófst að hans frumkvæði á þann ánægjulega hátt að þegar mikið lá við, á litiu blaði sem ég ritstýrði, hringdi hann til að stappa í mig stálinu. Hann hafði réttilega reiknað út að sumir af forystu- mönnum Alþýðuflokksins, sem héldu að þeir ættu að stjórna Aþýðublaðinu, væru ekki allskostar ánægðir með skrif mín. Hann átti eftir að hringja oftar og ég átti eftir að njóta þeirra forréttinda að heyra hann ausa af gnægtarbrunni sagna um liðna tíð, menn og mál- efni, sem ég þekkti sjálfur einungis af sögubókum. Hann var frábær sögumaður og Ljósmyndasafn Dagsbrúnar ELDSKÍRNINA í verkalýðsbaráttunni fékk Guðmundur J. Guðmundsson í verkfalíinu 1955. Hér má hins vegar sjá hann í miðjum hópi verkfallsmanna á hafnarbakkanum 1961.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.